Morgunblaðið - 19.05.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.05.1998, Blaðsíða 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 C 5p KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Stórleikur á Skaganum Fjórir leikir eru á dagskrá efstu deildar karla í kvöld og með þeim lýkur fyrstu umferð, en ís- landsmótið hófst í gærkvöldi með leik Þróttar og Islandsmeistara ÍBV. A Akranesi munu heimamenn taka á móti bikarmeisturum Kefl- víkinga, Grindvíkingar taka á móti nýliðum ÍR úr Breiðholti, KR-ingar fá Valsmenn í heimsókn í Frosta- skjólið og loks eigast Leiftur og Fram við i Ólafsfirði. Allir leikirnir verða leiknir á grasi, eftir því sem best er vitað og hefjast kl. 20. Morgunblaðið fékk Pétur Orms- lev, þjálfara 1. deildar liðs FH, til að spá í spilin fyrir leiki kvöldsins. Prófraun fyrir Kefivíkinga „Hér er um afar athyglisverðan leik að ræða. Skagamönnum er spáð góðu gengi í sumar og reynslan ætti að fleyta þeim langt, eins og endranær. Keflvíkingar eru auðvitað bikarmeistarar og nýkrýndir meistarar meistaranna, eftir mjög sannfærandi sigur á ÍBV á dþgunum. Ég held að þetta verði heilmikil prófraun fyrir Keflvíkinga, þeir byrjuðu síðasta tímabil geysilega vel og spurningin er hvernig þeim tekst að undirbúa sig fyrir þessa erfiðu byrjun. Skagamenn eru með úrvals mannskap og ég hallast að því, að um markaleik verði að ræða. Heimavöllurinn ræður þó líklega úrslitum.“ Þýðingarmíkill leikur í Grindavík „Þessi leikur gæti reynst mjög þýðingarmikill þegar upp verður staðið, enda má búast við að bæði lið muni berjast við botninn í sumar. Grindvíkingar hafa átt í erfiðleik- um í vorleikjunum, og verið allt annað en sannfærandi. Hins vegar hafa þeir sýnt það á undanförnum árum með baráttu og seiglu, að enginn skyldi afskrifa þá í barátt- unni. ÍR-ingar munu eflaust koma spenntir til leiks, enda nýliðar í deildinni og hafa allt að vinna. Reynsluleysið verður þeim hins vegar líklega að falli í þessum leik og ég býst við næsta öruggum heimasigi-i.“ Spennandi að fylgjast með Eiði Smára „Ég held að KR-ingar muni vinna þennan leik nokkuð þægilega. Vals- menn voru geysilega frískir í fyrstu vorleikjunum, en síðan fannst mér þeir ekki sannfærandi gegn Fram í úrslitum Reykjavíkurmótsins. Þar kom vel í ljós, að þá vantar tilfinn- anlega markaskorara og það mun há þeim í sumar. KR-ingar eru sterkir og pressan er minni á þeim nú en oftast áður. Þeir hafa verið að taka inn nýja menn og verður forvitnilegt að sjá hvernig þeir koma út. Spennandi verður að sjá hvort Eiður Smári Guðjohnsen muni koma eitthvað við sögu. Ef hann nær sér á strik, ráða fáir við hann og mín tilfinning er sú, að hann eigi eftir að krækja í mörg stig fyrir KR í sumar.“ Miklar breytingar hjá Leiftri „Heimamenn í Leiftri eru með mjög breytt lið frá því í fyrra og ég hef ekki séð mikið til þeirra á undir- búningstímabilinu. Þeir verða lík- lega í einhverjum vandræðum í sumar, enda tekur ávallt tíma að stilla mannskapinn saman, sérstak- lega þegar um jafn rosalegar breyt- ingar er að ræða og hjá þeim milli ára. Framarar eru með skemmtilegt lið, en um leið brothætt. Þannig munu þeir líklega verða fremur sveiflukenndir í sumar. Þeir eru reynslunni ríkari eftir síðasta tímabil og er spáð fjórða sæti í deildinni. Þeir hafa fengið Baldur Bjarnason til liðs við sig og hann getur gefið liðinu nýja möguleika, nái hann sér á strik. Ég hallast að útisigri Framara í þessum leik, en munurinn verður eflaust ekki mik- ill.“ Sýnt í fréttum á báðum stöðvum [áðar sjónvarpsstöðvarnar, Stöð 2 og Ríkissjónvarpið, sýndu kafla úr leik Þróttar og IBV í efstu deild karla í knattspyrnu, Landssímadeildinni, í seinni frétta- tímum sínum í gærkvöldi, þrátt fyrir að ekki hafa enn náðst samn- ingar um sýningar frá leikjum við þýska fyrirtækið UFA, sem keypti réttinn af Knattspymusambandi Islands. „Okkar afstaða er sú að séu viðburðir opnir öllum almenningi getum við sýnt fréttamyndir frá þeim. Við teljum að ekki sé hægt að taka þann rétt af okkur,“ sagði Ingólfur Hannesson, íþróttastjóri RÚV, í gærkvöldi. Auk þess að kaupa rétt til beinna útsendinga frá leikjum keypti UFA einnig rétt til svokallaðra fréttamynda af KSÍ - en slíkt kallast allt að þriggja mínútna myndefni frá hverjum at- burði. „Stofnunin tekur þessa af- stöðu og það er engan bilbug á okkur að finna,“ sagði Ingólfur. Guðjón Guðmundsson, íþrótta- fréttamaður á Stöð 2, sem var við vinnu á Laugardalsvelli í gærkvöldi, tók í sama streng. „Við ætlum að þjóna íslenskum áhorf- endum eins vel og við getum; sýna mörkin úr leiknum og viðtöl," sagði Guðjón. Hreinn Hringsson gerði tvö mörk í fyrsta leik sínum fyrir Þrótt Gefur mér aukið sjálfs traust Hreinn Hringsson var hetja Þrótt- ara í gær og gerði tvö af þremur mörkum liðsins gegn IBV. „Það er gaman að skora tvö ValurB mörk í fyrsta leik Jónatansson með nýju liði. Það er skrífar gott að byrja svona vel og gefur manni aukið sjálfstraust í framhaldinu," sagði Hreinn sem lék áður með Þór frá Akureyri. Hreinn sagðist nokkuð ánægður með leikinn, en sárt að hafa ekki unn- ið úr því sem komið var. „Ég er ánægður með baráttuna í liðinu en það var slæmt að fá þetta mark á okkur í lokin, en það var ekkert hægt að gera við þessu jöfnunarmarki Sig- urvins. Það hefði verið gaman að vinna Islandsmeistarana í fyrsta leik af því að við vorum svo nálægt því. Við höfum það að leiðarljósi að við gefumst aldrei upp. Þar sem við erum nýliðar í deildinni þurfum við að berj- ast á fullu allar níutíu mínúturnar og það gerðum við í þessum leik,“ sagði Hreinn. Þið ætlið væntanlega að halda áfram á sömu braut og halda sætinu í deildinni? „Við ætlum okkur miklu meira en það. Við ætlum að vinna þessa deild og ekkert annað.“ Willum Þór Þórsson, þjálfari Þrótt- ar, var að vonum ánægður með sína menn. „Þetta var virkilega góður leik- ur hjá báðum liðum. Leikmenn höfðu áræði og það er jákvætt. Ég er ánægður með mína stráka, nema að ég hefði viljað fá öll þrjú stigin. Það tók okkur smá tíma í byrjun að kom- ast inn í leikinn en í síðari hálfleik vorum við betri. Það eitt veit ég, að það er mikil og góð stemmning til í þessum hópi og hann gefst aldrei upp,“ sagði Willum. „Leikurinn spilaðist eins og ég bjóst við. Eyjamenn hafa verið nokkuð fastir í leikaðferðinni, 4-3-3, og við vorum búnir að undirbúa okk- ur fyrir það. Baráttan í liðinu var gríðarleg og það sýnir styrk okkar að hafa gengið óánægðir af velli eftir jafntefli á móti íslandsmeisturunum," sagði þjálfarinn. En var nokkuð hægt að gera við jöfnunarmai-ki ÍBVílokin? „Það eina sem var hægt að gera til að koma í veg fyrir það var að brjóta ekki á leikmanninum. Þeirra eini möguleiki var að fá eitthvað færi í þessum dúr til að skora. Það má þvi segja að það hafi verið klaufalegt hjá okkur að gefa þessa aukaspymu, en það er alltaf hægt að vera vitur eftir á.“ Amór Guðjohnsen á skotskónum ARNÓR Guðjohnsen kom félögum sinum í Örebro á bragðið f 4:0 sigri á Gautaborg í 7. umferð sænsku úrvalsdeildariimar á sunnu- daginn. Var þetta fyrsti sigur Örebro í deild- inni í vor og við sigurinn lyftist það upp úr neðsta sæti deildarinnar, hefur nú 6 stig. Arnór gerði mark sitt á 16. mínútu, en skipti síðan út af sjö mínútum fyrir leikslok. Malmö FF vann stórsigur á Halmstad í gærkvöldi, 5:0. Sverrir Sverrisson lék með Malmö, en náði ekki að skora. Ólafur Örn Bjarnason kom inná sem varamaður á 85. mín. Stefán Þórðarson lék með Öster, sem tapaði í Elfsborg 2:1. Vastra Frölunda, sem er á toppnum í Svíþjóð með 15 stig, vann Hácken úti 1:0. Hels- ingör og Norrköping eru með 12 stig, Örgryte er með 11, Efsborg 10. Hammarby, sem er með 9 stig, leikur í kvöld. Morgunblaðið/Ásdís ÞJÓÐVERJINN Jens Paeeslack gat gert það sem hann vildi eftir hálftíma leik og var ekkí í vandræðum með að skalla í net Þróttara. Páll Guðlaugsson, þjálfari Leifturs: Sjö er happa- talan mín Nú er gaman, mótið að byrja, völlurinn sá besti á landinu um þessar mundir og hillir loksins undir að allur mannskap- urinn komist í höfn,“ sagði Páll Guðlaugs- son þjálfari Leiftursmanna, aðspurður um hvernig honum litist á úivalsdeildina í knattspyi-nu, sem hófst í gærkvöldi og kemst í fullan gang í kvöld með síðustu fjónim leikjum 1. umferðar. Páll tók við Leiftursliðinu sl. haust eftir að hafa þjálfað knattspyrnumenn í Færeyjum um margra ára skeið með góð- um árangri. Miklar breytingai- hafa orðið á liðinu síðan í fyrra, vel á annan tug leik- manna hefur róið á önnur mið og fjöldi leikmanna komið í þeiiTa stað, þar á meðal tveir Færeyingar, einn Ní- geríumaður og einn Skoti. Páll segir að erfiðlega hafi gengið að ná öllum þessum mannskap saman. „Það hefur verið heil- mikið basl. Nokkrir hafa verið við vinnu hér á Ólafsfirði, einhverjir við nám á Ak- ureyri og í Reykjavík og svo leika menn líka erlendis. Enn eru ekki allir komnir, Baldur Bragason er enn staddur í Grikk- landi, þar sem hann hefur leikið í vetur og svo er Uni Arge ekki væntanlegur ft-á Danmörku fyrr en á fimmtudag.“ Páll segist vera hæfilega bjartsýnn á tímabilið, liðið hafi leikið ágætlega í deild- arbikarnum, þrátt fyrir að hafa aðeins verið með tólf leikmanna hóp. „Ég er hins vegar ekki með of miklar væntingar í bjTjun; einhvern tíma tekur fyrir okkur að stilla strengina saman og finna rétta taktinn. Framarar verða erflðir í kvöld, þeir eru með sterkt lið og frábæran þjálfara. Okkar kostur er hins vegar sá, að ég er eini maðurinn sem þekki styrk liðsins, við erum kannski nokkuð óþekkt stærð og við gætum því hugsanlega náð að koma einhverjum á óvart.“ Páll segir spá forráðamanna, fyrirliða og þjálfara liðanna ekki hafa komið sér á óvart. „Ég er sáttur við að okkur sé spáð sjöunda sætinu, enda hefur sjö alltaf verið happatalan mín. Eyjamenn og Skaga- menn verða sterkir, þótt þessi lið hafi ekki verið sérlega sannfærandi nú í vor, en ég gæti trúað því að KR og Fram verði spútníklið mótsins, bæði liðin hafa góða leikmenn, sem geta spilað skemmtilega knattspyrnu. Ég hef sömuleiðis fulla trú á mínum mönnum, við eigum önigglega eft- ir að koma mörgum skemmtilega á óvart,“ sagði Páll Guðlaugsson. 0:1 l ctt ulcui uiai rv 1:1 uicu au öiwia 1-2‘ ■ wámms íiuu iviu ct min 2:2i 3.0 wmm f 3:3! Þjóðverjinn Jens Pa- eeslaek sendi boltann inn fyrir vörn Þróttar þar sem Steingrímur Jóhannesson náði honum og skaut að marki. Fjalai- Þorgeirsson varði en hélt ekki boltanum, Steingrímur fylgdi á eftir og skoraði af öryggi með vinstri fæti rétt utan markteigs á 6. mínútu. Á 11. mínútu send Þor- steinn Halklórsson inn fyr- ir vörn ÍBV frá hægri. Hreinn Hringsson náði boltanum eftir varnarmistök og átti ekki í vandræðum með að skora úr vítateignum. iGunnar Sigurðsson 'sparkaði boltanum út á ISteingn'm Jóhannesson, sem var á vinstri kanti. Hann gaf í, lék nánast upp að endamörkum og gaf síðan fyrir markið. Þar var Jens Paeeslack einn og óvaldaður við markteig og skallaði í markið á 29. mínútu. iÞorsteinn Halldórsson gaf fjTÍr mark ÍBV frá hægri lá 76. mínútu. Páll Einai-s- son skallaði áfram á Tómas Inga Tómas- son sem stýrði boltanum með höfðinu í netið. jGestur Pálsson tók horn- spyrnu frá vinstri og gaf Ifyrir mark ÍBV þar sem Hreinn Hringsson skallaði í hornið fjær á 82. mínútu. I íslandsmeistarar Eyja- jmanna fengu aukaspymu 'rétt utan vítateigs á 90. mínútu eftir brot á Steingrími. Sigurvin Ólafsson tók spymuna og setti boltann með hægri fæti í hornið uppi, hægra megin við markvörðinn. Dormagen féll BAYER Dormagen, lið Héðins Gilssonar og Róberts Sighvats- sonar, tapaði síðari leiknum við Schutterwald 25:19 á sunnudag- inn og féll þar með í 2. deild. Dormagen vann fyrri leikinn 24:21 á heimavelli fyrir viku. Scliutterwald tekur þar með sæti í 1. deild er keppni hefst í haust. Þess má geta á Róbert lék í fyrra með Schutterwald en færði sig um set er liðið í féll í 2. deild. Schutterwald hafði yflrhöndina í leiknum, var fimm mörkum yfir í liálfleik, 12:7. Héðinn Gilsson gerði 6 mörk fyrir Dor- magen. A næstu lciktíð leika þrír íslendingar með Dormagen því ný- lega gerði Daði Hafþórsson tveggja ára samning við félagið. Fótbolta- vefur Morgun- blaösins Sex mörk í jafnteflisleik nýliða Þróttar og meistara Eyjamanna Byvjunin lofar gódu ÞEGAR knattspyrna er annars vegar er varla hægt að biðja um meira en skemmtilegt spil, góð mörk, baráttu og leikgleði auk þess sem góða veðrið skemmir aldrei fyrir. Þessi atriði voru að mörgu leyti til staðar á Laugardalsvelli í gærkvöldi þegar keppni á íslandsmótinu hófst með fyrsta leik í Landssímadeildinni eins og efsta deild karla heitir í ár. íslandsmeistarar ÍBV sóttu nýliða Þróttar heim og náðu meistararnir að tryggja sér stig með jöfn- unarmarki á síðustu mínútu, en úrslit urðu 3:3 í fjörugum og spennandi leik. Fjrsta leik fylgir gjaman öðruvísi spenna en menn eiga almennt að venjast, jaftit utan sem innan vallar. ■■■BH Umræða um sjón- Steinþór varpsmál - hvort Guðbjartsson sýnt verði frá leikj- skrifar unum í sumar eða ekki - hefur magnast með hverjum deginum að undanfömu og hvort sem staðan þar hafði áhrif eða ekki var sett áhorfendamet á heimaleik hjá Þrótti - 1.847 áhorfendur vora á vellinum. Og ekki bar á öðra en áhorfendur hafi skemmt sér ágæt- lega, þó „flugeldasýningin" í hléi hafi ef til vill ekki alveg fallið inní umgjörðina 18. maí. Til að byrja með var líka spenna hjá nýliðunum inná vellinum. Þeir vora ekki tilbúnir áhlaupinu þegar Steingrímur Jóhannesson gerði fyrsta markið en sýndu fimm mínútum síðar að meisturam getur líka fatast fluguð. Eftir jöfnunar- mark Hreins Hringssonar vora Eyjamenn ákveðnari og því kom annað mark þeirra eftir hálftímaleik ekki á óvart en meiri athygli vakti hvað Jens Paeeslack hafði gott næði áður en hann skoraði. Skömmu síð- ar fór hann illa að ráði sínu eftir góðan undirbúning Steingríms og eftir að sú sókn rann út í sandinn var eins og slokknaði á Eyjamönn- um. Það kunnu Þróttarar vel að meta. Þeir vora miklu ákveðnari í síðari hálfleiknum og mátti jafnvel halda að gestirnir væru að bíða eftir jöfnunarmarkinu. Þeir þurftu ekki að bíða ýkja lengi, Eyjamaðurinn Tómas Ingi Tómasson, sem hefur komið víða við eftir að hann hleypti heimdraganum, sendi kveðju til Eyja með skallamarki og Hreinn endurtók leikinn sex mínútum síðar. Sigurvin Ólafsson bjargaði heiðri Islandsmeistaranna með glæsilegu jöfnunarmarki úr aukaspymu á síð- ustu mínútu. Þetta var að mörgu leyti ánægju- leg kvöldstund. Gleðilegast var að sjá bros hjá fleiri en einum og fleiri en tveimur leikmönnum, jafnvel bros vegna mistaka. Auðvitað verða menn að taka hlutunum hæfilega létt og menn í þessum félögum eru þekktir fyrir að líta frekar á björtu hliðamar sem er auðvitað hið besta mál. Annað ánægjulegt atriði var að prúðmennskan var í hávegum höfð. Ruddaleg brot sáust ekki. Menn hugsuðu um boltann en ekki mótherj- ann. Gott mál. I þriðja lagi var gaman að sjá sex góð mörk. Þó markalausir leikir geti oft verið skemmti- legir snýst þessi leikur um að skora og áhorfendur vilja sjá mörk auk þess sem þau þykja gott sjónvarpsefni. í fjórða lagi sýndu liðin að gera má ráð fjrir mikilli spennu í sumar. Þrótturam var spáð fallsæti en Eyjamönnum íslandsmeistaratitlin- um og að þessu sinni vora nýliðarn- ir nær sigri. Ennfremur má ætla að gaman verði að fylgjast með þessum liðum í sumar. Baráttan var aðal Þróttara og hún á eftir að rejmast þeim mik- ilvæg á tímabilinu en sterk vörn og hraðar gagnsóknir verða eflaust einkennandi íyrir Eyjamenn. Við sjáum hvað setur. Engin útvarps- lýsing til Eyja EYJAMENN ætluðu að vera með beina útvarpslýsingu til Vest- mannaeyja af leik Þróttar og ÍBV á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Kosn- ingaútvarp Vestmannaeyja hafði fengið leyfí til að útvarpa beint til Eyja og hafði pantað símatengingu frá Landasímanum. En þegar til kom náðist ekki að tengja því eng- inn símatengill virkaði í blaða- mannastúkunni. Það var því ekki hægt að lýsa leiknum vegna tækn- iörðugleika. Menn höfðu á orði að Landssím- inn hafi sjálfur klúðrað því að hægt væri að lýsa fyrsta leiknum í Lands- símadeildinni! Ajax burstaði Eindhoven AJAX tók PSV Eindhoven hreinlega i kennslustund í knattspyrnu í úr- slitaleik hollensku bikarkeppninnar, lokatölur 5:0. Finninn Jari Litmanen skoraði þrennu og réð vöm PSV ekkert við hann, en eins og tölurnar gefa til kynna var hún ekki upp á marga fiska. Jaap Stam lék sinn síðasta leik með PSV, en hann hefur sem kunnugt er gengið til liðs við Manchester United. Stam vissi ekki sitt rjúkandi ráð og ekki bætti úr skák þegar félagi hans í vörninni, Andre Ooijer, var rekinn af leikvelli 15 nn'n. fjrir leikslok. opnaður í GÆR opnaði Morgunblaðið fótboltavef sem er ný þjónusta fyrir lesendur Morgunblaðsins á Netinu. Vefnum er ætlað að fylgjast með helstu atburðum í sumar er varða knattspymu. Byrjað verður á því að fjalla um Landssímadeildina sem hófst í gær og í framhaldi af því verða heimsmeistarakeppninni gerð svipuð skil, en hún hefst 10. júní nk. Hægt verður að komast á vefinn af Fréttavef Morgun- blaðsins, með því að fara í val- gluggann, þar sem stendur Veldu hér, eða með því að slá inn slóðina http:/Avww.mbl.is/ boltinn. Á Fótboltavef Morgunblaðs- ins er unnt að nálgast á einum stað fréttir úr boltanum, töl- fræði þar að lútandi og upplýs- ingar um lið og leikmenn. Þar verða einnig aðrar fótboltafi-étt- ir. Hér á eftir fer frekari lýsing á notkun og virkni vefjarins: Forsíða Fótboltavefjarins er eins konar inngangur að vefn- um. Þar má nálgast á einum stað allar helstu slóðir og tengla inn á einstakar síður vefsins. Fyrst um sinn er aðeins fjallað sérstaklega um Landssímadeildina. Á for- síðunni birtast fótboltafréttir, innlendar sem erlendar. Þar er einnig hægt að leita að upplýs- ingum um einstaka leikmenn og lesa stuttar fréttir af fólkinu í boltanum. Á síðu, sem nefnist deildin, er sérstaklega fjallað um Lands- símadeildina. Þar er að finna þá umferð, sem verið er að leika, eða þá síðustu ef ný er ekld haf- in. Unnt er að smella á nöfn liða til þess að fá frekari upplýsing- ar um þau. Taldar eru upp allar umferðimar í Landssímadeild- inni, leikir, tíma- og staðsetn- ing. Einnig verða færðar inn markatölur jafnóðum. Meðan á leikjum stendur birtist sérstak- ur stöðugluggi, þar sem nýjustu markatölur bhtast jafnharðan. Það er einfalt mál að fletta upp frammistöðu einstakra leikmanna á tölfræðisíðunni. Þar er hægt að athuga hverjir hafa skorað flest mörk, leik- menn jafnt sem lið, hverjir hafa fengið flest spjöld, gul og rauð. Einnig er hægt að athuga hvaða dómarar gefa flest spjöld og eins hjá hverjum flest mörk eru skoruð. Ef smellt er á nafn leikmanns í einhverjum list- anna má svo sjá í hvaða leik var skorað eða fengið spjald og aðr- ar viðeigandi upplýsingar. Á vefnum era stuttar lýsingar á liðum, merki þeirra og leik- mannaskrá. Einnig er þar tafla yfir leiki liðanna í Landssímadeild- inni nú í sumar. Hægt er að smella á nöfn leikmanna til þess að fá frek- ari upplýsingar um þá. Þá er þar hnappur, sem vís- ar á síðu um sögu félagsins og era þar einnig taldir upp titlar og afrek félagsins. Sögð eru deili á einstökum leik- mönnum, mörk þeirra og spjöld á tímabilinu tíund- uð, auk myndar af þeim. D Nettcapp: Bottauefui Morgunölafttint

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.