Morgunblaðið - 19.06.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.06.1998, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 135. TBL. 86. ÁRG. FÖSTUDAGUR19. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Serbar seg;ja fréttaflutning af Kosovodeiluiini vera vestrænan áróður Clinton Aðskilnaðar- sinnum ráðið frá árásum Washington, Helsinki, Pristina, London. Reuters. BANDARÍKIN réðu aðskilnaðar- sinnum í Frelsisher Kosovo (KLA) í gær frá því að hefja frekari að- gerðir gegn hersveitum Serba því þær yrðu einungis til að gefa Slobodan Miiosevic, forseta Jú- góslavíu, nýja afsökun fyrir harka- legum aðgerðum í Kosovo og gera deiluna enn erfiðari en nú er. Sagði James Rubin, talsmaður utanríkisráðuneytisins bandaríska, að KLA yrði að hafa í huga að að- gerðir af þeirra hálfu gætu kostað saklausa Albani lífið ef Serbíuher brygðist hart við þeim. Rubin lagði samt sem áður áherslu á að nú stæðu öll vopn á Milosevic. „Bolt- inn er nú hjá Milosevic. Hann þarf að skapa þær aðstæður sem gera raunverulegar samningaviðræður mögulegar.“ Barist á landamærum Kosovo Javier Solana, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), sagði i gær að NATO myndi gera sitt til að tryggja áætlun um frið í Kosovo, sem Boris Jeltsín Rúss- landsforseti og Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti sömdu um í Moskvu í vikunni. Sagðist hann þó hafa orðið fyrir nokkram vonbrigð- um með að ekki skyldi hafa verið samið um brottflutning herliða Serbíu frá Kosovo. Ráðist var að lögreglustöð í ná- grenni Pristina í gær og féll einn serbneskur lögreglumaður í árásinni sem Serbar kenndu Kosovo-Albönum um. Jafnframt er talið að fimm Albanir hafi fallið í skærum á landamærum Albaníu og Kosovo í gær. Serbíustjórn gerði fyrr í gær sitt ýtrasta til þess að svara gagnrýni, sem sett hefur ver- ið fram á alþjóðavettvangi, á harkaleg viðbrögð hennar við að- skilnaðarsinnum í Kosovohéraði. Kváðust stjórnvöld tilbúin til við- ræðna, en Albanir vildu ekki ræða um frið. Amnesty ályktar Rúmlega 300 manns hafa fallið í átökum i héraðinu frá því í febrúar sl., er serbneska lögreglan hóf að beita vopnavaldi gegn byssumönn- um í Frelsisher Kosovo. Aleksand- ar Vucic, upplýsingamálaráðherra í stjórn Serbíu, sagði í gær á frétta- mannafundi í Pristina, höfuðstað Kosovo, að fréttaflutningur er- lendra fjölmiðla af átökunum væri lítið annað en áróður sem endur- speglaði viðhorf vestrænna stjórn- valda og albanska meirihlutans í héraðinu. Fjöldi Albana hefur flúið Kosovo undanfarið og segja þeir serbnesku öryggislögregluna hafa beitt harkalegum aðferðum. Mannrétt- indasamtökin Amnesty Inter- national gáfu í gær yfirlýsingu þar sem farið var fram á aðgang að bænum Deeane í Kosovo en þau segjast óttast að þar standi herir Serba fyrir „pyntingum eða þaðan af verra.“ IMF frestar greiðslu til Rússa Moskvu, Washington. Reuters. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, IMF, tilkynnti í gær að ákveðið hefði verið að fresta greiðslu um 670 milljóna Bandaríkjadala, sem svar- ar til 47 milljarða ísl. kr., til Rússa, vegna þess að þeir hefðu ekki stað- ið við loforð sín um efnahagsum- bætur. Sama dag kynnti Zadorov, íjármálaráðheiTa Rússa, umfangs- mikinn niðurskurð hjá hinu opin- bera. Boðaði hann að 60 - 70.000 ríkisstarfsmönnum yrði sagt upp í árslok og að dregið yrði úr orku- notkun hins opinbera um 30%. Er gert ráð fyrir að spara um 42 millj- arða rúblna í ríkisrekstri, um 480 milljónir ísl. kr. Talsmenn IMF kváðust búast við því að málið yrði tekið fyrir í næstu viku, „til að gera Rússum kleift að hrinda nauðsynlegum að- gerðum af stað“. Að því loku myndu fulltrúar IMF halda til við- ræðna við rússnesk stjórnvöld. Hagfræðingar lýstu í gær von- brigðum sínum með ákvörðun IMF en á móti kemur að Rússum hefur tekist að selja ríkisskuldabréf sem þeir gáfu út fyrir 2,5 milljarða dala, um 177 milljarða ísl. kr. Tsjúbajs gerður sérlegur samningamaður IMF endurskoðar aðstoð sína við Rússa árfjórðungslega og búast margir við því að sjóðurinn muni veita þeim aukalán á næstunni. Míkaíl Zadornov, fjármálaráðherra Rússa, hefur lýst því yfir að Rúss- ar muni reyna að tryggja sér lán að andvirði 10 milljarða dala, rúma 700 milljarða. I því skyni skipaði Borís Jeltsín Rússlandsforseti, Anatolí Tsjúbajs, fyrrverandi að- stoðarforsætisráðherra, sérlegan samningamann stjórnarinnar við erlendar fjármálastofnanir. Tsjúbajs er einn helsti boðberi einkavæðingar í Rússlandi en afar umdeildur í heimalandi sínu. Reuters MEIRA en hundrað mæður komu saman fyrir framan aðalstöðvar hers Júgóslavíu í Belgrad í gær til að krefjast þess að synir þeirra sem gegna herþjóilustu í Kosovo yrðu kallaðir frá óeirðasvæðinu. 'omik úamunwn Reuters vill sættir við Irani Washington, Madrid, Teheran. Reuters. BILL Clinton, Bandaríkjaforseti, ít> rekaði í gær vilja sinn til að bæta samskipti við Iransstjórn. Sagði Clinton að stjórn sín vildi ná „raun- verulegum sáttum“ við íslamsríkið og að slíkar sættir myndu byggjast á gagnkvæmri vii'ðingu og að íranir hættu andstöðu við friðarumleitanir í Mið-Austurlöndum. Kamal KhaiTazi, utanríkisráðherra írans, hafði fyrr í gær tekið ræðu Ma- deleine Albright, utanríkisráðheiTa Bandaríkjanna, á miðvikudag heldur fálega og sagt að Bandaríkin yrðu að láta af „fjandsamlegri stefnu" sinni í garð Irana áður en vænta mætti batnandi samskipta landanna tveggja. Lið Irans og Bandaríkjanna eiga að leika á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu á sunnudag og vonast margir til að leikurinn marki þátta- skil í samskiptum landanna. Þjálfari írana, Jalal Talebi, vildi hins vegar ekki ræða pólitískt mikilvægi leiksins við blaðamenn í gær. ■ Albright vill bæta/26 Mann- skætt bjarn- dýr fellt Helsinki. Morgunblaðið. TVÖ bjarndýr voru felld í Ru- okolahti í suðausturhluta Finn- lands í gær eftir að annað þeÚTa réðst á skokkandi 42 ára gamlan mann og drap hann á miðvikudag. Er þetta í fyrsta skipti á þessari öld sem bjarn- dýr hefur drepið mann í Finn- landi svo vitað sé. Ekki er leyfilegt að veiða bjarndýr í Finnlandi þó að fjöldi þeii'ra sé á annað þúsund. Dýr- in eru yfirleitt hlédræg og fela sig er þau verða vör við manna- ferðir. Er talið að birnan hafi ráðist á manninn af því að henni fannst hann ógna húninum. Það voru 27 vopnaðir menn og fjöldi hunda sem eltu birnina um skóglendi eina 2 km frá þéttbýliskjarna Ruokolahti. Að sögn veiðimanna var fullorðna dýrið mjög æst og gerði sig lík- legt til að ráðast á þá. Frekari aðgerða Japana beðið Kosið í Tékklandi UNG stúlka lék sér í gær við strætisvagnaskýli í Prag, höfuð- borg Tékklands, sem þakið er aug- lýsingum vegna þingkosninga í landinu sem fram fara í dag. Gert er ráð fyrir vinstrisveiflu í kosn- ingunum en ólíklegt er að niður- stöður kosninganna bindi enda á þá óvissu í stjórnmálum landsins sem ríkt hefur undanfarin misseri. Skv. skoðanakönnunum standa Sósíaldemókratar best að vígi en þeir hafa aldrei átt aðild að ríkis- stjórn í Tékklandi. í humátt á eftir þeim fylgdi hægri-miðjuflokkur Vaclavs Klaus, fyrrverandi forsæt- isráðherra. Ihlutun New York, Tókýó. Reuters. Á MÖRKUÐUM á Wall Street í Bandaríkjunum létu menn sér í gær fátt finnast um íhlutun Bandaríkj- anna til að styrkja japanska jenið eftir þann kipp sem gengi jap- anskra verðbréfa tók fyrst í stað. Er talið að þar haldi menn að sér höndum þar til vitað er hvernig japönsk stjórnvöld fylgja íhlutun- inni eftir. Ryutaro Hashimoto, for- sætisráðherra Japans, fagnaði hins vegar í gær íhlutun Bandaríkjanna og sagði að Japan myndi nú gera allt til að rífa efnahag landsins úr lægðinni sem ríkt hefur undanfarna mánuði. Lofaði hann úrbótum á fagnað skattafyrirkomulagi í Japan og hröðum aðgerðum til styrktar efna- hagnum. Naoto Kan, leiðtogi japönsku stjórnarandstöðunnar, skammaði Hashimoto í gær fyrir að hafa brugðist of seint við efnahagsvanda landsins. Sagði hann á fundi með námsmönnum í Waseda-háskóla að Hashimoto hefði átt að vera ljóst umfang vandans þegar hann tók við embætti forsætisráðherra árið 1996 og því væri óskiljanlegt hvers vegna svo seint hefði verið brugðist við. ■ Gengi japauskra/28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.