Morgunblaðið - 19.06.1998, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mikið fjallað um flutning háhyrningsins Keiko í Bandaríkjunum
167 sjónvarpsstöðvar sögðu
frá flutningi Keikos
MIKIL umfjöllun hefur verið um flutning há-
hyrningsins Keikos til íslands í fjölmiðlum í
Bandaríkjunum að undanfórnu. Hallur Hallsson,
hjá Mönnum og málefnum, ráðgjafaraðila Free
Willy Keiko-samtakanna, segir að fréttin hafi
verið á 167 bandarískum sjónvarpsstöðvum eftir
að tilkynnt var um flutninginn. Klukkan 10:30 í
dag er áætlað að Antonov-flutningavél, stærsta
flugvél í heimi, lendi á Keflavíkurflugvelli með
sjókvína, sem verður heimili Keikos í Vest-
mannaeyjum. Ráðgert er að kvíin verði flutt til
Vestmannaeyja á morgun. 16 kvikmyndatökuvél-
ar verða í sjókvínni og senda beint frá ferðum
Keikos um allan heim um Netið.
Fjallað var um Keiko og flutning hans í sjón-
varpsþættinum Good Morning America sem tug-
milljónir Bandaríkjamanna fylgjast með á hverj-
um degi. Reiknað er með að hátt í eitt þúsund
fjölmiðlamenn komi til Islands til að fylgjast með
flutningi Keikos til Vestmannaeyja og hátt í
milljarður manna fylgist með málinu í fjölmiðl-
um.
Nú er unnið að undirbúningi málsins í Vest-
mannaeyjum og í Reykjavík. Byggð verður
fræðslumiðstöð á hraunbrúninni gegnt Klettsvík.
Þar á almenningur að hafa aðgang að öllum upp-
lýsingum um Keiko og á að geta fylgst með hon-
um á sjónvarpsskjám. Sextán neðansjávarvélar
verða í sjókvínni. Sjónvarpað verður beint um all-
an heim um Netið. Skólar í Bandaríkjunum og
fræðslumiðstöðvar verða með beintengingu við
fræðslumiðstöðina. Byggt verður hús á sjókvínni
þar sem verður aðstaða fyrir starfsmenn.
sólarhrings vakt verður við sjókvína. Einnig þarf
að koma upp aðstöðu fyrir rannsóknarmenn.
Keiko með Heijólfí til Eyja?
Áætlaður kostnaður vegna undirbúningsins,
þar með uppsetningar sjókvíarinnar, er um 200
m. kr. Einnig verður sett af stað fljótlega mjög
víðtækt rannsóknarverkefni í samvinnu við
Rannsóknarsetrið í Vestmannaeyjum. Meðal
annars verða ferðir hvala og háhyrninga fyrir
Suðurlandi rannsakaðar.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, segir að dýpkunarframkvæmdum
í Klettsvík verði að vera lokið fyrir 10. júlí. Ekki
liggi fyrir hvernig Keiko verði fluttur til Vest-
mannaeyja. Verði um það að ræða að hann verði
fluttur til lands með C17-flugvél, sem er þrisvar
sinnum stærri en Hercules-vél, sé ljóst að það
þurfi að styrkja flugbrautina í Eyjum. Hugsan-
legt er að Keiko verði umskipað um borð í
Hercules-vél eða hann fluttur með Herjólfi til
Eyja.
„Eg held að það geti enginn sagt til um það
hvort 5%, 10% eða 50% aukning verði á ferða-
mannastraumnum til Eyja. Þeir sem þykjast
þekkja til mála segja að aukningin verði meiri en
margan grunar. Við segjum bara að þetta sé bón-
us fyrir okkur,“ sagði Guðjón.
Hann segir að í tengslum við Keiko verði
hleypt af stokkunum stærsta rannsóknarverkefni
í sögu íslands. „Ég á von á því að þetta verði
upphafið að mikiíli rannsóknarsamvinnu milli Is-
lendinga og Bandaríkjamanna," sagði Guðjón.
Kært vegna skot-
elds við skrúðgöngu
LÖGREGLUNNI í Reykjavík hefur
borist kæra vegna skotelda eða svo-
kallaðrar tertu sem virðist hafa
sprungið við skrúðgöngu á Skóla-
vörðustíg í Reylqavík á 17. júní sl. Að
sögn kærandans, Bjöms Jónssonar
lögmanns, fylgdi sprengingunni hár
hvellur og að lokum púðurreykur og
pappírsrusl. Brunagöt komu á úlpu
eiginkonu hans og taskan hennar
sviðnaði, auk þess sem fjögurra ára
dóttur hans var mjög brugðið. „Kon-
an fann fyrir miklu höggi á bakið og
hita,“ segir hann meðal annars þegar
hann lýsir atburðinum. Hann telur
með ólíkindum að ekká skuli hafa far-
ið verr og finnst þetta furðulegt
„skemmtiatriði" á þjóðhátíðardaginn.
Svo virðist sem tertan hafi verið
hluti af leiksýningu götuleikhússins
Zirkus Ziemsen. Talsmaður götu-
leikhússins, Markús H. Guðmunds-
son, einn af aðstandendum 17. júní
hátíðarhaldanna, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að tertan hefði
verið höfð í afgirtum garði við
Skólavörðustíg og að þegar hún hafi
sprungið hafi hluti hennar, af ein-
hverjum ástæðmn, skotist út úr
garðinum í fólk sem var í skrúð-
göngunni. Hann sagði ennfremur að
við undirbúning hátíðarhaldanna
hafi verið búið að prófa sams konar
tertur, en svo virðist sem þessi terta
hafi „klikkað“ af einhverjum ástæð-
um.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Lukku-
Láki
lánlaus
HVOLPURINN
Lukku-Láki
reyndist ekki
standa undir
nafni þegar hann
varð fyrir því
óhappi nýlega að
detta úr fangi eig-
anda síns og nið-
ur á gólf. Lukku-
Láki fótbrotnaði í
fallinu og bíður
þess nú í gips-
spelku að gróa
sára sinna.
Landafundanefnd fær 335,5 milljónir króna til ýmissa verkefna
Tækifæri til
kynningarátaks
FORSÆTISRÁÐHERRA, utan-
ríkisráðherra og Landafundanefnd
boðuðu fjölmiðla á sinn fund í gær
til að kynna störf nefndarinnar og
áform um hátíðarhöld árið 2000.
Ráðherrarnir lögðu báðir áherslu á
mikilvægi þess að nýta vel það
tækifæri sem gefst til kynningar á
landinu, menningu þess og at-
vinnuvegum í tengslum við árþús-
undaskiptin. Forsætisráðherra
sagði að þjóðir heims gerðu sér
dagamun þegar nýtt árþúsund
gengi í garð og vegna smæðar ís-
lensku þjóðarinnar hefði verið hætt
við því að hátíðarhöld hennar vektu
litla athygli ef ekki kæmi til tvenns
konar sérstaða hennar. Hún felst í
því að árið 2000 verður bæði
minnst 1000 ára afmælis kristni-
töku og hinna miklu landafunda
fólks, sem fæddist hér á landi, sem
lesa má um í heimildum varðveitt-
um á lifandi tungu þeirrar þjóðar
sem enn byggir hér land. Davíð
Oddsson sagði þessar staðreyndir
viðurkenndar vestanhafs og þar
ríkti skilningur á því að tímamót-
unum bæri að fagna og minnast
þeirra sérstaklega.
í Landafundanefnd sitja Sigurð-
ur Helgason forstjóri, sem er for-
maður hennar, Anna Soffía Hauks-
dóttir prófessor, Atli Ásmundsson,
blaðafulltrúi utanríkisráðherra,
Komelíus Sigmundsson forsetarit-
ari og Steindór Guðmundsson for-
stjóri. Framkvæmdastjóri nefndar-
innar er Einar Benediktsson.
Sigurður Helgason sagði að
nefndin hefði náð góðu sambandi
við starfsmenn Hvíta hússins og þar
hefði orðið vart mikils áhuga á verk-
efninu. Þá sagði Sigurður að sam-
band hefði verið haft við Grænlend-
inga og Vestur-íslendinga í Kanada
um þátttöku í ýmsum atburðum.
Einar Benediktsson sagði m.a. þá
staðreynd að íslendingar fognuðu
árið 2000 tveimur merkum afmæl-
um vekja eftirtekt og hrifningu
vestanhafs. Þýðingarmikið væri fyr-
ir hagsmuni þjóðarinnar og meðvit-
und að nýta tækifærið til öflugs
kynningarátaks auk þess sem þarna
gæfust möguleikar á að styrkja við-
skiptalega hagsmuni.
Áhersla á gerð kvikmynda og
sjónvarpsefnis
Landafundanefnd skilaði tillögum
til ríkisstjómarinnar um fjárhags-
og verkefnaáætlun í maí. Þær hafa
verið til umfjöllunar í ríkisstjóminni
og hefur hún ákveðið að verja 335,6
milljónum króna til átaks á árþús-
undamótum í Vesturheimi. Á þessu
ári verður varið 28,1 milljón króna
til verkefnisins, 118,7 m.kr. á næsta
ári, 175,8 m.kr. árið 2000 og 13
m.kr. árið 2001.
Sigling til Vesturheims
Samkvæmt upplýsingum frá
Landafundanefnd ákvað ríkis-
stjómin að einn flokkur verkefna
yrði að hafa forgang en það var
gerð kvikmynda og sjónvarpsefnis
sem tengist landafundunum. Tekin
var ákvörðun um að styrkja 10 til-
lögur um 49,3 m.kr.
Ónnur verkefni sem ætlunin er að
ráðast í eru m.a. sigling víkinga-
skipsins íslendings til Vesturheims,
hljómleikaferð Sinfóníuhljómsveitar
Islands og stuðningur við marg-
miðlunarverkefni á vegum Oz og
Gagarin.
Botnleðja
Tveir
sendir
heim
TVEIR meðlimir hljómsveitar-
innar Botnleðju vom sendir
heim frá Minneapolis í Banda-
ríkjunum á þriðjudag vegna
þess að tvær svefntöflur fund-
ust í fórum þeirra við tollskoð-
un. Svefntöflurnar eru af gerð-
inni Rophinol, sem er að sögn
Ólafs Ólafssonar landlæknis ein
algengasta tegund svefnlyfja
sem ávísað er hér á landi. Töfl-
umar em aftur á móti bannað-
ar í Bandaríkjunum og því vom
piltarnir sendir úr landi. Land-
læknir sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að sér
þætti þetta allt hið undarleg-
asta mál, lyfið væri á skrá hér
og fengist vandræðalaust af-
greitt gegn lyfseðli.
Botnleðjumenn vom á leið til
Los Angeles, með viðkomu í
Minneapolis, þar sem þeir vom
stöðvaðir í tollinum og leitað á
þeim. Einn þeirra, Haraldur
Gíslason, sagði strax sem var
að hann væri með eina svefn-
töflu á sér og félagi hans,
Ragnar Steinsson, sömuleiðis.
Haraldur sagði að þeir hefðu
ætlað að sofa á leiðinni, en hætt
við það. „Við framvísuðum
þeim gmnlausir um að það
væri bannað að flytja svefnpill-
ur inn í Bandaríkin."
Með tvær svefnpillur
Þeir félagar vom látnir
borga 1.000 dollara eða sem
svarar um 72.000 íslenskum
krónum í sekt. Þar með vora
þeir þó ekki lausir allra mála,
því þeir vora leiddir til yfir-
heyrslu hjá útlendingaeftirlit-
inu og síðan sendir með flugvél
til Amsterdam og þaðan komu
þeir til íslands á þjóðhátíðar-
daginn en hinir tveir félagarnir
úr hljómsveitinni og aðstoðar-
maður þeirra héldu áfram til
Los Angeles. Til stendur að
hljómsveitin byrji að spila fyrir
fulltrúa hljómplötufyrirtækja á
mánudag og gera þeir Harald-
ur og Ragnar ráð fyrir að vera
komnir út fyrir þann tíma.
Piltarnir leituðu á náðir
bandaríska sendiráðsins í
Reykjavík í gær og sóttu um
vegabréfsáritun til þess að
komast aftur til Bandaríkjanna
og hana munu þeir fá í dag.
Mike Hammer sendiráðsritari
sagði í samtali við Morgunblað-
ið að þetta hefði vissulega verið
óheppilegt atvik. Hann sagði að
umrætt svefnlyf hefði verið
bannað í Bandaríkjunum, eftir
að það hefði oft komið við sögu
í nauðgunarmálum, þar sem
fórnarlömbin hefðu verið
svæfð, t.d. með því að lyfinu var
blandað út í drykki. Hann
kvaðst vona að hér væri um
einangrað atvik að ræða en
kvað ólíklegt að piltarnir fengju
sektina endurgreidda.
Sérblöð í dag
8 SÍBUit
Fatahönnun
án alvöru
Hvalalosti í
þágu vísindanna
„Þjóðhátíðarhögg“ Guð-
mundar í Bakkakoti / C1
íslensk lið ekki í Evrópu-
keppnina í handknattleik/C1
www.mbi.is