Morgunblaðið - 19.06.1998, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998
FRETTIR
MORGUNB LAÐIÐ
Stefnir í mjög alvarlegt ástand á barnadeildum spítalanna
Óvíst að tjóni verði afstýrt
MJÖG alvarlegt ástand blasir við á barnadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur og Barnaspítalanum
Hringnum ef svo fer sem horfír að meirihluti
hjúkrunarfræðinga hætti störfum um næstu
mánaðamót. Jóhannes Gunnarsson, lækninga-
forstjóri á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, segir
ákveðin hættumerki uppi um að ekki verði
hægt að sinna öllu því sem þarf til að forðast
tjón.
Jóhannes segir að starfsemin hafi verið
skipulögð að svo miklu leyti sem hægt sé að
skipuleggja hana með svo fáum hjúkrunarfræð-
ingum við störf. A barnadeildinni séu 28 rúm
sem hafi að jafnaði verið fullnýtt.
„Þetta kemur sýnilega harkalega niður á böm-
unum. Við sjáum ekki hvemig þetta á að ganga
jafnvel þótt það sé skipulagt á einhvem hátt. Það
verður afar lítil starfsemi á bamadeildinni og
gangurinn verður lokaður. Á lyflækningasviði
verður eingöngu hægt að halda opnum einum
gangi. Þar verða þeir sem hafa svo brýnan for-
gang að þeir verði að koma inn á sjúkrahúsið, þar
með talin bömin. Væntanlega verður notaður
gangur hjartadeildar og þar verður ekki hægt að
skipta upp milli almennra lyflækninga, hjarta-
lækninga eða bamalækninga. Þetta verður svo
langt undir þörfum að maður getur eiginlega ekki
séð fyrir hvemig þetta mun ganga,“ sagði Jó-
hannes.
Einnig er hugsanlegt að einn gangur til við-
bótar verði opinn þar sem sjúklingar verða und-
ir lækniseftirliti án hjúkranar.
„Auðvitað verður allt reynt til að koma í veg
fyrir það að börnin verði beinlínis í lífshættu en
ég verð samt að segja að það era uppi ákveðin
hættumerld um að ekki verði hægt að sinna öllu
því sem þarf til að forðast tjón. Þetta er mjög al-
varleg staða,“ segir Jóhannes.
Eingöngu haldið uppi bráðaþjónustu
Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir á Bamaspítala
Hringsins, segir að það stefni í mjög slæmt
ástand á spítalanum. Eingöngu verði haldið
uppi bráðaþjónustu en engu að síður er ljóst að
mönnun verður slæm og fyrirsjáanlegir séu erf-
iðleikar einvörðungu vegna bráðaþjónustunnar.
Undir það falla allar innlagnir alvarlega veikra
bama, vökudeild, sem er gjörgæsla nýbura og
fyrirbura, og aðrar aðgerðir og meðferðir sem
ekki er hægt að fresta.
Hætt verður að framkvæma allar aðgerðir
sem ekki era bráðnauðsynlegar. Undir það falla
t.d. aðgerðir vegna meðfæddra galla, eins og á
þvagfæram, aðgerðir vegna klofins góms eða
beinaaðgerðir, ásamt öðra. Einnig verða allar
biðlistainnlagnir stöðvaðar, t.d. vegna þroska-
vandamála, sýkinga, lungnavandamála og fleiri
þátta.
Erfiðasta ástand innan
sjúkrahúsanna frá upphafi
Ásgeir segir að læknar geti að mjög takmörk-
uðu leyti gengið inn í störf hjúkranarfræðinga.
„Ég tel að þetta geti orðið mjög erfitt og jafn-
framt mjög alvarlegt ástand,“ sagði Ásgeir.
Hann segir að ef það gangi eftir að hjúkran-
arfræðingar hætti störfum um mánaðamótin
skapist líklega alvarlegasta ástand innan
sjúkrahúsanna frá upphafi.
Háskóli Islands
Aldrei fleiri
brautskráðir
ALDREI hafa fleiri verið braut-
skráðir frá Háskóla Islands en
við athöfn í Laugardalshöll hinn ,
17. júní þegar 577 kandídatar
voru brautskráðir og 62 að auki
hlutu starfsréttindi frá félagsvís- |
indadeild. _ '
„Meginhlutverk Háskóla Is-
lands er og á að vera að ala
upp þroskaða og sjálfstæða
einstaklinga sem eru reiðubún-
ir að leggja sjálfa sig að veði í
þeim verkefnum sem þeir
takast á hendur - hver sem
þau eru. Uppeldishlutverk Há- |
skóla íslands er fólgið í því að
rækta með öllu starfsfólki sínu, f
kennurum sem nemendum, I
frjálsa, fræðilega hugsun til að
takast á við öll viðfangsefni
með opinni, gagnrýninni um-
ræðu,“ sagði Páll Skúlason,
rektor Háskóla Islands, m.a í
ræðu sinni.
Bókanir á borgarstjórnarfundi vegna fjarveru borgarfulltrúa
Borgarstj órinn kraf-
inn um skýringar
VIÐ upphaf fyrsta fundar borgar-
stjómar Reykjavíkur í gær kvaddi
Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálf-
stæðismanna, sér hljóðs utan dag-
skrár og sagði ástæðuna þá að hún
hefði kynnt sér „rækilega útsenda
dagskrá og séð á henni að mál sem
kom upp strax að loknum borgar-
stjómarkosningum er ekki tekið hér
á dagskrá íyrsta fundar nýkjörinnar
borgarstjómar. Þar er ég að vísa í
þann einstæða atburð er nýkjörinn
borgarfulltrúi R-listans, Hrannar B.
Arnarsson, lýsti því yfir í fjölmiðlum
tveimur dögum eftir borgarstjómar-
kosningar að hann hefði ákveðið að
taka ekki sæti í borgarstjóm að
sinni,“ sagði borgarfulltrúinn.
Inga Jóna Þórðardóttir sagði hann
engar efnislegar skýringar hafa gefið
og hljóti borgarstjóm Reykjavíkur
því að kalla eftir þeim. Sagði hún
ekkert liggja fyrir fundinum með
formlegum hætti hvort borgarfull-
trúinn stæði við þá ákvörðun; Ijóst
væri hins vegar að fundinn sæti vara-
borgarfulltrúi sem skipaði 13. sæti R-
listans. Það væri andstætt sveitar-
stjómarlögum og að varamenn ættu
að taka sæti eftir þeirri röð sem þeir
skipuðu á listanum. Inga Jóna sagði
að það væri alkunna að mál umrædds
borgarfulltrúa hefðu verið til með-
ferðar hjá skattyfirvöldum og lagði
fram bókun, þar sem segir m.a.:
„í kosningabaráttunni lýsti borg-
arstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, því yfir að mál þessa frambjóð-
anda R-listans væri til meðferðar hjá
skattayfirvöldum og hefði hún kynnt
sér niðurstöður skýrslu skattrann-
sóknastjóra. Að loknum kosningum
var Ijóst að einn af hverjum fjórum
kjósendum R-listans kaus að strika
út nafn frambjóðenda sem er eins-
dæmi í sögu borgarinnar.
Nú á þessum fyrsta fundi nýkjör-
innar borgarstjómar liggur ekkert
fyrir um þá ákvörðun nefnds borgar-
fulltrúa R-listans um að taka ekki
sæti í borgarstjórn. Borgarstjóm
Reykjavíkur hlýtur að gera þá kröfu
að borgarstjóri geri efnislega grein
fyrir ástæðum ákvörðunarinnar.
Ótímabær umhyggja
Það hefur sömuleiðis komið fram í
fjölmiðlum að ætlunin sé að vara-
borgarfulltrúi í 13. sæti listans taki
sæti Hrannars í borgarstjóm. Sam-
kvæmt nýsamþykktum sveitarstjóm-
arlögum er þetta ekki heimilt. Að
framboði R-listans stendur Reykja-
víkurlistinn, eins og fram hefur kom-
ið hjá yfirkjörstjóm. Krefjast verður
þess að varamenn taki sæti í borgar-
stjóm í samræmi við ákvæði laga.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri lagði í framhaldi af þessu
fram eftirfarandi bókun: „Umhyggja
sjálfstæðismanna fyrir málefnum
Reykjavíkurlistans er vissulega
þakkarverð en ótímabær. Fyrir ligg-
ur að Hrannar B. Amarsson hefur
óskað eftir leyfi um sinn frá störfum
sínum sem borgarfulltrúi. Bréf þessa
efhis mun verða lagt fyrir nýkjörið
borgarráð n.k. þriðjudag og tekið þar
til umfjöllunar eins og eðlilegt er.
Um lögskýringar sjálfstæðis-
manna verður ekki fjallað efnislega í
stuttri bókun, en bent á að engin
breyting var gerð á ákvæðum sveit-
arstjórnarlaga varðandi varamenn í
sveitarstjórn. Engin eðlisbreyting
varð heldur á Reykjavíkurlistanum í
síðustu kosningum og hann er hér
eftir sem hingað til kosningabanda-
lag Alþýðubandalags, Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks, Kvennalista og
óflokksbundinna stuðningsmanna."
Morgunblaðið/Jón Svavarsaon
PÁLL Skúlason háskólarektor brautskráði 577 kandídata og veitti 62
nemendum úr félagsvísindadeild starfsréttindi við athöfn í Laugar-
dalshöll hinn 17. júm'.
Maður dæmdur í Hæstarétti fyrir að stinga tvær stúlkur
Dómur mildaður í
sex ára fangelsi
\
\
I
>
Laugavegi 18 • Síml 515 2500 • Síðumúla 7 • Síml 510 2500
t/*m « *««r
Kjorm gjof
til vina erlendis
Hér er fjallað um þær 23 tegundir hvala
sem sést hafa við fslandsstrendur og helstu
einkennum þeirra lýst í máli og myndum.
Glæsilega myndskreytt og litprentuð.
FORLAGIÐ
HÆSTIRÉTTUR mildaði í gær
dóm yfir rúmlega fertugum manni,
Tryggva Sigfússyni, sem dæmdur
hafði verið af Héraðsdómi Reykja-
víkur í sjö ára fangelsi fyrir líkams-
árás og tilraun til manndráps í
Hafharstræti í Reykjavík aðfara-
nótt sunnudagsins 21. september sl.
Maðurinn stakk tvær stúlkur með
hnífi og hlaut önnur þeirra lífs-
hættulega blæðingu af. Hæstiréttur
dæmdi manninn í sex ára fangelsi.
í dóminum segir að málið sé risið
af atburðum sem urðu í Hafnar-
stræti og Pósthússtræti í Reykjavík
áðumefnda nótt. Tryggvi og mágur
hans, sem báðir voru drakknir, hófu
afskipti af rifrildi ungs pars og
sprattu af því átök milli þeirra og
unga mannsins. í byrjun átakanna
dró ungi maðurinn upp hníf, sem
síðar barst í hendur Tryggva. Hann
beitti hnífnum gegn stúlkunni eftir
að hún hafði horfið frá átakastaðn-
um stutta stund og komið aftur til
að liðsinna unga manninum. Lagið
olli grunnu sári og reyndist ekki
hafa lífshættu í för með sér.
Eftir að átökin hófust kom á stað-
inn annað ungt par á leið eftir Hafn-
arstræti í leit að leigubíl. Stúlkan
spurði hvað gengi á og beitti
Tryggvi þá hnífnum gegn henni.
Hnífurinn gekk inn í hjartað og olli
lífshættulegri blæðingu.
Tryggvi tók á rás austur Hafnar-
stræti að miðborgarstöð lögreglunn-
ar og kom þangað rétt á eftir seinna
parinu. Allmargir vegfarendur
fylgdu á eftir. Lögreglumenn höfðu
nýlokið við að hleypa parinu inn þeg-
ar Tryggvi leitaði inngöngu. Hann
hafði hnífinn í hendinni en sleppti
honum í dyrum stöðvarinnar.
Tryggvi bar að hann hefði ekki verið
að elta parið heldur hafi hann viljað
leita skjóls á lögreglustöðinni undan
átökunum og þeim mannsöfnuði sem
að hefði drifið.
Stakk af ásettu ráði
Fram kemur að Tryggvi hafi frá
upphafi borið að hann geti ekki gert
sér skýra grein fyrir atburðum næt-
urinnar vegna ölvunar og geðshrær-
ingar. Hann gat ekki staðfest að hafa
stungið stúlkumar og neitaði ein-
dregið að hafa gert það af ásetningi.
Talið er sannað að Tryggvi hafi beint I
hnífnum að fyrri stúlkunni af ásettu L
ráði og að tilefnislausu. Honum hafi í
mátt vera ljóst að hnífnum var beint I
á hættuiegan stað en ósannað að
hann hafi viljað ráða stúlkunni bana.
Talið er sannað að Tryggvi hafi rekið
hnífinn í síðari stúlkuna af ásettu
ráði. Laginu var beint að brjósti
hennar og hlaut Tryggvi að sjá fyrir
að bani gæti af því hlotist.
Algjört óhappaverk
Fyrir Hæstarétt var lagt fram
vottorð Kristófers Þorleifssonar, i
sérfræðings í geðlækningum við '
geðdeild Landspítalans. Hann segir
m.a. að Tryggvi hafi áður fyllst ofsa-
kvíða við erfíðar aðstæður og að
ekki sé óeðlilegt að álykta að slíkt
hafi gerst þegar hann lenti í útistöð-
um í Hafnarstræti. Þannig hafi grip-
ið hann ofsahræðsla auk þess sem
dómgreind hans hafi verið skert
vegna ofurölvunar. Eftir kynni sín I
af Tryggva telur Kristófer ekki líkur
á að Tryggvi muni brjóta af sér á ný i
og líta megi á gerðir hans í Hafnar- '
stræti sem algjört óhappaverk.