Morgunblaðið - 19.06.1998, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Skipstjóri og útgerð Sigurðar YE sýknuð í Noregi
Lítil viðbrögð í N oregi
Morgunblaðið/Arnljot Bringedal
DÓMSTÓLL í Bod0 í Hálogalandi í
Noregi sýknaði í gær Kristbjörn
Árnason, skipstjóra á Sigurði VE,
og ísfélag Vestmannaeyja af ákæru
um ólöglegar veiðar við Jan Mayen.
Pá eru Kristbirni og útgerðinni
dæmdar greiðslur vegna máls-
kostnaðar. í gær var engin við-
brögð að hafa í Noregi og var nær
ekkert fjallað um málið í fjölmiðl-
um. Af samtölum við blaðamenn
þar í landi má þó merkja að margir
fagna því að íslendingarnir skyldu
vera sýknaðir, þar sem dómurinn í
fyrra þótti afar harður og jafnvel
óréttlátur. Forsendur dómsins
verða ekki birtar fyrr en í dag,
föstudag.
Dómstóllinn úrskurðaði í gær að
útgerðin þarf ekki að greiða 375.000
kr. norskar, né málskostnað upp á
um 10.000 kr. norskar, samtals tæp-
lega fjórar milljónir ísl. kr. Þá
sleppur Kristbjörn við að greiða
45.000 kr. norskar, um 400.000 kr.
ísl. í sekt og málskostnað til norska
ríkisins.
Islendingamir fá greiddan máls-
kostnað, útgjöld vegna ferða og lög-
manna, en ferðakostnaður er yfir
hálf milljón ísl. kr., að því er segir í
blaðinu Nordlands framtid, sem
gefið er út í Bodo.
Kristbjörn er sýknaður af ákæru
um að hafa trassað að tilkynna sig
til Fiskistofu er hann sigldi inn í og
út úr norskri fiskveiðilögsögu við
Jan Mayen í lok maí og byrjun júní
á síðasta ári. Pá er hann sýknaður
af ákæru um brot á iögum um að
skipstjóri eigi að halda veiðidag-
bók. Norska strandgæslan færði
togarann til hafnar og var Krist-
bjöm dæmdur til að greiða tæp-
KRISTBJÖRN Ámason, skip-
stjóri á Sigurði VE, sagði að
þessi niðurstaða norska áfrýjun-
arréttarins væri mjög gleðileg,
hann væri mjög ánægður yfir að
þetta skyldi hafa endað svona.
„Þetta fór eins og við reiknuðum
með. Við gerðum það sem okkur
bar að gera, en höfðum ekki full-
nægjandi upplýsingar," sagði
Kristbjöm.
Hann sagðist vera mjög
ánægður með að Norðmenn
skyldu hafa fengist til að taka
þessa stefnu í málinu, því það
væri búið að vera nógu erfitt og
leiðinlegt til þessa. Önnur niður-
staða en þessi hefði ekki verið á
rökum reist. „Maður getur farið
að taka gleði sína aftur,“ sagði
Kristbjöm.
Hann sagði að hann myndi
aldrei gleyma þessu og málið
myndi fylgja honum. Það hefði
þó verið hálfú verra hefði niður-
staðan verið á hinn veginn.
Aðspurður hvort hann ætti
von á einhverjum eftirmálum,
sagðist hann síður halda það.
Hins vegar hefði hann lítið frétt
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-.
herra segir niðurstöðu áfrýjunar-
dóms í máli Sigurðar VE vera
skynsamlega en niðurstaða svo
kallaðs „heimadóms" í fyrra hafi
verið ákaflega undarleg þegar
dæmt var gegn öllum líkum. Hall-
dór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segist mjög ánægður með
niðurstöðuna.
„Ég lýsti mikilli óánægju með
dóminn á sínum tíma og taldi hann
mjög skrítinn, svo ekki sé meira
sagt. Þessi dómur vekur ánægju
lega 300.000 kr. ísl. í sekt og ísfé-
lagið til að greiða kostnað vegna
flutningsins, um 3,6 milljónir, og
tæpar 150.000 kr. ísl. í málskostn-
að.
af málinu annað en það að út-
gerð og skipstjóri hefðu verið
sýknuð. Það ætti eftir að ræða
niðurstöðuna, en hann teldi ein-
hver eftirmál frekar ólíkleg.
Kristbjörn sagði að það væri
ákveðin h'fsreynsla að fara í
gegnum svona mál. Að hans mati
væri ástæðan fyrír því að þetta
mál hefði rísið að ekki hefðu
fengist nægilega ábyggilegar
upplýsingar til að fara eftir.
Bæði hefði verið um það að ræða
að rangt númer hefði verið gefið
upp til að senda í upplýsingar
um afla og einnig hefði sam-
kvæmt fyriríiggjandi upplýsing-
um verið heimilt að nota íslensk-
okkar og tiltrú á norsku réttar-
kerfí,“ segir Halldór.
Davíð segir að fyrri dómur hefði
aldrei getað gengið upp: „Við erum
afskaplega ánægðir með þennan
dóm og ég segi sem lögfræðingur
að hin niðurstaðan var algerlega
óþolandi og óskiljanleg og gat
aldrei gengið upp.“
Hann segir að í fyrra hafi verið
dæmt gegn öllum líkum, jafnvel
þótt legið hafi fyrir að viðkomandi
skipstjómarmenn höfðu gert allt
sem hægt var við venjulegar að-
SIGURÐUR VE færður til hafnar í Bodö.
haldið því fram að þeir hafi sinnt til-
kynningaskyldu til norskra yfir-
valda en að galli í tölvukerfinu,
svokölluðu Inmarsat, hafi komið í
veg fyrir að tilkynningarnar hafi
komist til skila. í dómnum í fyrra,
ar afladagbækur og engin skil-
yrði sett í því sambandi. Að hans
mati hefðu Norðmenn hlaupið
mjög á sig strax í upphafi og
ekki bakkað út úr málinu meðan
tími var til. „En það var indælt
að þetta skyldi fara svona. Mér
er það efst í huga núna,“ sagði
Kristbjöm að Iokum.
Afskaplega ánægðir
„Við emm auðvitað afskap-
lega ánægðir yfír að vera búnir
að vinna þetta mál, einfaldlega
vegna þess að við töldum mála-
tilbúnaðinn ekki það vel rök-
studdan að það hefði átt að fara
með málið alla þessa leið,“ sagði
stæður. „Þeir komu til skila tiltekn-
um upplýsingum um veiði sína og
staðsetningu. Það var hvergi hægt
að sýna fram á að þeir hefðu reynt
að fara með blekkingar. Hins vegar
hafði móttökubúnaðurinn ekki
gengið upp hjá Norðmönnum og
fyrir það voru okkar menn dæmdir.
Ég óttaðist það því miður að áfrýj-
unardómur í Noregi yrði hálfgerð-
ur heimadómur. Þeir eru nú dálítið
þekktir fyrir heimadóma þar í
, júritíkinni" en sem betur fer varð
lögfræðin ofan á,“ segir Davíð.
er Kristbjörn var fundinn sekur um
að hafa ekki sinnt tilkynninga-
skyldu, sagði í dómsorði að hann
hefði átt að hafa sérstaka ástæðu til
að tryggja að tilkynningin kæmist
til skila.
Hörður Óskarsson, fjármála-
stjóri íshúsfélags Vestmanna-
eyja.
Hann sagði að samkvæmt
þeim upplýsingum sem hann
hefði væru bæði skipstjórinn og
útgerðin sýknuð. Þetta væri
fullnaðarsigur, því ekki yrði far-
ið með málið Iengra, auk þess
sem þeir fengju hluta af útlögð-
um kostnaði til baka.
Hörður sagði að bein útgjöld
vegna málsins væru sjálfsagt um
tvær milljónir króna, auk alls
umstangsins í kringum það. Þá
hefði skipið hugsanlega tafist frá
veiðum í einhvem tíma í fyrra,
því það hefði ekki náð öllum sín-
um kvóta. Þá mætti einnig hugsa
sér að fyrirtækið hefði orðið fyr-
ir einhveijum óbeinum kostnaði,
þó erfitt væri að dæma um það.
Aðspurður hvort það væri
hugsanlegt að fara í skaðabóta-
mál eða eitthvað slíkt, sagði
hann of snemmt um það að
segja, þar sem þeir hefðu ekki
enn fengið að sjá forsendur
dómsins. Hann teldi það þó frek-
ar ólíklegt.
Hann segir að ekki sé nokkur
vafi á því að norsk stjórnvöld hafi
gengið til hins ýtrasta og túlkað
lögin með sem vafasömustum
hætti gagnvart íslendingum.
„Þeir sögðu alltaf við okkur „þetta
er bara lögfræði, ekki pólitík", nú
segir dómur áfrýjunardómstólsins
að þetta hafi ekki verið lögfræði
heldur pólitík."
Forsætisráðherra segir jafn-
framt að lögfræðin hafi orðið ofan á
nú þar sem stjómmálamennimir
fengu hvergi að koma nærri.
Staðhæf-
ingar gegn
staðhæfing-
um í Sigurð-
armálinu
SIGURÐARMÁLIÐ svokallaða
byrjaði árla morguns 6.júní á síð-
asta árí, er norskir strandgæslu-
menn fóru um borð í Sigurð VE úti
á rúmsjó og í kjölfarið fylgdu ásak-
anir um lögbrot. Skipið var síðan
dregið til hafnar í Bodö þar sem
réttað var yfir útgerðinni, ísfélagi
Vestmannaeyja, og skipstjóranum
Kristbirni Árnasyni. Norðmenn
bára skipstjóranum á brýn að hafa
vanrækt í þrígang að senda lög-
boðnar tilkynningar um ferðir
skipsins inn og út úr norskri land-
helgi. Síðar bættu Norðmenn við
ásakanirnar, en frá upphafi and-
mæltu bæði útgerð og skipstjóri
Sigurðar og íslensk stjórnvöld töku
skipsins kröftuglega.
Sem fyiT segir var það mál
norsku strandgæslunnar að það
vantaði þrjár tilkynningar um ferð-
ir skipsins inn og út úr landhelg-
inni. Dag Isaksen, fréttafulltrái
strandgæslunnar sagði skipstökuna
í samræmi við stefnubreytingu af
hálfu norskra stjórnvalda og ná-
kvæmlega ekkert væri athugavert
við vinnubrögð gæslunnar sem
hefðu í senn verið fagleg og eðlileg.
Skipið hefði verið fært til hafnar á
venjubundinn hátt til þess að
norskt ákæravald gæti fjallað um
málið.
Kristbjöm neitar
Skipstjórinn á Sigurði, Krist-
björn Árnason, andmælti sakargift-
unum og sagðist hafa sent allar við-
komandi tilkynningar. Lagði hann
strax fram gögn fyrir tvær þeirra,
en fann ekki afrit sem sannað hefði
þá þriðju. Á sama tíma mótmæltu
íslensk stjórnvöld skipstökunni
kröftuglega, Davíð Oddsson sagði
Norðmenn hafa farið offari og var
þess krafist að skipinu og áhöfninni
yrði tafarlaust sleppt.
Norðmenn voru ekki á því og
bættu skjótt við nýjum ásökunum.
Nefnd var til sögunnar fjórða til-
kynningin sem vantaði og auk þess
voru gerðar athugasemdir við
færslu á afladagbók.
Því var einnig andmælt af hálfu
Islendinga, Kristbjörn sat fastur
við sinn keip varðandi tilkynning-
arnar og Helgi Agústsson ráðu-
neytisstjóri í utanríkisráðuneytinu
rifjaði ugp ágreining frá árinu áð-
ur, milli íslendinga og Norðmanna,
um færslur íslenskra skipa í afla-
dagbækur sínar. I maí 1997 hefði
það mál hins vegar verið til lykta
leitt er Fiskistofa hefði tilkynnt
Norðmönnum að íslensk skip
myndu eftir sem áður færa færslur
sínar samkvæmt íslenskum regl-
um, en þau gera ekki ráð fyrir jafn
mikilli nákvæmni og norsku regl-
urnar. Helgi sagði skipið hafa farið
að íslenskum reglum og því ekki til
saka unnið.
Útgerð og skipstjóri höfnuðu
dómsáfy upp á rámar 4 milljónir
króna, Isfélagið var dæmt til að
greiða 3,7 milljónir í sekt, 150.000
króna málskostnað og Kristbjörn
skipstjóri var dæmdur til að greiða
300.000 krónur í sekt. Er banka-
trygging lá fyrir, var skipinu sleppt
úr prísundinni og það sigldi heim á
leið.
Hér heima voru menn ósáttir við
útkomuna, ekki síst þar sem við at-
hugun kom í ljós einföld skýring á
því að tvær tilkynningar vantaði
hjá Sigurði, en faxnúmer norsku
fiskistofunnar reyndist hafa verið
slegið rangt inn í tölvu Sigurðar.
Það sannaðist þannig að tilkynn-
ingamar voru sendar, en vegna
þessa komust þær ekki á leiðar-
enda.
Isfélagið áfrýjaði því dómnum í
Bodö og nú hefur æðri dómstóll
komist að annam niðurstöðu.
Skipstjórinn og útgerðin hafa
„Maður getur
farið að taka
gleði sína aftur“
Forsætisráðherra segir niðurstöðu
í Sigurðarmálinu skynsamlega