Morgunblaðið - 19.06.1998, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stórkostlegt að fá
Keikó tílEyja
iiillllir-;.
HOPPAÐU nú bara út í hr. Keikó, við skulum sjá um farangurinn.
Sölumaður á fasteignasölu hafði milljónir af eldri hjónum
Tryggingafélag og
vinnuveitandi sýknuð
HERAÐSDOMUR Reykjavíkur
sýknaði á þriðjudag Sjóvá-Almenn-
ar tryggingar hf. og löggiltan fast-
eignasala af kröfum hjóna á sjö-
tugsaldri um greiðslu fjár sem þau
töpuðu í hendur sölumanns sem
vann hjá fasteignasalanum.
Ráðstafaði helmingi í
þágu hjónanna
Sölumaðurinn var 12. febrúar sl.
dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur
fyrir að hafa í auðgunarskyni blekkt
hjónin til að afhenda sér tæplega 11
milljónir í trausti þess að hann
kæmi fram fyrir hönd fasteignasöl-
unnar sem hann vann hjá. Þau töldu
að hann myndi ávaxta féð í skamm-
an tíma vegna væntanlegra íbúðar-
kaupa þeirra en þau seldu hús í
Kópavogi, keyptu og seldu íbúð í
Reykjavík og keyptu íbúð í Kópa-
vogi í gegnum fasteignasöluna.
Hann var dæmdur fyrir að hafa tek-
ið við fénu, vitandi að hann væri
ófær um að endurgreiða það. Af
þessum tæpu 11 milljónum var 5,2
milljónum króna ráðstafað í þágu
hjónanna og gerðu þau kröfu um
endurgreiðslu þess sem á vantaði.
Hjónin töldu að í viðskiptum sín-
um við fasteignasöluna hafí þau orð-
ið fyrir tjóni sem rekja mætti beint
til athafna starfsmanns hennar sem
hinn löggilti fasteignasali bar
ábyrgð á, sem löggiltur fasteigna-
sali og ábyrgðarmaður á starfshátt-
um fasteignasölunnar, hvort sem er
með vísan til laga um fasteigna-,
íyrirtækja- og skipasölu eða reglna
skaðabótaréttarins um húsbónda-
ábyrgð. Þar með falli tjónið undir
almenna skilmála fyrir starfsá-
byrgðartryggingu fasteignasala en
fasteignasalan hafði keypt slíka
tryggingu af Sjóvá-Almennum hf.
Móttaka fjárins utan starfssviðs
fasteignamiðlunar
í dóminum er raláð að í skilmál-
um áðumefndrar tryggingar segi að
vátryggt sé gegn bótaskyldu er falli
á vátryggingartaka sem fasteigna-
sala, þegar þriðji maður verði íyrir
almennu fjártjóni sem rakið verði til
vátryggingartaka sjálfs eða starfs-
manns hans.
Dómurinn kemst að þeimi niður-
stöðu að móttaka sölumannsins á fé
hjónanna til ávöxtunar hafi ekki
fallið undir lögmælt og hefðbundið
hlutverk fasteignamiðlunar og ekki
hafí verið leitt í ljós að hinum lög-
gilta fasteignasala hafi verið eða
mátt vera kunnugt um hana. Hátt-
semin hafi því ekki fallið undir
ábyrgð hans sem löggilts fasteigna-
sala og þar með ekki heldur undir
starfsábyrgðartryggingu hans hjá
Sjóvá-Almennum hf.
Málskostnaður var látinn niður
falla en ríkissjóður látinn greiða
gjafsóknarkostnað hjónanna, þar
með talda þóknun lögmanns þeirra,
Ásgeirs Björnssonar hdl., 350 þús.
krónur. Löggilta fasteignasalanum
og tryggingafélaginu var stefnt
saman. Verjandi þeirra var Jakob
R. Möller hrl. Dóminn kvað upp
Sigurður Hallur Stefánsson héraðs-
dómari.
Norræm ráðstefna um heyrnarfræði
Framfarir í gerð
heyrnartækja fyrir
heyrnarlausa
IDAG, fóstudag, hefst
norræn ráðstefna um
heyrnarfræði í Borg-
arleikhúsinu. Einar
Sindrason, yfirlæknir
Heyrnar- og talmeina-
stöðvar Islands, er for-
maður ráðstefnunnar og
undirbúningsnefndar
hennar.
„Fyrsta norræna ráð-
stefnan um heymarfræði
var haldin í Gautaborg
árið 1962 á vegum Nor-
disk Audiologisk Selskap
(NAS). Ég sótti slíka ráð-
stefnu í Noregi árið 1986,
en þá var nokkur tími lið-
inn frá því Islendingur
hafði mætt á slíka ráð-
stefnu. Þar barst í tal að
halda ráðstefnu hér á
landi en það hefur tekið
tíma að koma þvi heim og
saman. Félag háls-, nef-
Einar Sindrason
og eymalækna, sem fyrir Islands
hönd átti aðild að samtökunum,
treysti sér ekki til að taka þátt í
skipulagningunni. Stjóm NAS
stakk þá upp á að við sem vinnum
við heymarfræði stofnuðum félag
út frá þessu norræna félagi, sem
við gerðum. Það félag, Islenska
heymarfræðafélagið, hefur staðið
að skipulagningu ráðstefnunnar
með hjálp norrænu samtakanna.
í þvi félagi em læknar, hjúkran-
aríræðingar, sérmenntaðir kenn-
arar og tæknimenn."
- Erþetta ekki ein stærsta r&ð-
stefha sem haldin hefur verið á
vegum NAS?
„Jú, við áttum aldrei von á
þessum viðbrögðum en þegar
hafa yfir fimm hundrað þátttak-
endur Iátið skrá sig og af þeim
fjölda eru yfir 90% frá öðram
löndurn."
- Hvað er heyrnarfræði?
„Heymarfræði er ekki sam-
þykkt sérgrein en hún byggist á
því að meðhöndla og sinna hinum
varanlega heyrnardaufa. Heym-
arlæknar (audiologar) sjúkdóms-
greina, en sé eitthvað hægt að
lækna senda þeir fólkið frá sér til
háls-, nef- og eymalækna."
Hefur mikið breyst í eymasjúk-
dómum & síðustu árum?
„Miklar breytingar hafa átt sér
stað, t.d. í meðferð á eymabólgu
og öðram eyrnasjúkdómum. Rör-
in sem sett era í eyra þeirra sem
þjást af síendurtekinni eyma-
bólgu era til dæmis eitt það
merkilegasta sem gerst hefur í
eymalækningum. Þegar ég var
við nám var ekki til eyrnasmásjá
hér í Háskólanum og eina lausnin
við eymabólgu var að halda bam-
inu nauðugu og stinga á hljóð-
himnunni. Rörin gjörbylta lífi
þeirra sem annars væru með
króníska eyrnabólgu, sem m.a.
getur leitt til erfiðustu
tilfella af heymarleysi,
heilabólgu eða andlits-
lömunar.“
- Nú er farið að ____________
setja elektróður í kuð-
unginn hjá þeim sem eru heyrn-
arlausir og þeir fá jafnvel heym-
ina aftur?
„Já og það era tvímælalaust at-
hyglisverðustu framfarirnar í fag-
inu. Við höfum þegar sent nokkra
íslendinga í slíkar aðgerðir og
það hefur gefist vel. Þá eru el-
ektróður settar í kuðunginn í eyr-
anu og því fleiri elektróður því
betra. Heyrnin byggist þó á því
að heymartaugin sjálf sé í lagi og
við höfum farið varlega í að senda
fólk í þetta nema að vel athuguðu
máli.
Það má geta þess að einn fyrir-
lesarinn á ráðstefnunni er Valka
Jónsdóttir, en bamið hennar fór í
slíka aðgerð. Það var heyrnar-
► Einar Sindrason er fæddur í
Reykjavík árið 1942. Að loknu
námi í læknisfræði við Háskóla
íslands gerðist hann héraðs-
læknir og fór síðan í framhalds-
nám tíl Danmerkur árið 1971
þar sem hann nam háls-, nef- og
eyrnalækningar svo og heyrnar-
fræði. Hann ferðaðist um landið
á námsárum sínum á vegum
Heyrnarhjálpar, því fáir háls-,
nef- og eymalæknar voru þá
starfandi hér á landi. Árið 1980
tók hann við sem yfírlæknir
Heymar- og talmeinastöðvar-
innar og hefur gegnt því starfí
síðan.
^ Eiginkona Einars er Kristín
Árnadóttir þjúkranarfræðingur
og eiga þau þrjú börn.
Um 8.000 ís-
lendingar nota
heyrnartæki
laust en fékk heyrnina á ný eftir
slíka aðgerð.“
- Nota margir heyrnartæki hér
á landi?
„Um 8.000 íslendingar nota
heyrnartæki. Þetta eru einstak-
lingar á öllum aldri en þó er rosk-
ið fólk í meirihluta."
Einar segir að heymarleysi sé
engu að síður á undanhaldi, þökk
sé fyrirbyggjandi lækningum.
„Það sem eftir stendur eiginlega
óbreytt er heymardeyfð af völd-
um erfða og elli.“
-Er heyrnardeyfð af vöidum
hávaða stórt vandamál?
„Já, hávaði er langalgengasta
orsök heymarskaða en hann er
hægt að fyrirbyggja með því að
nota eymaskjól, mæla hávaða og
síðast en ekki síst fræða fólk um
skaðsemi hávaða sem fer yfir 80
desibel.“
Þetta málefni verðui’ tekið ítar-
lega fyrir á ráðstefnunni og ýmsir
sérfræðingar munu gera grein
fyrir niðurstöðum rannsókna og
aðrir tala út frá eigin
reynslu.11
- Eitthvað fleira
áhugavert sem verður
tekið fyrir á ráðstefn-
unni?
„Já, það er geysilega margt
áhugavert sem verður fjallað um
og ber til dæmis að nefna nútíma
heymartæki, en í þeim málum er
þróunin ör. Fyrir nokkrum árum
var fólk með tæki í vasa og snúru
sem síðan var leidd upp í eyra.
Þessi tæki eru ekki til lengur.
Nýjustu tækin era eyraagangs-
tæki og ef viðkomandi er með litla
heymardeyfu komast tækin það
langt inn í hlustina að þau sjást
ekki.“
Ráðstefnan í Borgarleikhúsinu
stendur fram til 21. júní. Viðamik-
il sýning verður á ráðstefnunni
þar sem tuttugu fyi’irtæki kynna
helstu nýjungai- í framleiðslu
heyrnartækja og mælitækja.