Morgunblaðið - 19.06.1998, Side 10

Morgunblaðið - 19.06.1998, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sexæringurinn Naddoddur náði til Fáskrúðsfjarðar Lokakaflinn einna erfiðastur LÍTIÐ vantaði upp á að færeysku víking- arnir fjórir næðu að klára ætlunarverk sitt, að sigla frá Færeyjum til Reyðar- fjarðar á sexæringn- um Naddoddi, en hin- ir íslensku norðan- vindar komu í veg fyr- ir það. Þegar Naddoddur lagði af stað frá Hval- nesi snemma morguns 17. júní var strekk- ingsvindur á móti og ekki hægt að beita seglum að neinu marki. Urðu þeir því að róa fjórða daginn í röð og nú enn harðar en áður. „Þetta var einn erfiðasti kafli ferðarinnar," sagði skipstjórinn, Ernst Emilsson. Eftir að hafa róið nær heilan dag komu þeir loks að Djúpa- vogi þar sem þeir fengu sér kaffísopa og hvfldu um stund. Róið í 22 tíma Aftur var haldið af stað og dró hraðfiski- bátur þá frá landi þannig að vindur stæði ekki beint á móti bátnum og héldu þeir síðan áfram að róa. „Við erum með hin hefðbundnu vík- ingasegl og það er ekki eins gott að beita þeim upp í vindinn og nútímaseglum. Við komum síðan til Fáskrúðsfjarðar klukkan fjög- ur í nótt [fyrrinótt] eftir að hafa róið nær stanslaust í 22 tíma. Síðan höfum við sofíð og borðað og safnað kröftum. Hins vegar þurfa tveir úr áhöfn- inni að hverfa til starfa í Færeyjum og því getum við ekki farið lengra. Við munum flytja bátinn með vörubfl til Seyð- isfjarðar þaðan sem hann verður sendur til Færeyja með Nor- rænu. Steininn sem við komum með til minningar um ferðina munum við hins veg- ar gefa Reyðfirðing- um um helgina." 6 vindstig En eru það engin vonbrigði að hafa ekki komist alla leið? „Nei, ég get ekki sagt að við séum vonsvikn- ir. Við lögðum af stað þó svo að spáin væri okkur óhagstæð og við komumst alla leið til íslands. Þótt við höfum ekki náð til Reyðarfjarðar hefur ferðin í heild sinni verið ánægjuleg og við hefðum litlu viljað breyta. Það er hægt að vera vitur eftirá og kannski voru það mistök að fara svo sunnarlega þegar við ákváðum að stefna í land. Hins vegar voru um 6 vindstig og töluverður sjó- gangur og við vorum ekki vissir „ÞETTA hefur gengið ágætlega en við eru þreyttir,“ sagði Iljalgrímur Kristinsen. „ERFIÐASTI kafl- inn var frá Hvalnesi til Fáskriiðsfjarð- ar,“ sagði Ernst Emilsson Petersen skipstjóri. Morgunblaðið/Þorkell AÐFARANÓTT miðvikudags gistu þeir á Hvalnesi en þar er hentugt bátalægi frá náttúrunnar hendi. ÞAÐ vantaði lítið upp á að þeir kæmust á fornar slóðir Naddodds vík- ings á Reyðarfirði. ÞÆR voru vel siggrónar og blöðróttar hendurnar á fjórmenningun um eftir fjögurra sólarhringa siglingu. hvar væri best að koma að landi milli Hafnar í Homafirði og Reyðarfjarðar." Vfldngur um borð Erast segir að áhöfnin hafí staðið sig frábærlega en þó hafí hann aldrei á sínum 20 ára sjó- mannsferli kynnst manni eins og Hjalgrími Kristinsen. „Ég hefði aldrei trúað að það væri til slíkt heljarmenni sem Hjalgrímur er. Hann var á við okkur alla þrjá og ég er ekki viss um að við hefðum komist alla leið án hans. Úthald hans var ótrúlegt og ég er viss um að hann er sterkasti maður Færeyja, hann gat róið enda- laust. Það var mikiil kraftur í hverju árataki sem hann tók. Ég spurði hann oft hvort hann vildi ekki hvfla sig en alltaf hélt hann áfram. Ég var orðinn hræddur um að hann myndi ofkeyra sig en það gerðist sem betur fer ekki.“ Hjalgrímur Kristinsen vildi ekkert gera úr lýsingum skip- stjórans en var ánægður með ferðina en þreyttur. „Þetta gekk ágætlega en við erum allir þreyttir. Þegar maður er þreytt- ur fyrir verður þetta erfítt enda höfum við Iítið sofíð.“ Hann lét þó vel af vistinni um borð nema hvað menn hefðu aldrei hvflst al- mennilega þar sem vaktir við róðurinn voru stífar. „Núna er bara hvfld og síðan förum við að borða góðan mat. Við eram búnir að vinna stíft síðustu daga. En við höfum haft það ágætt um borð og kokkurinn hefur verið góður," sagði Hjalgrímur við Morgunblaðið. Færeyingarnir dvelja nú hjá ættingjum á Seyðisfírði en tveir þeirra munu halda af landi brott á morgun. Ernst Emilsson Peter- sen skipstóri mun þó ferðast um landið næstu daga en hann mun fylgja Naddoddi með Norrænu að viku liðinni. Bátafélagið Tjaldrið á víkinga- skipið Naddodd. í Tjaldri eru um 100 manns en auk Naddodds eiga þeir 10 gamla færeyska báta auk pakkhúss sem þeir fengu að gjöf frá N.J. Mortensen og eru þeir að breyta því í minjasafn og gistiað- stöðu. Nýjar upplýsingar um áhrif Komintern á íslenska Sósialistaflokkinn „Leiðréttuu andstöðu sósíalista við her- stöðvabeiðnina 1941 DAGBÓKARFÆRSLUR Georgi Dimitrovs, yfirmanns Komintems, Alþjóðasambands kommúnista, sýna að íslenskir sósíalistar tóku við leiðbeiningum frá Komintern og arftaka þess, Alþjóðaupplýsinga- deild miðstjórnar sovéska kommún- istaflokksins, varðandi afstöðuna til herstöðvabeiðna Bandaríkjamanna, bæði árið 1941 og 1945. Þetta kem- ur fram í fyrirlestri búlgarska sagn- fræðingsins Jordans Baev á ráð- stefnunni um Norðurlöndin og kalda stríðið, sem haldin verður í Reykjavík í næstu viku og stendur dagana 24. til 25. júní. I dagbókinni segir að 13. júlí 1941 hafi Molotov, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, haft samband við Dimitrov vegna mótmæla íslenskra sósíalista gegn herverndarsamningi Bandaríkjamanna, sem gekk gegn nýrri stefnu Sovétmanna eftir inn- rás Þjóðverja. Dimitrov svaraði fyr- irspurn Molotovs þannig að stjóm- endur íslenska kommúnistaflokks- ins hefðu verið handteknir skömmu áður og því hefðu mótmælin ekki komið frá ábyrgum aðilum í hreyf- ingunni. Fyrirmæli frá Komintera með milligöngu breskra kommúnista Dimitrov skrifar ennfremur að eftir samtalið við Molotov hafi hann sent „bresku félögunum" skeyti þar sem stefna íslenskra kómmúnista var „leiðrétt". Þór Whitehead prófessor segir í samtali við Morgunblaðið að þessi færsla komi heim og saman við upp- lýsingar sem hann hafi fundið um samstarf Sósíalistaflokksins og breskra kommúnista í hemámsliði Breta hér á landi. Fram kemur í grein Þórs í tíma- ritinu Eimreiðinni frá árinu 1973 um samskipti Bandaríkjamanna við íslenska stjómmálaflokka á stríðs- ámnum, að eftir undirritun her- vemdarsamningsins hafi samskipt- in við Sósíalistaflokkinn orðið mjög vinsamleg. Sendiherra Bandaríkj- anna sagði meðal annars í skýrslu til utanríkisráðuneytisins árið 1942 að málgagn sósíalista hafi „löngum verið innilegasta stuðningsblað lýð- ræðis og bandamanna á Islandi". Einar leitar eftir ráðum Dimitrovs Seinni færslan í dagbók Dimitrovs er frá 25. október 1945. Þar segir hann frá heimsókn Einars Olgeirssonar, formanns Sósíalista- flokksins, sem þá var staddur í Moskvu sem fulltrúi í viðskipta- nefnd íslendinga. Dimitrov skrifar að Einar hafi óskað eftir ráðgjöf varðandi viðbrögð flokksins og rík- isstjómarinnar við herstöðvabeiðn- um Bandaríkjamanna sem ógnuðu sjálfstæði Islendinga og um ákveðin flokksmál. Ekki kemur fram hvert svar Dimitrovs var. Þór segir að áður hafi komið fram upplýsingar um að tengsl Kom- intern og íslenskra sósíalista hafi haldið áfram eftir að Kommúnista- flokkur Islands, sem var meðlimur í Komintem, var lagður niður árið 1938. Þær er að finna í skýrslu frá árinu 1940 sem Jón Ólafsson sagn- fræðingur fann í skjalasafni Al- þjóðasambandsins. í henni segir frá viðræðum Kristins E. Andréssonar, eins af forystumönnum Sósíalista- flokksins, við forráðamenn norður- landadeildar Kominterns og fýrir- mælum sem hann bar heim til Is- lands til kommúnískra flokksfélaga sinna um afstöðuna til stríðsins. Sósíalistar tvístígandi áður en nýja „línan“ barst Þór segir um fyrri dagbókar- færslu Dimitrovs að hún sýni að svo skammt hafi verið liðið frá því að Þjóðverjar réðust inn í Sovétríkin þar til Bandaríkjamenn komu til ís- lands að íslenskir sósíalistar hafi ekki haft á öðm að byggja en gömlu „Iínunni" frá Komintern. „En það kemur fram í alþingisumræðum að þeir eru tvístígandi og óvissir um afstöðu þar sem þeir hafa ekki feng- ið önnur fyrirmæli. Það hefur oft vakið furðu manna að sósíalistar skuli hafa greitt atkvæði gegn her- stöðvabeiðni Bandaríkjamanna, en reyndar kemur fram í þingumræð- unni að þeir gerðu það í raun ekki nema að hálfu, því þeir lýstu sig í raun ekki andvíga henni, en heimt- uðu að Sovétríkin yrðu aðili að samningnum. Nýju heimildirnar staðfesta það að þeir voru ekki enn- þá búnir að taka við nýju línunni en að það voru gerðar ráðstafanir til að þeir meðtækju hana. Eftir að hún var fengin breytti Sósíalistaflokkur- inn algerlega um afstöðu til styrj- aldarinnar og hélt henni næstu misserin á eftir.“ Bandaríkjamenn lögðu formlega fram beiðni um herstöðvar á íslandi 1. október 1945. í bók Vals Ingi- mundarsonar sagnfræðings, „I eld- línu kalda stríðsins" segir að Einar Olgeirsson, sem staddur var í Moskvu, hafi fengið staðfestingu á þessum fregnum 23. október, eða tveimur dögum fyrir fundinn með Dimitrov. Hann sendi strax skeyti til Brynjólfs þar sem hann kvaðst treysta því, að tilmælum Banda- ríkjamanna yrði vísað á bug. Einar hugðist strax halda heim til íslands, en tafðist vegna lélegra flugsam- gangna. Forystumenn Sósíalista- flokksins frestuðu þá flokksfundi sínum til þess að geta haft hann með í ráðum. Tíminn hélt því þá fram að sósíalistar væru að bíða fyr- irmæla frá Moskvu. Svar Dimitrovs vantar Þór segir að Sovétmenn hafi ekki haft í frammi veruleg mótmæli við herstöðvabeiðni Bandaríkjamanna á Islandi haustið 1945, en þeir hafi talið að íslendingar myndu láta undan kröfunni. „Því miður kemur ekki fram í dagbókinni hvert svar Dimitrovs var við beiðni Einars um ráð en ég tel nokkrar líkur á því að Sovét- stjórnin hafi hugsað sér að gera ein- hvers konar samning við Banda- ríkjamenn um herstöðvar á Norður- löndum. Þeir hefðu þá notfært sér herstöðvabeiðni þeirra á Islandi, hefði hún náðst fram, til þess að gera kröfur á aðra, og fá hugsan- lega samþykki Bandaríkjamanna fyrir þeim kröfum. Um þetta leyti gerðu þeir meðal annars ki’öfur á hendur Norðmönnum, um land- svæði norður við íshaf. Þeir voru einnig með her á Borgundarhólmi og óttast var að þeir myndu gera einhverjar kröfur þar. „ Þór segir að jafnvel þótt Sovét- menn hafi haft í huga slíka samn- inga við Bandaríkjamenn hafi þeir trúlega sagt Einari að beita sér gegn herstöðvabeiðninni. „Mótmæli íslenskra sósíalista hefðu í sjálfu sér ekki breytt neinu um stöðu Sovét- manna gagnvart Bandaríkjamönn- um í þessu máli. Svo mikið er víst að sósíalistar tóku mjög afdráttarlausa afstöðu gegn beiðninni."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.