Morgunblaðið - 19.06.1998, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Gunnlaugur Arnason
JOHANNES Gijsen biskup söng messu í tilefni dagsins. F.v. eru sr. Sean,
prestur í Stykkishnlmi, systir Renée, Johannes biskup og systir Jolianna.
Morgunblaðið/Anna Ingólfs
Gleði og góðæri
í Kofaborg
Egilsstöðum - Það ríkir gleði
og mikil athafnasemi í Kofa-
borg á Egilsstöðum. Borgin er
siung og íbúamir glaðbeitt
fólk af yngri kynslóðinni.
Borgin er sjálfstæð og hefur
ekki sameinast öðrum sveitar-
félögum, heldur sameinuðust
íbúar um að kjósa sér borgar-
stjóra, Iögreglustjóra og velja
góða þegna til þess að gegna
embættum sem nauðsynleg
em í hverri borg. Borg þessi
reis á nokkrum dögum og enn
em lausar lóðir og enn er
keppst við að smiða. Svo er að
sjálfsögðu verslað með varn-
ing ýmiskonar og að sjálf-
sögðu með nauðsynlegar veit-
ingar svo sem popp og djús.
Haldið upp á hálfrar
aldar klausturheit
Stykkishólmi - Það var hátíðisdag-
ur hjá systrunum við St. Fransis-
kusspítalann í Stykkishólmi sunnu-
daginn 14. júní, er þess var minnst
að liðin eru 50 ár frá því að tvær
systur unnu klausturheit.
Það var í mars 1948 að systir Jo-
hanna Terpstra vann sitt heit. Hún
er fædd í Amsterdam 16. maí 1928.
Kom til Stykkishólms 1. mars 1964
og hefur starfað við sjúkrahúsið síð-
an, eða í 34 ár. Systir Renee Lonton
er fædd í Belgíu 23. október 1925 og
vann sitt heit 23 ára gömul 13. júní
1948. Heitið er unnið eftir sex mán-
aða reynslutíma. Síðan er það aftur
unnið eftir tvö ár og í síðasta skipti
að þremur árum liðnum. Systir
Renee kom til Stykkishólms í sept-
ember 1952 og hefur starfað þar í
46 ár.
Tímamótanna var minnst í messu
í kirkju systranna kl. 14.30. Þar
voru mættir um 100 gestir bæði
Hólmarar og gestir lengra að komn-
ir. Þarna voru þrjú systkin systur
Johönnu, sem búsett eru í Hollandi
og komu til Islands af þessu tilefni.
Þar messaði katólski biskupinn á
íslandi, sr. Jóhannes Gijsen og þátt
í messunni tóku katólsku prestamir
sr. Testrut og sr. Sean McTierman,
sem starfar með söfnuðinum í
Stykkishólmi. Félagar úr kirkjukór
Stykkishólms aðstoðuðu systurnar
við sönginn. Að lokinni messu var
boðið í kaffísamsæti á sjúkrahúsinu
til að halda upp á þessi tímamót í lífi
systranna. Hólmarar senda systr-
unum innilegar hamingjuóskir og
þakka þeim fómfúst og mikið starf
sem þær hafa lagt fram til að þjóna
sínum meðbræðmm.
*
Iþróttamað-
ur Austra
á Eskifirði
FJÓRIR íþróttamenn komu til
álita við val á íþróttamanni
Austra á Eskifirði fyrir árið 1997
og varð María Hjálmarsdóttir
frjálsíþróttakona fyrir valinu, en
hún stóð sig mjög vel á þeim mót-
um sem hún tók þátt í.
Aðrír vom þau Davíð Þór
Magnússon knattspyrnumaður,
Tinna Alvisdóttir skíðakona og
Ingunn Eir Andrésdóttir sund-
kona sem einnig vom útnefnd
Iþróttamenn Austra.
Ungt fólk í Grindavík
Grindavík - Samstarfsnefnd Gmnn-
skóla Grindavíkur, Grindavflau'-
kirkju, félagsmálaráðs, lögreglunnar
og íþrótta- og æskulýðsnefndar stóð
nýlega fyrir fundi um samanburð á
unglingum í Grindavík og annars
staðar. Jón Gunnar frá Rannsókna-
stofnun uppeldis og menntamála
(RUM) hóf máls eftir að Halldór
Ingvarsson félagsmálafulltrúi hafði
sett fundinn. Jón sýndi fundarmönn-
um glærur sem sýndu samanburð á
milli landshluta á unglingum úr
könnuninni Ungt fólk 97. Samkvæmt
þessari könnun virðast ungmenni í
Grindavík verja mun minni tíma með
foreldrum sínum og vinna meira með
skóla en aðrir jafhaldrar þeirra.
Hjálmar Hallgrímsson lögreglu-
maður í Grindavík flutti erindi um
fíkniefni og sýndi fundarmönnum
meðal annars helstu tæki og tól til
slíkrar iðju. Þá sagði Hjálmar frá
þeim breytingum sem hægt er að
sjá í lífsmynstri unglinganna ef þeir
eru byrjaðir að neyta ólöglegra
fíkniefna. Þá fullvissaði hann fund-
armenn um að Grunnskólinn í Gr-
indavík væri laus við fíkniefni og
reyndar væri bærinn að mestu laus
við þessa óværu þó stundum slædd-
ust inn í plássið einhverjir af þess-
um toga. Fundarmönnum gafst
tækifæri til að spyrja framsögu-
menn spurninga og nýttu þeir sér
það óspart enda margt forvitnilegt
sem fram kom í þessum framsögu-
erindum.
Það var Húgó Þórisson, sálfræð-
ingur, sem flutti síðasta erindið og
hreif fundarmenn með sér með
skemmtilegum pistli m.a. um ung-
linga, viðhorf þeirra, líðan, gildis-
mat og allt það. Þá ræddi Húgó um
feimni fólks við að segja „ég elska
þig“ við börnin sín, feimni barnanna
við sömu orð og viðbrögð foreldra
þegar unglingurinn fer út af beinu
brautinni. Þá þarf oft að rjúka upp
með reglur ýmsar. Það var greini-
legt af viðbrögðum foreldranna sem
höfðu fjölmennt á þennan fund að
þeir könnuðust við margt í erindinu
hjá Húgó.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Morgunblaðið/Sigurgeir
EINAR Daníelsson, Kristjón Jónsson og Hildur Nielsen, sem reru
úr Bakkafjöru til Eyja á kajökum, í innsiglingunni til Eyja.
Morgunblaðið/Benedikt
Reru á
kajökum
til Eyja
Vestmannaeyjum - Þrír félagar
úr Hjálparsveit skáta í Reykja-
vík reru um síðustu helgi á
kajökum frá Landeyjarsandi til
Vestmannaeyja. Að sögn Einars
Daníelssonar, eins þremenning-
anna, er einn félagi þeirra með
fyrirtæki sem býður upp á
kajakaferðir um Vestfirði og
hafa þau kynnst kajakaróðri í
gegnum það. Þau hafi því smit-
ast af þessari bakteríu og hafí
gaman af því að róa um á kajök-
unum. Ferðinni hafí reyndar
ekki verið heitið til Eyja í upp-
hafí. Stefnan hafí verið sett á að
róa út í Langasjó en þar sem
ekki viðraði til ferðar þangað
ákváðu þau að skella sér til
Eyja í góða veðrinu sem þar
ríkti.
Tók rúmlega
tvo tíma
Þau lögðu af stað úr Bakka-
fjöru klukkan tvö aðfaranótt
laugardags og segir Einar að
vel hafí gengið að komast út úr
brimgarðinum sem oft er erfíð-
ur viðureignar við Landeyjar-
sand. Þau hafí sætt lagi og náð
að sneiða milli stærstu aldanna
við sandinn. Róðurinn til Eyja
tók siðan rúma tvo tíma og
sagði hann að frábært hafí ver-
ið að sigla inn til Eyja í morg-
unsárið í náinni snertingu
við sjóinn og bjargfuglana sem
á honum kúrðu eða sátu
á klettasyllum í innsigling-
unni.
I Eyjum notuðu þau síðan
tímann til að skoða sig um og
reru m.a. í kringum Heimaey en
einnig fóru þau í skoðunarferð
á bát Björgunarfélagsins í Eyj-
um.
Þegar halda átti til lands á ný
á sunnudaginn var kominn kaldi
og sagði Einar að þau hafi
ákveðið að henda kajökunum
um borð í Herjólf og sigla með
honum til Þorlákshafnar í stað
þess að róa til lands á ný.