Morgunblaðið - 19.06.1998, Page 20

Morgunblaðið - 19.06.1998, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Búnaðarbankinn vill blása nýju lífi í hlutabréfamarkaðinn ■ Morgunblaðið/Árni Sæberg FRÁ fundi Búnaðarbankans í Iðnó í gær. Stefnt að traustari verð- myndun og minni áhættu BÚNAÐARBANKINN hefur lýst yfir að hann muni héðan í frá setja fram 1 milljónar króna kaup- og sölutilboð á hverjum degi í 10 af 15 stærstu fyrirtækjum á Verðbréfa- þingi íslands. Með þessu vill hann minnka áhættu fjárfesta við kaup og sölu hlutabréfa, þar sem oft hef- ur reynst erfitt að selja eða kaupa háar fjárhæðir án þess að gengi breytist mikið. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Búnaðar- bankinn hélt í gær. Munu lækka söluþóknun vegna hlutabréfa Þá stefnir bankinn að því að til- boð verði endumýjuð innan 10 mínútna frá því að viðskipti eiga sér stað. Keppst verður að því að munur á kaup- og sölugengi verði ekki meiri en 3%, en hámarksmun- ur verði 5%. Bankinn mun lækka söluþóknun vegna viðskipta með hlutabréf á Aðallista Verðbréfaþings íslands úr 3% í 1%, en tekin verður upp 1% kaupþóknun. Söluþóknun vegna annarra hlutabréfa verður 1,5% og kaupþóknun 1,5%. Lágmarksþókn- un verður 5.000 krónur. Andri Sveinsson verðbréfamiðl- ari hjá Búnaðarbankanum segir að bankinn vonist til að í kjölfar þess- ara aðgerða birti til á íslenskum hlutabréfamarkaði. „Veltan á skuldabréfamarkaðnum þrefaldað- ist á síðasta ári með innleiðingu markflokkakerfisins og öflugri við- skiptavakt Búnaðarbankans. Bún- aðarbankinn hefur verið leiðandi á skuldabréfamarkaði með öflugri viðskiptavakt sinni og var bankinn þátttakandi í tæplega 50% við- skipta á síðasta ári. Vegna þess veltusamdráttar sem orðið hefiar á hlutabréfamarkaði teljum við þörf á að efla markaðinn og þessar að- gerðir miða að því að minnka selj- anleikaáhættu, treysta verðmynd- un og gera hlutabréf þannig áhuga- verðari kost fyrir fjárfesta," segir hann. Minni velta í ár Andri bætir við að veltusam- dráttur á hlutabréfamarkaðnum það sem af er árinu miðað við sama tíma í fyrra sé hvorki meiri né minni en 45%. í fyrra hafi veltan verið 7 milljarðar á þessum tíma, samanborið við 3,8 milijarða í ár. Að blaðamannafundinum lokn- um var haldinn fundur þar sem Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Brynjólfs Bjarnasonar, fram- kvæmdastjóri Granda hf. héldu ræður. Geir fjallaði um ríkisfjármál og verðbréfamarkað og kom m.a. fram í máli hans að á síðasta ári hefði ríkissjóður verið rekinn með 1,2 milljarða króna afgangi á greiðslugrunni. Það væri í fyrsta sinn síðan 1984 sem hagnaður væri á rekstri ríkissjóðs. Brynjólfur bar fram þá ósk til fjármálaráðherra að stjómvöld örvuðu hlutbréfamarkaðinn með skattaívilnunum. Hann sagði vandamál íslenska hlutabréfa- markaðarins m.a. vera smæð hans og að viðskipti með smáar fjárhæð- ir lægju að baki miklum verðbreyt- ingum á hlutabréfum. Shell lok- ar hreins- unarstöð á Englandi Astralski fjölmiðlarisinn Rupert Murdoch Vill færa út kví- arnar í Þýzkalandi London. Reuters. ROYAL Dutch/Shell hefur lokað lítilli hreinsunarstöð á austurströnd Englands og lokunin ber vott um bölsýni vegna umframgetu í grein- inni í Evrópu. Þar með hefur tveimur hreins- unarstöðvum verið lokað í Bret- landi á einu ári vegna offramboðs á olíuafurðum í Evrópu. Shell kennir um aukinni notkun jarðgass í orkuframleiðslu og upp- hitun húsa, auknum innflutningi frá Austur-Evrópu og spameytn- ari bifreiðahreyflum. Fyrirtækið segir að horfur í greininni hafi verið slæmar í Vest- ur-Evrópu og í nokkur ár og enn sé ekki sýnilegt að úr muni rætast. Umframgeta nálægt 100 milljónum tonna á ári Afköst hreinsunarstöðvarinnar Shell Haven voru 100.000 tunnur á dag og afköst í greininni í Bretlandi minnka um aðeins 5% við lokun stöðvarinnar. Chevron lokaði hreinsunarstöð sinni Wales Gulf Oil um mitt ár í fyrra. Umframgeta ESB-landa um þessar mundir er 70-100 milljónir tonna af hráolíu á ári, eða sem svar- ar afköstum 9-13 olíuhreinsunar- stöðva að sögn Shell. Köln. Reuters. RUPERT MURDOCH, hinn ástr- alsk-bandaríski fjölmiðlabarón, hefur gert Þjóðverjum heyrin- kunnugt að hann vilji færa út kví- amar á öðram stærsta sjónvarps- markaði heims, í Þýzkalandi. Murdoch lýsti þeim ásetningi sín- um í viðskiptaferð í Þýzkalandi að ráðast í hundraða milljóna dollara fjárfestingar til að víkka út þýzka rás sína, Vox. Murdoch gaf sér tíma til að ræða við Gerhard Sehröder, kanzlaraefni sósíaldemókrata, í boði með ráða- mönnum í fjölmiðlaiðnaði í Schloss- hotel Lerbach, landareign frá 14. öld nálægt Köln. Murdoch virðist reyna að afla sér stuðnings sósíaldeókrata, sem eru nátengdir Bertelsmann. Þýskur markaður lokaður Murdoch sagði í aðalræðu á fjöl- miðlaráðstefnu í Köln að erfitt væri fyrir erlenda aðila að komast inn á þýzkan markað vegna þess að inn- lend fyrirtæki hefðu hemil á þýzka markaðnum. „Einu fjölmiðlaítök okkar í Þýzkalandi til þessa er 49% hlutur í Vox, sem er lítilræði miðað við þá hagsmuni, sem eiga fulltrúa hér í dag,“ sagði hann. Murdoch fagnaði úrskurði fram- kvæmdastjórnar ESB, sem kom í veg fyrir stafrænt áskriftarbanda- lag sjónvarpsrisans Bertelsmanns og bæverska auðmannsins Leo Kirch, en benti á að áskriftarsjón- varp þeirra, Premiere, gæti einnig orðið ógnun. Murdoch hvatti framkvæmda- stjórnina til að tryggja að Premi- ere yrði stafrænn sjónvarpsvett- vangur, opinn öllum sjónvarpsrek- endum á þýzkum markaði. Helzta áhugamál Murdochs í Þýzkalandi er að bjarga Vox úr sjálfheldu vegna þess að Bertels- mann, sem á 24,9% í stöðinni, hef- ur komið í veg fyrir fyrirætlanir um aukin umsvif af ótta við að Vox geti ógnað RTL-rás Bertels- manns. „Okkur er það mikið kappsmál að auka starfsemina í Þýzkalandi," sagði Murdoch fréttamönnum. „Við viljum gera Vox að virku afli hér. Við þurfum stuðning annarra hlut- hafa og vinnum að því að tryggja hann.“ Murdoch vill bæta fréttir og annað efni Vox til að auka hlutdeild stöðvarinnar á markaðnum í 10% úr 3% nú. Markus Tellenbach, fram- kvæmdastjóri Vox, kvað stöðina hafa sýningarrétt á stórmyndum frá 20th Century Fox eins og Tit- anic, en ekki geta aflað nógu margra auglýsinga til að það borg- aði sig að sýna slíkar myndir. Miklar auglýsingatekjur í húfi Murdoch kveðst hafa í athugun að blanda sér í stafrænu sjónvarps- deiluna í Þýzkalandi, en ekki hafa rætt við Leo Kirch, sem kann að neyðast til að loka DFl stöð sínni vegna banns ESB við samruna DFl og Premiere. í Þýzkalandi era 34 sjónvarps- rásir, þar af tvær ríkisreknar menningarstöðvar, sem era í vexti. Auglýsingatekjur á þessum mark- aði vora um átta milljarðar marka í fyrra og þær fara vaxandi. Bertels- mann AG og Leo Kirch ráða lögum og lofum á markaðnum og Mur- doch virðist einn fárra sem geta ógnað þeim. Lagt til að Köhler taki við EBRD London. Reuters. ÞJÓÐVERJAR hafa formlega lagt til að þýzki bankastjórinn Horst Köhler verði bankastjóri Viðreisnar- og þróunarbanka Evrópu, EBRD. Fjármálaráðherrar Efna- hagssambandsins samþykktu í síðustu viku að styðja Köhler og talið er nær víst að hann hljóti embættið. Það hefur ver- ið laust síðan Frakkinn Jacques de Larosiere dró sig í hlé í janúar. Ailir 64 hluthafar EBRD geta tilnefnt mann í ewmbætt- ið til 22. júní. Köhler er 55 ára gamall for- stöðumaður sambands þýzkra sparisjóða, sem hefur bæði starfað í einkageiranum og hjá ríkinu. Hann var um skeið að- stoðarfjármálaráðherra. EBRD í London hefur starf- að síðan 1991 og fjármagnar og styrkir þróun í fyrrverandi kommúnistalöndum. Hærra verð á htísnæði í Bretlandi London. Reuters. NOKKUR hækkun á verði húsnæðis í London og suðaust- urhluta Englands stuðlaði að því að meðalverð brezkra fast- eigna hækkaði um 0,6% á fýrsta ársfjórðungi að sögn fatseignamatsdeildar brezka fjármálaráðuneytisins. Fjörutíu af hundraði húsa, sem skiptu um eigendur, vora í London og Suðaustur- Englandi. Verðmæti seldra húsa á þessu svæði nam 53% af heildarverðmæti þeirra fast- eigna, sem seldar voru í Englandi og Wales samkvæmt i skýrslu fasteignamatsdeildar- innar. Ef sala í þessu landshorni er ekki talin með lækkaði meðal- verð fasteigna nokkuð annars staðar á Englandi og í Wales segir í skýrslunni. Meðalverð allra fasteigna í Englandi og Wales hefur hækkað um 9,4% miðað við fyrsta ársfjórðung 1997, en á sama tíma dróst sala saman um 3,7 af hundraði. Beðið eftir Springer- tilboði London. Reuters. BÚIZT er við að þýzka blaða- útgáfufyrirtækið Axel Sprin- ger Verlag AG bjóði formlega í Mirror Group Plc í Bretlandi fyrir júnílok að sögn Lundúna- blaðsins The Times. Samkvæmt frétt blaðsins vinnur stjórnarformaður Springer-fyrirtækisins ötul- lega að lausn málsins og nauð- synlegs fjár hefur verið aflað. Hermt er að Springer-fyrir- tækið reyni að vega og meta hvaða áhrif það getur haft að varaforstjóri Miirors, Kelvin MacKenzie, hefur sagt af sér og gert tilboð í útvarpsstöðina Talk Radio.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.