Morgunblaðið - 19.06.1998, Page 28

Morgunblaðið - 19.06.1998, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Seðlabankar Bandaríkjanna og Japans styrkja stöðu jensins Gengi japanskra verðbréfa snarhækkar eftir íhlutunina Tókýó. Reuters. GENGI japanskra verðbréfa hækkaði um 4,39% í gær eftir að seðlabankar Bandaríkjanna og Japans keyptu jen fyrir milljarða Bandaríkjadollara til . að styrkja japanska gjaldmiðilinn. Leiðtogar ríkja Austur-Asíu fögnuðu íhlutun seðlabankanna, sem eru taldir hafa keypt jen fyr- ir allt að sex milljarða dollara, andvirði 432 milljarða króna. Aætlað er að bandaríski seðla- bankinn hafi keypt jen fyrir tvo milljarða dollara, andvirði 140 milljarða króna, og er þetta í fyrsta sinn í sex ár sem bankinn grípur til slíkra aðgerða til að styrkja jenið. Búist við skattalækkun Hagfræðingar í Tókýó sögðu þó að áhrifa gjaldeyrisíhlutunarinnar myndi ekki gæta lengi ef stjóm Japans fylgdi henni ekki eftir með efnahagsumbótum. Fjármálamenn eru flestir þeirrar skoðunar að jap- anska stjómin hafi lofað Banda- ríkjastjóm að gera ráðstafanir til að blása lífi í efnahaginn og gera róttækar úrbætur á japanska bankakerfinu í staðinn fyrir aðstoð Bandaríkjamanna við að styrkja jenið. Fyrir íhlutunina var gengi dollarans rúm 146 jen og japanski gjaldmiðillinn hafði ekki verið jafn veikur í átta ár. Gengi dollarans var tæp 137 jen í New York eftir íhlutunina og búist var við að seðla- banki Japans myndi skerast aftur í leikinn ef gengi dollarans hækkaði vemlega aftur. Hikara Matsunaga, fjármála- ráðhema Japans, kvaðst ánægður með viðbrögð markaðanna og sagði að íhlutun seðlabankanna hefði haft „afgerandi“ áhrif á stöðu jensins. Gengi japanskra ríkisskuldabréfa lækkaði þar sem íhlutun seðlabankanna kynti undir vangaveltum um að japanska stjórnin myndi íhuga varanlega lækkun á tekjusköttum til að blása lífi í efnahaginn. Japanska dag- blaðið Nihon Keizai Shimbun sagði í gær að stjórnin kynni að tilkynna skattalækkunina fyrir kosningar til efri deildar þingsins 12. júlí. Óvænt traustsyfirlýsing Ihlutun bandaríska seðlabank- ans kom á óvart þar sem Banda- ríkjastjórn hafði ítrekað sagt að eina leiðin til að styrkja jenið væri að koma á efnahagsumbótum í Jap- an. Stjórnin í Tókýó hafði sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki gert nóg til að rétta efnahaginn við en litið var á íhlutun Bandaríkjanna sem yfirlýsingu um traust á efna- hagsstefnu japönsku ráðamann- anna. Lawrence Summers, aðstoðar- fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hélt til Tókýó í gær til að ræða við embættismenn japanska fjár- málaráðuneytisins um efnahagsá- standið í Japan og fjármálakrepp- una í Austur-Asíuríkjunum. Ráð- gert er að Summers ræði við Matsunaga í dag og japanski fjár- málaráðherrann kvaðst ætla að útskýra hvernig stjórnin hygðist taka á vanda bankanna, sem er helsta hindranin fyrir efnahags- bata í Japan. Summers ætlar einnig að sitja fund aðstoðarfjár- málaráðherra sjö helstu ríkja heims á morgun. Gengisfelling ekki nauðsynleg í Kína Óttast hafði verið að ef gengi jensins hækkaði ekki myndi það valda nýrri hrinu gengisfellinga í nágrannaríkjunum, einkum í Kína. Það yrði síðan upphafið að nýrri erbetraaðvandavalið. Hjaokkui finnur þú það sem þú leitar að og þú gerirörugglega. j- Marco borö. Beyki. Stækkanlegl Kr. 8.640,- Didde stólar. Beyki. Kr. 4.500,- stk. Eidhúsborð oci 4 stólar fctjanusooro oq *+ sioiar tjanusDorö oci 4 sioiar Marie bcrö. Beykí. StækkanlegL Kr. 11.520,- Möleboið.lÆeyti.Stækkanl.Kr.11520,- Bodagaboiö.rtiílLStækkanlegt.Kr. 8.990, Jonna stólar. Beyki. Kr. 4.970,- slk. Lxccastólar. Beyki.Kr. 5.180,-stk. Sonjastólar.HvltlKr.6.410,-stk. dl mm 1... HÚSGAGNAHÖLUN BIkUhöt« 20-112 Rvflc-8:510 8000 KOMDU OG 6K0DADU OKKAR FRABÆRA URVAL. Reuters JAPANSKIR kaupsýslumenn fylgjast með gengi verðbréfa í glugga verðbréfamiðlunar í Tókýó, en í kauphöllinni þar hækkaði gengið um meira en 4% í gær, eftir íhlutun bandaríska seðlabankans. kreppu í Asíu og síðan um allan heim. Dai Xianglong, seðlabankastjóri Kína, fagnaði gjaldeyrisíhlutuninni í gær og sagði að ekki væri nauð- synlegt að fella gengi kínverska gjaldmiðilsins, júansins. Nokkram dögum áður hafði seðlabankastjór- inn kynt undir ótta manna við að gengi júansins yrði fellt með því að lýsa því yfir að gengislækkun jens- ins hefði dregið úr útflutningi Kín- verja og erlendum fjárfestingum í Kína. Hagfræðingur við kínverska seðlaþankann sagði að íhlutun bankanna væri góð tíðindi fyrir Kínverja og kvaðst telja að gengi jensins myndi haldast stöðugt. Leiðtogar og seðlabankastjórar annarra Asíuríkja fögnuðu einnig íhlutuninni og sögðust vona að hún myndi stuðla að jafnvægi á asísku fjármálamörkuðunum. íhlutunin slær vopnin úr hönd- um hægrisinnaðra þjóðemissinna í Japan, sem hafa sakað Banda- ríkjamenn um að hafa valdið efna- hagsvanda landsins og ekki gert nóg til að hjálpa Japönum að vinna sig út úr kreppunni. Þjóðernis- sinnarnir hafa mótmælt nýlegum umbótum stjórnarinnar á fjár- málakerfinu og sagt að þær hafi aðallega komið bandarískum auð- jöfrum til góða. Reuters Holbrooke tekur við BILL Clinton Bandaríkjaforseti hyggst tilnefna Bill Richardson, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, orkumála- ráðherra, og Richard Holbrooke, samningamann Bandaríkja- stjórnar á Balkanskaga, eftir- mann Richardsons lyá SÞ. Til- kynnti forsetinn þetta í gær. Hér innsigla þeir þrír, Holbrooke, Ciinton og Richardson ákvörðun- ina en öldungadeild Bandaríkja- þings verður að staðfesta skip- unina í embættin. Holbrooke er talinn einn aðal- maðurinn á bak við Dayton-frið- arsamkomulagið um lok Bosniu- striðsins. Hann hefur ennfremur reynt að miðia málum í Kosovo- deilunni og deilu Grikkja og Tyrkja á Kýpur. Hlutverk Richardsons verður að takast á við verkefni á borð við samninga og aðgerðir í tengslum við loftslagsbreytingar og gróðurhúsaáhrif en Clinton sagði það verða eitt brýnasta verkefni bandarískra stjórnvalda á næstu árum. Richardson tekur við af Federico Pena, sem tilkynnti fyrr á þessu ári að liann hygðist hætta afskiptum af stjórnmál- um og hefja störf í einkageir- anum. Talið er að með skipun Richardsons sé Clinton að koma til móts við kröfur spænsku- mælandi Bandaríkjamanna um að stjórnmálamaður ættaður frá Mið- Ameríku fái embættið en Richardson er hálfur Mexí- kani. netinu eia á FM S57 og fylgstu mei.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.