Morgunblaðið - 19.06.1998, Side 32

Morgunblaðið - 19.06.1998, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ 01 PNUNARMYND þess- i arar kvikmyndahátíðar nýjasta mynd Kam- inskis, Þjóðverjar. Há- tíðin, sem stendur yfir til 26. júní er haldin í samvinnu sendiráðs Póllands fyrir Island sem er í Ósló, Kvikmyndasafns íslands, pólsku kvikmyndasamtakanna og pólska kvikmyndasjóðsins. Atta kvikmyndir frá síðustu 20 árum verða á hátíðinni, þar af fjórar eldri kvikmyndir Krzysztofs Kieslowskis; Ahugamaðurinn, Til- viljun, Án enda og Stutt mynd um ást, ný mynd, Þeysireið, eftir Krzyzstof Zanussi, Sólúr eftir Andrzej Kondratiuk og kvik- myndin Ástarsögur eftir Jerzy Stuhr, fyrrum samverkamann Kieslowskis. Um þessar mundir er unnið að endurbótum á hús- næði Bæjarbíós þangað sem Kvikmyndasafn Reykjavíkur hef- ur flutt starfsemi sína og stefnt er að því að taka aftur upp kvik- myndasýningar í húsinu með áherslu á klassískar mynd- ir. Pólverjar hafa lengi verið með öflugri kvikmynda- gerðarmönnum í Evrópu og á hverju ári eru gerðar um 20 kvikmyndir í fullri lengd, 20 sjónvarpsmyndir auk fjölda teiknimynda og heimildarmynda. Akkilles- arhæll kvikmyndalistarinn- ar er sá mikli kostnaður sem henni fylgir, og eins og Zbigniew Kaminski bendir á þá skiptir oft engu máli hvort um er að ræða list- rænar eða markaðsvænni kvikmyndir, og auðvitað reynist talsvert þægilegra að nálgast fjármagn fyrir þær síðarnefndu. Á meðan kommúnistar réðu í landinu voru pólskar kvikmyndir eingöngu fjár- magnaðar af ríkinu en með lýðræðislegum umbótum dróg úr ríkisstyrkjum þó að pólski kvikmyndasjóðurinn leggi enn um 30% fjármagns til hverrar myndar, sem verður að teljast umtalsvert þar sem um svo margar kvikmyndir er að ræða ár- lega. Á móti koma svo oftast styrk- ir frá ríkissjónvarpinu og einka- reknum sjónvarpsstöðvum. Ta- deusz Scibor-Rylski segir pólska kvikmyndagerðarmenn einnig leita í aukna mæli til erlendra aðila við fjármögnun mynda sinna. Þar er einkum um tvær leiðir að ræða; Evrópumarkaður og Bandaríkja- markaður. Kieslowski er dæmi um kvikmyndagerðarmann sem leitaði fjái-mögnunar í Evrópu, einkum Frakklandi, og í sjóði Evrópusam- bandsins, Euroimage, þar sem styrkveitingar eru skilyrtar við Þjóðverjar eftir Kaminski opnun- armynd á pólskri kvikmyndahátíð Hér á landi er staddur pólskur kvikmynda- leikstjóri, Zbigniew Kaminski, ásamt yfírmanni pólska kvikmyndasjóðsins, Tadeusz Scibor-Rylski, og er tilefnið pólsk kvikmyndahátíð sem hefst í Bæjarbíói í Hafnarfirði í kvöld. Morgunblaðið/Arnaldur PÓLSKI kvikmyndaleikstjórinn Zbigniew Kaminski. Nýjasta kvikmynd hans, Þjóð- verjar, er opnunarmynd pólskrar kvikmyndahátíðar sem hefst í Bæjarbíói í Hafn- arfirði í kvöld. þátttöku þriggja Evrópulanda í hverri mynd. Zbigniew Kaminski kaus hins vegar að setjast að í Bandaríkjun- um eftir ársdvöl í Þýskalandi þeg- ar hann yfírgaf heimaland sitt ár- ið 1981. „Á þeim tíma var mikil hætta á að herlög yrðu sett í land- inu auk þess sem mér þótti tími til kominn að breyta til og reyna fyr- ir mér annars staðar," segir Zbigniew. „Þegar lýðræði var komið á í Póllandi árið 1989 og ástandið fór batnandi hafði ég hins vegar komið undir mig fótun- um í Los Angeles óg kaus því að búa þar áfram og koma á sam- vinnu milli Bandaríkjanna og Pól- lands um kvikmyndagerð.“ Zbigniew Kaminski lauk námi frá kvikmyndaskólanum í Lods árið 1971 þar sem margir þekktir leikstjórar á borð við Roman Pol- anski hafa einnig hlotið sína menntun. Hann hefur unnið til verðlauna á kvikmyndahátíðum í Locarno, Berlín og Houston og skrifað handritið að kvikmynd samstarfsmanns síns, Andrzej Wajda, Þernurnar í Wilko, sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin árið 1980. Fjölskyldudrama úr síðari heimsstyrjöld Kvikmynd Kaminskis á hátíð- inni, Þjóðverjar, er frá síðasta ári og er byggð á þekktu samnefndu leikriti eftir Leon Kruczkowski frá 1941 sem ávann sér fljótlega fast- an sess innan pólskra leikhúsbók- mennta. Með aðalhlutverk í mynd- inni fer sænski leikarinn Per Oskarsson er hlaut Gullna pálmann sem besti karlleikari í Cannes árið 1969 fyrir hlutverk sitt í Sulti eftir sögu Knuts Hamsuns. Þjóðverjar er fjölskyldudrama sem gerist í Póllandi á tímum seinni heimsstyrj- aldarinnar. Fjölskyldan kemur saman í tilefni afmælis fóðurins og háskólaprófessor'sins sem Per Oskarsson leikur og upp koma erf- iðar siðferðislegar spumingar er tengjast stríðinu. Innan fjölskyld- unnar em bæði gallharðir þjóðem- issinnar og aðrir sem er ríkjandi ástand lítt þóknanlegt og þegar gamall fjölskylduvinur af gyðinga- ættum leitar óvænt næturgistingar eftir að hafa flúið þrælkunarbúðir nasista vaknar sú spurning hvort fjölskyldan muni hjálpa honum. Nauðugur kostur að gangast undir lögmál markaðarins Zbigniew segir kvik- myndir sínar ekki pólitísks eðlis heldur fyrst og fremst dramatískar og gjarnan fjölskyldusögur, þó að ekki verði hjá því komist að lýsa þjóðfélagslegum bakgmnni myndanna hverju sinni þar sem slíkt hafi áhrif á tilfinn- ingar og örlög persónanna. Þetta er önnur kvikmyndin sem Zbigniew gerir á ensku og segir hann að við þá þró- un verði einfaldlega ekki ráðið, allra síst þegar hann sé kominn í samvinnu við bandaríska framleiðendur og dreifendur. „Bandarískir áhorfendur kæra sig ekki um sjá textaðar myndir og því hlýt ég að fylgja lögmál- um markaðarins og gera myndir á ensku,“ segir Zbigniew. En óttast hann þá ekki að markaðslögmálin verði listrænum metnaði yfir- sterkari í myndunum? „Sú hætta er vissulega fyrir hendi en það er ekki um annað að ræða. Ef fjár- sterkir framleiðendur og öflugir dreifingaraðilar eiga að fást að myndunum þá verður maður að ganga að kröfum þeirra, gera myndir á ensku með þátttöku bæði bandarískra og pólskra leik- ara og a.m.k. einu þekktu nafni í kvikmyndaheiminum sem þeir geta skreytt auglýsingarnar sínar með. Og þó að enn sé nokkur munur á bandarískum og evr- ópskum markaði hvað þetta varð- ar þá spái ég því að innan örfárra ára verði sömu lögmál orðin ríkj- andi í Evrópu.“ VERK eftir Hörpu. Harpa sýmr í SPRON HARPA Björnsdóttir opnar sýn- ingu í útibúi Sparisjóðs Reykja- víkur og nágrennis í Álfabakka 14, Mjódd, sunnudaginn 21. júní kl. 14-16. Harpa stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík, Iðn- skóla Vestmannaeyja, Háskóla Is- lands og Myndlista- og handíða- skóla íslands, en þaðan lauk hún námi 1982 úr nýlistadeild. Hún dvaldi við nám og störf á Irlandi og í Danmörku á árunum 1980-1982 og hefur dvalist á vinnustofum í Frakklandi, Finn- landi, Danmörku, Italíu, Irlandi, Spáni og Bali, en hefur haft fasta búsetu í Reykjavík. Harpa hefur haldið 18 einka- sýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum hér á landi og er- lendis. Hún hefur unnið mest að mál- verki og grafík, en einnig notað þann efnivið sem hentugur er hverju sinni. Sýningunni lýkur 24. október og verður opin mánudaga til föstudaga á afgreiðslutíma útibús- ins, kl. 9.15-16. Arni Elfar hlaut starfsstyrk lista- manna í Garðabæ VORIÐ 1992 samþykkti bæjar- stjórn Garðabæjar að fela menn- ingarmálanefnd Garðabæjar að gera árlega tillögu til bæjar- stjórnar um úthlutun starfs- styrkja til listamanna í Garðabæ. Eitt af þeim skilyrðum sem sett hafa verið um styrkveitingu er að listamaðurinn sé búsettur í Garðabæ. Að tillögu menningarmála- nefndar hefur bæjarstjórn Garðabæjar samþykkt að veita Árna Elfar, tónlistar- og mynd- listarmanni, starfsstyrk úr menningarsjóði á árinu 1998. Ingimundur Sigurpálsson bæjar- stjóri afhenti listamanninum starfsstyrkinn á þjóðhátíðardag- inn 17. júní í Vídalínskirkju. Árni Elfar er fæddur 5. júní 1928 á Akureyri. Árni stundaði nám við Handíðaskólann 1940 og Tónlistarskólann í Reykjavík 1954, en er sjálfmenntaður tón- listar- og myndlistarmaður að öðru leyti. Árni spilaði með öll- um helstu dans- og djasshljóm- sveitum í Reykjavik og víðar, m.a. í Þýskalandi, Moskvu og New York, til 1972. Hann lék jafnframt í Sinfóníuhljómsveit íslands um 30 ára skeið eða frá 1957-1988. Eftir að Árni hætti að starfa í dans- og djasshljóm- sveitum tók hann að rækta myndlistina fyrir alvöru. Hann starfar nú við píanóleik og myndlist. Eftir Árna liggur fjöldi teikn- inga og málverka. Hann hefur sýnt myndverk á sýningum bæði hér heima og erlendis. Árni hef- ur myndskreytt fjölda bóka og blaða. Mörg verk Árna eru í eigu fyrirtækja og stofnana. Skólasinfón- íuhljómsveit á Islandi AMERÍSKA skólasinfóníu- hljómsveitin The Peabody Sin- fonia frá Baltimore kom til ís- lands í gær og heldur fyrstu tón- leika sína 1 Vestmannaeyjum í kvöld kl. 20. Á efnisskránni eru sjötta sinfóma Beethovens, Ofullgerða sinfónían eftir Schubert og fiðlukonsert eftir Bob Sirota. Seinni tónleikamir verða í Ráðhúsi Reykjavíkur á sunnudaginn kl. 17, en þá mun Léttsveit Kvennakórs Reykja- víkur undir Jóhönnu Þórhalls- dóttur taka þátt í tónleikunum. Stjórnandi sinfóníuhljómsveitai-- innar er Gene Young, en hann hefur starfað með ýmsum þekkt- um tónskáldum. Hljómsveitin er 45 manna og er skipuð efnileg- ustu nemendum The Peabody Institute. Heimsókn hennar stendur fram á miðvikudag. Sigrún Hjálmtýsdóttir „ Bæj arlistamað- ur Mosfellsbæj- ar 1998“ SIGRÚN Hjálmtýsdóttir (Diddú) hlaut hinn 17. júní starfslaun listamanna úr Lista- og menning- arsjóði Mos- fellsbæjar, og þar með heiðursnafn- bótina „Bæj- arlistamaður Mosfellsbæj- ar 1998“. Vi ð u r- kenningin var afhent í upphafi há- tíðarhalda þjóðhátíðardagsins í Álafosskvosinni. Bjarki Bjarna- son, formaður Menningamála- nefndar Mosfellsbæjar, lýsti kjörinu, og Jónas Sigurðsson forseti bæjarstjórnar afhenti viðurkenningarskjalið ásamt verðlaunagrip, unnum af Ás- laugu Höskuldsdóttur leirlista- konu. í þakkarávarpi sínu sagðist Diddú vera djúpt snortin og meta viðurkenninguna mikfis, ekki síst með tilliti til hversu margir frábærir listamenn búa og starfa í Mosfellsbæ. Síðasta sýning „Á sama tíma að ári“ TVÖ ár era í kvöld síðan gaman- leikritið Á sama tíma að ári var framsýnt. Fyrsta sýningin var á Húsavík 1996 en Loftkastalinn byrjaði sýningai’ verksins með því að fara í leikferð um landið og síðan hefur það verið sýnt í Loftkastalanum. Þau Sigurður Siguijónsson og Tinna Gunnlaugsdóttir sem leika Georg og Dóru hafa nú leikið það 115 sinnum og fer nú að koma að endapunktinum á þeirra sam- staifi. Síðasta sýning verður í kvöld kl. 21. Sýningu lýkur Gallerí Geysir SÝNINGU Miles Holden í Gall- eríi Geysi lýkur nú um helgina. Á sýningunni eru bæði fígúratív og óhlutbundin verk eftir lista- manninn. Sýningunni lýkur 21. júní. Sigrún Hjálmtýsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.