Morgunblaðið - 19.06.1998, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 35
Kynjamyndir í
Sigurjónssafni
MYNDLIST
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
HÖGGMYNDIR
Verk eftir Örn Þorsteinsson
Opið alla daga nema mánudaga milli
14:00 og 17:00 til l.júlf.
í LISTASAFNI Sigurjóns hefur
staðið yfir sýning á höggmyndum
Arnar Þorsteinssonar. Þetta er tí-
unda einkasýning Arnar, en hann
sýndi fyrst á haustýningu FÍM
1971, á meðan hann var við nám í
Listaháskólanum í Stokkhólmi. Ég
gæti trúað að þetta væri viðamesta
sýning sem hann hefur ráðist í. Sýn-
ingunni fylgir 47 síðna sýningarskrá
prýdd fjölda mynda og formála eftir
Aðalstein Ingólfsson.
Örn leggur undir sig báða salina
með myndum frá undanfömum ár-
um. I stóra salnum em stærri verk,
en í efri salnum em minni gripir,
sem era bæði skornir í vax
og steyptir í málm.
unum væri hægt að
mótsagnakenndan h
óhlutbundnum fígúr
ræn form, sem
beint fram úr fi:
Arnar. Myndunum •
varla betur lýst ei
orðum Aðalsteins I)
sonar í sýningarskr:
formgerð hans er líft
þrangin frjói
stöðugri endurnýji
umbreytingu undii
Stiklar þrútna, klc
tvennt eða þrennt, f:
brodda eða fá
springa út með hnúí
hnöppum og taka á e
um á sig myndir 1
jurta, kynjadýra og
mennskra fyrirb
sem iða af niðurb
orku eins og höft
þeirra.“
Af sýningunni
greina hvemig Öm
ur með því að byrja
að skera litlar fígi
u.þ.b. lOæm að hæð
vax. Maður getur ve
fyrir sér hvernig
handleikur smáj
vaxklumpa og sker í
ið og lætur hugmj
flugið ráða ferðinn
sérstakrar fyriræth
Síðan steypir hann
ar fígúrar í málm, '
þær fígúrur sem vel
ur teldst til með og þ
þær síðan áfram í st
verkum.
Smágerðar fígún
minna nokkuð á g
lenska alþýc
Tupilakka, sem sl
era út í stein og falla
lófa. Örn hefur unn-
ið í Grænlandi
þannig að vel m;
vera að hann hafí
sér grænlensku steinmyndimar að
einhverju leyti til fyrirmyndar. Þær
eiga samt sterkasta skuld að gjalda
við skúlptúrlist frá miðri öldinni.
Ætli það verði ekki að orða það sem
svo að Örn sé myndhöggvari af
„gamla“ skólanum. Ef litið er til
þeirra tveggja höggmyndasýninga,
sem era í gangi í Reykjavík, Max
Emst í Listasafni íslands og
Strandlengjan, umhverfíslistasýn-
ingin, þá á list Arnars mun meira
sammerkt með list Ernsts, þótt
hann sé sjálfur þátttakandi í
Strandlengjunni.
Samlíkingin við súrrealíska högg-
myndahst er ekki fráleit. Stílbrögð
Amar era skyld því sem mátti sjá
hjá Míró á áranum eftir stríð, en
hann gerði þá bæði litlar og stórar
kynjafígúrur, sem Örn gæti vel hafa
tekið sér til fyrirmyndar. Sköpunar-
kraftur Mírós var svo stórbrotinn
og ímyndunaraflið svo hamslaust að
það er erfitt að fínna nokkurn sem
stenst þann samanburð.
Það er einnig athyglisvert að
idir hans saman við síð-
alisma Louise Bourgeo-
en myndir eftir hana
ru á sýningunni í
ylistasafninu, Flögð og
igur skinn, nú fyrir
skömmu. Margar myndir
Bourgeois, eins og t.d.
3ær sem voru til sýnis í
ýýlistsafninu, hafa end-
uvakið hinn súrrealíska
nda í skúlptúr. En hún
íefur að sama skapi
:innig fylgt nýjum
raumum í skúlptúrlist
hefur verið í fremstu
3 um nokkurt skeið.
3igurjón Ólafsson sjálfur
ði lag á því að sækja sér
rmyndir og áhrif úr
;um áttum og aðlaga það
dskyni sínu, enda sótti
í í smiðju sinna samtíð-
inna. En til að viðhalda
ænni sýn sem á sér
ar rætur í ákveðnu tíma-
fortíðinni þarf eitthvað
kt að koma til, annars er
á að útkoman verði
endurómur, kryddaður
rþrá.
jafígúrar Arnar spretta
;ium fram eins og sjálf-
formbreytingar, en það
væntari og djarfari átök
) kynjamyndirnar nái
:gu flugi og losi sig und-
mgdarafli fortíðarinnar.
g Amar er metnaðarfull
nfangi, og vel og fag-
lega að henni staðið. Sig-
ssafn er greinilega
egur vettvangur fyrir
nyndasýningar sem
r.
Gunnar J. Árnason
„rósamur;;, högg-
mynd eftir Örn Þor-
steinsson, steypt í
járn og tæplega 160
cm á hæð.
Málverk í Linsunni
„f VILLUBIRTU hugmyndanna“
er yfirskrift kynningar í Lins-
unni, Aðalstræti 9, á málverkum
Óla G. Jóhannssonar.
Listainaðurinn hélt sína fyrstu
einkasýningu árið 1972 á Akur-
eyri. OIi G. var einn af stofnend-
um Myndlistafélags Akureyrar
og var formaður þess um tima.
Um árabil rak hann á Akureyri
Gallery Háhól ásamt eiginkonu
sinni, Lilju Sigurðardóttur.
Óli G. hefur sýnt ásamt nokkr-
um félögum á Kjarvalsstöðum og
í Listasafni Alþýðu. Af og til hef-
ur hann haldið einkasýningar í
sínum heimabæ, sem og um
Norðurland.
Árið 1996 hélt hann einkasýn-
VERK eftir Óla G. Jóhannsson.
ingu í St. Moritz í Sviss og í mars
sl. í Listaskálanum í Hveragerði.
Óli G. hefur ekki sýnt í Reykjavík
í þrettán ár.
SAMKÓR Suðurfjarða.
Morgunblaðið/Bjarni Gíslason
Tónlist Samkórs Suð-
urfjarða á geisladisk
Stöðvarfírði. Morgunblaðið.
NÚ I vikunni kom út geisladiskur
með tónlist fluttri af Samkór
Suðurfjarða. Samkór Suður-
Qarða var formlega stofnaður
1995. Þá höfðu kórfélagar frá
Breiðdal, Stöðvarfirði og Fá-
skrúðsfirði sungið saman í nokk-
ur ár, fyrst undir stjórn Ferenc
Utassy frá Ungverjalandi, sem þá
var tónlistarkennari á Stöðvar-
firði. Auk tónleika, sem haldnir
voru undir hans stjórn, söng kór-
inn Missa Brevis eftir Kodály
með kór Akureyrarkirkju, bæði á
Akureyri, Egilsstöðum og kóra-
móti í Skálholti sumarið 1990.
Þegar Ferenc hvarf til annarra
starfa, tók Peter Máté frá Tékk-
landi við og undir hans hand-
leiðslu voru haldnir tónleikar um
Austurland og sungið við messur
í Garðakirkju og Hallgríms-
kirkju. Núverandi stjórnandi er
Torvald Gjerde frá Noregi. Með
honum er kórinn búinn að fara
til Noregs og syngja þar við ýmis
tækifæri, ásamt fjölda tónleika
hér heima í héraði. Á si'ðasta ári
bættust kórfélagar frá Djúpavogi
í hópinn.
Mikil vinna liggur að baki
þessu samstarfi og löng og mikil
ferðalög. Vegalengdin á milli
kórfélaga, sem lengst eiga að
fara, er um 190 km. Reynt er að
koma saman tvisvar í mánuði yf-
ir veturinn og oftar, þegar mikið
stendur til. Afrakstur þessarar
vinnu fá þeir nú að heyra, sem
hlusta á þennan geisladisk.
Nokkuð er síðan farið var að
ræða um að gaman væri að gefa
út eitthvað af því sem kórinn
hefur verið að syngja og nú er sá
draumur orðinn að veruleika.
Geisladiskurinn er um margt ný-
stárlegur og mjög fjölbreyttur,
þar eru lög eftir gríska tónskáld-
ið Mikis Theodorakis, sem ekki
hafa komið út áður hér á landi í
fiutningi blandaðs kórs. Einnig
eru norsk, sænsk og íslensk þjóð-
Iög, ásamt dægur- og rokklög-
um. Þá eru á diskinum tvö frum-
samin Iög eftir þá Torvald Gjer-
de og Garðar Harðarson. Frum-
samdir textar eru eftir Guðjón
Sveinsson, Hafþór Guðmunds-
son, Friðmar Gunnarsson og
mæðgurnar Freyju og Helgu
Kristjánsdætur.
Við upptökur á geisladiskin-
um, sem fram fóru í Stöðvar-
fjarðarkirkju, stjórnaði Torvald
kómum og æfði hann fyrir upp-
tökurnar, en honum til aðstoðar
var Ingveldur Iljaltested. Undir-
leik önnuðust Torvald Gjerde, pí-
anó, Andrea Suzanna Katz,
flautu, Ágúst Á. Þorláksson,
bassa, Daniel Arason, píanó,
Garðar Harðarson, gítar, Jóhann
G. Árnason, trommur og Jón H.
Kárason, mandólín. Einsöngvar-
ar með kórnum em Laufey
Helga Geirsdóttir, Garðar Harð-
arson og Ólafur Eggertsson og
koma öll úr röðum kórfélaga en
um fimmtíu manns em í kórnum.
Um upptökur og hljóðblöndun sá
Hafsteinn M. Þórðarson frá fyrir-
tækinu Ris frá Neskaupstað en
útlit og hönnun Geir Pálsson
myndlistarmaður á Stöðvarfirði.
Gjallar-
horn í
Norræna
húsinu
TÓNLEIKAR verða í Nor-
ræna húsinu sunnudaginn 21.
júní kl. 20.00. Þar mun þjóð-
lagahópurinn Gjallarhom leika
og syngja Finnlands-sænsk
þjóðlög frá ýmsum tímum.
Gjallarhorn skipa þau; Jenny
Wilhelms, fíðla og söngur,
Christopher Öhman, fíðla,
madola og söngur, David Lill-
kvist, slagverk, og Tommi
Mansikka-Aho, slagverk og
didgeridoo. Aðgangur að tón-
leikunum er kr. 1.000.
I kynningu segir: „Gjallar-
hom-hópurinn byrjaði að spila
saman í Vasa í Finnlandi árið
1994. Tónlistarmennirnir hafa
sérhæft sig í að leika lög frá
svæðum sænskumælandi
Finna, allt frá gömlum menú-
ettum og völsum frá Austur-
botni til sænsk-fínnskra mið-
aldadanskvæða, sem hafa varð-
veist á strandsvæðum Finn-
lands og leika þau bæði hefð-
bundnar útsetningar og út-
setningar á veraldlegri nótum.
Gjallarhorn vakti fljótt at-
hygli á tónlistarhátíðum og
hefur leikið síðustu þrjú árin á
þjóðlagahátíðum í Þýskalandi,
Svíþjóð, Noregi og að sjálf-
sögðu í heimalandinu Finn-
landi. Fyrsti hljómdiskur
Gjallarhorns kom út á haust-
mánuðum 1997.“
RGGbok
stórútsala
á bakvið Bónus, Faxafeni
Allt að 70% afsláttur
Interval
áðurZ^Sfr
nú 4.990
Skór — töskur — fatnaður o.fl.
Spitfire
áðurj5«09tf
nú 3.990
■m
Slice Canvas
áður &A&S
nú 2.990
Odyssey
áðurJZ»09(f
nú 4.990
Ji
Prophet
áður AÖSÖ"
nú 4.990