Morgunblaðið - 19.06.1998, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.06.1998, Blaðsíða 48
.^8 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ1998 ...... MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Mót niðja ' MÓT þetta var haldið í hásumar- blíðu í Reykholti í Borgarfírði helg- ina 6. og 7. júní sl. Þátttakendur voru um 100 talsins, niðjar á öllum aldri og makar þeirra. Mótið undir- bjuggu með frábærum hætti fjórir niðjar af þriðja ættlið, þær Auður dóttir Torfa, Svava dóttir Guðrún- ar, Kristín dóttir Aslaugar og Ást- dís dóttir Erlu. Þær höfðu látið Mót niðja Þorsteins Agústssonar trésmiðs ^ frá Torfufelli í Eyja- firði og Guðrúnar Her- mannsdóttur frá Fremstuhúsum í Dýra- fírði var haldið 6. og 7. júní í Reykholti í Borg- arfirði. Hermann Þor- steinsson segir hér frá niðjamótinu. __ ^era vandað hefti, en á forsíðu þess eru myndir af forföður og -móður og börnum þeirra sex, þrír synir og þrjár dætur. Fremst í heftinu er dagskrá þessa fyrsta niðjamóts ættarinnar og síðan greinargott niðjatal, allt til hinna yngstu 1 árs sprota. Fyrir „frænkuráðið“ setti Kristín þetta mót með nokkrum orð- um og síðan tók við veislustjórn laugar- dagskvöldið Agúst **"-konur Guðrúnai- og bróðir Svövu, en hann er búsettur á Isafirði og hafði „heyjað“ vel á Vestfjörðum fyrir skemmtilega og stórfróðlega frá- sögn, sem hann flutti af Vesturætt- inni. Frásögn af Norðurfólkinu kom í hlut Hermanns, sonar ættföðurins. Hann sagði m.a. frá aldargömlu at- viki, sem háöldruð, eyfirsk látin vinkona hans, Sigrún í •‘t’Höfða, hafði sagt honum frá, er þau voru innilokuð í borginni Amman í Jórdaníu á dögum sex daga stríðs- ins og biðu þess að losna úr prís- undinni. Hún hafði séð og heyrt af hinum ásjálega og efnilega tré- smíðanema, Þorsteini, sem var við nám hjá þekktum meistara í Eyja- firði, sem sett hafði unga, myndar- lega dóttur sína til að vera þjónusta Þorsteins hins unga, halda klæðum hans hreinum og gera við sokka- plögg hans. Vel fór á með þeim tveim um skeið eða þar til henni varð það á að stoppa í ullarsokka hans með bandi af röngum lit. Það kunni hinn vandláti og vandvirki trésmíðanemi ekki að meta og af- sagði frekari þjónustu meistara- dótturinnar. Aður hafði hann m.a. verið með við að ljúka smíði hinnar fögru Grundarkirkju í Eyjafirði, en tréverk hennar allt, bæði úti og inni, lofar vissulega enn þann dag í dag þá, er það unnu. Var það tilvilj- un eða handleiðsla, að sonur Þor- steins kirkjusmiðs varð til þess síð- ar um áratugi, sem ólaunaður sjálf- boðaliði, að leiða aðra kirkjusmiði við að fullgera fyrir vígslu þjóðar- helgidóminn fagra á hæðinni í hjarta höfuðborgarinnar, minning- arkirkju Hallgríms Péturssonar? Amman hans dýi'firska kunni Pass- íusálma Hallgríms „afturábak og áfram“, að sögn Torfa smiðs, sonar hennar. Þessi umsögn vakti unga ömmudrenginn snemma til um- hugsunar um þessa merkilegu sálma og höfund þeirra, sem amm- an „sterkgreinda, hagmælta og beinskeytta í tilsvörum", eins og hún er umtöluð í mótsgögnunum nú, kunni svo gjörla. Hún hafði sérstakar mætur á þessum dóttursyni, sem hún nefndi „fallegan sinn“, er hún umfaðmaði hann meðan bæði lifðu. Þessi eyfirsku og dýrfirsku áhrif virðast hafa verið fyrirhuguð til góðs fyrir marga. Jón Sig- urðsson og Ingi- björg kona hans eignuðust ekki böm, en allir Is- lendingar voru sagðir börn þeirra, vegna þess sem þau unnu í þágu þeirra. Þótt ólíku sé saman að jafna, þá er nokkur skyldleiki með því sem nefndur smiðssonur og Ingibjörg kona hans, en þau eign- uðust ekki af- kvæmi, unnu sam- an, en um áratugi lögðu þau hönd á þann þolinmæðis- plóg, sem ruddi braut helgidóms- ins, sem allir íslendingar eiga og þjónar nú svo mikilvægu hlutverki í daglegu lífi okkar, öllum til bless- unar og Guði til dýrðar. Samtímis unnu þau um áratugi sem drifkraft- ur við undirbúning endurnýjaðrar íslenskrar Biblíu-útgáfu, sem út kom árið 1981. Honum tókst að stilla saman þann hóp fræðimanna, sem vann að þessu verki og hún var prófarkalesari, sem sérstakt orð fór af. Þessi verk, ásamt öðru fleiru, voru börnin þeirra sem þau glödd- Ættarmót Qvðrúnar Hermaoastfatr^ fotslánslígiístssanar © d *X-‘JCfja aj) Rcylchold s- °g- 7. júnflí>9s FORSÍÐA heftisins, sem getið er í greininni. ■ ALDURSFORSETI niðjanna og höfundur greinarinnar í hátíðarbún- ingi og vinkonur hans tvær. VEISLUSTJÓRINN Ágúst gleður frændliðið. SPORTVÖRUVERSLUN LAUGAVEGI 23 S: 551 5599 LAGERSALAN ust yfir. Þessa er getið vegna þess, að þessi smiðssonur er sá eini í sex systkina hópnum sem ekki lætur eftir sig önnur „börn“ en þau er nefnd voru. En á niðjamótinu nú glöddust saman um 100 manns og höfðu þó ekki allir niðjarnir tæki- færi til að vera með að þessu sinni. Ef nú meistaradóttirin og þjón- usta trésmíðanemans forðum hefði vandað sig betur, þá hefði niðja- mótið nú haft annað útlit og yfir- bragð, aleyfirskt, en önnur „blanda“ var sem sagt fyrirhuguð, til góðs. Smiðurinn ungi tók sig fljótt upp eftir aðskilnaðinn og hélt suður til Reykjavíkur og gerðist liðsmaður hins þekkta trésmíða- verkstæðis Jón Halldórsson & co. við Skólavörðustíg. A þess vegum vann hann m.a. að innra tréverki stórhýsa Landsbankans og Eim- skipafélagsins, en það tréverk allt hefur staðist tímans tönn og ber fagurkerum vitni. Hjá Jóni Hall- dórssyni & co. kynntist Þorsteinn m.a. tveim dýrfirskum trésmiðum frá Fremstuhúsum í Dýrafirði, Torfa og Hermanni, afa hins vin- sæla og glaðsinna Hemma Gunn, en systir þeirra, Guðrún, var þá í þjónustu á efri hæð verkstæðis- hússins, hjá einum af eigendum fyr- irtækisins, Bjarna frá Galtafelli, bróður Einars Jónssonar mynd- höggvara. Þar fóstraði hún m.a. son Bjarna og konu hans, Hörð, síðar húsameistara ríkisins, er um langt skeið annaðist arkitektaþjónustu Hallgiímskirkju, eftir lát höfundar hennar, Guðjóns Samúelssonar, prófessors. Þarna við Skólavörðu- stíginn lágu leiðir hins eyfirska Þorsteins og hinnar dýrfirsku Guð- rúnar fyrst saman, sem leiddi til hjónabands 3.10. 1914. Þau eignuð- ust sex börn: Torfa, f. 1915, d. 1975, Guðrúnu, f. 1917, d. 1998, Áslaugu, f. 1919, d. 1995, Hermann, f. 1921, Ágúst, f. 1925 og Eriu, f. 1927. A niðjamótinu í Reykholti var það ekki síst yngsta kynslóðin, sem var gleðigjafinn með listdansi, einsöng og píanóleik, auk þess sem allir voru þátttakendur í hinni ljúfu sönglist, sem hljómaði þarna á hinu foma setri Snorra Sturlusonar langt fram eftir kvöldi og á hinni björtu sumarnótt blönduðu margir geði fram undir morgun og knýttu og treystu niðja-böndin. Á sunnudagsmorgninum naut hópurinn góðrar helgistundar í hinni nýju og fögru Reykholts- kirkju með staðarprestinum, sr. Geir Waage, prófessor. Þar lagðist allt á eitt til að gera þá stund bless- aða og eftirminnilega. Síðdegis var svo samverunni slitið utanhúss á hinum sólbaðaða Reykholtsstað. Svava, fyrsta barnabarn Þorsteins og Guðrúnar, ávarpaði hópinn og þakkaði samvemna, en hún hafði á veislukvöldinu minnst bæði afans og ömmunnar með kærleiksi-íkum hætti, en hún fæddist í þeirra hús- um og lifði þar sín fyrstu 1-2 ár. Hermann þakkaði í lokin frænkun- um fjórum frábæran undirbúning og stjórnun þessa fyrsta niðjamóts ættarinnar, sem bar svo ríkulegan ávöxt. Þær hyggjast virkja næstu kynslóð til undirbúnings móts að nýju á því merkisári 2000. Sam- tengt í sólböðuðum hring söng frændliðið síðan tvo af gömlu góðu söngvunum okkar. Og svo auðvitað kossar og knús í lokin áður en hald- ið var af stað í heimahaga í ýmsum áttum. Höfundur er framkvæmdastjóri. Míkiá úrvd af fiilleguni púmfatnaái SkólnOrfiuitig 21 SimiSSI 4050 Rcyktavtk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.