Morgunblaðið - 19.06.1998, Page 49

Morgunblaðið - 19.06.1998, Page 49
 í « I « MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Holter-rannsóknir á Landspítalanum A 6. ARATUG þess- arar aldar var nýrri að- ferð í rannsókhum á hjartasjúkdómum lýst. Það gerði bandarískur læknir að nafni Norm- an J. Holter. Þessi að- ferð grundvallaðist á venjulegum segul- bandsupptökutækjum og er hún í daglegu tali nefnd Holter-rannsókn. Holter er skráning hjartarits í langan tíma, venjulega í einn sólar- hring, en hægt er að hafa hana lengri eða skemmri allt eftir þörf- um hvers sjúklings. Á hj artarannsóknardeild Landspítalans sjá meinatæknar um Holter-rannsóknir. Skráningin fer þannig fram að sérstakar hjartalínu- ritsleiðslur eru festar á sjúklinginn og síðan tengdar í lítið upptökutæki, sem hann getur borið með sér hvert sem hann fer. Sjúklingur heldur dagbók meðan hann ber Holter-tæk- ið og skráir þar líðan sína og hvað hann hefur aðhafst þennan sólar- hring. Hann getur einnig gefið merki á segulbandið ef tiltekin sjúkdóms- einkenni koma fram t.d. aðsvif eða hj artsláttarkast. Til þess að Holter skráningin tak- ist vel þarf að gæta mikillar ná- kvæmni við ásetningu Holter-tækj- anna. Upptakan er gerð á segul- bandsspólu, sem síðan er sett í sér- staka úrlestrartölvu. Tölvan gerir síðan nákvæma flokkun á hverju ein- asta hjartaslagi sem kemur fyrir á spólunni. Á einum sólarhring getur að meðaltali verið um að ræða 110.000 hjartaslög. Flokkunin fer þannig fram að tölvan ákveður eðli- legt hjartaslag fyrir tiltekinn sjúk- ling og miðar síðan önnur við það. Þannig getur hún greint margskonar óreglu á hjartslætti. Þegar tölvan hefur lokið flokkuninni fer meina- tæknir yfir hana og breytir eftir því sem þörf er á og ber saman einkenni Hanna S. Ásvaldsdóttir sem sjúklingur hefur skráð í dagbók við það sem sést í hjartalínuriti. Til frekari skýringar má taka eftirfarandi til- vik: Fullorðinn karl- maður hefur þjáðst af svima og nokkrum sinn- um fallið í yfirlið. Við fá- um beiðni frá lækni um að gera Holter-rann- sókn hjá honum. Við úr- lestur sjást mörg hlé (enginn hjartsláttur), flest stutt í 2-3 sekúnd- ur, en nokkur lengri í allt að 5-7 sekúndur og skýra þau einkenni sjúklingsins. Að lokinni vinnu meinatæknis fer síðan hjartasérfræðingur yfir niður- stöður og ákveður meðferð fyrir sjúklinginn t.d. hvort hann þurfi hjartagangráð. Á einum sólarhring, segir Hanna S. Asvaldsdóttir, eru hjartaslög um 110 þús- und að meðaltali. Holter-rannsóknir hófust á Land- spítalanum í mars 1980. Það ár voru gerðar 113 rannsóknir, en árið 1997 voru þær 654. Frá upphafi hefur Landspítalinn þjónað sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum utan Reykja- víkur með því að lána upptökutæki og sjá um úrlestur. Holter-rannsókn er nú einnig gerð á blóðþrýstingi. Sjúklingur gengur þá með blóð- þrýstingsmæli á sér í sólarhring, sem mælir og skráir reglulega blóð- þrýsting sjúklings. Fæst þannig ná- kvæmt mát á blóðþrýstingssveiflum sjúklings í daglegu lífi yfir einn sól- arhring. Höfundur er meinatæknir. FÖSTUDAGUR 19. JIJNÍ 1998 draumahús eiginkona Krisf}áns Jóhannssonar, á tímamótum á ftaiiu einstakt viðhorf ungrar móður j fatiaðs drengsa Dagmar Koeppen getur sagt þér það ikið úrval fyrir alla fjölskylduna to co oo TREK8ÖÖ SPÖRT------------------------------------- Fyrir krakka (frá 10 ára), unglinga og fullorðna, karia og konur. Kvenhjólin eru með uppháu stýri og kvenhnakk. 26" dekk, 8 stellstærðir, 21 gír, V-bremsur. Kr. 25.831.- stgr. IREK.22Q 24' Fyrir böm frá 5/6 ára til 9/10 ára, stráka og stelpur 20" dekk, 6 gírar. Standari, gírahlrf og keöjuhlíf. Kr. 22.427,- stgr. Fyrir böm frá 7/8 ára til tl/12 ára, stráka og stelpur. 24" dekk, 16 gírar og V-bremsur. Standari, gírahltf og keðjuhlff Kr. 23.898,- stgr. MT.CUB16" Fyrir böm frá 3/4 ára til 7/8 ára, straka og stelpur. 16" dekk, lágt stell, löng sætispípa og fótbremsu- drif. Hjálpardekk, keðjuhlíf og bretti. Kr. 13.943.- stgr. MT.CUB 12" Fyrir böm frá 2/3 ára til 6/7 ára, stráka og stelpur. 12" dekk, lágt stell, löng sætispípa og fótbremsu- drif. Hjálpardekk, keðjuhlíf og bretti. Kr. 11.881.- stgr. ________Ævilöng ábyrgð á öllum hjólum frá TrwtErjxr á stelli og gaffli Helstu útsölustaðir: ðrninn Reykjavlk, Hjóliö v/Eiðistorg Seltjarnamesi, Músik og Sport Hafnarfiröi, Stapafell Keflavlk, Pípó Akranesi, Oliufélag útvegsmanna ísafiröi, Hegri Sauöárkróki, Sportver Akureyri, KÞ Húsavík, Króm & Hvltt Höfn, Klakkur Vík, Skeljungsbúöin Vestmannaeyjum, Birgir Oddsteinssson Hveragerði, Hjólabær Selfossi. Opið laugardaga frá 10-16 ÖRNINNU ALLAR GÖTUR SÍÐAN 1925 + SKEIFUNNI 11, SÍMI 588-9890 Oll varahluta- og verkstæðisþjónusta. við fagmanniri - það margborgar sig

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.