Morgunblaðið - 19.06.1998, Síða 55

Morgunblaðið - 19.06.1998, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ I ? I ) ! I } I i ) V i > > i i I > i i i i i i i I i i i i MINNINGAR FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 55' FRÉTTIR BÚIST er við miklum Qölda kvenna í hlaup ISÍ um allt land. + Sigríður Jóna Albertsdóttir fæddist í Reykjavík 25. janúar 1973. Hún lést í Reykja- vík 9. júní síðastlið- inn. Móðir hennar er Guðrún Sóley Karlsdóttir, f. 11.9. 1950, frá ísafirði, d. 19.2. 1998. Stjúp- faðir hennar er Hannes Sigurðsson, f. 31.12. 1943 í Reykjavík. Faðir hennar er Albert Stefánsson, f. 9.4. 1949. Stjúpmóðir Vigdís Björnsdóttir, f. 9.12. 1951 á Blönduósi. Hálfsystkin sam- mæðra er Guðmundur Svan- Hún Sigga Lóa okkar með fallega brosið sitt er farin í faðm ömmu Lóu og mömmu, en þær létust báðar fyrir stuttu. Hugur minn fer á flakk og ég minnist góðu gömlu æskudaganna á ísafirði. Þá lékum við oft saman margir krakkar innan af vegi, eins og sagt var. í þeim hópi var Sóley móðir Siggu Lóu, mikill ærslabelgur, klár og köld. Eftir að skóla lauk og ég fór til náms í Reykjavík hitti ég ekki Sóleyju fyrr en á Landspítalan- um ‘72. Þá lá hún langt komin á leið með Siggu Lóu, mátti ekki þetta eða hitt vegna mikilla veikinda sem hún bjó við. Lífsganga Sóleyjar var erfið, heilsuleysi og barátta við óvin sem oft vill taka völdin. Haustið ‘74 kynntist hún Dísa vinkona mín manni sínum Alberti og viti menn, hann átti litla gullfallega stúlku, Siggu Lóu. Já, heimurinn er stund- um lítill, síðan hef ég þekkt og fylgst með lífsgöngu þessarar greindu og þrautseigu stúlku. En ég held að það sé ekki á neinn hallað þótt sagt sé þvílík harmasaga. Það virðist nefnilega hafa komið á daginn að í farteski þessarai’ ungu stúlku út í lífið var eitthvað sem gerði hana rótlausa. Sigga Lóa kom átta ára til föður síns og stúpu í nokkrar vikur og einnig bjó hún hjá þeim milli 10 og 12 ára aldurs, auk þess eitt sumar sem unglingur. Sigga Lóa átti síðustu árin við heilsuleysi að stríða vegna bflslyss og líkamsárásar sem hún varð fyrir. Lyf áttu að bæta skaðann, en sumt er það sem lyf geta ekki læknað. Mesta birtan í lífí hennar voru börn- in tvö, Daníel og Nína litla. Hún fölnaði, bliknaði, fagra rósin mín, því frostið var napurt. Hún hneigði til foldar hin bh'ðu blöðin sín við banastríð dapurt En guð hana í dauðanum hneigði sér að hjarta og himindýrð tindraði um krónuna bjarta. Sof, rós mín, í ró, í djúpri ró. (Guðm. Guðm.) Elsku Sigga Lóa, þín er sárt sakn- að. Megi Guð vaka með þér yfir litlu ljósgeislunum þínum. Ég bið góðan Guð að styrkja Albert og Dísu og fjölskyldu þeirra, Hannes og Ollu, sem öll gáfu henni mikið í lífinu. Megi Guð gefa að þið fáið að njóta Daníels og Nínu litlu. Með saknaðarkveðju, Bjarney. Nú ertu leidd, mín Ijúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga’ og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. Dóttir, í dýrðar hendi Drottins, mín, sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, > í Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (Hallgr. Pét) Með þessum orðum kveð ég þig, elsku Sigga Lóa mín, og þakka þér bergsson, f. 7.12. 1969. Hálfsystkin samfeðra eru Svala, f. 23.12. 1967, Björn, f. 9.12. 1978, Ragnar, f. 5.1. 1982, og Alda, f. 5.4. 1983. Börn Sigríðar Jónu eru Daníel Freyr Stef- ánsson, f. 9.11. 1990, og Nína Dögg Salvarsdóttir, f. 18.10. 1997. Sigríður Jóna starfaði mest við simasölu fyrir Sjálfsbjörg og fleiri aðila. Útför Sigríðar Jónu fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. fyrir öll þau ár sem þú gafst mér með þér og börnunum þínum. Þinn stjúpfaðir, Hannes Sigurðsson. Við erum orðlaus þegar kemui- að kveðjustund. Sigríður Jóna kölluð Sigga Lóa kom inn í líf okkar þegar hún var tæpra tveggja ára er bróðir okkar Hannes giftist móður hennar. Fyrsta árið bjuggu þau í risinu hjá stjúpafa og stjúpömmu. Þetta litla kríli var fljótt að aðlagast okkur og kallaði Hannes frá upphafi pabba og gerði það fram á síðustu stundu þó að sambúðin hjá móður hennar og Hannesi hafi aðeins enst í nokkur ár. Sigga Lóa var glaðlynt barn og var stutt í brosið hjá henni. Brosið sem var svo áberandi fyrstu árin hennar, því þegar hún var að hjálpa ömmu við jólabaksturinn aðeins þriggja ára hljóp hún fram til að þvo sér og vildi þá svo óheppilega til að hún datt á vaskinn og missti tvær framtennur. Við minnumst þess enn er hún fór í sína fyrstu langferð en það var niður götuna heima og sagðist hún þá vera komin til Ameríku. Sigga Lóa var ávallt hrókur alls fagnaðar í öllum uppákomum. Er þá skemmst að minnast í sláturtíðinni fyrir nokkrum árum að varla gátum við saumað fyrir hlátri vegna uppá- tækja hennar. Og það voru margar góðar stundirnar sem setið var yfir kaffibollum, skrafað og hlegið dátt. Hún var góðum gáfum gædd og átti auðvelt með nám og vildi svo gjarn- an hafa lært meira, en aðstæður hög- uðu því þannig að ekkert varð af því. Sigga Lóa dvaldi í nokkur ái’ hjá fóður sínum og stjúpmóður á Blöndu- ósi við gott atlæti. Hún fór síðan aft- ur til móður sinnar vestur á firði. Sigga Lóa þurfti snemma að bjarga sér sjálf. En aldrei missti hún sam- bandið við okkur og kallaði okkur jafrían fjölskyldu sina og reyndum við að standa undir því. Hún var aðeins sautján ára þegar hún eignaðist son- inn Daníel Frey. Lífið var ekki alltaf auðvelt fyrir Siggu Lóu og skiptust á skin og skúrir. Hún var í sambúð um tíma og í október sl. eignaðist hún dótturina Nínu Dögg sem hún sá ekki sólina fyrir og Daníel Freyr sat oft og horfði á litlu systur sofa. En nú sefur mamma og allir erfíð- leikar hennai’ að baki. Hún lifir áfram í börnunum sínum tveimur. Elsku Daníel Freyr og Nína Dögg, söknuður ykkar er mikill en við vit- um að mamma ykkar mun ávallt vaka yfir ykkur. Lífíð verður tóm- legra án þín en minningin um þig mun þó alltaf lifa í hjörtum okkar. Þín verður sárt saknað. Blessuð sé minning þín. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyinr liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Ósk, Auður, Svavar, Örn, Þor- steinn, Hjálmar og fjölskyldur. • Fleiri miimingargreinar um Sigriði Jónu Aibertsdóttur bíða hirtingar og munu birtast í hlaðinu næstu daga. Kvenna-^ hlaup ÍSÍ 21. júní „KVENNAHLAUP ÍSÍ verður haldið í ni'unda sinn 21. júní 1998. Það var fyrst haldið í tengslum við fþróttahátíð ÍSÍ árið 1990 og var þá haldið í Garðabæ og á sjö öðrum stöðum um landið. Kvennahlaupið hefur vaxið hratt. Árið 1993 var ÍÞRÓTTUM FYRIR ALLA falin framkvæmd Kvennahlaupsins og var lagður metnaður í að auka þátttöku landsbyggðarkvenna og Iét ár- angurinn ekki á sér standa. Á síðasta ári tóku 20.900 konur þátt í Kvennahlaupinu um allt land. Lítur allt út fyrir að ekki verði minni þátttaka í ár. Þessi mikla þátttaka sýnir að fyrir- komulag þetta á vel við stóran hóp kvenna. Miðað við þátttökuskráningar á sama tíma í fyrra er útlit fyrir að u.þ.b. 21-23.000 konur verði með í ár. Þetta er ótrúlegur Qöldi og sýnir kannski bjartsýni okkar sem að hlaupinu stöndum. Hópar kvenna sem ekki verða á landinu á Kvennahlaupsdaginn láta ekki sitt eftir liggja og taka með sér boli og verðlaunapen- inga og halda sitt Kvennahlaup hvar sem þær eru staddar á Kvennahlaupsdaginn. Þannig er t.d. haldið Kvennahlaup á tveim- ur stöðum í Danmörku, í Noregi, Svíþjóð og Færeyjum. Selkórinn verður á söngferðalagi á Italíu og ætla konumar í hópnum að halda sitt hlaup þar. Yfir 50 kon- ur í Namibíu ætla að hiaupa Kvennahlaup og eru það nær all- ar íslensku konurnar sem þar eru. Með þeim fara nokkrar inn- fæddar konur sem „eru alveg heillaðar af uppátæki þeirra ís- lensku,“ segir í fréttatilkynningu Biskupsvísi- tasía í Viðey BISKUPSVÍSITASÍAN setur svip sinn á helgardagskrána í Viðey, en gönguferð verður þó á sínum stað kl. 14.15. Þann dag verður einnig opnuð Ijósmyndasýning, sem hefur verið undanfarin sumur í Viðeyjar- skóla. Hún verður opin um helgar kl. 13.30-17.10, en virka daga kl. 13.30-16.10. Á sunnudag kl. 14 verður vísi- tasíumessa. Biskup Islands herra Karl Sigurbjömssön prédikar og lýsir blessun, en sr. Þórir Stephen- sen staðarhaldari þjónar fyrir alt- ari ásamt dómkirkjuprestunum, sr. Hjalta Guðmundssyni og sr. Jakobi Ág. Hjálmarssyni. Dómkórinn syngur og Marteinn H. Friðriks- son dómorganisti verður við hljóð- færið. Fluttir verða hátíðasöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar. f kirkjukaffi, sem verður í Viðeyjar- stofu eftir messu, flytur sr. Þórir stutt erindi, er hann nefnir Viðeyj- arklaustm- í nýju ljósi. Af þessum ástæðum fellur staðarskoðun niður þennan dag. Sérstök bátsferð verð- ur með kirkjugesti kl. 13.30. Grillskálinn er opinn síðdegis alla daga, veitingahúsið, hjólaleiga og hestaleigan einnig. Bátsferð úr Sundahöfn verður á klukkutíma fresti kl. 13-17 og á hálfa tímanum í land aftur. Þess utan eru kvöld- ferðir, og hægt er að panta auka- ferðir eftir þörfum. Heiðraðir á þjóðhátíðar- daginn VIÐ hátíðlega athöfn á Bessastöð- um tilkynnti forseti íslands á þjóð- hátíðardaginn að eftirtaldir Islend- ingar hefðu verið sæmdir heiðurs- frá fþróttum fyrir alla. Ennfremur segir: „Markmið Kvennahlaups ÍSÍ er að leggja áherslu á aukna íþróttaþátttöku kvenna og holla lífshætti sem þær öðlast m.a. með markvissri og reglubundinni hreyfingu. Kvennahlaup ÍSÍ er haldið á 82 stöðum og má segja að það sé alls staðar á landinu. Stærsta hlaupið er í Garðabæ. Á síðasta ári hlupu 8.500 konur þar. Til að koma til móts við þann mikla merki hinnar íslensku fálkaorðu: Arngrímur Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri, riddarakrossi fyrh’ uppbyggingu í alþjóðlegum flug- rekstri; Guðmundur W. Vilhjálms- son, lögfræðingur, riddarakrossi fyrir störf í þágu tónlistar á Is- landi; Ingvar Jónasson, víóluleik- ari, riddarakrossi fyrir framlag til tónlistar; Jón Jónsson, jarðfræð- ingur, riddarakrossi fyrir jarðvís- indastörf; Kristbjörg Kjeld, leik- kona, riddarakrossi fyrir leiklistar- störf; Kristján Davíðsson, listmál- ari, riddaraki-ossi fyrir myndlist; Olafur Ásgeirsson, þjóðskjalavörð- ur og skátahöfðingi, riddarakrossi fyi’ir vörslu þjóðskjala og störf að æskulýðsmálum; Ragna Bergmann Guðmundsdóttir, fv. formaður verkakvennafélagsins Framsókn- ar, riddarakrossi fyrir störf að verkalýðsmálum; sr. Ragnai’ Fjal- ar Lárusson, fv. prófastur í Reykjavík, riddarakrossi fyrir rannsóknir og störf í þágu kirkj- unnar; Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðlu- leikari, riddarakrossi fyrir tónlist, og Þorvarður Elíasson, skólastjóri, riddarakrossi fyrir störf að við- skiptamenntun. Þrír orðuhafar voru erlendis og munu taka við orðunni síðar. 200.000 kr. verðlaun fyrir lokaverkefni TÆKNIÞRÓUN hf. veitti í vikunni nýsköpunarverðlaun fyrir loka- verkefni nemenda við Háskóla Is- lands. Verðlaunin hlutu að þessu sinni Skúli Skúlason, nemandi í lyfjafræði og leiðbeinendur hans, prófessorarnir Peter Holbrook og Þórdís Kristmundsdóttir. Verð- launaféð er samtals 200.000 kr. og skiptist jafnt milli nemanda og leið- beinenda. Lokaverkefnið sem verðlaunað var heitir Hönnun og prófanir á fjölda kvenna á höfuðborgar- svæðinu sem áhuga hefur á Kvennahlaupi verður einnig lilaupið í Mosfellsbæ og er reikn- að með u.þ.b. 1.500 konum þar. Mikil aukning ætlar að verða á Akureyri og er búist við 1.600 þátttakendum þar. Einnig verður svipað Kvennahlaup á Suðurnesj- um. Til gamans má geta þess að á nokkrum stöðum á landsbyggð- inni er þátttakan orðin rúmlega 100%.“ hlaupi við bólgusjúkdómum í munni, en viðfangsefni þess var að kanna mismunandi tegundir af hlaupi sem hægt væri að nota til að gefa sýklalyf við bólgusjúkdómum í munni. Tilgangur Tækniþróunar með þessari árlegu verðlaunaveitingu er að vekja athygli bæði innan Há- skóla Islands og í samfélaginu á fjölbreytileika þeirra verkefna sem nemendur vinna að innan skólans og hvetja til þess að rannsóknarnið- urstöður þeirra verði nýttar í sam- félaginu. Dragsýning á Ingólfstorgi í FORVARNARVERKEFNINU „20,02 hugmyndir um eiturlyf" er 16. hugmyndin „Dragshow“-sýning fyrir gesti á Ingólfstorgi, sem tveir ungir menn halda í dag kl. 17. Á undan sýningunni spilar hljóm- sveitin Ensími. Á eftir þeim leika sigurvegarar músíktilrauna Tóna- bæjar 1998, hljómsveitin Stæner, á w vegum Síðdegistónleika Hins húss- ins. Blómaskreyt- ingar í Garð- yrkjuskólanum NÁMSKEIÐ í almennum blóma- skreytingum fyrir áhugafólk verð- ur sunnudaginn 21. júní kl. 10. Námskeiðið verður í Garðyrkju- skóla ríkisins, Reykjum í Olfusi. Leiðbeinandi verður Uffe Balslev blómaskreytingameistari. Þátttak- endur bútbúa blómvönd og tvær mismunandi ski’eytingar, sem þeir taka með sér heim. Einnig verður fjallað um meðhöndlun afskorinna blóma. Skráning og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Garðyrkjuskólans t alla virka daga. SIGRIÐUR JONA ALBERTSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.