Morgunblaðið - 12.08.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.08.1998, Blaðsíða 1
= HÉÐINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 510 4100 SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998 BLAD Afiabrögð 4 Aflayfirlit og staðsetning fiskiskipanna Viðtal 5 Rækjuverk- smiðjan Dögun á Sauðárkróki sótt heim Markaðsmál 6 Framtíð verksmiðjuskipa nna til umræðu á Bandaríkjaþingi Rannsóknír 7 Heilsufar þorskfiska VEL SNYRTUR UM BORÐ Ljósmynd/iÞorgeir Baldursson •MENN vilja ekki sfður vera vel snyrtir úti á rúmsjd en (Iandi. Sig- urður Dagbjartssou, sem verið hef- ur eftirlitsmaður Fiskistofu um borð í Eyborgu EA undanfarnar vikur sem er á raekjuveiðum á Flæmingjagrunni, brást því vel við þegar Guðbjart Bjarnason, vúl- stjóra, vantaði klippingu. Eins og glöggt, má sjá stóð Sigurður fag- mannlega að verki enda skín ein- beitnin úr svip hans. Að sögn Birg- is Siguijónssonar, útgerðarmanns Eyborgarinnar, er skipið nú í sín- um þriðja og síðasta veiðitúr á Fiæmska hattinum, og er væntan- legt heim um mánaðamótin og fer þá annaðhvort í Smuguna eða á heimamið. „Það er svo sein ekki úr mörgu að velja. Þetta hefur verið ágætis kropp í rækjunni og er skipið nú að ljúka við að veiða 300 tonna rækjukvóta, sem við leigðum til okkar.“ 5,- i Lágl gengi japanska jensins skilar lægra afurðaverði FALLANDI gengi jap- anska jensins hefur skilað útflytjendum íslensks sjáv- arfangs lægra afurðaverði í krónum talið, en slæmt efnahagsástand í Asíu hefur að öðru leyti ekki haft áhrif á sölu íslensks sjávar- fangs í álfunni að sögn Kristjáns Hjaltasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og þjónustumála hjá Sölumiðstöð hraðfiystihúsanna, en SH hefur síðustu árin flutt talsvert af sjávarafurðum til Asíu, einkum Japans Hefur ekki dregið úr sölu íslensks sjávarfangs Gengi japanska jensins hefur ekki verið lægra gagnvart Bandaríkjadal síðan í ágúst 1990. Jenið hefur lækkað um 10% gagnvart íslensku krónunni síðasta hálfa árið. Kristján segir gengislækkunina skila færri krónum fyrir afurðimar en hins vegar hafi salan ekki dregist saman vegna efnahagsástandsins. Hann segir sölu sjávarafurða til Asíu engu að síður hafa dregist saman á árinu en það stafi einungis af minni veiði á helstu útflutningstegundum á íslandsmiðum. Minna hafi verið flutt út af loðnu til Japans í vor, samdráttur hafi orðið bæði í veiðum og kvóta á grálúðu, auk þess sem rækjuveiði hafi verið léleg og útflutningur á skelrækju til Japans því minni en áður. Aftur á móti hafi útflutningur á karfa til Japans aukist nokkuð vegna betri veiði á Reykjaneshrygg. Neytendur óöruggari og spara við sig í innkaupum Kristján segir ennfremur að minni kaupgeta japanskra neytenda bitni seinna á íslenskum sjávarafurðum þar sem þær séu tiltölulega ódýrar. „Þrátt fyrir efnahagsástandið í Asíu er markaðurinn nokkuð sterkur og verð er svipað í jenum og fyrir ári. Það sem við heyrum hins vegar af markaðnum er að ótryggt efnahagsástand gerir neytendur óöruggari og þeir spara við sig í innkaupum. Við höfum hins vegar ekki fundið fyrir því vegna þess að okkar fiskur er almennt fyrir tiltölulega hefðbundna neyslu og því í ódýrari kantinum. Því má reikna með því að við verðum seinna fyrir barðinu á slæmu efnahagsástandi en framleiðendur dýrari afurða sem selja fisk inn á dýra sushi-bari og þess háttar,“ segir Kristján. SH hefur einnig selt sjávarafurðir til Taívans og segir Kristján að þar hafi markaðir verið að ná sér eftir gengisfellingu á taívanska dollarnum fyrir einu ári. „Menn urðu nokkuð óöruggir í grálúðunni eftir þann skell og verð féll þar á liðnu ári. Markaðurinn í Taívan hefur hins vegar verið að ná sér á strik og verð hækkað það sem af er þessu ári,“ segir Kristján. Fréttir Flyija má inn mlarkarfann •BANNI við innflutningi á ferskum nflarkarfa til Evr- ópu, sem sett var á um síð- ustu áramót, hefur nú verið aflétt. Innflutningsbannið hafði ekki teljandi áhrif á markaði islenskra söluaðila í Evrópu, en að sögn Péturs Edvinssonar, framkvæmda- stjóra söluskrifstofu SH í Belgíu, varð á hinn bóginn vart aukningar í sölu á fryst- um flökum á meðan á bann- inu stóð./2 Enginn kvóti á gulllaxinn •Ekki hefur verið rætt um að setja kvóta á gulllaxveiðar á næsta fiskveiðiári, að sögn Árna Kolbeinssonar, ráðu- neytisstjóra í sjávarútvegs- ráðuneytinu. A þessu fisk- veiðiári hafa veiðst tæplega 12 þúsund tonn af gulllaxi, en Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til að aflinn á næsta fisk- veiðiári fari ekki yfir sex þús- und tonn./2 Batnandi humarveiði •HUMARVERTÍÐ er nú á síðasta snúningi og hefur veiðin gengið vel á flestum veiðisvæðum. Enn kvarta menn þó yfir smáhumri á austari veiðisvæðum en eru bjartsýnir á að þar nái humarstofninn sér vel á strik á næstu árum. Humarbátar eru almennt fyrr búnir með kvóta sína samanborið við síð- asta ár og hafa síðustu vikur veitt kvóta sem fluttur var frá síðasta fiskveiðiári. Bjartsýni ríkir með batnandi humar- veiði á næstu árum eftir tals- verða lægð síðustu vertíð- ar./3 Uppsagnir hjá Fiskifélaginu •EFTIR að þær breytingar, sem samþykktar voru á síð- asta aðalfundi Fiskifélags Is- lands á uppbyggingu þess, munu taka gildi um næstu áramót er aðeins gert ráð fyr- ir þremur til fimm starfs- mönnum og því er ljóst að átta til tíu af núverandi starfsmönnum félagsins muni fá uppsagnarbréf á næstunni, en starfsmenn Fiskifélagsins eru nú samtals þrettán tals- ins./8 Markaðir Þorsk og botnfiskafli íslenska fiskveiðiflotans ( árið 1997. Kjördæmi. porsk- Botnfisk- afli, tonn aflialls Suðurland 11.636 29.481 Reykjanes 63.684 119.842 Reykjavík 21.960 65.595 Vesturland 13.434 26.104 Vestfirðir 24.982 37.314 Norðuri. v. 12.946 24.033 Norðurt. e. 33.914 64.599 Austfirðir 21.202 36.337 L. eriendis 4.878 27.164 SAMTALS 208.636 430.469 Austfírðir aflahæstir •HEILDARAFLI fiskveiði- flotans sló öll met í fyrra þeg- ar hann nam alls 2,2 milljón- um lesta og í fyrsta skipti frá árinu 1993 fór þorskafiinn á Islandsmiðum yfir 200 þús- und lestir. Þorskaflinn í fyrra nam 209 þúsund tonnum og jókst þar með um 25 þúsund tonn frá árinu áður og um 40 þúsund tonn frá árinu 1995, að því er fram kemur í nýjasta Útvegi. Af heildar- botnfiskaflanum, sem barst að landi og nam rúmum 430 þús. tonnum, þar af 27 þús. tonn af erlendum skipum, fór langmest á Reykjanes, sam- tals 120 þús. tonn, sé hagnýt- ing afla skoðuð eftir kjör- dæmum. 65.600 tonn fóru á land í Reykjavík og litlu minna á Norðurland eystra. Uppsjávar- og heildarafli íslenska fiskveiðiflotans árið 1997. Kjördæmi. Uppsjávar- Heildar- afli, tonn afli, tonn Suðurland 187.862 229.417 Reykjanes 138.999 273.828 Reykjavík 40.396 110.888 Vesturiand 106.536 153.498 Vestfirðir 28.174 92.084 Norðuri. v. 107.450 156.403 Norðurl. e. 219.892 315.708 Austfirðir 782.230 825.255 L. erlendis 9.247 42.029 SAMTALS 1.620.787 2.199.111 •AF metafla ársins 1997 fór langmest til Austfjarða eða samtals 825 þúsund tonn. Munaði mest um loðnu, en af henni veiddust 1,3 milljónir tonna. Hlutfallslega barst langmest af uppsjávaraflan- um, sem samtals nam rúmum 1,6 milljónum tonna í fyrra, til Austfjarðarhafna, eða 782 þús. tonn. Næstmest barst til hafna á Norðurlandi eystra, eða 220 þús. tonn og 188 þús. tonn bárust til Suðurlands- kjördæmis. Afli á öðrum teg- undum var svipaður og á ár- inu 1996.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.