Morgunblaðið - 23.08.1998, Qupperneq 6
6 B SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Flóðin
yfirvofandi
í Harbin
Harbin. Reuters.
FLÓÐIN í Kína mjökuðust
hratt og örugglega í átt að
borginni Harbin í norðaustur-
hluta landsins í gær og unnu
kínverskir hermenn af mikilli
eljusemi að því að stafla upp
sandpokum til að byggja borg-
inni varnargarða. Gert er ráð
fyrir að flóðin skelli á borginni
í dag.
Rúmlega þrjú hundruð og
áttatíu þúsund hermenn hafa
verið sendir til Hai’bin á síð-
ustu dögum til að vinna við
gerð varnargarða og berjast
gegn óstýrilátum vatns-
straumnum. Er þetta stærsti
liðsflutningur hersins frá
stofnun Alþýðulýðveldisins
Kína árið 1949 en Harbin er
nú í fremstu víglínu barátt-
unnar við mestu flóð í Kína
um áratuga skeið. Ef marka
má opinberar tölur kínverskra
stjómvalda hafa rúmlega tvö
þúsund manns farist í náttúru-
hamfórum þessum en reyndar
er talið að talan sé mun hærri.
Ibúar Harbin héldu ró sinni
í gær þrátt fyrir að flætt hefði
yfír þjóðveginn og járnbraut-
ina sem tengir Harbin við ná-
grannborgina Daqing, en á
þessar slóðir fær nú enginn að
fara nema farartæki hersins.
Flóðin hafa hingað til ekki náð
til stórborga í Kína og hafa
kínversk stjómvöld heitið því
að allt verði gert til að tryggja
að svo fari ekki. Vom uppi
áform um að grafa frárennsl-
isskurði til að beina flóðunum í
átt frá Harbin, áður en það
væri um seinan.
Loftsteinn úr
öðru sólkerfí?
Kaupmannahöfn. Reuters.
LOFTSTEINN sem sást falla
til jarðar á Grænlandi í des-
ember sl. kann að hafa borist
frá öðru sólkerfí. Sé raunin sú
er það í fyrsta sinn sem slíkt
gerist, svo vitað sé.
Danskir vísindamenn hafa
leitað loftsteinsins frá því í
desember er um 100 manns
sáu hann falla til jarðar en
hafa ekki fundið nein brot úr
honum, aðeins ryk í snjónum.
Þykir það renna stoðum undir
kenningar um að steinninn
hafi borist úr öðm sólkerfi á
geysilegum hraða. Sýnishom
af rykinu hafa nú verið flutt til
Niels Bohr-stofnunarinnar í
Kaupmannahöfn þar sem
efnasamsetning ryksins verð-
ur rannsökuð og verður þá
hægt að staðfesta hvaðan
steinninn er.
Barnaskór
frá Bopy
Svartir • brúnir
St. 22-34
smáskór
í bláu húsi v/Fákafen
á ýmsum afbrigðum bókstafsins X,
þeirra helstar Prófessor X og E-X.
E-X átti lög á neðanjarðarsafn-
snældu en auðnaðist aldrei að gefa
út plötu þó einu sinni hafí legið við
því, og smám saman fjaraði hún út
meðal annars vegna þess að Pétur
fór utan til náms. Pétur stofnaði
síðar aðra rokksveit, Regn, á rúst-
um E-X, en sú varð ekki ýkja lang-
líf.
Þegar þeir félagar náðu saman í
Lhooq vantaði söngkonu, þó báðir
hafí sungið í hljómsveitum áður.
Pétur er hafnfirskur í húð og hár
og þekkti til ungi’ar söngkonu í
Hafnarfirði, Söm Guðmundsdótt;
ur, sem þeir fengu til liðs við sig. í
kjölfarið kom samningur, upphitun
fyrir David Bowie að hans ósk og
smá- og breiðskífur i útlöndum.
Ekki nema fjögur lög tilbúin
Lhooq gerði útgáfusamning við
bresku útgáfuna Echo, sem hefur
meðal annars á sínum snæmm Ge-
orge Martin upptökustjóra Bítl-
anna, D’Influence, Moloko og Ba-
bybird. Síðan eru liðin tvö ár og
fyrsta breiðskífan því verið drjúg-
an tíma í smíðum. Þeir félagar hafa
reyndar látið þau orð falla að það
hafí verið hið besta mál að svo
dróst að ljúka plötunni, enda hafí í
raun ekki nema Ijögur lög verið til-
búin þegar skrifað var undir. „Við
þurftum að semja fleiri lög og svo
að finna einhvern sem okkur líkaði
að vinna með í hljóðveri, en ekki
síst var einfaldlega mikið að gera,“
segja þeir félagar og má til sanns
vegar færa því þeir hafa meðal
annarra unnið með Páli Óskari,
Möggu Stínu, Hafler tríóinu og
Mark Almond, stóðu að útgáfu og
unnu fímm af Megasarlögunum á
samnefndri plötu. Við það bætist
síðan að Jóhann er að vinna að
upptökum með Sigtryggi Baldurs-
syni og Pétur lagðist í ferðalög í
vetur sem gítarleikari, íyrst með
Kylie Minogue og lék síðan inn á
plötu fyrir M People, aukinheldur
sem hann er í hljómsveit Möggu
Stínu.
Einnig segja þeir félagar að
drjúgan tíma hafi tekið að fínna
góðan umboðsmann ytra, því þeir
gátu ekki hugsað sér að flytja út að
svo stöddu. „Tíminn hefur því nýst
okkur vel og því má við bæta að á
þessum tíma höfum við líka náð
miklu betur saman, kynnst miklu
betur og erum sterkari fyrir vikið.
Það hefur líka aldrei verið neinn
þrýstingur á okkur frá útgáfunni
en þar á bæ hafa menn mikla trú á
plötunni og eru mjög ánægðir með
viðtökurnar sem Losing Hand og I
Don’t Want to Know (Bogus) hafa
fengið," segja þeir Jóhann og Pét-
ur og bæta við að tilgangur með
smáskífunum hafi verið að koma
nafninu inn hjá þeim sem starfa í
tónlistariðnaðinum ytra og fyrir
plötusnúðum sem hafi tekist bæri-
lega.
Echo hefur lagt talsvert fé í
Lhooq og þeir félagar segja að þar
á bæ segist menn ætlað að byggja
hljómsveitina upp hægt og bítandi.
„Það verður enginn hamagangur,
enda segja þeir að ekkert liggi á,
Lhooq sé hljómsveit sem þurfi að
byggja upp á tveimur til þremur
plötum.“
Lærdómsríkt að vinna
með öðrum
Fram kemur að þeir Pétur og
Jóhann hafi unnið með ýmsum
listamönnum á þessum tíma, innan
lands og utan, enda segja þeir að
það sé mjög gott að vinna með öðr-
um, öðlast reynslu og innsýn í aðr-
ar vinnuaðferðir. „Það er mjög lær-
dómsríkt að vinna með öðrum og
vera ekki alltaf bara við tveir í
hljóðverinu. Með því að taka að
okkur verkefni með hinum og þess-
um gefst okkur kostur á að prófa
ýmsar hugmyndir sem koma okkur
til góða í eigin vinnu. Við gátum
líka hvenær sem við vildum læst að
okkur og haldið áfram með okkar
tónlist."
Þeir Pétur og Jóhann hafa byrj-
uðu snemma í tónlistinni, en segj-
ast þó ekki þreyttir á stússinu og
hafna því að það sé bara fyrir ung-
linga að standa í slíku útstáelsi.
„Við höfum tiltölulega lítið spilað á
tónleikum í gegnum árin,“ segir
Jóhann, „þannig að það er ekkert
til að þreytast á. Pétur hefur þó
reyndar verið duglegri við að spila,
en það er svo auðvelt fyrir okkur
að vera á sviði þegar Sara er með
því hún er í brennipunktinum, en
við getum skotið okkur á bak við
hana og einbeitt okkur að tónlist-
inni. Þetta er nýtt fyrir henni og
vonandi hefur hún þá gaman af
því.“
Lhooq stefnir á að fara út á
næstunni og halda fáeina tónleika í
tilefni af útgáfu plötunnar, en þeir
Jóhann og Pétur segjast ekki spá
mikið í þau mál sjálfir, umboðs-
skrifstofan í Englandi sér um þau
mál fyrir sveitina. Þegar komið er
að utan verða síðan haldnir tónleik-
ar hér á landi, sem verða þá þriðju
tónleikar Lhooq hér frá stofnun.
Eins og getið er hafa þeir félag-
ar viljað halda sig hér heima meðal
annars til að fá frið til að vinna tón-
list, en einnig segja þeir að það sé
einfaldlega miklu meira að gerast í
tónlist hér á landi en ytra. „Okkur
fannst ekki vera grundvöllur íyrir
því að flyta út á sínum tíma og okk-
ur finnst það ekki enn. Það er ekk-
ert fengið með því að fara út í ein-
hverja óvissu og þó við séum búnir
að vinna okkur orð úti þá er eftir-
spurnin ekki orðin það mikil að rétt
sé að fara út. Það hefur sína ókosti
að vera svo langt frá útgáfunni, en
Sara hefur dvalist úti og það hjálp-
ar til og svo fóru hlutirnir að ganga
mun hraðar fyrir sig þegar Pétur
var úti í vetur.“
Þótt þeir félagar fáist ekki nema
við tónlist í dag, segjast þeir ekki
hafa gert það nema í tvö ár eða svo,
fram að því hafi þeir verið í námi
eða fullri vinnu meðfram tónlist-
inni. „Það er sérkennilegt að vera
ekki að fást við neitt nema tónlist
og vissulega er það gott á meðan
maður getur gert það sem maður
vill, en þó er betra að vera í annarri
vinnu og með músík sem aukastarf
frekar en að sveigja af leið. Það að
fást bara við tónlist hefur galla, til
að mynda lág laun, en það hefur
líka mikla kosti, ekki síst þann að
okkur hefur alla tíð langað til að
lifa af tónlist. Það er aftur á móti
svo mikið umstang í kringum það
að reka hljómsveit, en með góðu
skipulagi tekst það.“
Pótt mikið sé fengið
með því að komast á
samning ytra er vinn-
an rétt að byrja. Árni
Matthíasson tók tali
þá Lhooq-félaga, en
fyrsta breiðskífa
sveitarinnar kom út
ytra nú nýverið.
■■■■■■■
Þótt þeir félagar
fáist ekki nema
við tónlist í dag,
segjast þeir ekki
hafa gert það
nema í tvö ár eða
svo, fram að því
hafi þeir verið í
námi eða fullri
vinnu meðfram
tónlistinni
LHOOQ-TRÍÓIÐ, sem
skipað er Pétri Hallgríms-
syni, Jóhanni Jóhannssyni
og Söru Guðmundsdóttur,
þekkja væntanlega flestir tónlist-
aráhugamenn. Bæði er að þeir Pét-
ur og Jóhann hafa verið iðnir við
tónlist á mörgum sviðum, sem
hljóðfæraleikarar, upptökumenn
og -stjóra, og svo hitt að sveitin
hefur sent frá sér smáskífur sem
notið hafa hylli, Losing Hand og I
Don’t Want to Know (Bogus). Báð-
ar eru þær smáskífur á þreiðskífu
sveitarinnar sem kom út í liðinni
viku á vegum bresku útgáfunnar
Echo.
Jóhann Jóhannsson og Pétur
Hallgrímsson koma úr ólíkum átt-
um í tónlist. Jóhann var á sínum
tíma íremstur meðal jafningja í
Sendi frá sér
smáskífu sem
meðal annars
innihélt Blondie-
lagið Heart of
Glass og hlaut
fyrir góða dóma í
breskri
popppressu
hljómsveitinni Daisy Hill Puppy
Farm, sem sendi meðal annars frá
sér smáskífu sem meðal annars
innihélt Blondie-lagið Heart of
Glass og hlaut fyrir góða dóma í
breskri popppressu. Eftir að sú
lagði upp laupana fór Jóhann að
fást við tölvutól og tæki, en gerðist
þó um tíma liðsmaður
erkirokksveitarinnar Ham. Uppúr
Ham varð til fönksveitin magnaða
Funkstrafle. í Funkstrafle léku
þeir meðal annars saman Pétur
Hallgrímsson og Jóhann og þau
kynni urðu að Lhooq.
Pétur Hallgrímsson er einnig
sprottinn úr rokkinu og lengstaf í
hljómsveitum sem byggja heiti sitt
EKKERT
!
I
I
1
i
!
I
I
l
l