Morgunblaðið - 04.09.1998, Page 2
2 C FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Ferðaðist frá London
á vegabréfi konunnar
HERMANN Hreiðarsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, sem
ieikur með Crystal Palace í
London, uppgötvaði þegar hann
var kominn heim í landsleikinn
gegn Frökkum, að hann hafði
farið í gegnum vegabréfaskoð-
un á Heathrow-flugvellinum á
vegabréfí eiginkonu sinnar,
Rögnu Lóu Stefánsdóttur.
Verðum
að treysta
á aðra
VIÐ höfðum í hendi okkar hvort við færum upp í efstu deild
eða ekki, en nú verðum við að treysta á aðra, en ef við spilum
ekki betur en við gerðum í kvöld förum við ekki neitt,“ sagði
Marteinn Guðgeirsson eftir 2:1 tap fyrir Skallagrími í Víkinni í
gærkvöldi í leik þar sem Víkingar óðu í færum fyrir hlé. Á
Akureyri töpuðu lánlausir HK-menn fyrir KA, 2:1. HK er þegar
fallið í 2. deild, en norðanmenn sigla lygnan sjó í þeirri fyrstu.
Knattspyma
1. deild karla
Vfkingur - Skallagrímur.......1:2
Bjami Hall (16.) - Hjörtur Hjartarson
(49.), Valdimar K. Sigurðsson (55.)
KA-HK..........................2:1
Höskuldur Pórhallsson 2 (44., 54.) - Ivar
Jónsson (81.).
Fj. leikja U J T Mörk Stig
BREIÐABLIK 16 12 0 4 31:13 36
FH 16 9 2 5 27:14 29
VlKINGUR 16 8 4 4 26:17 28
FYLKIR 15 8 3 4 27:20 27
KA 16 7 3 6 19:22 24
SKALLAGR. 16 6 5 5 30:29 23
STJARNAN 15 5 5 5 15:17 20
KVA 14 5 3 6 16:19 18
ÞÓRAk. 15 2 2 11 14:28 8
HK 15 1 1 13 17:43 4
1. deild kvenna
Haukar - Breiðablik ..................0:1
- Erna Sigurðardóttir.
Stjarnan - Fjölnir.....................6:0
Rósa Dögg Jónsdóttir 2, Heiða
Sigurbergsdóttir, Sigríður Asdís Jónsdóttir,
Steinunn Jónsdóttir, Erna Sigríður
Sigurðardóttir.
■ Blikastúlkur áttu mun meira í leiknum án
þess það nýta nema eitt færi svo að sigurinn
var aldrei í hættu þrátt fyrir eitt mark. „Nú
er allt eða ekkert þegai' við heimsækjum
Skagastúlkur á mánudaginn," sagði Elís Þór
Rafnsson, þjálfari Haukastúlkna eftir
leikinn.
í Grafarvoginum átti Stjarnan ekki í
vandræðum með Fjölnisstúlkur og sigraði
örugglega, 6:0, enda var nánast einstefna að
marki Grafarvogsliðsins.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
KR 12 11 0 1 50:4 33
VALUR 12 11 0 1 48:11 33
BREIÐABLIK 13 8 2 3 28:11 26
STJARNAN 13 5 2 6 27:25 17
IBV 11 4 2 5 22:25 14
ÍA 12 2 3 7 18:31 9
FJÖLNIR 13 2 0 11 5:50 6
HAUKAR 12 1 1 10 4:45 4
í kvöld
KNATTSPYRNA
Meistaradeild kvenna:
Vestm.: ÍBV - KR................18
Hlíðarendi: Vaiur - ÍA..........18
1. deild kvenna, úrslit: ^
Grindavík: Grindavik - ÍBA......18
Kaplakriki: FH - KVA............18
1. deild karla:
Eskifj.: KVA - Fylkir........17.30
Garðabær: Stjarnan - Pór Ak.....18
HANDKNATTLEIKUR
Opna Reykjavíkurmdtið:
Leikið á þremur stöðum og hefjast
fyrsti leikur kl. 18, síðan er hefjast
hinir leikimir á heila tímanum.
Grafarvogur, kvennaflokkur: ÍR -
Haukar, Valur - KR-Grótta, Stjarnan
- ÍBV, Fram - Víkingur, ÍR - Valur.
Austurberg, karlaflokkur: Fram -
FH, Fjölnir - Selfoss, Valur -
Stjaman. ÍR b - Þór.
Seljaskóli, karlaflokkur: KA
Hörður, UMFA - ÍR a, Breiðablik -
KR-Grótta, KA - ÍBV, Hörður - HK.
FELAGSLIF
Glímum inn
í næstu öld
GIÍMURÁÐSTEFNA verður haldin í
kaffiteríu ÍSÍ laugardaginn 5. september kl.
10.00 árdegis undir siagorðunum: „Glímum
inn í næstu öld - framtíð glímunnar."
Margir fyrirlesarar munu fjalla um glímuna
í nútíð og framtíð.
Fyrstu mínútumar í leik Víkings
og Skallagríms fóru í að losa
mestu spennuna og hvort lið fékk
ágætt færi, en á 16.
Stefán mínútu brutu Víking-
Stefánsson ar ísinn þegar Bjami
skrifar Ha.ll skoraði af stuttu
færi. Heimamenn
sóttu stíft eftir það og til dæmis
björguðu gestirnir fjómm sinnum
á línu eftir stórsókn Víkinga á 20.
mínútu, sem stóð í á aðra mínútu
en Borgnesingar fengu eitt umtals-
vert færi þegar markvörður Vík-
inga varði aukaspymu Valdimars
K. Sigurðssonar.
Eftir hlé snerist taflið algerlega
við. Víkingar virtust frekar væm-
kærir fyrstu mínútur og það nýttu
Borgnesingar sér. Hjörtur Hjart-
arson jafnaði af stuttu færi á fjórðu
mínútu þegar hann fylgdi eftir
skoti Valdimars, sem markvörður
Víkinga hélt ekki og sex mínútum
síðar kom Valdimar gestunum í 2:1
þegar hann komst einn upp vinstri
kantinn eftir að vamarmaðurinn
Þrándur Sigurðsson hafði dottið
klaufalega.
Víkingar vöknuðu því upp við
vondan draum og sáu að öll góðu
færin fyrir hlé höfðu ekkert gildi.
Þeir settu á fullt en kappið var full-
mikið svo að færin létu á sér
standa þar til langt var liðið á leik-
inn. Þá björguðu gestirnir meðal
annars á línu og fjögur ágæt skot
Víkinga rötuðu ekki á markið.
Atburðarásin var gott dæmi um
hvernig liði, sem fær fullt af fæmm
og telur sig hafa yfirhöndina en
slakar á, er refsað illilega því Vík-
ingar náðu sér aldrei á strik eftir
hlé. Mesta part fyrri hálfleiks vora
þeir að spila ágætlega og skapa sér
færi. Marteinn, Þomi Olafsson og
Arnar Hallsson vora bestir.
„Við komum hingað til að hafa
gaman af leiknum og stríða svolítið
því það er leiðinlegt að vera um
miðja deild og komast hvergi,“
sagði Hjörtur, sem átti góðan leik
ásamt markverðinum Vilberg Kri-
stjánssyni.
Maður leiksins:
Hjörtur Hjartarson, Skallagrími.
Átakalítið hjá KA
Leikur KA og HK á Akureyrar-
velli í gær skipti sáralitlu máli
og bar þess merki.
■■■■■■ Ekki er hægt að
Stefán Þór segja að leikmenn
Sæmundsson hafj jagt sig alla fram
en kæruleysið varð
þó til þess að leikur-
inn var nokkuð opinn. Mörkin urðu
þó ekki nema þrjú, KA sigraði 2:1
og er liðið ágætlega statt í fimmta
sæti deildarinnar. Hins vegar er
furðulegt að aðeins um 40 manns
skuli sjá sér fært að styðja liðið og
segir það sína sögu um knatt-
spyrnuáhugann á Akureyri.
KA-menn höfðu umtalsverða yf-
irburði í leiknum en fóru hörmu-
lega með marktækifærin. Hjörvar
Hafliðason varði vel í marki HK og
Kópavogsbúarnir sköpuðu sér líka
nokkur hættuleg færi þegar vörn
KA var úti á þekju, sérstaklega í
fyrri hálfleik. Bjargvættur KA var
eins og stundum áður Höskuldur
Þórhallsson, sem kann þá list að
skora mörk.
Höskuldur kom KA í 1:0 á 44.
mínútu þegar boltinn datt niður
fyrir framan hann í vítateignum og
hann þramaði upp í þaknetið hjá
HK. Hann var síðan aftur á ferð-
inni á 54. mín. er hann skoraði af
stuttu færi eftir að Hjörvar hafði
hálfvarið fast skot. Eftir þetta
dofnaði yfir leiknum eða þar til Iv-
ar Jónsson minnkaði muninn fyrir
HK á 81. mínútu með glæsilegu
skoti utan teigs. Þótt HK-menn
væru þegar fallnir börðust þeir
eins og ljón síðustu mínúturnar en
tókst ekki að jafna.
Leikmenn HK eiga hrós skilið
fyrir baráttuna í lokin og Hjörvar
fyrir markvörsluna, en besti maður
vallarins var Niklas Larson hjá
KA, afar duglegur og leikinn.
Höskuldur var mikilvægur og þá
kom Jóhann Hermannsson spræk-
ur inn á undir lokin.
Maður leiksins:
Niklas Larson, KA.
OPNA KÓNGSKLAPPAR
GOLFMÓTIÐ
veröur haldiö á Húsatóftavelli
sunnudaginn 6. september.
Keppnisform er Stableford 3/4 forgjöf.
Góð verðlaun eru í boði
fyrir 6 efstu sætin.
Einnig nándarverðlaun á 3-12 og 9-18.
Ræst verður út frá kl. 8:00
Skráning í símum 426 8720 og 426 7972
GOLFKLÚBBUR GRINDAVÍKUR
OG ÞORBJÖRN h/f.
Morgunblaðið/Kristinn
JÓHANN Kristinsson er að kanna pappírstætlur, hvort um
aðgöngumiða sé að ræða.
Jóhann hefur í
mörg horn að líta
JÓHANN Kristinsson, vallar-
stjóri Laugardalsvallar, hefur í
mörg horn að Iíta þessa dag-
ana. Það er ekki aðeins verið
að koma upp nýjum áhorfenda-
stúkum á vellinum, heldur þarf
hann að setjast niður og kanna
hvort möguleiki sé að gefa út
nýja miða á landsleik Islands
og Frakklands. „Til mín hafa
komið menn í öngum sínum
með aðgöngumiða sem eru í
tætlum, eftir að hafa lent í
þvottavél. Ég hef þurft að rýna
í miðana og athuga hvað er
hægt að gera, sjá út sætanúm-
er og annað, þar sem allir mið-
ar á leikinn eru merktir
ákveðnum sætum,“ sagði
Jóhann.