Morgunblaðið - 04.09.1998, Side 4
Á
AKSTURSÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Fljótir feðgar
RÚNAR Jónsson og Jón Ragnarsson á Subaru voru fyrstir eftir fyrsta keppnisdag af þremur í alþjóðarallinu. Rúnar fór sprett með lög-
reglustjóra um Öskjuhlíð i gær og fór á sama tíma með hann og föður sinn í sitthvorri umferðinni.
Fimm sekúndur á
milli efstu manna
■ STEINGRÍMUR Ingason var full-
grimmur á malbikinu í Öskjuhlíð og
ók á barð í lok beins kafla, eins og
fjölmargir aðrir ökumenn. Stein-
grímur hefur keppt oftar en nokkur
annar á malbiksleiðum erlendis.
■ ÓSKAR Birgisson og Geir Birgis-
son veltu harkalega á sérleið um
skógræktina í Hafnarfirði. Þeir fóru
nokkrar veltur og eru hættir keppni.
■ HJÖRTUR P. Jónsson og Isak
Guðjónsson á sérútbúnum Toyota
Corolla voru í fimmta sæti í gær.
Hjörtur gerði mikið af mistökum,
enda að venjast bílnum. Ætlaði að
stilla fjórhjóladrifið þannig að 60%
afls væri að aftan, en 40 að framan.
Beita afturdrifstöktum, en Hjörtur
varð meistai-i í flokki einsdrifsbíla í
fyn-a á afturdrifnum Nissan.
■ HALLDÓR Úifarsson og Skúli
Karlsson voru fremsir í jeppaflokki á
Toyota Double Cab með dísel-vél.
Þeir etja kappi við flota Land Rover
jeppa frá breska hernum. Onnur ís-
lensk áhöfn er í öðru sæti,_ þeir Sig-
hvatur Sigurðsson og lílfar Ey-
steinsson á Jeep Cherokee.
■ LÚÐA kallast ökutæki Halldórs,
en Hvalur ökutæki Sighvats. tílfar
kvað Hvalinn éta Lúðuna áður en
komið yrði í endamark.
■ RÚNAR Jónsson náði besta tíma
á fyrstu leið ásamt Páli Halldóri.
Þeir óku á 1,35, Sigurður Bragi á
1,37. Á sérleið við Hvaleyrarvatn ók
Rúnar á 4,12 mínútum, Sigurður á
4,14 og Páíl á 4,23. Rúnar ók seinni
umferð í Öskjuhlíð á 1,35, Sigurður
á 1,36 og Páll Halldór á 1,37.
STAÐAN
HÉR er staðan í Alþjóðarallinu eft-
ir fyrsta keppnisdag af þremur.
Ökumenn refsing /mínútur
Rúnar Jónsson...............7.22
Sigurður Bragi Guðmundsson .7.27
Páll H. Halldórsson..........7.27
Þorsteinn P. Sverrisson ....7.43
Hjörtur P. Jónsson .........7.47
Steingrímur Ingason..........7.57
Stúart Cpupe................8.05
Halldór Úlfarsson ..........8.15
Garðar Þór Hilmarsson.......8.20
Hjörleifur Hilmarsson.......8.23
Jón B. Hrólfsson.............8.25
Sighvatur Sigurðsson ........8.25
Hermann Halldórsson.........8.51
Jóhannes V. Gunnarsson.......8.57
FEÐGARNIR Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson á Subaru tóku
forystu í Alþjóðarallinu, sem hófst í gær og stendur yfir fram á
laugardag. Þrjár sérleiðir voru eknar í gær og hafa feðgarnir 5
sekúndna forskot á Sigurð Braga Guðmundsson og Rögnvald
Pálmason á Rover Metro, en þeir síðarnefndu unnu þessa
keppni í fyrra. Páll H. Halldórsson og Jóhannes Jóhannesson á
Mitsubishi Lancer voru í þriðja sæti. Fjórðu eru Þorsteinn P.
Sverrisson og Witek Bogdanski á Mazda 323, en þeir eru jafnir
feðgunum að stigum í íslandsmótinu í rallakstri.
Eg er sáttur við stöðuna og það
var ekki ónýtt að fara með lög-
reglustjórann um sérleið í Oskju-
hlíð, innan borgar-
Gunnlaugur markanna á fullri
Rögnvaldsson ferð. Hann var góður
skrifar farþegi, sagði ekki
orð og fannst bara gaman. Þetta er
gott fyrir akstursíþróttimar að
svona maður skuli hafa áhuga,“
sagði Rúnar Jónsson í gærkvöldi.
Þá voru ökumenn í viðgerðarhléi.
„Við verðum í góðum gír á löngum
og ströngum fóstudegi, verðum að
gæta okkar á fyrstu sérleiðunum,
um Tungnaá og Dómadal. Þá er
, Gunnarsholt þröng og erfið leið,
engin mistök má gera. Það er ekki
víst að við höldum forystu allan
daginn, aðalmálið er að við komum
fyrstir í endamark. Ég býst við að
við notum tólf til fjórtán dekk í slag-
inn á föstudag, því átökin eru mik-
il,“ sagði Rúnar.
Sigurður Bragi hyggst fylgja
Rúnari fast eftir á bíl sem hefur
unnið alþjóðarallið fimm sinnum.
„Það er allt samkvæmt áætlun. Ég
er ánægður með stöðu okkar Rögn-
valdar, en verð að passa mig á því
að vera ekki að skoða fór Rúnars,
sem er á undan. Má ekki gleyma
mér við það eins og stundum, held-
ur aka eftir mínum línum. Ég held
að fyrsti dagurinn hafi gefið vís-
bendingu um hvernig slagurinn
verður, en ég komst hratt í gang
núna. Hef stundum verið seinn í
gang, en það dugar ekki til sigurs
núna,“ sagði Sigurður.
„Við töpuðum dýrmætum tíma á
sérleið við Hvaleyrarvatn í tveimur
vinkilbeygjum, eftir að hafa náð
besta tíma ásamt Rúnari í Öskju-
hlíð. Þurfum að breyta afstöðu stýr-
isins. Við ætlum að keyra mjög þétt
á öðrum keppnisdegi, án þess að
skemma bílinn. Það mun reyna mik-
ið á bíl og áhöfn á öllum sérleiðum“,
sagði Jóhannes. Þorsteinn Páll
kvaðst sáttur að vera í fjórða sæti.
„Við höldum þokkalegri ferð á eftir
forystubílunum, það er 500 km
akstur á föstudag, sem verður erfið-
ur. Hver mistök eru dýrkeypt og
menn verða að fara gætilega á sér-
leið við Tungnaá. Þá gæti Gunnars-
holt orðið sleip og varasöm keppnis-
leið. Líklega verður sett met á
Lyngdalsheiði og við ætlum okkur í
fullan slag um titilinn, gætilega þó,“
sagði Þorsteinn.
Leiðarlýsing
ídag
4. Lyngdalsheiði.......7.55
5. Tungnaá a...........9.55
6. Dómadalur a........10.45
7. Næfurholt a .......11.45
8. Gunnarsholt a......12.02
Hádegishlé á Hellu
9. Gunnarsholt b......13.15
10. Næfurholt b .......13.44
11. Dómadalur b........14.05
12. Tungnaá b..........15.03
13. Gunnarsholt c......17.15
14. Geitháls...........18.37
Viðgerðarhlé við Olís Mjódd
kl. 21.10
BRESKI sendiherrann, James McCulloch, slóst í för með Alan
Parramore f einum af sex Land Rover herjeppum f rallinu og
var hvergi banginn.