Morgunblaðið - 29.09.1998, Page 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
É.
UM ER að ræða aðra og þriðju hæð hússins við Hafnargötu 9, sem eru
samtals um 2.000 ferm. Asett verð er 20-30 millj. kr., en óskað er eftir
tilboðum. Húsnæði þetta er til sölu hjá Stóreign.
hús í
hverfi
geymslur eru ennfremur í húsinu.
Garðurinn er fallegur og vel
gróinn og fyrir utan lóðina er stórt
opið svæði með miklu af trjám sem
nær alveg upp að Bústaðakirkju.
Húsið heitir Vindás og er eitt elsta
húsið í hverfinu. Asett verð er 16,8
millj.kr.
Frystihús á
Stokkseyri
HJÁ fasteignasölunni Stóreign er
nú til sölu frystihús á Stokkseyri.
Húsið er í eigu Árness og stendur
við Hafnargötu 9. Um er að ræða
sölu á annarri og þriðju hæð húss-
ins, sem eru samtals um 2.000 ferm.,
en húsið er steinhús á þremur hæð-
um. Heildarstærð þess er 5.534
ferm., en húsið var byggt 1971 og
viðbyggingar við það 1974 og 1980,
en þá voru byggðir 3.262 ferm.
„Þetta er óvenjulega glæsilegt og
vel byggt hús og vel við haldið,“
sagði Jón G. Sandholt hjá Stóreign.
„Eignin sem á að selja er á annarri
og þriðju hæð. Önnur hæðin hefur
verið vinnslu- og pökkunarsalur en
þriðja hæðin var byggð sem fisk-
vinnsluhús en er ófrágengið rými að
stærstum hluta. Þó er kaffistofa á
þessari hæð og eldhús.
Eignin hentar vel undir ýmiss
konar framleiðslufyrirtæki, hvort
sem er í matvælaiðnaði eða öðrum
iðnaði. Húsið er á góðum stað í bæn-
um, rétt við sjávarsíðuna. Ásett verð
er 20-30 millj. kr., en óskað er eftir
tilboðum.
boðum á íbúðarhúsnæði fólks. Þær
aðgerðir hafa tekist gagnvart mörg-
um en alls ekki öllum. Því hefði mátt
búast við að erfíðleikar undanfar-
inna ára væru ferskir í minni fólks
og að með kaupmáttaraukningu og
minna atvinnuleysi myndi sparnað-
ur aukast, eða í það minnsta, að
skuldaaukning heimilanna myndi
ekki verða eins mikil og raun ber
vitni. Engu er hins vegar líkara en
flestir geri hreinlega ekki ráð fyrir
að upp komi aftur samdráttarskeið í
þjóðlífinu.
Auknir lánamöguleikar
Sú jákvæða breyting hefur verið
að eiga sér stað í lánakerfinu að
undanfórnu, að lánastofnanir eru al-
mennt farnar að bjóða upp á lengri
lánstíma og hæm lán en áður. Og
almennt séð er auðveldara er að fá
lán nú en áður þekktist til að standa
undir fjárfestingum eða öðru. Þetta
er jákvætt fyrir íbúðarkaupendur,
húsbyggjendur og íbúðareigendur
ef rétt er að staðið. Lán sem eru
tekin til að standa undir fjárfesting-
um í íbúðarhúsnæði, til að stuðla að
öryggi í húsnæðismálum, eru af hinu
góða, svo fremi sem greiðslubyrði
viðkomandi er í samræmi við
greiðslugetu.
En það er jafnframt varhugavert
að ráðast út í lántökur til langs tíma,
sem taka mið af hámarksgreiðslu-
getu við núverandi aðstæður, sér-
staklega ef það er gert til að fjár-
magna neyslu. Þetta á ekki hvað síst
við ef raunveruleg þörf fyrir að miða
greiðslugetu við hámark er ekki fyr-
ir hendi. Þá er verið að taka óþarfa
áhættu. Eflaust er erfitt fyrir marga
að standast öll þau girnilegu tilboð
um að dreifa greiðslubyrði vegna
kaupa á hinu og þessu til langs tíma,
svo sem ef það er til þess að fá í
hendurnar nýjan bíl fyrir örfáar
þúsundkrónur á mánuði og jafnvel
enga útborgun. En freistingamar
eru ekki bara til að falla fyrir þeim.
Þegar ráðgjöf í húsnæðislánakerf-
inu hófst fyrir rúmum áratug lögðu
þeir ráðgjafar, sem við það unnu, af
stað með eina þumalputtareglu.
Hún var sú að ekki væri ráðlegt fyr-
ir íbúðareigendur að skulda meira
en um það bil tvöfóld árslaun þeirra.
Það sýndi sig að þetta gat átt ágæt-
lega við, svona almennt séð, miðað
við meðallaun. Þetta er bara þumal-
puttaregla sem byggir ekki á nein-
um vísindalegum forsendum, ein-
ungis á reynslu. En í ljós hefur kom-
ið að þessi regla reyndist oft býsna
góð, svo langt sem hún náði. Ekki
verður annað séð en töluverður
fjöldi fólks sé verulega yfir þessum
mörkum í skuldum í dag. Þá er bara
að vona að áfram verði uppgangur í
þjóðfélaginu og að draga muni úr
skuldasöfnun heimilanna. Annars er
hætta á erfiðleikum íbúðareigenda
einhvem tíma.
AUSTURGERÐI 7 í Reykjavík, Vindás, er til sölu hjá Skeifunni. Ásett
verð er 16,8 millj. kr.
Stórl
grónu
HJÁ fasteignamiðluninni Skeifan
er til sölu 300 ferm. einbýlishús að
Austurgerði 7 í Reykjavík. Þetta
hús er byggt í tvennu lagi, eldri
hlutinn árið 1933 en sá yngri 1949.
Eldri hlutinn er forskalað timbur-
hús en viðbyggingin, sem er megn-
ið af húsinu, er steypt. Húsið hefur
verið í eigu sömu fjölskyldu frá
1941. Það er kjallari, hæð og ris.
„Þetta er fallegt og vel við hald-
ið hús, sem er mjög vel staðsett og
í grónu hverfi," sagði Haukur Guð-
jónsson hjá Skeifunni. ,Á aðalhæð
er forstofa, snyrting, hol og stórar
stofur, þ.e. stofa, borðstofa og sól-
skáli. Ur honum er útgengt út á
timburverönd og út í garðinn. Á
aðalhæð er einnig eldhús með
borðkrók, baðherbergi og þrjú
svefnherbergi.
Niðri í kjallara eru tvö herbergi,
stórt þvottahús, snyrting og
sturta, kæliherbergi og lítill inn-
byggður bflskúr. Sérinngangur er
í kjallara. Uppi í risi er eitt her-
bergi, stórt baðstofuloft, sem býð-
ur upp á mikla möguleika. Góðar
Fasteignasölur
í blaðinu
í dag
Agnar Gústafsson bls. 8
Ás bls. 28
Ásbyrgi bls. 8
Berg bls. 21
Bifröst bls. 7
Borgir bls. 20
Brú bls. 12
Eignamiðlun bls. 15
Eignaval bls. 22
Fasteignamarkaöur bls. 19
Fasteignamiðlunin bls. 6
Fasteignasala íslands bls. 8
Fasteignasala Mosfellsb. bls. 17
Fasteignamiðstöðin bls. 14
Fjárfesting bls. 11
Fold bls. 4
Frón bls. 28
Gimli bls. 5
Hátún bls. 14
Hóll bls. 10-11
Hóll Hafnarfiröi bls. 12
Hraunhamar bls. 25
Húsakaup bls. 18
Húsvangur bls. 13
Höfði bls. 3
Kjöreign bls. 24
Lundur bls. 23
Lyngvík bls. 14
Miðborg bls. 26
Skeifan bls. 9
Stakfell bls. 6
Stóreign bls. 11
Valhöll bls. 27
Morgunblaðið/Einar Falur
Skuldasöfnun
heimilanna
Markaðurinn
Lán vegna íbúðarkaupa eru af hinu góða, ef þau
miðast við greiðslugetu, segir Grétar J. Guð-
mundsson, rekstrarstjóri Húsnæðisstofnunar
ríkisins. En lántökur til langs tíma til að fjár-
magna neyslu, sem taka mið af hámarks-
greiðslugetu, eru varhugaverðar.
IÝLEGAR upplýsingar um
aukningu á skuldum heimilanna
við opinberar lánastofnanir eru ekki
uppörvandi. Skuldirnar jukust um
43 milljarða króna frá miðju ári 1997
til miðs þessa árs. Árið áður var
skuldaaukningin 28 milljarðar.
Þetta gerist á sama tíma og dregið
hefur úr atvinnuleysi og kaupmáttur
hefur aukist.
Halda mætti að þróunin hefði átt
að vera þveröfug. Það hefði alla veg-
ana verið heppilegra. Fólk virðist
því skuldsetja sig til að standa undir
meiri neyslu en áður, væntanlega á
grundvelli þess að kaupmáttur
lækki ekki og að atvinnuleysi komi
ekki til með að aukast að nýju. Von-
andi kemur heldur ekki til þess. En
þótt það sé yfirleitt kostur að líta
með bjartsýni á sem flest er var-
hugavert að byggja um of á slíku í
húsnæðismálum.
Fyrir íbúðarkaupendur, hús-
byggjendur og íbúðareigendur er
ekki skynsamlegt að taka ákvarðan-
ir um kaup, framkvæmdir eða
neyslu út frá bestu stöðu og gera
ráð fyrir að hún haldist um aldur og
ævi. Næsta víst er að einhvern tíma
getur komið til samdráttar í þjóðfé-
laginu. Þá lendir það á einhverjum.
Greiðsluerfíðleikar áður
Kannski er fólk almennt fljótt að
gleyma því sem er leiðinlegt eða nei-
kvætt. Ekki eru mörg ár liðin frá því
mikill fjöldi íbúðareigenda var í
verulegum greiðsluerfiðleikum.
Fyrir rúmum áratug voru erfiðleik-
arnir sérstaklega miklir. Þeir voru
aðallega tilkomnir vegna breytinga
á forsendum við flDÚðarkaup eða
húsbyggingu, sem rekja mátti til að-
gerða stjórnvalda til að ná niður
verðbólgu.
Skemmra er hins vegar síðan
samdráttur í atvinnulífinu var meg-
inástæðan fyrir erfiðleikum íbúðar-
eigenda. Stjórnvöld hafa gripið til
sérstakra aðgerða ár eftir ár til að
reyna að draga úr nauðungarupp-
árá
j j j j
Hjá SPR0N faerð þú
alhliða fjármálaráðgjöf
og viðtæka þjónustu.
Þjónustufulltrúar veita þér
allar nánari uppiýsingar
og svara lánsumsóknum
fljótt og vel.
www.spr