Morgunblaðið - 29.09.1998, Blaðsíða 16
16 C ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
PARHUSIN eru flögur og því með átta íbúðum alls. Grunnflötur íbúðanna er 76 ferm., en þær eru á tveimur hæðum og hver íbúð því 152 ferm. Sex af íbúðunum eru með bflskúr, sem er
28 ferm., en tvær af íbúðunum með bflskýli. Ibúðirnar verða seldar fullbúnar að utan með frágenginni lóð og tilbúnar undir málningu og innréttingar að innan. Verð á íbúðunum þannig
verður 14.340.000 kr., en þær eru til sölu hjá Fasteignamarkaðnum.
Ný parhús við
Suðurmýri á
Seltjarnarnesi
Seltjarnarnes hefur ávallt verið mjög
eftirsótt til íbúðar og eftirspurn eftir
eignum þar mikil. Magnús Sigurðsson
kynnti sér ný parhús, sem Innrétt-
ingasmiðjan sf. er með í smíðum
við Suðurmýri
sölu, að þær eru seldar án auglýs-
ingar, því að yfirleitt er langur
biðlisti eftir þeim. Þessi mikla
ásókn gerir auðvitað sitt til þess að
halda verðinu uppi.
Stór skágluggi á suðurhh'ð
Parhús þau sem Innréttinga-
smiðjan er með í smíðum við Suð-
urmýri eru fjögur og því með átta
íbúðum alls. Grunnflötur íbúðanna
er 76 ferm., en þær eru á tveimur
hæðum og hver íbúð því 152 ferm.
Sex af íbúðunum eru þar að auki
með bílskúr, sem er 28 ferm., en
tvær af íbúðunum eru með bíl-
skýli.
Skiptingin á íbúðunum er ein-
föld en hentug. Dagi'ýmið er á
neðri hæðinni en svefnherbergin
uppi. Þau eru 3-4 eftir vali. Reikn-
að er með þremur svefnherbergj-
um, en uppi verður auk þess
myndarlegur pallur, þar sem auð-
veldlega mætti koma fyrir fjórða
svefnherberginu.
A neðri hæð er eldhús, borð-
stofa, stofa, gestasalerni, þvotta-
hús og geymsla. Anddyrið verður
gott, en gengið er inn við bílskúr
og leitast við að láta bílskúrinn
skapa skjól. Eldhús og stofur
verða mjög bjartar, því að á suð-
urhlið verður stór skágluggi, sem
nær upp á efri hæðina. Glugginn
er því sameiginlegur með efri og
neðri hæð. A suðurhlið borðstofu
verður ennfremur stór gluggi með
vængjahurðum út í garð. Ur stofu-
rými liggur stigi upp á efri hæð,
en þaðan er útgengt út á svalir,
sem snúa í norður með útsýni til
vesturs eða austurs.
Burðarvirki húsanna er stein-
steypt svo og plata og milligólf, en
brandveggur gengur upp úr þak-
inu og skiptir húsunum í tvær ein-
ingar. Innveggir eru timburveggir
klæddir með gifsi. „Það er það
bezta, sem hægt er að fá, með til-
liti til hljóðeinangrunar, bruna-
varna og góðs andrúmslofts,"
segja þeir Vernharður Skarphéð-
insson og Gústaf Fransson, sem
standa fyrir þessum bygginga-
framkvæmdum.
Húsin eru að mestu einangruð
að utan með steinull og klædd
með varanlegu efni, það er við-
haldsafrírri klæðningu. Þakið
verður væntanlega úr áli með inn-
brenndum lit.
Á lóðinni stóðu áður húsin Kol-
beinsstaðir og Hof. Kolbeinsstaðir
var íbúðarhús reist á þriðja ára-
tugnum, en þar var áður stórbýli.
I Hofi var vinnufatagerð og síðan
prentsmiðja. Aðkoma að þremur
parhúsanna er frá Suðurmýri, sem
AÐ er ekki á hverjum degi,
sem nýjar íbúðir koma í sölu á
Seltjamamesi. Markaðurinn þar
hefur einkennzt af meiri eftirspum
en framboði í gegnum tíðina og
mjög lítið er þar eftir af auðum
lóðum. Margir ættu því að hafa
áhuga á parhúsum, sem bygginga-
fyrirtækið Innréttingasmiðjan sf.
hefur hafið framkvæmdir við að
Suðurmýri 40-46, en þessi hús era
hönnuð af Áma Þorvaldi Jónssyni
arkitekt.
Ásókn í fasteignir á Seltjamar-
nesi þarf ekki að koma á óvart.
Nesið er fyrst og fremst íbúðar-
svæði og víða með með miklu sjáv-
arútsýni og ferskum hafblæ. At-
vinnuhúsnæði í bænum miðast
fyrst og fremst við verzlun og aðra
þjónustu, sem þjónar byggðinni.
Norðan megin er útsýnið til norð-
urs út yfir sundin, en síðan blasa
við Skarðsheiði og Akrafjall að
ógleymdri Esjunni. Sunnan megin
er útsýni yfír sjóinn til Reykjanes-
fjallgarðs.
Lítið er um nýbyggingar á Sel-
tjamamesi. í Kolbeinsstaðamýr-
inni svonefndu, sem stendur við
Nesveg næst Reykjavík, hefur þó
risið nýtt hverfi á undanförnum
áratug með raðhúsum, parhúsum
og nokkram fjölbýlishúsum. Þetta
hverfi hefur byggzt upp á tiltölu-
lega skömmum tíma og skemmti-
legt er að sjá, hve það er orðið gró-
ið og fallegt. Hús og íbúðir þar
þykja yfirleitt vel heppnuð og era í
háu verði eins og annars staðar á
Nesinu. Helzt má að því finna, að
þröngt er um aðkeyrslu að sumum
þeirra.
Óvíða er aðstaða til útivistar
betri eða skemmtilegri en á Sel-
tjamamesi. Vestursvæðið svo-
nefnda, sem nær m. a. yfir allt
Suðumesið og Gróttu á vart sinn
líkan sem útivistarsvæði svo ná-
lægt byggð á höfuðborgarsvæðinu,
enda era þeir margir, sem þangað
leggja leið sína hvort heldur á vet-
uma eða á sumrin.
Að sögn fasteignasala kemur
það ekki ósjaldan fyrir, þegar góð-
ar eignir á Seltjamamesi koma í
Á LÓÐINNI stóðu áður húsin Kolbeinsstaðir og Hof. Kolbeinsstaðir var íbúðarhús reist á þriðja áratugnum,
en þar var áður stórbýli. Mynd þessi var tekin fyrr í sumar, þegar húsið var rifíð. Hof verður rifið bráðlega.