Morgunblaðið - 08.10.1998, Blaðsíða 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
Æfingaleikjum
aflýst í NBA
Óvíst að leiktímabilið
1998
KNATTSPYRNA
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER
BLAÐ
ÚHamir vilja fá
Amar Grétarsson
„ÉG veit að AEK hafa borist
tvö tilboð í mig, annað er frá
Vitesse Arnheim í Hollandi og
hitt er frá Wolves í Englandi
og er tilboð þeirra síðartöldu
mjög hátt eftir því sem ég
kemst næst,“ sagði Arnar
Grétarsson, leikmaður AEK í
Grikklandi, sem er um þessar
mundir í efsta sæti deildarinn-
ar þar í landi.
Forseti Amheim hefur rætt við
mig og eftir því sem ég kemst
næst er tilboð þeirra a.m.k. upp á
tvö hundruð milljónir króna, en til-
boð Úlfanna mun vera talsvert
hærra. Hins vegar hafa forráða-
menn AEK ekkert verið rætt við
mig ennþá um þessi tilboð en þeir
gera það örugglega mjög fljótlega
þar sem ég veit að tilboð Úlfanna
stendur ekki nema fram á næst-
komandi mánudag. Ég er að sjálf-
sögðu mjög spenntur fyrir að skoða
þessa kosti og meta þá hver kost-
anna er hagstæðastur fyrir mig. En
það er ljóst að það er mikið um að
vera og eitthvað gerist á næstu dög-
um.“
Arnar sagði ennfremur að upp-
hafið að þessum tilboðum væri það
að eignarhaldsfélagið Enic væri
minnka eignarhlut sinn í félaginu úr
sjötíu af hundraði niður í fímmtíu og
fimm af hundraði og um leið vildi
það selja nokkra sterka leikmenn til
þess að fá inn fjármagn. „Það er
fyrrverandi forseti AEK sem er að
kaupa þennan hlut af Enic. Hann er
hins vegar mjög hliðhollur mér og
vill ekki að ég verði seldur, en
margt bendir samt til þess að svo
verði þar sem tilboðin eru hagstæð
og því erfítt að neita þeim.“
Auk tilboða Vitesse og Úlfanna
sagðist Amar vita af því að Ander-
lecht hefði endurnýjað áhuga sinn á
sér, en belgíska félagið var að bera
víumar í hann sl. vor. „Sá áhugi
datt upp fyrir þegar Arie Haan vai-
leystur frá starfi þjálfara á dögun-
um. Þá veit ég af áhuga Olympi-
akos, en AEK selur mig aldrei
þangað því þeir eru aðalkeppninaut-
ur okkar.“
Amar sagði að hvað sem öllum
tilboðum liði hefði hann það ágætt í
Grikklandi. AEK-liðinu gengi vel,
það væri í efsta sæti deildarinnar og
hefjist á réttum tíma
ÆFINGALEIKJUM hefur verið aflýst í banda-
ríska körfuboltanum og telja nú margir ólíklegt
að kcppnistímabilið í NBA geti hafist á tilsettum
tíma 3. nóvember. Alls átti að leika 114 æfinga-
leiki. 24 hafði verið aflýst áður og á mánudag var
ákveðið að aflýsa þeim 90 ieikjum, sem eftir voru.
Sagði Russ Granik, aðstoðarformaður NBA, í
samtali við dagblaðið The New York Times að
sennilega hefðu tekjur vegna miðasölu af þessum
leikjum orðið milli 35 og 40 miiljónir doilara (2,4
til 2,7 milljarða króna), sem deiidin yrði þá af, og
væru aðrar tekjur af leikjunum, svo sem sjón-
varpsútsendingar, ekki teknar með í reikninginn.
Eigendur liðanna settu
verkbann 1. júlí. f dag verður
sest að samningaborðinu á ný
eftir nokkurt hlé. Deilan snýst
um iaun ieikmanna og hversu
stór hluti þau megi vera af
heildartekjum liðanna. Eig-
endur segja að nýjasta tillaga
þeirra geri ráð fyrir 3,1 millj-
ónar dollara (um 210 milljóna
króna) meðalárslaunum og
750 þúsund dollara (tæpra 52
miiljóna króna) lágmarks-
launum fyrir Ieikinann, sem
spilað hefur í 10 ár í deildinni.
Eigi leiktímabilið að geta
hafist á réttum tíma þurfa
samningar að takast í næstu
viku, en það hefur aldrei
gei-st í sögu NBA að leikur
hafi fallið niður vegna launa-
deilu.
Morgunblaðid/Golli
ARNAR Grétarsson hefur leikið vel f Grikklandi. Hér keppast (jósmyndarar að
taka mynd af Arnari fyrir leik í Aþenu.
hann hefði leikið frá upphafi til enda
í fjórum leikjum í deildinni og kom-
ið inn á sem varamaður í tveimur.
„Þrátt fyrir okkur gangi vel í deild-
inni er mikil óánægja með þjálfar-
ann sem ráðinn var í sumar og mjög
líklegt að hann verði látinn taka
pokann sinn þegar nýi forsetinn
tekur við.
Þá hefur verið rætt um að hann
muni ráða Dusan Bajevic, þjálfara
Olympiakos, en Bajevic þjálfaði
AEK í tíð þess forseta og stýrði þá
AEK til sigurs í deildinni þrjú ári í
röð áður en hann fór til Olympiakos
og gerði þá að meisturum í vor og
árið þar áður. Mér og fjölskyldunni
líkar vel og við munum því spá vel í
þá möguleika sem bjóðast þótt það
sé vissulega spennandi að komast til
Hollands eða Englands, málið er
bara það hverjir bjóða best.“
■Það er of... / C3
nn ovissa
með Pétur
Pétur Marteinsson fann aðeins til
í nára eftir létta æfingu með
landsliðinu á ÍR-vellinum í gær-
kvöldi en árdegis í dag skýrist hvort
hann fer með til Armeníu á morgun
eða Sigurður Örn Jónsson í KR taki
sæti hans.
Pétur tognaði í liðinni viku og
varð að fara af velli undir lok fyrri
hálfleiks þegar Hammarby gerði
jafntefli í Gautaborg. Við komuna til
íslands í gær endurtók hann það
sem hann hafði áður sagt; sagðist
aldrei hafa meiðst áður og vissi því
ekki hvað þetta væri alvarlegt.
Læknir og sjúkraþjálfari landsliðs-
ins skoðuðu hann í gærkvöldi en
álagið var ekki mikið á æfingunni
og verður ákvörðun um framhaldið
tekin eftir æfinguna fyrir hádegi í
dag. „Við tökun enga áhættu með
Pétur,“ sagði Guðjón Þórðarson
landsliðsþjálfari við Morgunblaðið í
gærkvöldi og bætti við að ef óvissa
ríkti með Pétur kæmi til greina að
Sigurður Örn færi til Armeníu og
síðan yrði séð til með Pétur fyrir
leikinn við Rússa á miðvikudag.
Kristlnn
og Arn-
ór áfram
með Val
KRISTINN Bjömsson
verður áfram þjálfari
meistaraflokks Vals í knatt-
spymu en hann gerði ramma-
samning til þriggja ára í fyrra.
Amór Guðjohnsen, sem gekk
til liðs við Val í júlíbyrjun og
varð aðstoðarmaður Kristins
þegar Þorlákur Ámason hætti,
verður áfram í því hlutverki
auk þess sem hann ætlar að
leika með liðinu næsta tímabil
eins og í sumar.
Skiptar skoðanir vora innan
stjórnar knattspymudeildar
um framhaldið varðandi
þjálfunina en ákveðið var í gær
að halda settu marki og halda
áfram því starfi sem byijað var
á í fyrra. „Ég er þakklátur fyr-
ir þessa ákvörðun,“ sagði
Kristinn við Morgunblaðið í
gærkvöldi. „Það var lagt af
stað með þrjú ár í huga og mik-
ilvægt er að unnið sé á fagleg-
an hátt í þessu sem öðra. Það
vora skiptar skoðanir um hvað
ætti að gera en þjálfun snýst
um gæðastjórnun og stöðug-
leika, þar sem tilfinningar
mega ekki ráða fór.“
Amór sagði að stefnan væri
að fara út í þjálfun og þetta
væri áfangi á þeirri leið. „Nú
get ég verið með frá byijun og
það er nýtt hjá mér í þessu,“
sagði hann.
KNATTSPYRNA: VANDA TALDI SIG HAFA FUNDIÐ DRAUMASTARFID / C4