Morgunblaðið - 09.10.1998, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA
LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
1998
I FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER
BLAD
Blatter
mætir til
leiks
SEPP Blatter, forseti alþjóða-
knattspyrnusambandsins,
FIFA, kemur til Islands til að
fylgjast með Evrópuleik Is-
lendinga og Rússa á Laugar-
dalsvellinum á miðvikudaginn
kemur. Blatter mun m.a. ræða
við tvo ráðaherra - Halldór
Áskelsson utanríkisráðherra
og Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra, á meðan á dvöl
hans stendur hér á landi.
Blatter var kjörinn forseti
FIFA á ársþingi sambandsins
sem var í Frakklandi í sumar
þegar HM stóð yfir. Hann
hafði verið framkvæmdastjóri
sambandsins um tvo áratugi.
Sjónvarpað
til Moskvu
LEIKUR íslands og Rússlands
á Laugardalsvellinum á mið-
vikudaginn kemur verður kl.
17.45. Astæðan fyrir því að
ekki verður leikið um kvöldið
er að leiknum verður sjón-
varpað beint til Moskvu, kl.
21.45 að staðartíma. Þýska
fyrirtækið UFA, sem á sýn-
ingarrétt frá heimsleikjum Is-
lands í Evrópukeppni lands-
liða, óskaði upphaflega eftir
því að leikurinn færi fram kl.
16. Knattspyrnusamband ís-
Iands mótmælti þeim tíma,
þannig að samkomulag var að
leikurinn færi fram kl. 17.45.
Ellefu stiga
frost í
Armeníu
ÞEGAR landsliðshópurinn í
knattspymu kemur til Armem'u
kl. 21.50 að staðartíma í kvöld
(kl. 16.50 að fel. tíma) verður
ellefu stiga frost í Jerevan sam-
kvæmt veðurspá. Þegar 21 árs
landsliðið leikur á morgun í
borginni Gjumri, sem er ura
100 km fyrir norðan Jerevan,
verður léttskýjað og sextán
stiga hiti. Það verður orðið
svalt þegar a-landsliðið leikur
í Yerevan kl. 18, en þá er
reiknað með að fimm til sex
stiga frost verði í lok leiksins.
Morgunblaðið/Kristinn
ÞAD var létt yfir landsliðshópnum á Hótel Loftleiðum í gær. Birkir Kristinsson liggur á borði, en aðrir eru
Hermann Hreiðarsson, Tryggvi Guðmundsson og Árni Gautur Arason.
Skipt um tvo
varnarmenn
Meiðsl tveggja lykilmanna gerir það að verk-
um að Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálfari í
knattspyrnu, verður að gera mannabreytingar í
vörninni í leiknum á móti Armeníu á Razdan-leik-
vanginum í Jerevan á morgun. Hann sagði við
Morgunblaðið að alltaf væri slæmt að missa góða
menn en maður kæmi í manns stað og hann
treysti sínum mönnum til að gera það sem þyrfti
að gera.
Eyjólfur Sverrisson var fyrirliði og stjórnaði
vörninni í tveimur síðustu leikjum, í vináttuleik á
móti Lettlandi um miðjan ágúst, sem vannst 4:1,
og í 1:1 Evrópuleiknum á móti heimsmeisturum
Frakklands. Hann var skorinn upp fyrir skömmu
og missir því af leiknum í Armeníu á morgun og á
móti Rússlandi á Laugardalsvelli á miðvikudag
en Sigurður Jónsson, sem er að byrja aftur eftir
að hafa verið frá vegna meiðsla síðan um miðjan
ágúst, tekur stöðu hans.
Pétur Marteinsson hefur eflst með hverjum
leik og gegndi veigamiklu hlutverki í vörninni
fyrir framan Eyjólf í fyrrnefndum leikjum en
hann verðm- fjarri góðu gamni á morgun vegna
nárameiðsla. Sigurður Orn Jónsson kom inní
hópinn í staðinn en gera má ráð fyrir að Steinar
Adolfsson taki stöðu Péturs á morgun.
„Það er alltaf slæmt að missa góða menn en
ekki er þar með sagt að aðrir geti ekki gegnt
hlutverkinu,“ sagði Guðjón við Morgunblaðið í
gær. ,AHir leikmennimir í hópnum vita hvað við
erum að gera og því kemur þeim ekkert á óvart í
þessu efni en samt er því ekki að neita að þessar
óhjákvæmilegu breytingar geta haft einhver
áhrif. Fyrir liggur að Sigurður fer í stöðu sem
hann þekkir mjög vel en hann hefur ekki spilað
lengi og það getur oft verið erfitt að byrja á ný.
Eg hef ekki gert upp við mig hver fer í hlutverk
Péturs en þetta á ekki að vera vandamál."
■Vilja sjá / C4
BIRKIR Kristinsson, landsliðsmarkvörður í
knattspyrnu, hefur tilkynnt forráðamönnum
Norrköping í Svíþjóð að hann verði ekki áfram
hjá félaginu. „Við hjónin höfum tekið þá ákvörðun
að flytja aftur heim í haust og ég stefni á að leika
með liði í efstu deild íslandsmótsins næsta sum-
ar, en Kristinn, sonur okkar, byi'jar í skóla eftir
ár,“ sagði Birkir við Morgunblaðið í gær. „Síðasti
leikur liðsins í Svíþjóð verður fyrstu helgina í
nóvember og við komum fljótlega eftir það en
samningur minn rennur út í lok nóvember."
Birkir fór til Brann í Noregi eftir tímabilið hér
heima 1995 en skipti yfir í Norrköping á liðnum
vetri. Sænska félagið er vel sett með markverði, á
sænsku landsliðsmarkverðina í ungmennaliðinu,
piltalandsliðinu og drengjaliðinu en vildi gera
nýjan samning við Birki, þó hann hafi lítið sem
ekkert fengið að leika með liðinu. „Félagið bauð
mér samning fyrr í sumar og þá var ég því ekki
afhuga en það er ekki inni í myndinni lengur. Við
komum heim og síðan huga ég að framhaldinu -
hvar ég spila - eftir landsleikinn við Rússa.“
Sigurður Örn í
stað Péturs
PETUR Marteinsson fer ekki með landsliðinu til
Armeníu árdegis í dag vegna meiðsla og var
Sigurður Orn Jónsson í KR valinn í staðinn. Pét-
ur verður áfram í meðferð hjá sérfræðingum í
Reykjavík og vonast til að geta leikið á móti
Rússum á miðvikudag. „Það er hundfúlt að geta
ekki farið með en svona er þetta, ég er ekki til-
búinn,“ sagði Pétur við Morgunblaðið eftir
morgunæfinguna í gær. Hann hefur verið í með-
ferð siðan hann kom til landsins, er á bólgueyð-
andi lyfjum og fær hljóðbylgjur með reglulegu
millibili, og er betri í náranum en ekki nógu
góður til að spila. „Við tökum enga áhættu og
ég tók þessa ákvörðun í samráði við Sigurjón
Sigurðsson, lækni landsliðsins, og Guðjón Þórð-
arson, landsliðsþjálfara. Skynsamlegast er að
taka því rólega en stefnan er að vera tilbúinn
fyrir Rússaleikinn."
Pétur meiddist á nára í liðinni viku og getur
ekki enn tekið á á fullu.
Birkir á
heimleið
FRJÁLSÍÞRÓTTIR: GLÆSILEG ADSTAÐA FH-INGA í KAPLAKRIKA / C2,C3