Morgunblaðið - 14.10.1998, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
KARFA
Barátta
sem fýrr
BLAÐ
Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson
Rodrick Hay
farinn frá
Skailagrimi
BANDARÍSKI körfuknattleiks-
maðurinn Rodrick Hay hefur verið
látinn fara frá úrvalsdeildarliði
Skallagríms, þar sem hann stóð
ekki undir væntingum. Skallagrím-
ur hefur misst báða útlendingana
sem voru í herbúðum liðsins.
Fjórir erlendir leikmenn, sem
hófu keppnistímabilið með úrvals-
deildarliðum, eru farnir af landi
brott eftir tvær umferðir. Michael
Jackson fór frá Skagamönnum og
Rodney Odrick fór frá Njarðvíking-
um, en faðir hans lenti í bílslysi.
1998
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER
Ríkharður Daðason verður í
fremstu víglínu gegn Rússum
RÍKHARÐUR Daðason verður í fremstu víglínu þegar
fsland tekur á móti Rússlandi í Evrópukeppninni á
Laugardalsvelli í dag. „Ég á von á að þetta verði ámóta
barátta og þegar við lékum við Frakka,“ sagði miðherj-
inn við Morgunblaðið í gær.
Rússar hafa ekki fengið stig í keppninni til þessa og gera má
ráð fyrir að þeir sæki á fullu fyrstu 20 mínútumar en því er
mikilvægt að við verðum tilbúnir að taka á móti þeim. Þó að við
séum með tvö stig og á heimavelli er ljóst að við verðum í varn-
arhlutverki, því við leikum við alvöru knattspymuþjóð með
mikla hefð, lið sem er mjög sterkt. Við verðum að vera mjög
skynsamir og getum ekki leyft okkur einhverja glæframennsku.
Við eigum að geta skapað okkur sóknarfæri og við þrír í
fremstu röð verðum að vera aðeins kaldari og sýna meiri áræðni
en við gerðum í Armeníu. En markmiðið er fyrst og fremst að fá
ekki á okkur mark. Við vitum að við getum skorað og þurfum að
nýta tækifærin sem gefast til að skapa færin.“
Ríkharður var í strangri gæslu á móti Armeníu og á von á að
svipað verði uppi á teningnum í kvöld. „Sóknarhlutverkið er
erfítt að því leyti að yfirleitt eru tveir menn á mér. Hins vegar á
ég að geta unnið boltann í loftinu og komið honum út á kant-
mennina eða haldið honum með þáð í huga að nýta svæðin í
kring. Bæði Þórður og Arnar eru það góðir og fljótir að fái þeir
tækifæri einn á móti einum geta þeir komist í gegn og annað
hvort komið boltanum fyrir marldð eða lokið sókninni sjálfir.
Þetta gekk ekki vel í Armeníu en þar var völlurinn erfiður. Hins
vegar á þetta að geta gengið á góðum velli eins og Laugardals-
vellinum."
Miðherjinn sagði Ijóst að til að ná árangri þyrfti allt að ganga
upp. „Sóknin stendur og fellur með okkur þremur frammi og við
verðum að hafa trú á því sem við erum að gera en vissulega er
alltaf erfiðast að skora.“ Hann áréttaði að vamarleikurinn væri
byrjunin á öllu. „Frakkar áttu í ei-fiðleikum með að skora í HM
en urðu heimsmeistarar vegna þess að þeir fengu fá mörk á sig.
Ég líki okkur ekki við heimsmeist-
arana en þeir byggðu leik sinn á ög- RÍKHARÐUR Daðason
uðum vamarleik. Við eigum ekki var 1 strangri gæslu i
möguleika á móti liðum eins og Jerewan í Armeníu.
Rússlandi og Frakklandi ef við ætl-
um að spila eins og hver og einn
gerir með sínu félagsliði þar sem
áhætta er tekin að gera fleiri mörk
en mótherjinn hverju sinni. Við er-
um að spila við milljóna þjóðir sem
refsa okkur um leið, gefum við færi
á því. Rússar eru stórþjóð í knatt-
spyrnu og það segir sig sjálft að við
getum ekki sótt á þá með sex eða
sjö mönnum. En við getum gert ým-
islegt með færri mönnum og mörg-
um áhorfendum eins og sást á móti
Frökkum. Þá var stuðningurinn
stórkostlegur og ég vona að sem
flestir sjái sér fært að mæta á síð-
asta landsleik ársins, því sterkur
heimavöllm- er svo mikilvægur."
Síðasti
landsleikur
Eyjólfs
EYJÓLFUR Ólafsson, milli-
ríkjadómari, dæmir síðasta
landsleik sinn í dag en þá
dæmir hann leik Tékklands og
Eistlands í Evrópukeppninni
en leikurinn fer fram í Prag.
Eyjólfur nær aldursmörkum
FIFA-dómara um næstu ára-
mót og hættir þá sem milli-
ríkjadóniari. Pjetur Sigurðs-
son og Ólafur Ragnarsson
verða á línunni hjá Eyjólfi í
dag og Gylfi Þór Orrason er
varadómari.
Þess má geta að Eyjólfur
mun geta talað íslensku við
þjálfara Eistlands, en liðinu
stjórnar Teitur Þórðarson frá
Akranesi.
Sama byrjunar-
lið íslands
og í Armeníu
BYRJUNARLIÐ íslands á móti Rússlandi verður
eins og það var í Armeníu á laugardag. Birkir
Kristinsson verður í marki og Sigurður fyrirliði
Jónsson aftasti maður varnar en Steinar Adolfs-
son og Lárus Orri Sigurðsson fyrir framan hann.
Auðun Helgason verður hægri bakvörður og
Hennann Hreiðarsson vinstra megin en Rúnar
Kristinsson og Helgi Kolviðsson á miðjunni.
Þórður Guðjónsson verður á hægri kanti og Arn-
ar Gunniaugsson vinstra megin en Ríkharður
Daðason fremstur.
Varamenn verða lfka þeir sömu. Árni Gautur
Arason er varamarkvörður en aðrir varamenn
þeir Bi-ynjar Björn Gunnarsson, Sigurður Örn
Jónsson, Sverrir Sverrisson, Helgi Sigurðsson,
Tryggvi Guðmundsson og
Stefán Þór Þórðarson. Pétur
Marteinsson liefur ekki náð
sér eftir að hafa tognað á
nára og er ekki í hópnum
frekar en í Armernu.
HANDKNATTLEIKUR
Patrekur ekki með gegn Sviss
„ÞAÐ er mjög slæmt fyrir okkur ef
Patrekur getur ekki leikið með
gegn Svisslendingum. Hann hefur
leikið eitt af lykilhlutverkunum hjá
okkur,“ sagði Þorbjöm Jensson,
iandsliðsþjálfari í handknattleik.
Patrekur Jóhannesson meiddist í
nára í leik gegn Finnum í Helsinki
á dögunum og hefur ekki leikið
með Essen síðan. Þýskii’ fjölmiðlar
sögðu frá þvi um helgina að
Patrekur hefði skorað eitt mark í
síðasta leik Essen. Það er ekki rétt
- hann lék ekki gegn Eisenach.
„Leikirnir gegn Sviss, fyrst í
Aarau miðvikudaginn 21. október
og síðan hér heima í Laugardals-
höllinni sunnudaginn 25. október,
eru afar þýðingarmiklir fyrir okk-
ur. Við verðum að leggja allt í söl-
urnar til að leggja Svisslendinga að
velli í báðum viðureignunum og
vera með tveggja stiga forskot á
Ungverja áður en við leikum síð-
ustu leikina í riðlinum gegn þeim,“
sagði Þorbjörn.
Ef íslenska liðið nær góðum úr-
slitum gegn Sviss þarf ekki nema
sigur í fyrri leiknum gegn Ungverj-
um, í Reykjavík 25. nóvember, til að
farseðill á heimsmeistarakeppnina í
Egyptalandi sé tryggður.
BYSHOVETS, ÞJALFARI RUSSA: „OKKAR SIÐASTA VON“ / C3