Morgunblaðið - 14.10.1998, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 C 3
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Guðjón Þórðarson segir að meðbyrinn sé mikilvægur
er
liðið okkar
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu fékk frí til kvölds eftir morg-
unæfingu á mánudag, æfði tvisvar í gær og tekur léttan göngu-
túr árdegis í dag fyrir Evrópuleikinn við Rússa síðdegis. „Ég
veit auðvitað ekki hvernig Rússarnir stilla upp en ég geri ráð
fyrir að þeir byrji með látum því fyrir þá er um Iff eða dauða að
tefla,“ sagði Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálfari, við Morgun-
blaðið eftir æfingu í gær. „Ef Rússar tapa stigum hér má segja
að þeir séu út úr keppninni og því er mikið álag á þjálfara og
leikmenn. Ég kem til með að hafa þetta að leiðarljósi því Ijóst
er að verði þeim ekki ágengt með þessum atgangi til að byrja
með ókyrrast þeir - óróleiki og stress grípa um sig.“
Landsliðshópurinn var þreyttur
eftir erfiða ferð til Armeníu um
helgina. „Það var mjög erfitt að
ferðast með flugi í 22
Steinþór tíma af rúmlega 40
Gubjartsson tíma ferðalagi en það
skrifar sem skiptir máli er að
allur aðbúnaður hér á
hótel Loftleiðum er mjög góður og
menn eiga að vera búnir að jafna
sig andlega og líkamlega eftir Ar-
meníuferðina.“
Guðjón hefur ekki verið með
miklar mannabreytingar hjá sér og
ávallt látið lið sitt spila sama leikk-
erfi en miklar mannabreytingar
hafa verið hjá Rússum að undan-
förnu auk þess sem þeir hafa farið
úr einu leikkerfinu í annað. „Eg á
alveg eins von á að þeir hafi góðar
gætur á Ríkharði og dekki líka
Þórð og Arnar. Eins geta þeir spil-
að 4-4-2 sem fellur vel að okkar
kerfi.“
Það háði liðinu í Armeníu hvað
sóknirnar voru ómarkvissar en
Guðjón sagði að reynt yrði að bæta
úr því. „Við þurfum að ná örlítið
meiri þéttleika í liðið - að vörnin
fylgi betur með þegar við sækjum
og gæta þess að liðið skiptist ekki í
tvennt. Við vissum að Armenar
byrjuðu mjög grimmir en seinni
hlutann í fyrri hálfleik virtist að-
eins tímaspursmál hvenær við
kæmumst í nógu gott færi til að
skora. Völlurinn bauð ekki upp á
nett spil en þó við séum að spila við
sterkari mótherja eigum við að
geta látið spilið ganga mun betur á
Laugardalsvellinum. Það er það
sem við reynum að gera því ef við
eigum að eiga möguleika á að sigra
Rússa verðum við að skora. Svo
einfalt er það. En í sambandi við
fjöldann í sókninni má benda á að
Frakkar sóttu tveir á móti fimm
eða sex Rússum en skoruðu samt.
Zidane „sprengdi upp“ miðjuna og
renndi á Anelka. Það er ekki fjöldi
sóknarmanna sem ræður heldur
gæði sóknartilburðanna sem gera
útslagið."
Rússar hafa gert tvö mörk eftir
horn, eitt úr aukaspymu og annað
úr vítaspyrnu í undanfömum leikj-
um. „Þetta segir okkur ýmislegt,
meðal annars það að htið er um
gegnumbrot í leikstíl þeirra. Þeir
era mjög góðir í því að halda bolt-
anum og því verðum við að vara
í dag
14
KNATTSPYRNA
EM 21 árs landsliða:
Kópavogur: ísland - Rússland,
EM landsliða:
Laugard.: ísiand - Rússland.. 17.45
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Hagaskóli: KR - ÍS.....20.30
BLAK
1. deild karla:
Hagas.: Þróttur R. - Stjaman... 19
okkur verulega á því að vera
hvorki með klaufaleg né ótímabær
brot á síðasta þriðjungi vallarins.
Hins vegar hefur okkur tekist að
verjast föstum leikaðferðum betur
upp á síðkastið en áður en samt
verðum við að hafa hugfast að
erfitt er að verjast langskotum eins
og við sáum þegar Rússar skoraðu
á móti Frökkum."
Talandi um skot þá vakti athygli
að Islendingar áttu fá markskot í
Armeníu. „Þetta er spuming um
sjálfstraust hjá viðkomandi leik-
manni hverju sinni. Nú er það upp-
álagt af minni hálfu að menn ljúki
sóknum með fyrirgjöfum og skalla
eða skoti en helst með skotum.
Hvað síðan verður er undir við-
komandi leikmanni komið og
spurningar sem hann einn getur
svarað þegar hann þarf að taka
ákvörðun um hvað hann eigi að
gera í viðkomandi stöðu.“
Guðjón sagði að leikurinn yrði
mjög erfiður. „Það reynir vera-
lega á liðið í þessum leik því miðað
við stöðu Rússa og stöðuna í riðl-
inum er um að ræða erfiðasta leik
liðsins undir minni stjórn. Staðan
er svo krítísk en ef okkur tekst vel
upp og eigum möguleika á að
sigra væri komin upp sú staða að
við væram allt í einu að berjast við
Úkraínu um annað sætið. Þetta er
auðvitað draumórakennt en engu
að síður staða sem gæti komið
upp. Sérstaklega með þetta í huga
ber að vara við bjartsýni en við
sjáum á stuðningi áhorfenda
hvaða væntingar fólkið ber í
brjósti. Stuðningurinn er alltaf
mjög mikilvægur því árangur
næst aðeins með því móti að fólk
þyrpist á völlinn og styðji við bak-
ið á liðinu sínu hvað sem á dynur,
að hugsunin sé sú að þetta sé liðið
okkar.“
Vöm er
besta
sóknin
Þórður Guðjónsson verður á hægri kantin-
um sem fyrr þegar íslendingar taka á móti
Rússum á Laugardalsvellinum í kvöld. „Þetta
verður gríðarlega erfitt og ljóst er að sem fyrr
verðum við að hugsa um að verjast en sóknirn-
ar eiga að byggjast á því að geta sótt hratt,“
sagði hann við Morgunblaðið í gær.
Kantmennirnir fengu ekki mikla aðstoð í Ai’-
meníu og verða að vera viðbúnir því að gera
hlutina upp á eigin spýtur í kvöld. „Það er skilj-
anlegt að við fáum litla aðstoð því við byggjum
upp á sterkum vamarleik og hann verður að
vera aðal okkar.“
Island hefur gert jafntefli við Frakka og Ar-
mena í Evrópukeppninni að þessu sinni en
Rússar era án stiga. „Ég hef trá á að þetta
verði álíka leikur og á móti Frökkunum en held
samt að Rússarnir gefi meiri færi á sér því þeir
era meira sóknarlið. Fyi-ir vikið getum við
hugsanlega fengið fjórar til fimm góðar sóknir
og æskilegt er að geta nýtt þær.“
Islendingar náðu aðeins átta markskotum í
Armeníu en Þórður sagði að það ætti ekki að
koma á óvart. „Við vissum fyrirfram að eftir
níu tíma flug og erfitt ferðalag gæti liðið ekki
spilað bullandi sóknarleik skömmu
síðar. Hins vegar verður að hafa í
huga að Rússar era mjög sterkir,
gríðarlega teknískir og vel skipu-
lagðir eins og þeir hafa alltaf verið
en allir vita að gömlu Sovétríkin
og ríkin sem komu upp úr þeim
hafa gefið af sér marga góða leik-
menn, sem enginn valtar yfir. Því
getum við ekki breytt miklu en við
sáum í leiknum á móti Lettum að
við getum vel sótt. Þá sköpuðum
við okkur 22 marktækifæri og
gerðum fjögur mörk en hefðum
getað skorað fleiri. Þá byggðum
við leik okkar á sterkum varnar-
leik og höldum því áfram. Síðan er
að sjá hvernig færin nýtast en
vörn er besta sóknin."
Morgunblaðið/Einar Falur
ÞÓRÐUR Guðjónsson er í varnarhlutverki á hægri kantinum en einnig helsti sóknarmaður íslenska landsliðsins.
Anatoly Byshovets, þjálfari Rússa, fyrir leikinn gegn íslendingum
Okkar síðasta vori
RÚSSNESKA landsliðið æfði í kulda og trekki á Laugardals-
velli í hádeginu í gær. Þó svo að hitastigið væri ekki nema
um 6 gráður létu rússnesku leikmennirnir það ekki á sig fá
enda voru þeir kappklæddir, með húfur og vettlinga. Þeir
voru einbeittir og sást ekki bros á nokkrum manni.
Haukur Ingi með flensu
Iskipað leikmönnum 21 árs og
yngii, mætir jafnöldrum sínum
frá Rússlandi í dag og hefst leik-
urinn kl. 14 á Kópavogsvelli. Atli
Eðvaldsson, þjálfari liðsins, valdi
byrjunarliðið í gær, en nokkrar
breytingar hafa orðið á hópnum
frá því í leiknum við Armeníu á
laugardaginn.
„Heiðar [Helguson] fékk annað
gula spjaldið sitt á laugardaginn
og verður því í banni í leiknum
við Rússa og það fór liðþófi hjá
Eiði Smára [Guðjohnsen] þannig
að þar fækkaði um tvo í hópnum,"
sagði Atli í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Hann var með
sautján manna hóp fyrir leikina
tvo þannig að nú er hann skipað-
ur 15 leikmönnum, en svo gæti
farið að hann breyttist í dag því
Haukur Ingi Guðnason fékk ein-
hverja flensu í gær og var rúm-
fastur. „Vonandi getum við haft
hann með á morgun, í það
minnsta á varamannabekknum,“
sagði Atli.
Olafur Þór Gunnarsson úr ÍR
ver mark Islands í dag. Miðverðir
verða Reynir Leósson úr IA og
Valur Fannar Gíslason úr
Strömsgodset, hægri bakvörður
verður Björn Jakobsson úr KR
og vinstra megin Sigurðui’ Elí
Haraldsson úr FH. Ai-nai’ Þór
Viðarsson úr Lilleström og ívar
Ingimarsson úr ÍBV verða á
miðjunni og þeir Jóhann B. Guð-
mundsson, Watford, og Davíð
Olafsson úr FH á sitt hvorum
kantinum. Frammi verða þeir
Bjarní Guðjónsson úr Newcastle
og Andri Sigþórsson úr KR.
Þeir gera sér grein fyrir mikilvægi
leiksins og það skiptir höfuðmáli
fyrir þá að ná góðum úrslitum í dag.
Þeir hafa tapað fyrstu
Valur B. tveimur leikjum í riðlin-
Jónatansson um og mega ekki við að
sknfar tapa fleiri stigum ætli
þeir sér að komast í úr-
slitakeppnina.
Anatoly Byshovets, Jijálfari liðsins,
sem er af úkraínskum ættum, tók við
liðinu fyrir rúmum mánuði. Liðið hef-
ur leikið fjóra leiki undir hans stjórn
og tapað þeim öllum. Tveimur vináttu-
leikjum, við Svía og Spánverja sem
töpuðust báðir 1:0 og síðan 3:2 á móti
Ukraínu og Frakklandi í undankeppni
EM.
„Ég geri mér gi-ein fyrir mikilvægi
þessa leiks fyrir okkur. Við hreinlega
verðum að vinna ætlum við okkur að
eiga möguleika á að komast áfram.
Leikurinn verður erfiður því ég veit að
íslenska liðið er vel skipulagt og agað.
Það er erfitt heim að sækja og úrslitin
á móti heimsmeisturam Érakka hér á
Laugardalsvelli undirstrika það enn
frekar," sagði Byshovets við Morgun-
blaðið í gær.
Nú hefur rússneska liðið tapað
fyrstu tveimur leikjunum og er án
stiga, er ekki mikilvægt að snúa blað-
inu við?
„Jú, auðvitað og það hlýtur að stytt-
ast í fyrsta sigurinn hjá okkur. Ég hef
aðeins haft liðið í samtals tólf daga og
það tekur lengri tíma að stilla það
saman. Eins hafa lykilmenn verið
meiddir og ég hef aldrei getað stillt
upp sama liði tvo leiki í röð. Ég get
ekki verið með sama lið hér og í
Moskvu því þrír leikmenn sem léku
þar era ekki með hér vegna meiðsla
eða veikinda. Auðvitað er pressa á mig
og liðið. Við ætlum að ná í stig hér. En
við gerum það ekki nema leikmenn
leggi sig fram og sýni góðan leik.“
Hverja telur þú möguleika rúss-
neska liðsins á að komast áfram í
keppninni?
„Við eigum enn von og það eiga Is-
lendingar líka. Það lið sem vinnur á
Laugardalsvelli er í góðri stöðu en
tapliðið á litla möguleika á að komast
áfram. Þetta er því mikilvægur leikur
fyrir bæði liðin. Við verðum bara að
sjá hvað gerist, ég vona auðvitað að
við vinnum fyrsta leik okkar.“
Þrjár breytingar á liði
Rússa frá því í Moskvu
Byshovets hefur stjórnar liðinu í fjór-
um leikjum, sem hafa allir tapast.
Hann hefur ekki getað stillt upp sama
liði tvo leiki í röð og sama verður upp á
teningnum hjá þeim þegar þeir mæta
íslendingum á Laugardalsvelli kl.
17.45 í dag.
Þrír leikmenn sem léku á móti
heimsmeisturum Frakka í Moskvu um
síðustu helgi komu ekki Rússum til ís-
lands. Þeir era markvörðurinn
Serguei Ovchinnikov, varnarmaðurinn
Dmitry Khlestov og Serguei Semak,
miðvallarleikmaður sem kom inn á
sem varamaður í Moskvu.
Ovchinnikov markvörður meiddist í
baki á síðustu mínútum leiksins í
Moskvu eftir samstuð við Zinedine Zi-
dane. Khlestov fékk flensu og gat því
ekki komið og sömu sögu er að segja
af Semak. Þetta er haft eftir blaðafull-
trúa rússneska liðsins.
Inn í liðið núna kom m.a. varnar-
maðurinn sterki Yuri Nikiforov, sem
leikur með PSV Eindhoven, og Igor
Shalimov, leikmaður Napolí. Rússar
koma hingað með þrjá markverði og
Arnar vill vera
áfram hjá Bolton
ARNAR Gunnlaugsson verður í
eldlínunni á vinstri kantinum
þegar Island mætir Rússlandi á
Laugardalsvelli í kvöld en síð-
an stendur til að huga að samn-
ingi við Bolton á Englandi.
Arnar hefur verið lykilmað-
ur hjá Bolton í haust og er
markahæsti maður liðsins. „Ég
er samningsbundinn út tímabil-
ið 2000 með þeim fyrirvara að
endurskoða átti samninginn
eftir 20 leiki,“ sagði Arnar við
Morgunblaðið, aðspurður um
framhaldið hjá enska félaginu.
„Ég hef leikið nær 30 leiki en
vildi bíða með að ákveða með
framhaldið þar til ég væri í
betri stöðu og nú er sú stund
komin. Colin Todd, knatt-
Sigurður Jónsson fyrirliði varar við bjartsýni
Verðum að
vera eins
og grenj-
andi Ijón
Sigurður
1<
Jónsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í knatt-
spyrnu, sagði við Morgunblaðið eftir
æfingu í gær að leikstíll liðsins hefði
skilað góðum árangri og því væri
ástæðulaust að gera breytingar frá
fyrri leikjum. „Við leggjum upp með
ákveðinn leikstíl, leikstíl sem hefur
skilað okkur taplausum úr fimm
leikjum, og engin ástæða er til breyt-
inga. Aðalati-iðið er að spila agaðan
og skipulagðan leik þar sem við
leggjum áherslu á að loka svæðum
þeir era: Dmitri Kharin, Chelesea,
sem er að koma úr tveggja leikja
banni, Alexandre Filimonov, Spartak
Moskvu og Stanislav Cherchessov, FC
Tirol. Reiknað er með að Kharin byrji
leikinn í dag, en hann hefur leikið 32
landsleiki fyi’ir Rússa.
Líklegt byrjunarlið Rússa: Dmitry
Kharin - Viktor Onopko, Yuri Nildforov,
Yevgeny Varlamov, Igor Yanovsky -
Alexander Mostovoi, Igor Shalimov,
Yegor Titov, Andrei Tikhonov - Valery
Karpin, Vladimir Beschastnykh.
Stórsigur
Úkraínu
ÚKRAÍNA burstaði Armeníu,
8:0, í undankeppni EM 21 árs
landsliða í Kiev í gær. A
þessum úrslitum má ráða að
lið Úkraínu er geysilega sterkt
því Armenar unnu Islendinga
3:1 í sama riðli um síðustu
helgi. Úkraína er efst í
riðlinum með sex stig eftir tvo
leiki og er eina liðið sem unnið
hefur báða leiki sína.
Staðan
Úki-aína....2 2 0 0 9:0 6
Frakkland.. 2 1 0 1 3:2 3
Armenía......2 1 0 1 3:9 3
Rússland.....2 1 0 1 2:2 3
ísland.......2 0 0 2 1:5 0
■Island leikur við Rússa á
Kópavogsvelli í dag.
og fá ekki á okkur mark. Við vitum
að leikurinn við Rússa verður gífur-
lega erfiður. Þeh’ hafa lýst því yfir að
þeir ætli sér sigur og eftir úrslitin í
fyrri leikjum verða þeir að sigra til
að eiga einhverja möguleika á að
komast áfram.“
Rússar eru sterkir og hafa nýtt vel
aukaspyrnurnar í undanfórnum
leikjum. „Við förum vandlega yfir öll
fóst leikatriði þeirra og vitum á
hverju við eigum von, enda fylgst vel
með rússneskum liðum. Við vitum að
Rússar eiga eitt af bestu liðum Evr-
ópu þótt þeii’ hafi ekki komist í úr-
slitakeppni HM í sumar og því er
eins gott fyrir okkur að halda fullri
einbeitingu. Þetta er átak sem krefst
allra okkar krafta,“ sagði Sigurður
um viðureign kvöldsins.
Sigurður sagði að þrátt fyrir góð
úrslit að undanfömu hefðu þau ekk-
ert að segja í kvöld. „Við fáum ekk-
ert fyrir þá leiki sem við höfum spil-
að. Þetta er nýtt verkefni sem við
verðum að leggja okkur 100% í.
Heimavöllurinn getur haft mikið að
segja, eins og sást berlega í leiknum
við Frakka, og með það í huga vona
ég að sem flestir sjái sér fært að
mæta og hvetja liðið. Stuðningurinn
hefur ótrúlega mikið að segja og
mikil áhrif, en ég vil árétta að við
eigum sérstaklega erfitt verkefni
fyrir höndum. Við höfum fundið fyrir
ákveðnum væntingum en ég vara við
allri bjartsýni. Við verðum að vera á
varðbergi gagnvart allri værukærð,
koma í leikinn eins og grenjandi ljón
og svo spyrjum við að leikslokum."
spyrnustjóri, hefur sagt mér að
hann vilji ekki seija mig heldur
gera nýjan samning. Ef liðið
fer upp yrði í síðasta lagi samið
um framhaldið í vor en mér líð-
ur vel í Bolton og kann vel við
mig hjá félaginu og þess vegna
er ég tilbúinn að skoða málið,
gera jafnvel samning til eins
eða tveggja ára til viðbótar."
Frakkar
segjast ekki
vanmeta lið
Andorra
FRAKKAR leika við Andorra á
Þjóðarleikvanginum í París í kvöld (
og verður þetta fyi’sti leikur liðsins á
heimavelli eftir að þeir hömpuðu
heimsmeistaratitlinum í sumar.
Franski þjálfai-inn, Roger Lemerre,
segir alla leiki jafnmikilvæga og van-
metur ekki andstæðinginn. „Þrjú
stig gegn Andorra eru jafn mikilvæg
og þrjú stig á móti Rússum. Ég geri
engan greinarmun á þessum liðum
því ég lít á alla leiki sem sjálfstætt
verkefni," sagði Lemerre.
„Það bjóst enginn við að liðið spil-
aði svona vel á móti Rússum í
Moskvu eins og raunin varð. Nú —
verðum við að halda áfram á sömu
braut. Næsti leikur er alltaf sá erfið-
asti. Ég geri mér grein fyrh’ því að
Andorra er ekki hátt skrifað í knatt-
spyrnuheiminum, en það segir ekki
allt. Þeir koma hingað og gefa allt
sem þeir eiga, sérstaklega á móti
heimsmeisturunum," sagði Lemerre.
Margir vilja meina að markamet
franska liðsins gæti fallið, en það er
10:0 sigur á móti Aserbaidsjan í und-
ankeppni HM í fyrra. Frammistaða
liðs Andorra, sem er að mestu skipað
áhugamönnum, gegn Úkraínu á
sunnudag ætti að sýna að það ber að
taka það alvarlega.
Nokkrar breytingar verða á liði
Frakka frá því sem lék í Moskvu á
sunnudaginn. Robert Pires og
Laurent Blanc, leikmenn Marseille,
byrja á varamannabekknum. Astæð-
an er að þeir eiga að leika með félagi
sínu á móti Werder Bremen í
UEFA-keppninni í næstu viku. Tony
Vairelles og Frank Leboeuf munu
taka stöður þeirra. Emmanuel Petit
er meiddur og kemur Alain Bog-
hossian líklega inn í byrjunarliðið
fyrir hann. Þá má jafnvel búast við
að Nicolas Anelka, sem átti mjög
góðan leik í Moskvu, verði hvíldur og
David Trezeguet taki stöðu hans.
Líklegt, byrjunarlið Frakka:
Bernai’d Lama - Lilian Thui-am,
Frank Leboeuf, Marcel Desailly, Bix-
ente Lizarazu - Didier Deschamps,
Alain Boghossian, Zinedine Zidane, _
Youri Djorkaeff - Tony Vairelles, Da-
vid Trezeguet.
Kristín Rós sigraði
KRISTÍN Rós Hákonardóttir í íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík (ÍFR),
sigraði í 100 metra bringusundi á heinisnieistaramóti fatlaðra sem
fram fer í Nýja-Sjálandi. Hún synti á einni mínútii 39,64 sekúndum.
Keppnin liófst á inánudaginn og þá keppti Kristín Rós í 200 metra fjór-
sundi og kom fyrst í mark í úrslitasundinu, en var dænid úr keppni,
nokkuð sem forráðamenn hópsins skildu ekki.
Pálmar Guðmundsson úr IFR varð í gær í iiðni saíti í 50 metra sundi
með frjálsri aðferð, synti á 56,47 sekúnduni sem er íslandsmet. Pálmar
og Kristín Rós keppa í flokki hreyfihamlaðra, en þriðji keppandinn,
Bára B. Erlingsdóttir úr Osp, keppir í flokki þroskaheftra.
Bára koinst ekki í úrslit í 200 metra fjórsundi á mánudaginn, varð í
9. sæti á 3.03,62 mínútum en í gær varð hún í áttunda sæti í tveimur
greinum, synti 50 metra bringusund á 46,69 sekúndum og 100 metra
sund með fijálsri aðferð á 1.12,93.
I
Knattspyrnufélag I A
UPPSKERUHATIÐ
verður haldin í Bárunni-hótelinu, föstudaginn 16.
okt. nk. Miðapantanir og aðrar upplýsingar á skrif-
stofu félagsins eða í síma 431 3311 / 431 4400.
Miðaverð kr. 2.500,-
Allir velkomnir