Morgunblaðið - 04.11.1998, Page 4
KNATTSPYRNA
Genk verðleggur Þórð
Guðjónsson á hálfan milljarð
Kosta það
sem sett
er á mig
ÞÓRÐUR Guðjónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, skrifaði í
gær undir nýjan samning við belgíska félagið Genk og gildir
hann út tímabilið 2003. í viðræðunum lagði Þórður áherslu á
að hafa ákvæði í samningnum þess efnis að hann væri laus á
hverju ári en síðan var samið um óuppsegjanlegan samning
og þar með hærri greiðslur til Þórðar en hann hafði gert ráð
fyrir. „Félagið verðleggur mig á hálfan milljarð og ég kosta
það sem sett er á mig,“ sagði Þórður við Morgunblaðið
skömmu eftir undirritunina en hann er sennilega dýrasti
ieikmaður félagsins.
órður var kjörinn besti leik-
maður liðsins á liðnu tímabili
og byrjaði nýhafið tímabil eins og
best verður á kosið en meiddist í
byrjun landsleiksins við Rússa um
miðjan október og hefur ekki leikið
síðan. Hann fer með liðinu til Mall-
orka í dag vegna seinni leiksins við
spænska liðið í 16 liða úrslitum
Evrópukeppni bikarhafa á morgun
en liðin gerðu jafntefli, 1:1, í Belg-
íu. „Ég er allur að koma til og 90%
öruggt er að ég spila Evrópuleik-
inn. Hann verður erfiður og
þónokkru breytir hjá okkur að við
verðum með tvo menn í banni.“
Bjarni, bróðir Pórðar, gerði um
helgina samning við Genk til fimm
ára og fyrir skömmu gekk Jóhann-
es Karl, þriðji bróðirinn, frá ámóta
samningi við félagið. Bræðurnir
þrír eru því allir samningsbundir
belgíska félaginu út tímabilið 2003.
„Ég er mjög ánægður með minn
hlut og samningurinn er mun betri
en ég átti von á. Félaginu hefur
gengið vel innan sem utan vallar og
allt er á uppleið sem gerir það að
verkum að það gat boðið mér mjög
góðan samning. Þetta þýðir að nú
get ég einbeitt mér að dvölinni hér
og þarf ekki að hugsa um annað en
að spila með Genk. Há upphæð er
sett á mig og ljóst er að aðeins stór
félög greiða slíkar upphæðir sem
hér um ræðir. Því má gera því
skóna að ég verði hér út samnings-
tímann."
1 Yw
i>nj >•*
Morgunblaðið/Einar Falur
ÞORÐUR Guðjónsson í landsleik gegn Armeníu.
Heimir þjálfar kvennalið ÍBV
HEIMIR Hallgrímsson hefur varið ráðinn þjálfari meistaraflokks
ÍBV í kvennaknattspymu. Heimir náði mjög góðum árangri með
2. flokk kvenna á þessu ári, liðið varð Íslandsmeistari. Hann tekur
við starfi Sigurlás Þorleifsson, sem þjálfað hefur meistaraflokk
kvenna hjá IBV sl. þrjú ár. Sigurlás náði góðum árangri með lið
ÍBV. Liðið náði stöðuleika undir hans stjórn eftir flakk á milli
deilda áður en hann tók við því 1996. Fyrsta árið varð liðið í
sjötta sæti, það næsta náðist 5. sætið og nú í ár varð liðið í fjórða
sæti.
Konur
skulu
klæðast
þröngu
AUGU margra áhugamanna um
blak beindust að allt öðru en
leiknum þegar fyrstu leikir
heimsmeistaramótsins fóru
fram í Japan í gær. Margir voru
uppteknir af að skoða nýju bún-
ingana sem stúlkurnar eru
skikkaðar til að klæðast sam-
kvæmt nýjum reglum alþjóða
blaksambandsins (FIVB). Þar
segir meðal annars að konur
skuli klæðast stuttbuxum sem
eru helmingi styttri en stuttbux-
ur karla í sömu íþrótt og er ætl-
ast til þess að buxurnar séu
þröngar um mjaðmir. Reglurn-
ar hvetja stúlkurnar einnig til
að klæðast helst nokkurs konar
sundbolum, þ.e.a.s ekki buxum
og bol.
„Með sömu þróun verða það
bara fyrirsætur sem geta verið í
blaki,“ sagði keppandi frá Suð-
ur-Afríku og bætti við: „Hvern-
ig stendur á því að við þurfum
að vera í styttri stuttbuxum en
karlarnir?" Ein stúlka frá Evr-
ópu sagði: „Maður verður að
vera með fullkominn skrokk til
að geta verið í þessum búning-
um.“
Ruben Acosta, forseti FIVB,
varði reglurnar. „Leikmenn
verða að hafa ákveðna ímynd,
annars koma áhorfendur ekki,“
sagði hann. HM í blaki karla og
kvenna hófst í gær og stendur
næsta mánuðinn í 15 borgum í
Japan. Þar keppa 21 kvennalið
og 23 karlalið og er þetta í
fyrsta sinn síðan 1974 að HM
karla og kvenna er haldið á
sama tíma í sama Iandi. Sigur-
stranglegastar eru taldar stúlk-
ur frá Kúbu og Brasilíu en í
karlaflokki er talið að baráttan
standi á milli ftala og Jú-
góslava.
PAOK vill
gera samning
við Jóhann
Jóhann Benediktsson, knatt-
spyrnumaðurinn ungi frá Eski-
firði, er nýkominn heim frá Grikk-
landi þar sem hann æfði með PAOK
Saloniki í tíu daga. „Það var mjög
gaman að vera hjá félaginu og mér
leist vel á allar aðstæður. Ég æfði
með aðalliðinu í viku. Forráðamenn
félagsins sýndu mér mikinn áhuga
og þeir buðu mér að koma aftur út í
janúar. Þeir hafa áhuga á að gera við
mig samning og ef af því verður mun
liðið líklega leigja mig til liðs í neðri
deildum til að byrja með. Þar á ég að
öðlast leikreynslu," sagði Jóhann við
Morgunblaðið.
Jóhann er 18 ára og lék með 1.
deildai'liði KVA sl. sumar. Hann er
bakvörður og þykir mjög efnilegur.
Það var þjálfari hans hjá KVA,
Miroslav, sem kom honum í sam-
band við gríska liðið. Jóhann hefur
leikið með 18 ára landsliðinu undan-
farna mánuði. Hann segist stefna að
því að komast í atvinnumennsku og
telur sig eiga ágæta möguleika á því
eftir ferðina til Grikklands.
Hann sagðist hafa orðið vitni af
miklum ólátum í leik PAOK og
Olympiakos um síðustu helgi. „Það
voru um 30 þúsund áhorfendur á
vellinum í Saloniki. Þegar um tvær
mínútui' voru eftir af leiknum skor-
uðu POAK mark sem dómarinn
dæmdi af. Þá brutust út mikil læti á
meðal stuðningsmanna liðsins sem
ruddust inn á völlinn og börðu m.a.
línuvörðinn og varð að flytja hann
með sjúkrabíl á sjúkrahús. Dómai'-
anum leist gi-einilega ekkert á blik-
una og flautaði leikinn af. Það var
ótrúlegt að upplifa þetta úr stúkunni.
Þeir eru greinilega nokkuð blóðheit-
ir Grikkirnir,“ sagði Jóhann.
, Reuters
STULKURNAR frá Kúbu virtust ekki allt of ánægðar í nýju búningunum þegar þær hituðu upp fyrir
leikinn við Bandaríkin í gær.