Morgunblaðið - 05.11.1998, Side 1

Morgunblaðið - 05.11.1998, Side 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA Tap Rússa í Reykjavík kallar á uppstokkun 1998 KNATTSPYRNA FIMMTUDACUR 5. NOVEMBER BLAÐ RÚSSNESKA landsliðið í knattspyrnu hefur ekki riðið feitum hesti frá leikjum sínum að undanfornu og gerast raddir þar í landi nú háværari um að skipta beri um forystu knattspyrnusambandsins. Nikoli Tolstykh, formaður rússnesku deildarinnar sein einnig er forseti Dynamo Moskvu, hefur verið nefndur til sögunnar. Hann er mikils metinn innan rússnesku knattspyrnuhreyfingarinnar og gæti veitt forseta sambandsins, Vyatjslav Koioskov, harða keppni um embættið. Rússar náðu ekki að kom- ast í úrslitakeppni HM í sum- ar - í fyrsta sinn í 20 ár og þeim hefur gengið mjög illa í undankeppni EM. 1:0 tapið fyrir fslendingum er talið það sem fyllti mæiinn þvx þar með var möguleiki þeii'ra á að komast í úrslitakeppni EM úti. Stjórnarkosning í knatt- spyrnusambandinu verður 8. desember og er búist við upp- stokkun í stjórninni. Tilnefn- ingar þurfa að berast mánuði fyrr, eða 8. nóvember. Talið er að Koloskov gefi áfram kost á sér auk Tolstykh og eins er Kirsan Ilyumzhinov, sem er stjórnamaður Alþjóða skáksambandsins, FIDE, tal- inn líklegur eftirmaður í starfið. Hann er mikill áhuga- maður um knattspyrnu. Þeir hrelldu Arna Gaut ARNI Gautur Arason mátti hirða knöttinn þrisvar sinnum úr netinu hjá sér í gærkvöldi í Istanbúl, þar sem Rosenborg tapaði fyrir Galatasaray, 3:0. Þessir tveir menn hrelldu Árna Gaut - Arif Erdem fagnar Hakan Sukur, sem skoraði tvö mörk. Bjarki ekki til Pneston BJARKl Gunnlaugsson knatt- spyrnumaður verður ekki við æfingar til reynslu hjá enska 2. deildarliðinu Preston North End eins og til stóð. David Moyes, knattspyrnustjóri liðs- inc, segir að sökum þess að Bjarki sé meiddur verði ekkert af því að sinni af leikmaðurinn komi til félagsins. Vel komi til greina að af því verði þegar Bjarki hafi jafnað sig. „Ef Bjarki er eitthvað í lík- ingu við bróður sinn þá hef ég svo sannarlega áliuga á að láta hann spreyta sig. Ég gerði mér vonir um að hann yrði hjá okk- ur í nokkra daga en hann er meiddur þannig að af því verð- ur ekki,“ sagði Moyes í gær. Norrköping gerir Þórði tilboð Þórður Þórðarson, markvörður ÍA, hefur æft með liði sænska félagsins Norrköping undanfama daga og á von á tilboði í dag. „Þjálf- arinn boðaði mig á fund árla dags og síðan er fundur með fram- kvæmdastjóranum og stjórnar- mönnum, sem ætla að gera mér til- boð,“ sagði Stefán við Morgunblaðið eftir æfingu í gærkvöldi. Samningur Þórðar við Skaga- menn er útrunninn. Hann lék æf- ingaleik með varaliðinu í fyrradag og hélt hreinu, en lið hans vann 7:0. „Mér hefur gengið mjög vel á æf- ingum og þjálfarinn hrósaði mér fyrir frammistöðuna í leiknum. Eg finn að þeir vilja fá mig og þó að ekki hafi verið rætt um samning er ljóst að verði samið verður það til að minnsta kosti tveggja ára. Hins vegar er enginn samningur á borð- inu og þótt ég sé tilbúinn að fara í atvinnumennsku fer ég ekki bara til að fara. Ég hef fyrir fjölskyldu að sjá og verð að hugsa um það.“ Birkir enn óákveðinn Birkir Kristinsson, markvörður Norrköping og íslenska landsliðsins, hefur ekki enn svarað tilboði Lil- leström í Noregi. „Ég hef ekki gefið mér tíma til að hugsa málið til enda,“ sagði Birkir við Morgunblaðið. „Ég hafði ákveðið að fara heim og því er skrýtið að vera farinn að hugsa um að snúa aftur til Noregs með tvö ár þar í huga. Ég hef ekkert út á tilboð- ið sjálft að setja en vil fá að vita hvort miklar breytingar verða á hópnum áður en ég tek ákvörðun." Norrköping sækir Elfsborg heim í síðustu umferð sænsku deildarinn- ar á sunnudag en norska keppnis- tímabilinu lauk um liðna helgi. Guivarc’h fer til Rangers FRANSKI sóknarmaðurinn Stephane Guivarc’h, sem hefur verið á mála hjá Newcastle en gengið illa að festa sig í sessi þar, hefur ákveðið að ganga til liðs við skoska liðið Glasgow Rangers. Félögin hafa komist að samkomulagi um verðið, ríf- lega 400 milljónir króna, og sagði Guivarc’h í gær að hann hlakkaði til að leika með fyrrum félaga sínum frá Auxerre, mark- verðinum Lionel Charbonnier. „Ég fer til Glasgow á fimmtu- daginn með umboðsmanni mín- um. Við horfum á Rangers og Leverkusen í Evrópukeppni bikarhafa og daginn eftir fer ég í læknisskoðun og skrifa svo undir,“ sagði kappinn í gær. í sumar neitaði hann tilboði frá Rangers og ákvað að fara frekar til Newcastle. Þar hefur hann ekki fest sig í sessi og Ruud Gullit telur hann ekki falla inn í framtíðarmynd sína af liðinu og því ákvað Guivarc’h að færa sig um set. Hann var markakóngur í frönsku deild- inni tvö síðustu keppnistímabil og var valinn í landsliðið út á það, en hann hefur aðeins gert eitt mark í þeim 13 landsleikj- um sem hann hefur leikið. KNATTSPYRNA: ÓVÆNTUR SIGUR BÆJARA í BARCELONA/C3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.