Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA
Hakan Súkurfann leið-
ina framhjá Áma Gauti
Reuters
RÚMENINN Gheorghe Hagi, leikstjórnandi Galatasary, i baráttu
við Bent Skammelsrud hjá Rosanborg.
ÁRNI Gautur Arason var í
markinu hjá norska liðinu Ros-
enborg sem varð að sætta sig
við 3:0 tap fyrir Galatasaray í
Istanbúl og gerði tyrkneski
landsliðsmaðurinn Hakan
Súkiir tvö markanna. Með
sigrinum er liðið með tveggja
stiga forystu í B-riðili. í hinum
leik riðilsins gerði Juventus
, jafntefli við Athletic Bilbao,
1:1, í Tórínó.
Markalaust var í leikhléi í Istan-
búl eftir frekar tíðindalítinn
fyrri hálfleik. Pó svo að mörkin
yrðu þrjú var Ámi Gautur nokkuð
sáttur við frammistöðu sína í mark-
inu. „í raun var lítið við þessum
mörkum að gera. Fyrsta markið
kom eftir stungusendingu inn fyrir
vömina og ég lenti einn á móti ein-
um. Þegar ég var kominn út á móti
sendi hann fyrir á félaga sinn sem
1 skoraði í autt markið. Annað markið
kom eftir að tveir Tyrkir komust
inn fyrir vömina. Ég fór út á móti
en þá „vippaði" annar þeirra yfir
mig og í markið. Þriðja markið var
svipað og annað markið, nema þá
skaut hann föstu skoti framhjá
mér,“ sagði Ámi Gautur.
„Við spiluðum frekar illa. Tyrk-
neska liðið pressaði allan tímann, en
náði þó ekki að skapa sér hættuleg
færi fyrr en í síðari hálfleik. Ég held
að margir leikmanna okkar hafí
verið þreyttir eftir erfiðan bikarúr-
slitaleik á sunnudaginn gegn Sta-
bæk. Auk þess sem hðið saknaði
lykilmanna úr vörninni. Mér fannst
nokkuð erfitt að koma aftur inn í
byrjunarliðið undir þessum kring-
umstæðum. Jamtfall markvörður
var gagnrýndur harðlega í norskum
blöðum eftir bikarleikinn. Ég er þó
ánægður að hafa fengið tækifærið
og ég tel að ég hafi komist ágætlega
frá leiknum," sagði íslenski mark-
vörðurinn.
Hakan Súkiir gerði tvö marka
Galatasaray og varamaðurinn Arif
Erdem það þriðja. Erdem kom inn
á miðjuna strax eftir leikhlé og við
það breyttist leikur liðsins til hins
betra. Hann var höfundurinn á bak
við flestar sóknir liðsins. Rúmenski
leikmaðurinn Gheorghe Hagi átti
mörg skot að marki Rosenborgar
en þau misstu öll marks eða þá að
Ami Gautur var á réttum stað.
„Þetta var mjög mikilvægur sigur
fyrir Galatasaray. Þetta var stór-
leikur og við unnum og erum efstir í
riðlinum,“ sagði Hagi.
Terim, þjálfari Galatasaray, var
ánægður með sína menn, enda eygir
félagið nú möguleika á að komast
áfram í Meistaradeildinni í fyrsta
sinn í sögu félagsins. „Ég er ánægð-
ur með allt liðið, sem gaf sig hund-
rað prósent í leikinn. Ég var sér-
staklega ánægður með síðari hálf-
leikinn því þá lékum við eins og al-
vöru Evrópulið - stjómuðum leikn-
um og skoraðum falleg mörk,“ sagði
þjálfarinn.
Juventus mátti sætta sig við eitt
stig úr viðureigninni við Athletie
Bilbao. ítalska liðið var betra en al-
gjört lánleysi gerði það að verkum
að það gerði ekki fleiri mörk. Julen
Guerrero kom spænska liðinu yfir
á lokamínútu fyrri hálfleiks eftir
undirbúning Jose Exterberria.
Urúgvæmaðurinn Paolo Montero
jafnaði fyrir Juve um miðjan síðari
hálfleik með skalla eftir horn-
spymu Dels Pieros. Þetta var
fjórða jafntefli Juves í röð í keppn-
inni og er liðið nú fjórum stigum á
eftir Galatasaray.
■ GEIR Sveinsson, fyrirliði hand-
knattleikslandsliðsins, var vahnn í
lið vikunnar í þýska blaðinu Hand-
ball Wochen eftir góðan leik með
Wuppertal gegn Niederwurzbach
um sl. helgi. Félagi hans, Dimitri
Filippow, var einnig valinn í liðið.
■ MAGNÚS Sigurðsson, leikmaður
með Willstatt, var skorinn upp fyrir
meiðslum á hásin hægri fótar á
sjúkarhúsi í Offenburg á þriðjudag-
inn. Kom þá í ljós að hásinin var slit-
in og varð að skera 30 cm skurð upp
eftir kálfa til að ná að koma hásin-
inni saman. Magnús útskrifast af
sjúkrahúsinu á morgun.
■ MARK Schwarzer, markvörður
Middlesbrough, hefur gert samning
við félagið til ársins 2005. Er þetta
lengsti samningur sem Middles-
brough hefur gert við leikmann.
Schwarzer er 26 ára gamall og hafði
orðið var við áhuga frá Liverpool og
Manchester United.
■ DERBY mun hafa áhuga á að fá
Mark Hughes í sínar raðir, en Hug-
hes hefur ekki verið í byrjunarliði
Southampton um tíma. „Við höfum
verið í viðræðum við umboðsmann
hans,“ sagði Jim Smith, knatt-
spymustjóri Derby, í vikunni.
■ GEORGE Graham hefur í hyggju
að bjóða rúmlega 200 milljónir
króna í Mauricio Taricco, vamar-
mann Ipswich, eftir að hafa átt í
samningaviðræðum við þennan 25
ára gamla Argentínumann síðustu
daga.
■ COVENTRY hefur gefið forráða-
mönnum Leeds leyfi til að ræða við
miðherjann Dion Dublin.
Þrettánda mark Arnars
ARNAR Gunniaugsson skoraði þriðja mark Bolton sem sigraði Port Vale
3:1 í ensku 1. deildinni í gærkvöldi. Þetta var 13. mark Amars á tímabilinu
og er hann markahæsti leikmaður liðsins. Þetta var fyrsti sigur Bolton í síð-
ustu sjö leikjum og er liðið nú í níunda sæti deildarinnar.
Bob Taylor gerði fyrsta mark Bolton á 5. mínútu og eftir 20 mínútur var
staðan orðin 2:0. Daninn Per Frandsen gerði það eftir undirbúning Amars,
sem setti síðan endapunktinn er hann gerði þriðja markið á 69. mín. Það var
glæsilegt mark hjá Amari, beint úr aukaspymu efst í markhomið af 20
metra færi. Tíu mínútum fyrir leikslok minnkaði Peter Beadle muninn fyrir
Port Vale.
Amar fór af velli á 74. mínútu. Guðni Bergsson lék allan leikinn í vöm-
inni.
Eysteinn í Grimsby
KEFLVfKINGAR virðast ætla að halda flestum af leikmönnum
sínum frá þvf í fyrra. Að sögn Gunnars Oddssonar, annars þjálf-
ara liðsins, er aðeins einn leikmaður með lausan samning, Ey-
steinn Hauksson. Hann dvelur þessa dagana í Grimsby í
Englandi þar sem hann er við æfíngar og sagði Gunnar að hans
mál ættu að skýrast í næstu viku. Keflvíkingar hafa fengið liðs-
styrk því Zoran Ljubicic, sem leikið hefur með Grindvíkingum,
er genginn til liðs við félagið.
Arnar Gunnlaugsson hjá Bolton
Saknar Blake
Amar Gunnlaugsson, sóknar-
maður hjá Bolton, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að hann
hefði ekki heyrt neitt formlegt um
að hann væri ef til vill á föram til
annarra liða, hvorki frá forráða-
mönnum Bolton né annarra félaga.
„Ég hef ekkert heyrt en ég vona
að þetta fari allt að skýrast á næst-
unni, það er leiðinlegt að bíða svona
án þess að fá botn í sín mál,“ sagði
Amar, en hann hefur verið í samn-
ingaviðræðum við Bolton um áfram-
haldandi samning og um leið hærri
laun.
Amar sagðist hafa verið mjög
ósáttur með að félagið skyldi selja
Nathan Blake. „Hann er góður
leikmaður sem dregur til sín at-
hygh vamarmanna og opnar þá um
leið fyrir aðra. Ég sakna hans úr
framlínunni," sagði Amar og bætti
við að trúlega yrði Bob Taylor með
honum frammi á næstunni. „Ann-
ars getur þjálfarinn breytt þessu
og ég var til dæmis settur á hægri
vænginn síðustu 20 mínútumar á
móti Sunderland. Nú verðum við að
fara að setja okkur í gír á ný og
fara að fá einhver stig. Við höfum
ekki leikið illa en lánleysið hefur
verið algjört."
FRJALSIÞROTTIR
Tillaga FRÍ um mótaröð evrópskra frjálsíþróttamanna
Nýr vettvangur
þá bestu
fýrir
Tillaga gengur út á það að Evr-
ópusambandið taki mót sem
nú þegar era í gangi í einstökum
löndum og geri úr þeim nokkurs
konar Grand Prix-mót til hliðar
við eða sem mótvægi við mótaröð
alþjóðasambandsins sem ekki er
til mikils gagns fyrir íremstu
frjálsíþróttamenn Evrópu í mörg-
um greinum," segir Jónas Egils-
son, formaður Frjálsíþróttasam:
bands íslands (FRI). Tillaga FRÍ
um uppstokkun í mótakerfi evr-
ópskra frjálsíþrótta fékk góðar
undirtektir í stjóm Evrópusam-
bandsins (EAA) í Granada á Spáni
um sl. helgi.
„Ég var kallaður sérstaklega
inn á fund stjómarinnar og beðinn
að gera grein fyrir málinu. Stjóm-
armenn virtust mjög áhugasamir
um tillöguna og mér fannst hug-
mjmdin fá góðar undirtektir. Eg
kynnti hana og forráðamönnum
margra þjóða á mótaþingi Evr-
ópusambandsins, sem haldið var í
Granada, og fékk hvarvetna já-
kvæð viðbrögð. Hún virðist eiga
hljómgrunn en tillagan gerir ráð
fyrir að stjómin skipi vinnuhóp er
undirbúi málið og skili tillögu fyrir
þing EAA að ári,“ sagði Jónas.
„Með því að búa til Grand Prix-
mótakeðju í nafni EAA, sem hugs-
anlega má hafa sjónvarpstekjur
af, styrkjum við stöðu sambands-
ins sem ekki hefur þótt gæta hags-
muna evrópskra frjálsíþrótta-
manna nógu vel. Fremstu frjálsí-
þróttamenn Evrópu ættu þá að fá
nýjan vettvang og jafnframt
styrlgum við stöðu upprennandi
afreksmanna í frjálsum á íslandi
því þeir fá ný mót til að spreyta
sigá.
Mót IAAF hafa verið drottn-
andi og því hefur þeirri hugmynd
m.a. skotið upp, að setja þurfi
kvóta á keppendur til að gefa Evr-
ópubúum aukin keppnisfæri. Þótt
Evrópa sé vagga frjálsíþrótta
komast evrópskir íþróttamenn oft
ekki að á IAAF-mótaröðinni því
greinamar era fullar af keppend-
um frá öðram álfum. Kenýumenn
hafa t.d. einokað langhlaupin,
Bandaríkjamenn spretthlaupin og
svo framvegis. Af þeim sökum
finnst mönnum íþróttin að vissu
leyti hafa átt í vök að verjast að
undanfömu, en með nýrri evr-
ópskri mótaröð yrði stuðlað að
frekari útbreiðslu,“ sagði Jónas.