Morgunblaðið - 06.11.1998, Qupperneq 1
253. TBL. 86. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
__ Reuters
Tala látinna hækkar enn
Mexíkóborg, Miami. Reuters.
TALA látinna í Mið-Ameríkurík-
inu Nfkaragva vegna fellibylsins
Mitch hækkaði í gær úr 1.452 í
meira en 3.800 að sögn Arnoldos
Alemans, forseta landsins, og er
því heildartala látinna af völdum
Mitch komin í yfir ellefu þúsund
manns í Níkaragva, Hondúras,
Gvatemala og E1 Salvador. Attu
verstu hamfarirnar sér í stað í
Hondúras og Níkaragva og er
tala látinna í Hondúras einu
sögð á sjöunda þúsund og enn er
óvíst um afdrif ellefu þúsund
manua þar.
Aleman sagði að fleiri en millj-
ón manns væru enn innilokaðir í
Níkaragva vegna flóða af völdum
óveðursins og bætti því við að kól-
erufaraldur og ýmsar aðrar far-
sóttir gerðu nú vart við sig. „fbú-
ar Níkaragva þarfnast nú lyfja
framar öllu öðru,“ sagði Aleman.
Á myndinni sést ungur dreng-
ur gefa lítilli systur sinni að
drekka í bænum Flores de Ori-
ente í Hondúras en þar hafði
flætt yfir helstu götur bæjarins
og eru meira en tvö hundruð
manns heimilislaus í þorpinu af
þeim sökum.
■ Óttast að/22
Israelsstjórn á
maraþonfundi
Jerúsalem, Kaíró. Reuters.
HATTSETTUR fulltrúi úr samn-
inganefnd Palestínumanna hafnaði í
gærkvöldi þeirri kröfu Benjamins
Netanyahus, forsætisráðherra Isra-
els, að heimastjórn Palestínumanna
ákvæði á fundi sínum í desember að
ógilda þann hluta stofnskrár frelsis-
fylkingar Palestínu (PLO) sem kall-
ar á tortímingu Ísraelsríkis. Lét
Netanyahu í kjölfarið hafa eftir sér
að kalli Palestínumenn ekki saman
fund í þessu skyni muni Israels-
menn ekki halda áfram og afhenda
Palestínumönnum það landsvæði
sem þeim ber, skv. skilmálum Wye
Mills-samkomulagins, sem náðist
með milligöngu Bandaríkjamanna í
síðasta mánuði.
Arafat krafinn um skýringar
Ríkisstjórn Netanyahus sat í gær
á þrettán klukkustunda löngum
fundi sem haldið verður áfram í dag
því ekki tókst að ná samkomulagi
um að samþykkja Wye Mills-sam-
komulagið og mun fundurinn í gær
hafa verið mikill átakafundur. Gaf
stjórnin frá sér yfirlýsingu þar sem
Yasser Arafat, forseti heimastjóm-
ar Palestínu, var beðinn að útlista
nánar áætlanir Palestínumanna
hvað stofnskrána varðaði.
Er auk þess öflug andstaða við
samkomulagið meðal harðlínu-
manna í Israel og svo virtist sem all-
ir ráðherrar ríkisstjórnarinnar vildu
tjá sig í löngu máli um það í gær.
Sögðu stjórnarerindrekar því ekki
Reuters
BENJAMIN Netanyahu við upp-
haf ríkisstjómarfúndarms í gær.
víst að hægt yrði að greiða atkvæði
um samninginn fyrr en á sunnudag,
að afloknum hvíldardegi gyðinga.
Var þvi spáð að níu ráðherrar
myndu greiða atkvæði með sam-
komulaginu en fjórir myndu lýsa sig
andsnúna því. Líklegt þykir síðan
að fjórir ráðherrar, sem ekki hafa
tekið afstöðu til frumvarpsins, muni
sitja hjá við atkvæðagreiðslu.
Netanyahu hefur margsinnis
frestað umræðum um samninginn í
rikisstjórn sinni og krafist þess að
Palestínumenn handtaki 30 menn
sem sakaðir eru um að myrða, eða
gera tilraunir til að myrða, ísraelska
rikisborgara áður en Israelsmenn
samþykkja samkomulagið. Sagði
hann seint í gær að Palestínumenn
hefðu nú uppfyllt þessar kröfur.
• •
Oryggisráð SÞ ein-
róma í afstöðu sinni
Fordæmir aðgerðir Iraka og' ályktar að þær séu „augljóst
brot“ á samþykktum Sameinuðu þjóðanna
Washington, London, Bagdad. Reuters.
Reuters
Mannskæð
sprenging í
Bern
AÐ minnsta kosti þrír fórust og
átján særðust í sprengingu sem
átti sér stað í fimm hæða íbúða-
byggingu í Bern, höfuðborg
Sviss, í gær. Hrundi byggingin
eins og „spilaborg" að sögn sjón-
arvotta og var ekki ljóst hvort
fleiri fórnarlömb sprengingar-
innar væru falin í rústum bygg-
ingarinnar. Ekki er talið að um
sprengjutilræði hafi verið að
ræða og sagði fulltrúi lögregl-
unnar í Bern í gærkvöldi að hún
rannsakaði nú hvort gaslínur
hefðu valdið sprengingunni eða
hvort eldsneytistankar sem
geymdir voru á jarðhæð hússins
hefðu sprungið í loft upp.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gærkvöldi ein-
róma ályktun þar sem aðgerðir
fraka, en þeir slitu samstarfi við
vopnaeftirlitsnefnd SP (UNSCOM)
um síðustu helgi, era fordæmdar og
sagðar „augljóst brot“ á samþykkt-
um SÞ. Fór öryggisráðið jafnframt
fram á að írakar endurskoðuðu
ákvörðun sína tafarlaust. Náðist
óvenju góð samstaða í öryggisráð-
inu að þessu sinni og engin aðildar-
þjóðanna 15 sat hjá.
Hafði Bill Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, varað stjórnvöld í írak
fyrr um daginn við því enn á ný að
beiting hervalds væri alls ekki úti-
lokuð endurskoðuðu írakar ekki
ákvörðun sína.
Lét Clinton þessi orð falla eftir að
William Cohen, varnarmálaráðheraa
Bandaríkjanna, hafði lýst því yfir að
arabaþjóðir við Persaflóa „stæðu
sameinaðar í fordæmingu sinni“ á
þvermóðsku íraka. „Við trúum því
að við höfum nægan stuðning við
hverjar þær aðgerðir sem við ákveð-
um að grípa til,“ sagði Clinton.
írakar höfðu fyrr í gær sagt að
ályktun öryggisráðsins fengi þá
ekki til að endurskoða ákvörðunina
um að slíta samstarfi við UNSCOM
en þeir hafa krafist þess að _ SP
aflétti viðskiptabanni sínu á írak
áður en af frekara samstarfi verður.
í ályktun öryggisráðsins er ekki
að finna beinar heimildir fyrir beit-
ingu hervalds gegn írak en Robin
Cook, utanríkisráðheira Bretlands,
sagði hins vegar í gær að lagalegur
grandvöllur fyrir mögulegri beitingu
heivalds væri nú þegar fyrir hendi
enda væri írökum hótað „hörðustu
afieiðingum" í ályktun, sem sam-
þykkt var hjá SÞ í febrúar síðast-
liðnum þegai’ svipuð deila um vopna-
eftirlit SÞ í írak kom upp. Sagði
Cook þessa ályktun enn í fullu gildi.
Cohen á ferð og flugi
Cohen hefur átt samræður við
stjómarherra í Saudi-Arabíu,
Kuwait, Bahrain, Qatar, Óman og
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um og Egyptalandi og Jórdaníu
undanfarna tvo daga og heldur til
Tyrklands í dag. Hafði áhrifamesta
dagblað íraks, Babel, fyrr í gær
haldið því fram að ferðalag Cohens
um Arabíuskaga til að tryggja
stuðning við aðgerðir gegn Irak
væri dæmt til að mistakast.
Mat fréttaskýrenda í gær var
hins vegar það að flestar þeirra
þjóða, sem í febrúar síðastliðn-
umfordæmdu hótanir Bandaríkja-
manna um beitingu hervalds, væru
nú afar óánægðar með áframhald-
andi undanslátt Saddams Husseins,
forseta Iraks.
Vai’ haft eftir ónefndum arabísk-
um sendifulltrúa í London að í þetta
sinn yi’ði enginn til að halda vemdar-
hendi yfir Hussein. „í þetta sinn hef-
ur Saddam gengið of langt. Það eru
allir dauðþreyttir á honum og það
myndi enginn kippa sér veralega upp
við það þótt hann fengi þá refsingu
sem hann á skilda." Er einnig taiið að
Kofi Annan, framkvæmdastjóra SÞ,
finnist sem Saddam Hussein hafi
blekkt sig en það var Annan sem
tryggði samkomulagið í febráai’ sem
kom í veg fyrir hernaðarátök.
Hindra
Kosovo-för
saksóknara
Haag. Reuters.
SERBAR munu ekki veita aðalsak-
sóknara stríðsglæpadómstóls Sam-
einuðu þjóðanna vegna ríkja fyrrver-
andi Júgóslavíu heimild til að heim-
sækja Kosovo-hérað og rannsaka
þai’ ásakanh’ um mannréttindabrot,
að því er fulltrái dómstólsins skýrði
frá í gær.
Fyrirhugað var að Louise Arbour,
aðalsaksóknari stríðsglæpadómstóls-
ins, færi til Belgrad, höfuðborgar
Serbíu, og síðan til Kosovo í lok
þessarar viku, ásamt Graham
Blewitt, aðstoðarsaksóknara, og tíu
rannsóknarmönnum. Serbnesk
stjórnvöld neita þeim hins vegar um
vegabréfsáritanir, og halda því fram
að lögsaga dómstólsins nái ekki til
Kosovo-héraðs.
Forseti stríðsglæpadómstólsins,
Gabrielle Kil’k McDonald, gagnrýndi
í gær harðlega ákvörðun Serba og
sagði hana til marks um að Júgóslav-
ía, sambandsríki Serbíu og Svart-
fjallalands, væri „glæparíki" sem
hefði alþjóðalög að engu.
Chris Hill, samningamaður
Bandaríkjastjórnar í Kosovo-deil-
unni, lýsti því yfir í gær að hann
hefði náð „góðum árangri" en að enn
væri langt í land með að varanlegur
friður kæmist á milli Serba og
Kosovo-Albana. Sagði Hill að ekki
aðeins horfði nú friðvænlegar í hér-
aðinu, heldur hefðu stríðandi fylk-
ingar færst nær pólitískri lausn.