Morgunblaðið - 06.11.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.11.1998, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lyfjaeftirlitsgiald dæmt ólögmætt fyrir Hæstarétti Fullnægjandi skattlagning- arheimild ekki fyrir hendi HÆSTIRETTUR dæmdi íslenska ríkið í gær til að endurgreiða Jóni Pórðarsyni lyfsala í Hvera- gerði svokallað lyfjaeftirlitsgjald þar sem skort hefði viðhlítandi lagaheimild fyrir gjaldheimt- unni. Hafði Jón gert kröfu um endurgreiðslu inn- heimts gjalds árið 1996 að fjárhæð 130.000 kr. Mál þetta var prófmál í þeim skilningi að gjald- takan snertir lyfsala í landinu almennt þótt hér hafi einungis verið látið á hana reyna í einu máli vegna eins árs. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins má búast við að lyfsalar geri kröfu um endurgreiðslu gjaldsins og hugsanlega einnig svokallaðs leyfisgjalds allt að tíu ár aftur í tímann eða jafn langt aftur og fyrningarreglur kunna að heimila. Eftir því sem fram kom við rekstur máls þessa námu innheimt eftirlits-, leyfis- og skán- ingargjöld til Lyfjaeftirlits ríkisins tæpum 19 milljónum króna árið 1996. Etirlitsgjald sem þjónustugjald Allt frá árinu 1924 hefur lyfsölum verið gert að greiða árlegt gjald í ríkissjóð vegna kostnaðar við eftirlit með lyfjabúðum. Núgildandi lagaheimild til innheimtu gjaldsins er að finna í 3. mgr. 2. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 þar sem segir að árlega skuli leggja eftirlitsgjald á fyrirtæki þau og stofnanir sem Lyfjaeftirlit ríldsins hafi eftirlit með. Verja skuli tekjum þessum til greiðslu kostnaðai- við eftirlitið. Segir Hæstiréttur að skýra verði ákvæði þetta svo að löggjafinn hafi ætlað eftirlitsgjaldinu að vera þjónustugjald. Reglugerð nr. 325/1996 um eftirlitsgjald vegna lyfjaeftirlits hafi hins vegar byggst á því að gjaldið væri innheimt án tillits til þess hvort eða í hvaða mæli einstakir gjaldendur nytu í reynd þjónustu af hálfu Lyfjaeftirlits ríkis- ins. Gjaldið skyldi lagt á eftir „veltu og/eða um- fangi eftirlitsskyldrar starfsemi“, eins og sagði í reglugerðinni. Ekki rétt að miða við veltu eina og sér Segir í dómnum að gjald lyfsalans hafi verið ákveðið á grundvelli veltu í lyfjabúð hans. „Ekki hafa verið færð viðhlítandi rök fyrir því að velta ein sér endurspegli þörf á eftirliti með einstökum lyfjabúðum. Samkvæmt 1. gr. reglugerðarinnar skyldi skipa þeim, sem gjaldið yrði lagt á, í ein- hvem af þargreindum 26 flokkum og var fjárhæð þess allt frá 7.500 krónum til 500.000 króna. í fylgiskjali með reglugerðinni var mælt fyrir um að lyfsöluleyfishafar skyldu ásamt lyfsölum lækna og sveitarfélaga falla hver um sig undir einhvern af fyrstu níu gjaldflokkunum." Var lyfsalanum í kjölfarið skipað í 6. gjaldflokk. Segii' í dómnum að í 2. gr. lyfjalaga sé ekki stoð fyrir því að skipa þeim, sem gjaldskylda hvíldi á, í gjaldflokka með þessum hætti, og beri ákvæði reglugerðarinnar ekki með sér hver tengsl geti verið á milli slíkrar flokkunar og þarfarinnar á eftirliti í hverju tilviki. Ljóst sé að lögbundin starfsemi Lyfjaeftirlits ríkisins ná tO ýmissa ann- arra atriða en eftirlits með þeim, sem taldir séu í fyrmefndu fylgiskjali með reglugerðinni. Þeim sé þó allt að einu gert að bera allan kostnað af starf- semi Lyfjaeftirlitsins með gjöldum sínum. Segir Hæstiréttur að bein tengsl skorti á milli skyldu til að greiða eftirlitsgjaldið og fjárhæðar þess annars vegar og hins vegar þeirrar þjónustu sem Lyfjaeftirlit rfldsins veiti hverjum gjald- anda. „Af þeim sökum gat sú skipan, sem reist var á reglugerð nr. 325/1996, ekki fengið staðist án viðhlítandi lagaheimildar, sem fullnægði kröf- um 40. gr. og 77. gr. stjómarskrárinnar." Var því staðfest sú niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur að taka gjaldsins af lyfsalanum hafi verið ólög- mæt og að endurgreiða bæri honum fjárhæðina, sem nam 130.000 kr. auk dráttarvaxta frá 31. júlí 1996. Þann dag hafði lyfsalinn greitt eftirlits- gjaldið með fyrirvara um rétt sinn til að krefjast endurgreiðslu þess. Málið fluttu Sigrún Guðmundsdóttir hrl. og Asdís Rafnar hdl. fyrir hönd íslenska ríksins og Tryggvi Gunnarsson hrl. af hálfu Jóns Þórðar- sonar. Davíð Gerhard Oddsson Schröder Davíð ræðir við Schröder DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra mun í næstu viku eiga fund með Gerhard Schröder, kanslara Þýska- lands. Hann mun einnig hitta að máli Helmut Kohl, fyrrverandi kanslara Þýskalands og halda er- indi í Konrad Adenauer-stofnun- inni. í lok ferðarinnar til Þýska- lands fer forsætisráðherrann til Berlínar og skoðar nýbyggingu ís- lenska sendiráðsins í Berlín. Aður en Davíð fer til Þýskalands situr hann þing Norðurlandaráðs í Osló. Þar mun hann sitja fund með forsætisráðherrum Norðurlanda og flytja stefnuræðu vegna for- mennsku íslands í Norðurlandaráði á næsta ári. Davíð situr einnig fund sem hann og starfsbræður hans á Norðurlöndum eiga með forsætis- ráðhermm Eystrasaltsríkjanna. Vilja ganga til liðs við Aðaldælinga MIKILL meirihluti ft)úa í norðan- verðri Köldukinn í Ljósavatnshreppi í S-Þingeyjarsýslu hefur skrifað undir áskomn til hreppsnefndar, þar sem farið er fram á að hreppamörk verði færð til. Ibúamir á bæjum norðan Ljósvetningabúðar og norður að Björgum vilja segja skilið við Ljósavatnshrepp og ganga til liðs við Aðaldælahrepp, austan Skjálfanda- fljóts. Alls skrifuðu 42 kosningabærir íbúar undii' áskomnina til hrepps- nefndar en íbúar þar era um 80. Ibú- ar í Ljósavatnshreppi eru tæplega 240 þannig að hér er um að ræða þriðjung íbúa hreppsins. Eiður Jónsson í Arteigi, einn þeirra sem skrifuðu undir, sagði ástæðu þessa snúast fyrst og fremst og skólamál. Böm á svæðinu hafa -------------------- Ekið á konu og barn EKIÐ var á konu á sextugsaldri og fjögurra ára dreng, sem var í fylgd hennar á Njarðargötunni, síðdegis í gær. Konan kastaðist upp á vélarhlíf bifreiðarinnar og fór í gegnum framrúðu hennar og missti meðvitund við höggið. Hún var flutt ásamt drengnum á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, en er ekki alvarlega slösuð. Drengurinn reyndist ekki slasaður. Lögreglan telur að ökumaður bifreiðarinnar hafi blindast í sól og ekki séð konuna og bamið þegar þau gengu yfir götuna. gengið í Hafralækjarskóla í Aðaldal en nú hefur hreppsnefnd Ljósa- vatnshrepps sagt upp samningi við Hafralækjarskóla frá áramótum og vill að bömin gangi í Stórutjarnar- skóla í Ljósavatnshreppi. „Við eram mjög óhress með að þessum samningi var sagt upp og viljum halda áfram okkar skólagöngu í Hafralækjarskóla eins og sl. 26 ár. Það er miklu heppilegri kostur fyrir okkur og hefur alltaf verið og við höfum átt mjög góð sam- skipti við Aðaldælinga.“ I vetur eru 13 nemendur úr Ljósa- vatnshreppi í Hafralækjarskóla en þeir hafa verið allt upp í 20. Eiður sagði að börnum væri að fækka í sveitum og þeim ætti eftir að fækka enn frekar á næstu árum. Okkar leið liggur í austurátt Eiður sagði uppi hugmyndir um að sameina jafnvel Fnjóskadal, Bárðar- dal og Kinn og því væri rökrétt að íbúarnir í norðanverðri Kinninni færu austur yfir og tengdust Aðaldælingum. „Okkar leið liggur í langflestum tilfellum í austurátt, m.a. til Húsavíkur, og auk þess not- um við bæði grannskólann og leikskólann í Aðaldal.“ Helga Erlingsdóttir, oddviti Ljósavatnshrepps, vildi ekkert tjá sig um þetta mál í gær. Dagur Jóhannesson, oddviti Aðaldals- hrepps sagði að boltinn væri hjá hreppsnefnd Ljósavatnshrepps en sjálfur hefði hann ekkert á móti því að fjölga íbúum Aðaldalshrepps. „Við höfum ekkert á móti þvi að stækka okkar sveitarfélag en þetta mál verður hins vegar fyrst að leys- ast heima fyrir,“ sagði Dagur. Morgunblaðið/Golli EFTIRLIT með nýja kerfinu annast liðsmenn 932. sveitar bandaríska flughersins á Keflavíkurflugvelli. Nýtt loftvarnarkerfí tekið í notkun á Keflavíkurflugvelli Kostnaður 35 milljarðar í GÆR var formlega tekið í notkun nýtt loftvarnarkerfí á Keflavíkur- flugvelli. Haldin var sérstök athöfn af tilefninu að viðstöddum fulltrú- um utanríkisráðuneytisins, yfir- stjórnar NATO, bandaríska flug- hersins, Bandaríkjaflota og Varn- arliðsins. Viðstöddum var síðan boðið að skoða miðstöðina, sem er vandlega gætt af vopnuðum vörð- Tvöföldum Reykjanesbrautina á 2 árum með einkafjármögnun! Gunnn? sjírmæn s «. I I J J,S2HUD Það vantar kraft í kjördæmið! um. Loftvarnarkerfið kostaði alls um 500 milljónir Bandaríkjadala eða sem svarar um 35 milljörðum íslenskra króna. Verkefnið, sem rekur upphaf sitt til ársins 1981, var fjármagnað af Mannvirkjasjóði NATO og hafði bandaríska fyi’ir- tækið Raytheon System Company yfiramsjón með smíði kerfisins í samstarfi við undirverktaka sinn, Kögun hf., sem sér um viðhald hugbúnaðar loftvarnarkerfisins. Hið nýja loftvarnarkerfi gerir allt eftirlit með flugumferð mun auðveldara en áður, en öflugur fjarskipta- og samskiptabúnaður þess tengir saman einstaka þætti kerfisins og tengir það við önnur loftvarnarkerfí, skip og flugvélar NATO. Fjórar ratsjárstöðvar, hver á sínu landshorni, ein rat- sjármiðstöð og hugbúnaðarsetur mynda uppistöðuna í loftvamar- kerfinu í heild sinni. Á tveimur mínútum geta liðsmenn 932. sveit- ar loftvamarsveitar bandaríska flughersins greint alla flugumferð í allt að 250 sjómílna fjarlægð undan ströndum landsins og gripið skjótt til aðgerða ef um óvinaflugvélar er að ræða og stýrt orrustuvélum Vamarliðsins í veg fyrir þær stefni þær að landinu. Gerir eftirlitið skilvirkara „I sjálfu sér er þetta það full- komnasta sem völ er á í dag og gerir allt eftirlit miklu skilvii’kara,“ sagði Þórður Ægir Óskarsson, skrifstofustjóri Varnarmálaskrif- stofunnar, um nýja kerfið. Athöfnin í gær markar hápunkt- inn á fimmtán ára þróunarferli, sem hófst þegar endumýjun á rat- sjárkerfi Varnarliðsins var tekin til endurskoðunar. Fjóram áram síð- ar hófst síðan vinna við endurnýjun af fullum krafti þegar íslendingar og Bandaríkjamenn gerðu sam- komulag um að íslenskir tækni- menn skyldu taka við af liðsmönn- um flughersins og annast tækni- legt viðhald á búnaði ratsjár- stöðvanna og íslenska loftvarnar- kerfisins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.