Morgunblaðið - 06.11.1998, Síða 6

Morgunblaðið - 06.11.1998, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Þorkell SÍÐASTA mastrið reist við Búrfell um hádegið í gær. Búið að reisa öll möstrin RÚSSNESKA fyrirtækið Techno- promexport lauk í gær, fimmtudag, við að reisa þrjú síðustu möstrin í Búrfellslínu 3a milli Búrfellsstöðvar og tengivirkis við Sandskeið, en möstrin eru alls 253 talsins. Til stóð að ljúka verkinu í fyrradag en þá var of hvasst til að reisa möstrin. Norskt fyrirtæki vinnur að því að strengja línur á möstrin og verður því vænt- anlega lokið í bytjun desember. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, verður Búrfellslína 3a væntanlega komin í rekstur fyrir miðjan desem- ber, en upphaflega var áætlað að línan yrði komin í rekstur um miðj- an nóvember. Vinna við möstrin hófst hins vegar mánuði seinna en til stóð, m.a. vegna þess að seinkun varð á efnissendingum til landsins og eins voru rússnesku verktakarn- ir seinni að koma sér upp mannafla og bækistöð en áætlað var. ,Að öðru leyti hefur verkið gengið vel. Tæknilega séð hafa þeir unnið vel og efnið er gott,“ sagði Þor- steinn. FRÉTTIR Fræðslufundur eldri ökumanna í Kópavogi • • Okumönnum 65 ára og eldri fjölgar mjög KÓPAVOGSBÆR, Umferðarráð og Sýslumaðurinn í Kópavogi gengust í gær fyrir fræðslufundi ætluðum bflstjórum á efri árum. Umíjöllunarefni voru af mörg- um toga, m.a. breyttar umferð- araðstæður, áhrif öldi-unar á aksturseiginleika, aukin umferð og lausnir sem styrkja öryggi og gott ökulag þátttakenda. Guð- mundur Þorsteinsson hjá Um- ferðarráði sagði í samtali við Morgunblaðið að fræðsla af þessu tagi væri tímabær þar sem ökumönnum 65 ára og eldri hefði fjölgað mjög síðari árin og er það þróun sem átt hefur sér stað víðast hvar á Norðurlönd- um. Guðmundur sagði að athugan- ir í Svíþjóð bentu til þess að tíðni óhappa sem rekja mætti til eldri ökumanna væri að nálgast slysatíðni sem rekja mætti til yngstu ökumannana. Slíkt hefði ekki verið athugað sérstaklega hér á landi, en fjölgun um- ræddra ökumanna gæfi tilefni til aukinnar fræðslu. Þá væri gagnlegt að athuga líkt og Svíar hvaða aldurshópar koma oftast fyrir sem óhappavaldar. „Þessu hefur lítið verið sinnt hér á landi og er þó full þörf á því. Umferðin hér hefur breyst mikið síðustu árin og er oft krefjandi og fiókin, t.d. á stórum gatnamótum og sums staðar eru meira að segja gatnamót sem eru ekki nokkrum manni bjóð- andi, sama á hvaða aldri er.“ Einnig mætti athuga áhrif þess að aka of sjaldan, en reynslan segði að fólk sem æki sjaldan stirðnaði frekar í umferðinni, sagði Guðmundur. Þar sem yngri ökumenn valda gjaman óhöppum með því að aka hraðar en þeir ráða við, þá er það hið gagnstæða sem finna má að akstri eldri ökumanna. „Þeir eldri fara oftast hægt, stundum fullhægt, og reynslan sýnir að það getur einnig valdið slysum,“ bætti Guðmundur við. Það getur verið tilfinninga- mál, segir Guðmundur, að ákveða hvenær ieggja skuli skír- teininu. Menn vilji lifa lífinu og meðal lífsins gæða sé bfleign. Guðmundur sagði að lokum, að ekkert ætti að vera því til fyrir- stöðu að eldri ökumenn gætu ekið fram á efri ár. Bæði yrði nú fræðsla aukin og svo er miklu meira úrval bfla sem henta eldra fólki, t.d. bflar með aldrifi, létt- um og góðum stýrisbúnaði og sjálfskiptingum. Morgunblaðið/Ásdís MEÐAL þess sem rætt var á fundi með eldri ökumönnum í Kópavogi í gær var að aðstæður liafa breyst og umferðin verður stöðugt flóknari. Landsbank- inn óskar eftir viðræðum Undirbúningur að starfsemi fbúðalánasjóðs um áramot samkvæmt áætlun Um 50 starfsmenn í stað um 70 hjá Hdsnæðisstofnun UNDIRBÚNINGUR þess að íbúðalánasjóður taki við hlutverki Húsnæðisstofnunar rfldsins um ára- mót gengur samkvæmt áætlun og er gert ráð fyrir að búið verða að ganga frá ráðningu starfsfólks um miðjan þennan mánuð. Starfsfólki mun fækka úr 71 í 45-50 og telur fé- lagsmálaráðherra ekki ólíklegt að sparnaður vegna þessara breytinga á rekstraríyrirkomulagi geti numið 80-100 milljónum króna árlega þeg- ar breytingamar eru að fullu komn- ar til framkvæmda og kostnaður samfara breytingunum er að baki. Spamaður vegna þess eins að hætta viðskiptum við veðdeild Lands- banka íslands er talinn nema 20-25 mflljónum króna á ári, en kostnaður Húsnæðisstofnunar vegna þeirrar þjónustu sem veðdeildin hefur veitt er um 100 milljónir króna á ári, auk þess sem greiðslur stofnunarinnar vegna þjónustu Reiknistofu bank- anna hafi numið um 70 mflljónum króna til viðbótar. Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi Páls Pét- urssonar, félagsmálaráðherra og Gunnars Bjömssonar, formanns undirbúningsnefndar íbúðalána- sjóðs, í gær. Gunnar sagði að und- irbúningur að starfsemi íbúðalána- sjóðs væri vel á vegi staddur og hann myndi taka yfir alla starfsemi Húsnæðisstofnunar um áramótin. Um eitt hundrað umsóknir um störf hefðu borist og yrði búið að ganga frá ráðningum um miðjan mánuðinn. Fram kom að viðræður stæðu yfir við banka og sparisjóði um að taka að sér tiltekna þjónustu í hús- bréfakerfinu og mun niðurstaða í þeim efnum liggja fyrir um miðjan mánuðinn. Ef þeir samningar ganga eftir er gert ráð fyrir að við húsnæðiskaup þurfi kaupandi ein- ungis að hafa samband við við- skiptabanka sinn og fasteignasölu vegna kaupanna. Ef samningar nást ekki muni þurfa að að ráða 4-5 fleiri starfsmenn til íbúðalánasjóðs vegna þeirra verkefna sem bank- arnir hefðu annars sinnt. Þá eru í gangi viðræður við sveitarfélögin um ýmis atriði sem tengjast félagslega kerfinu og unn- ið er að setningu reglugerða sem tengjast lögunum um Ibúðalánsjóð. Meðal þeirra má nefna reglugerð um skipulag og verkefni íbúða- lánasjóðs, reglugerð um húsbréf og húsbréfaviðskipti, reglugerð um sérstaka lánaflokka íbúðalána- sjóðs, reglugerð um viðbótarlán, reglugerð um varasjóð viðbótar- lána, reglugerð um lánveitingar til byggingar leiguíbúða, reglugerð um kærunefnd húsnæðismála og reglugerð um úrræði til þess að bregðast við greiðsluvanda. 25% viðbótarlán Sérstaklega var fjallað um efni reglugerðar um viðbótarlán við al- mennt húsnæðislán og kom fram að hún tekur til þeirra lánveitinga sem ætlaðar eru einstaklingum sem búi við erfíðar aðstæður og þurfi aðstoð til að kaupa eigið hús- næði. Það sé bundið skilyrðum um tekju- og eignamörk, en þó séu heimildir til þess að víkja frá þeim. Gert er ráð fyrir að viðbótarlánið nemi 25% af matsverði íbúðar og geti aldrei orðið hærra en 90% af matsverðinu að viðbættu almennu láni. Þau eru til 40 ára og afborg- unarlaus fyrsta árið og annast fjár- málastofnanir greiðslumatið. Hús- næðisnefnd kannar hvort umsækj- andi fullnægi skilyrðum um veit- ingu viðbótarláns og með staðfest- ingu sinni skuldbindur nefndin sig til að leggja í varasjóð fjárhæð sem nemur 5% af viðbótarláninu. Heim- ildir sveitarfélaga til að ráðstafa viðbótarlánum byggjast á áætlun- um þeirra um þörf á íbúðarhús- næði og Ibúðalánasjóður hefur hliðsjón af áætlaðri þörf sveitarfé- lagsins og því heildarfjármagni sem sjóðurinn hefur til ráðstöfunar hverju sinni við mat sitt. Þá er gert ráð fyrir að á næstu tveimur árum sé sveitarfélögum heimilt eftir til- lögu húsnæðisnefnda að ákveða að tiltekinn hluti árlegra viðbótarlána skuli fara til að mæta endursölu innleystra íbúða, enda taki sölu- verð þeirra mið af markaðsverði íbúða á viðkomandi svæði. Á blaðamannafundinum kom fram að íbúðalánasjóður hafi kann- að möguleika á sjálfstæðri aðild að Reiknistofu bankanna, en henni var hafnað og bent á að Reiknistofa bankanna starfaði einungis fyrir eigendur sína. Ef Ibúðalánasjóður hefði sjálfur ætlað að prenta út sína greiðsluseðla án aðildar Reiknistofu bankanna hefði það þýtt að seðlana hefði ekki verið hægt að greiða í bönkum og spari- sjóðum í landinu. Reiknistofa bankana hafi því í reynd einokun- araðstöðu á þessu sviði. LANDSBANKI íslands sendi í gær frá sér eftirfarandi tilkynn- ingu: „I fréttum undanfarna daga hafa komið fram ólík sjónarmið milli fé- lagsmálaráðuneytis og undirbún- ingsnefndar um stofnun íbúðalána- t sjóðs annars vegar og Landsbanka Islands hf. hins vegar um stöðu við- ræðna um áframhaldandi þjónustu veðdeildar Landsbankans við íbúðalánasjóð. Af hálfu Lands- bankans hefur það komið skýrt fram að bankinn er reiðubúinn að halda áfram að veita íbúðalánasjóði þá þjónustu sem veðdeild bankans hefur veitt Húsnæðisstofnun síð- ustu áratugi. Janframt hefur komið fram af hálfu Landsbankans vilji til að endurskoða þjónustusamning veðdeildar við Húsnæðisstofnun, m.a. kostnaðarþátttöku. I ljósi þessa hefur Landsbanki Islands þegar óskað eftir fundi með formanni undirbúningsnefndar um stofnun íbúðalánasjóðs og fulltrúa félagsmálaráðuneytis til að leið- rétta þann misskilning sem upp er kominn og leggja fram frekari hug- myndir í viðræðum við fulltrúa ráðuneytisins og sjóðsins. Lands- bankinn mun gera frekari grein fyrir afstöðu sinni til þessara mála eftir þann fund sem verður haldinn * á morgun [föstudag]."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.