Morgunblaðið - 06.11.1998, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 06.11.1998, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 11 FRÉTTIR Hjálparstarf kirkjunnar og Rauði krossinn Aðstoð vegna hamfaranna í Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, kosinn formaður stjórnar Hjálparstofnunar kirkjunnar „Gefandi að vinna tískuverslun Opið laugardag kl. 10-16 Rauðarárstíg 1, sími 561 5077 Mið-Ameríku HJALPARSTARF kirkjunnar sendi í gær 1,5 milljóna króna framlag til hjálparstarfs í Mið-Ameríku, einkum Hondúras og Nikaragva. Þá hefur Rauði kross Islands ákveðið að leggja fram 2 milljónir til hjálpar- starfs Rauða kross hreyfmgai'innar í löndunum sem verst hafa orðið úti vegna fellibylsins Mitch. Jafnframt leggur Akureyrardeild félagsins fram 200 þúsund krónur. ACT, alþjóðarneyðarhjálp kii'kna, sem Hjálparstarf kh'kjunnar er aðili að, mun ráðstafa fénu til kaupa á teppum, tjöldum, lyfjum, mat, fatn- aði, hitunartækjum, vatnsdunkum, verkfærum og fleiri hjálpargögnum fyrir 12.000 manns sem taldir eru í hópi þeirra verst settu. Fjölmargh- ACT-aðilar hafa sjálfir hafið svæðis- bundnar hjálparaðgerðir. Kallað er á framlög frá ACT-aðilum um allan heim eftir því sem nýtt mat á að- stæðum berst en nú þegar hafa borist fréttir af stórfelldum skaða í Gvatemala, E1 Salvador og fleiri ná- grannalöndum. Hjálparstarf kh'kjunnar hvetur landsmenn til þess að leggja fórnai'- lömbum hörmunganna lið strax með framlagi á reikning þess: 1150 26 27. „Þörfín er mikil og þarf að berast strax. Eyðileggingin er gífurleg eins og fram hefur komið í fréttum og m.a. talið að um 60% samgöngu- og þjónustukerfis Hondúras sé í rúst. Aukið verður við framlag Hjálpar- stai-fs kirkjunnar þegar jólasöfnun þess hefst í desember,“ segir í fréttatilkynningu. Átta þúsund sjálfboðaliðar Rauða krossins „Starfsmenn og sjálfboðaliðar landsfélaga Rauða krossins á svæð- inu og Alþjóðasambands Rauða kross félaga hafa gegnt mikilvægu hlutverki í hjálparstarfínu til þessa,“ segir í frétt frá RKÍ. „Um átta þús- und sjálboðaliðar hafa tekið þátt í björgunar- og hjálpai'starfi, komið upp neyðarskýlum og dreift hjálpar- gögnum. Alþjóðasamband landsfélaga Rauða krossins hefur sent út neyð- arbeiðni þar sem gert er ráð fyrir að um 650 milljónum króna verði varið til að aðstoða 180 þúsund manns í Hondúras, Nikaragva, E1 Salavador, Guatemala, Costa Rica, Panama og Belize næstu Jjrjá mánuði. Framlag Rauða kross Islands verður varið til kaupa á matvælum, teppum, eldun- aráhöldum, hreinlætisvörum, lyfjum og klór til að hreinsa drykkjarvatn“, segir í frétta Rauða krossins. Ernir Snorrason geðlæknir Ekki í samvinnu við erlendan lyfjarisa „ÉG held ekki að viðhorf mitt til gagnagrunnsfrumvarpsins helgist af því að ég sé sár yfir því að hafa ekki fengið vinnu hjá Islenskri erfða- gi'einingu. Eftir því sem ég veit best sjálfur hef ég ekki haft tíma til þess undanfarin tvö ár,“ segir Ernir Snorrason geðlæknir um þau um- mæli Kára Stefánssonar, forstjóra ÍE, í Morgunblaðinu í gær að sárindi í samskiptum þeirra þar sem hann hefði ekki fengið starf hjá IE væni rót gagnrýni Ernis á fyrirtækið. „Eg veit heldur ekki til þess að ég sé í samvinnu við neinn stóran lyfj- arisa í samkeppni við Islenska erfða- greiningu. Ég hef borið hag IE mjög fyrir bijósti og hef unnið því fyrir- tæki vel og dyggilega í mörg ár að ég tel. Ég er meðal stofnenda, útvegaði fé til fyrirtækisins og hef aldrei vitað til þess að ég hafí unnið gegn hags- munum þess og mun aldrei gera það.“ Ernir kvaðst hins vegar hafa haft miklar áhyggjur af þein'i umræðu sem verið hefði í þjóðfélaginu vegna gagnagrunnsfrumvarpsins, sér fynd- ist hún skelfileg og hann hefði áhyggjui' vegna mannréttinda. „Ég held að frumvarpið skaði ÍE og mér fínnst þau orð Kára Stefánssonar, sem hann lét falla í útvarpsviðtali, mjög umhugsunarverð þar sem hann heldur því fram að viðskiptafrelsi og vísindafrelsi sé sitt hvað, og það sé allt í lagi að leyfa mönnum að hafa vísindafrelsi en ekki viðskiptafrelsi. Hafí menn eitthvað getað lært af pólitískri sögu þessarai' aldar er það sú lexía að án viðskiptafrelsis er ekk- ert lýðræði. Orð mín beinast ekki gegn neinni persónu og ég hef að mörgu leyti dáðst að Kára Stefánssyni fyrir margt sem hann hefur gert en ég er líka ósammála mörgu sem hann hefur gert og ég vísa til Hávamála þar sem segir vinur er sá sem til vamms segir,“ sagði Ernir Snorra- son að lokum. að hjálparmálum“ Hald lagt á maríjúana LÖGREGLUMENN úr fikniefna- deild Reykjavíkurlögreglunnar gerðu húsleit í húsi í austurborginni í fyrrakvöld og lögðu hald á nim- lega 300 grömm af maríjúana. Maður og kona voru handtekin á staðnum og við yfirheyi'slur gekkst maðurinn við því að eiga fíkniefnin og hélt því fram þau hefðu verið ætluð til eigin neyslu. ÓLAFUR G. Einarsson, forseti Al- þingis, var kjörinn formaður stjórnai' Hjálparstarfs kirkjunnar á aðalfundi 31. október sl. A fund- inum var gerð sú breyting að fram- vegis heitir Hjálparstofnun kirkj- unnar Hjálparstarf kirkjunnar. Með Ölafi í stjórn voru kjörin Harina G. Johannessen og Sigrún V. Ásgeirsdóttir. I varastjórn eru þau sr. Guðný Hallgrímsdóttir og sr. Sigurður Jónsson í Odda. Ólafur sagði í samtali við Morg- unblaðið að Karl Sigurbjörnsson, biskup Islands, hefði komið að máli við sig og beðið sig um að taka við forystu í samtökunum. „Ég hafði nánast engan tíma til að hugsa mig um. Ég vissi lítið annað um starfið, nema það sem hver einasti Islendingur á að vita, að þarna er unnið merkilegt og gott starf. Eftir að hafa kynnt mér það nánar féllst ég á að taka starfíð að mér. Ég hafði ekki hugsað mér eftir að ég hætti á þingi að leita mér að fullu starfi. Hins vegar hef ég dálítið kviðið því að ég hefði ekkert að gera. Kannski öðram þræði þess vegna tók ég þessu boði og vona að ég geti gert eitthvert gagn. Ég veit að það er gefandi starf að vinna að hjálparmálum," sagði Ólafur. Safnanir verða erfíðari Hann kvaðst ekki geta sagt að hann ætlaði að innleiða nýja starfs- hætti, hann kæmi ekki til starfa sem byltingarsinni. „Þetta er allt í föstum og góðum skorðum. Mér er þó ljóst að tekjustofnar hjálpar- starfsins hafa fyrst og fremst verið almennar safnanir. Ég sé það á yf- irlitum að slíkar safnanir eru að verða erfiðari með hverju árinu sem líður því æ fleiri aðilar standa að þeim. Það þarf vafalaust að Morgunblaðið/Anna M. Ólafsdóttir ÓLAFUR G. Einarsson, nýkjörinn formaður Hjálparstarfsins, ásamt Jónasi Þ. Þórissyni, framkvæmdasljóra, og Herði Einarssyni, fráfar- andi sljórnarformanni (lengst til vinstri). leggjast yfir það hvernig eigi að afla fjár því þörfin er vaxandi ef eitthvað er, eins og t.d. ástandið í Mið-Ameríku sýnir okkur. Það kallar á aðstoð alþjóðasamfélagsins og við munum vafalaust sinna því og erum þegar farnir að ræða um það,“ segir ðlafur. Hörður Einarsson, sem lætur af stjórnarformennsku í Hjálpar- stofnun kirkjunnar, gegndi starf- inu um tveggja ára skeið. „Það er ágætt og tímabært að skipta um menn í forystunni með reglulegum hætti,“ sagði Hörður. Á aðalfundinum ávarpaði Karl Sigurbjörnsson biskup Islands að- alfundarfulltrúa Hjálparstofnunar- innar og gesti. I máli hans komu fram áhyggjur vegna vaxandi fá- tæktar hér á landi þrátt fyrir góð- ærið sem nú er. Einnig predikaði hann um þá skyldu sérhvers krist- ins manns að rétta fátækum og þurfandi hjálparhönd hvar sem þeir væra og að Hjálparstofnun kirkjunnar væri hluti af því starfi. I skýrslu Jónasar Þ. Þórissonar framkvæmdastjóra kom fram að starf innanlandsaðstoðarinnar fer vaxandi, einkum til öryrkja og ein- stæðra foreldra, sérstaklega með veik börn. Af þessum sökum hefur starf innanlandsaðstoðarinnar ver- ið endurskipulagt og sérstakur starfsmaður, Harpa Njálsdóttir fé- lagsráðgjafi, verið ráðinn til þess. Þá var getið um þátt hjálparstofn- unarinnar í verkefni Social Action Movement sem miðar að því að frelsa börn úr þrælavinnu sem oft er til komin vegna skulda. Opnum í dag nýja og GLÆSILEGA SNYRTIVÖRUVERSLUN MARBERT kynning verður föstudag og laugardag, 10% kynningarafsláttur og glæsilegur kaupauki. Margrét Bára Magnúsdóttir, snyrtifræðingur frá MARBERT, veitir ráðgjöf. Glæsileg opnunartilboð. Einnig fá 30 fyrstu fallegt burstasett að gjöf. Verið velkomin, við höfum heitt á könnunni. G G snyrtivörur, laugavegi 61, sími 561 8999.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.