Morgunblaðið - 06.11.1998, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTTIR
Frumathugun á umhverfis-
áhrifum Sultartangalínu 2
FRUMATHUGUN Skipulagsstofn-
unar er hafin á umhverfísáhrifum
vegna lagningar 440kV háspennu-
línu, Sultartangalínu 2, í Gnúpverja-
hreppi. Um er að ræða 12,5 km línu
milli tengivirkis Sultartangavirkj-
unar og nýs tengivirkis við Búrfells-
stöð og er Landsvirkjun fram-
kvæmdaaðili verksins en skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum er unn-
in af Verkfræðistofu Suðurlands.
í frétt frá Skipulagsstofnun segir
að samkvæmt breytingu á Aðal-
skipulagi Gnúpverjahrepps sé gert
ráð fyrir háspennulínu í línustæðinu
sem kynnt er í frummatsskýrslu og
er línan skráð sem Sultartangalína
1 á skipulagsuppdrætti. Áætlaður
framkvæmdatími er frá apríl til okt.
1999.
Samsíða Sigöldulínu
Lega línunnar er að mestu sam-
síða Sigöldulínu 3, stystu leið milli
tengivirkjanna og eru flest möstrin
stöguð og V-laga en einnig fjór-
fótungar. V-möstrin eru 2-3 metr-
um hærri og 5,5 metrum breiðari
en þau möstur sem fyrir eru á
svæðinu. Flest möstur Sultartanga-
línu verða staðsett þannig að þau
munu standast á við möstur Búr-
fellslínu 3. Sjónræn áhrif nýi-rar
línu ættu því að vera í lágmarki.
Nokkur aukning er talin verða á
segulsviði og hávaða frá línunum en
áhrif þess eru þó ekki talin tilfínn-
anleg þar sem Búrfellslína liggur
með henni og engin byggð eða
mannvirki eru nærri.
Tekið er fram að gi'óðurfar sé
ekki talið fjölskrúðugt á svæðinu og
að ekki sé vitað um tegundir sem
eru í hættu eða séu sérstæðar fyrir
svæðið. Efnistaka til slóðagerðar og
fyllinga að möstrum verður úr frá-
rennslisskurði Sultartangavirkjun-
ar, Sandártungunámu neðan við
Búrfellsstöðvar og úr áreyrum við
Þjórsárbrú við Sandafell.
I fréttinni segir að línunni verði
komið þannig fyrir að hún falli eins
vel að landinu og hægt sé og að
brýnt verði fyrir verktökum að
halda jarðraski í lágmarki. Gengið
verður frá vinnusvæðinu í samræmi
við kröfur Landgræðslu ríkisins.
Frummatsskýrslan liggur
frammi hjá Skipulagsstofnun í
Reykjavík og á skrifstofu Gnúp-
verjahrepps, í Þjóðarbókhlöðunni
frá 4. nóvember til 9. desember og
gefast almenningi flmm vikur til að
kynna sér framkvæmdina og leggja
fram athugasemdir til Skipulags-
stofnunar eigi síðar en 9. desember
1998. Leitað verður umsagna frá
hreppsnefnd Gnúpverjahrepps,
Náttúruvernd ríkisins og Land-
græðslu ríkisins. Auk þess var
framkvæmdin kynnt Löggildingar-
stofu og Þjóðminjasafni Islands.
• •
Hugmynd Or-
yrkjabanda-
lagsins skoðuð
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra segist telja sjálfsagt að
skoða hugmyndir Öryrkjabanda-
lagsins um að grunnlífeyrir ör-
jrkja taki mið af þvi hvenær þeir
verði fyrir varanlegri örorku
þannig að þeir sem verði fyrii’ ör-
orku ungir fái hæn-i grunnlífeyri
en þeir sem eldri eru.
Páll sagði að þessi hugmynd
Öryrkjabandalagsins væri sér
fi-amandi. Það væri hins vegar
nauðsynlegt að velta sífellt fyiir
sér hvemig bótagreiðslui- komi
réttlátast niðui’ og verði að sem
mestu gagni. Þessi hugmynd
værí vel þess virði að skoða
hana. Hann sagðist ekki hafa
haft tíma til að skoða þetta frá
öllum hliðum, en hann myndi
gera það.
Lögreglan varar við ógætilegri
meðferð loftskotvopna
Getur skapað
hættuástand
Könnun á peningaþvætti í þremur aðildarrfkjum
EFTA 1994-1997
Morgunblaðið/Ásdís
Samráðsfundur
vegna kristnihátíðar
KRISTNIHÁTÍÐARNEFND,
fulltrúar prófastsdæma og aðrir
aðilar sem standa að hátíðar-
höldum þegar þess verður
minnst að þúsund ár eru liðin frá
því kristin trú var lögtekin á Al-
þingi, komu saman til samráðs-
fundar í vikunni. Meðal þeirra
sem sátu fundinn voru þeir sr.
Úlfar Guðmundsson, prófastur í
Árnesprófastsdæmi, sr. Ágúst
Sigurðsson á Prestbakka, sr.
Þorbjörn Hlynur Árnason, pró-
fastur í Borgarfjarðarprófasts-
dæmi, sr. Heimir Steinsson, þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum, sr.
Guðmundur Guðmundsson á
Akureyri og sr. Hannes Blandon
frá Eyjaíjarðarprófastsdæmi. Að
sögn Júliusar Hafstein, fram-
kvæmdastjóra nefndarinnar, var
fundurinn haldinn til að kynna
hversu langt undirbúningurinn
er kominn og sagði hann að allt
benti til þess að dagskráin yrði
ljölbreytt en hún hefst væntan-
lega með ráðstefnu á Kirkjubæj-
arklaustri, þar sem fjallað verð-
ur um kristni í Skaftafellspró-
fastsdæmi.
LÖGREGLUNNI í Reykjavík hafa
að undanförnu borist ábendingar
um að fólk hafí verið með ýmiskon-
ar loftbyssur í fórum sínum, bæði
skammbyssur og riffla eða eftirlík-
ingar af skotvopnum.
„Við höfum dæmi um að menn
hafi verið að veifa loftskammbyss-
um og eftirlíkingum af skotvopnum
í bifreiðum og hræða vegfarendur
með þeim,“ segir Karl Steinar Vals-
son aðstoðaryfirlögregluþjónn.
„Einnig hafa sumir gengið svo langt
að reka byssurnar út um bflglugga
og miða þeim á aðra ökumenn í um-
ferðinni. Þetta getur skapað hættu-
ástand því þótt þeir sem haga sér
svona ætli sér ekki að valda slysi, þá
er hættan sú að grunlausir öku-
menn geta brugðist mjög misjafn-
lega við svona truflun."
Falla undir ákvæði vopnalaga
Full ástæða er, að mati lögregl-
unnar, til að benda á ákvæði vopna-
laganna en undir þau falla skotvopn,
sem hægt er með sprengikrafti, sam-
anþjöppuðu lofti eða á annan sam-
bærilegan hátt að skjóta úr kúlum,
höglum eða öðrum skeytum. Þannig
falla allar loftbyssur undir þessi lög
og til þess að eiga þær og nota þarf
skotvopnaleyfi og loftbyssurnar eiga
að vera skráðar.
Að auki er bannað að flytja til
landsins, framleiða, eignast eða hafa
í vörslu sinni vopn eins og fjaðra-
hnífa, hnúajárn, gaddakylfur, kast-
stjömur, lásboga og örvaboga hvers
konar, svo og örvarodda. Eftirlíking-
ar þessara vopna eru einnig bannað-
ar og geta brot við vopnalögum varð-
að fangelsi allt að 4 árum.
24 tilfelli peningaþvætt-
is rannsökuð á Islandi
E FTIRLITSSTOFNUN Fríversl-
unarbandalags Evrópu, EFTA, birti
á miðvikudag niðurstöðu könnunar á
því hversu vel hefði gengið að fylgja
eftir tilskipun Evrópusambandsins
um peningaþvætti í þremur aðildar-
rílgum bandalagsins, íslandi,
Lichtenstein og Noregi. Þótti fram-
kvæmdin hafa gengið vel, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
ESA.
Kannað var hversu oft yfirvöld-
um hefði borist skýrsla um pen-
ingaþvætti og í hversu mörgum til-
fellum rannsókn hefði leitt til sak-
sóknar og/eða sakfellingar. í ljós
kom að á árunum 1994-1997 komu
upp 24 tilfelli um peningaþvætti á
Ekki var
talin ástæða
til málssóknar
íslandi, en ekkert þeirra leiddi til
saksóknar. Á sama tímabili voru
skráð 1304 tilfelli í Noregi sem
leiddu til saksóknar 43 sinnum og
þar af voru 26 tilfelli sem enduðu
með sakfellingu. I Lichtenstein
voru 18 tilfelli tilkynnt árið 1997 á
sama tímabili og óvenju mörg
þeirra leiddu til sakfellingar eða 14.
Ekki voru til tölur um fjölda árin á
undan í Lichtenstein.
Nokkra athygli vekur að mikill
munur er á fjölda tilkynntra tilfella á
Islandi milli ára en tvö tilfelli voi’u til-
kynnt árið 1994. Strax árið eftir voru
tillynnt 9 tilfelli og árið 1996 féll kúrf-
an niður í 2 á nýjan leik. í fyrra snar-
jókst síðan fjöldinn og fór upp í 11.
Morgunblaðið/Þorkell
Norskir ritstjórar
í heimsókn
SEXTÁN ritstjórar frá vestur
Noregi heimsóttu ritstjórn Morg-
unblaðsins í vikunni en hingað
komu þeir í íjögurra daga kynn-
isferð. Ritstjórarnir komu frá
ýmsum dagblöðum bæði stónim
og smáum í Bergen og nágrenni,
Hörðalandi og Sogni.
Langur iaugardagur á Laugavegi
400 verslanir verða opnar
LANGUR laugardagur verður á
Laugavegi á morgun, laugardag.
Nær 400 verslanir á Laugavegi og
nágrenni verða opnar til klukkan 17
auk þess sem veitingastaðir verða
opnir. Flestar verslanir á svæðinu
verða með sértilboð í tilefni dagsins.
Skemmtikraftar verða á svæðinu
allan daginn, svo sem eldgleypir,
töframaður, bumbuslagari og harm-
oníkuleikari. Gallerý Listakot á
Laugavegi 70 býður upp á tvær
sýningar sem opnaðar verða um
helgina, þ.e. leirlistar- og textílsýn-
ingu.