Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 13
FRÉTTIR
Ráðherraskipuð nefnd til að auka hlut kvenna í sljórnmálum
Ataki hrint af stað
með auglýsingum
Morgunblaðið/Kristinn
SIV Friðleifsdóttir, formaður ráðherraskipaðrar nefndar sem ætlað er að auka hlut kvenna í stjórnmálum,
og Una María Óskarsdóttir, verkefnisstjóri, á fréttamannafundi þar sem verkefni nefndarinnar voru kynnt.
UM helgina hefst auglýsingaátak í
fjölmiðlum sem hefur það markmið
að auka hlut kvenna í stjórnmálum,
en átakið er á vegum ráðherraskip-
aðrar nefndar sem ætlað er að auka
hlut kvenna á þessum vettvangi.
Hafa foringjar stjórnmálaaflanna í
landinu lagt átakinu lið og birtast
þeir í auglýsingum á vegum nefnd-
arinnar.
Pingsályktunartillaga um aðgerð-
ir til að auka hlut kvenna í stjórn-
málum var samþykkt á Alþingi síð-
astliðið vor. í framhaldi af því fól
ríkisstjórnin félagsmálaráðherra að
skipa nefnd til að skipuleggja
þverpólitískar aðgerðir til að bæta
hlut kvenna í stjórnmálum, og er
nefndinni ætlað að starfa í að
minnsta kosti fímm ár. Nefndin er
skipuð fulltrúum stjórnmálaflokka,
Skrifstofu jafnréttismála og Kven-
réttindafélags Islands, og á hún að
annast fræðslu, auglýsingaherferðir
og útgáfu. Á þessu ári hefur nefndin
fimm milljónir króna til ráðstöfunar
og fær hún síðan fjárveitingar sam-
kvæmt fjárlögum hvers árs.
I nefndinni eiga sæti þær Siv
Friðleifsdóttir frá Framsóknar-
flokki, og er hún formaður nefndar-
innar, Arnbjörg Sveinsdóttir frá
Sjálfstæðisflokki, Bryndís
Hlöðversdóttir frá Alþýðubanda-
lagi, Elsa Þorkelsdóttir frá Jafn-
réttisráði, Hólmfríður Sveinsdóttir
frá Alþýðuflokki, Kristín Halldórs-
dóttir frá samtökum um Kvenna-
lista og Ragnhildur Guðmundsdótt-
ir frá Kvenréttindafélagi Islands.
Verkefnisstjóri nefndarinnar er
Una María Óskarsdóttir.
Mikill velvilji
hjá stjórnmálaflokkunum
Siv Friðleifsdóttir sagði á fundi
með fréttamönnum í gær, þar sem
verkefni og áherslur nefndarinnar
voru kynnt, að staða kvenna í
stjórnmálum annars staðar á Norð-
urlöndum væri mun betri en á Is-
landi. Þar eru konur um 40% þeirra
sem sitja í sveitarstjórnum og á
þjóðþingum, en hér er hlutur
kvenna í stjórnum sveitarfélaga
29% og 25% alþingismanna eru kon-
ur. Sagði Siv að ein skýringin á því
að þátttaka kvenna væri meiri á
Norðurlöndunum væri sú að átak
eins og nefndinni er ætlað að standa
fyrir hafi verið í gangi þar um ára-
bil.
„Það er mjög mikiil velviiji hjá
stjómmálaflokkunum að fara út í
þetta verkefni, og allir flokkarnir
em með það á stefnu sinni að auka
hlut kvenna í stjómmálum. Við höf-
um leitað til leiðtoga stjórnmálaafl-
anna um að leggja þessu átaki lið
með því að birtast í auglýsingum
okkar, og allir sem einn hafa tekið
vel í það,“ sagði hún.
Auglýsingar nefndarinnar byrja
að birtast nú um helgina í dagblöð-
um og síðan í ljósvakamiðlum, og
sagði Siv leiðtoga stjórnmálaafl-
anna hafa tekið þátt í verkefninu til
að sýna fram á að mikil breidd væri
á bak við það og mikil alvara væri á
ferðinni.
80% telur að auka eigi hlut
kvenna í stjórnmálum
Nýlega vora birtar niðurstöður
könnunar sem Skrifstofa jafnréttis-
mála lét gera þar sem spurt var
m.a. hvort fólk teldi að auka ætti
hlut kvenna í stjórnmálum, en tæp-
lega 80% voru því fylgjandi og 53%
þeirra vora fylgjandi því að stjórn-
málaflokkarnir gerðu sérstakt átak
í þessu skyni.
Siv sagði að auðvitað hefði mikil
vinna verið í gangi á ýmsum vett-
vangi í gegnum árin til að auka
hlut kvenna í stjórnmálum, og al-
menningsálitið sýndi að fólk vildi
sjá fleiri konur í stjórnmálum eins
og könnunin á vegum Skrifstofu
jafnréttismála gæfi glögglega til
kjmna.
„Það er mjög brýnt að fylgja því
eftir með því að vera með átak af
þessu tagi til þess að hafa áhrif á al-
menning sem mun taka þátt í að
raða upp framboðslistum, fulltrúa
flokkanna sem þátt taka í því og for-
svarsmenn flokkanna og ráðandi öfl
í flokkunum sem hafa líka talsverð
áhrif á það hvemig listar líta endan-
lega út. Þetta átak á að beinast að
öllum þessum hópum.
Við erum ekki einungis að fara út
í þetta auglýsingaátak heldur höf-
um við líka fundað með formönnum
kvennahreyfinga flokkanna, kynnt
verkefnið fyrir þeim og boðið þeim
hjálp okkar varðandi starf innan
flokkanna til að auka hlut kvenna.
Það var mjög gagnlegur fundur og
við munum hitta þennan hóp aftur.
Þá höfum við skipulagt greinaskrif í
fjölmiðlum og á næstunni munu
birtast greinar frá bæði konum og
körlum um þetta verkefni, þannig
að það á ekki einungis að felast í
auglýsingum heldur einnig í al-
mennri fræðslu," sagði Siv.
Verslunarmannafélag Hafnarfjarðar
Undarleg vinnu-
brögð VR og Mbl.
í LJÓSI fréttar frá Verzlunar-
mannafélagi Reykjavíkur í Morgun-
blaðinu í gær þann 5. nóvember um
sameiningu Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur og Verslunarmannafé-
lags Hafnarfjarðar, óskar VH eftir
að gera eftirfarandi athugasemd:
VR sendi VH bréf þar sem óskað
var viðræðna um hvort grundvöllur
væri fyrir sameiningu félaganna.
Stjórn og trúnaðarráð VH sam-
þykkti að skipuð yrði viðræðunefnd
til að ræða þetta mál og var VR til-
kynnt um þetta með bréfi þann 26.
október en ekkert hefur heyrst frá
félaginu þegar þetta er ritað. Að
mati VH hefur þvi engin ákvörðun
verið tekin um hvort grundvöllur er
fyrir sameiningu eða ekki.
Það er því í hæsta máta ótímabært
og undarleg vinnubrögð af hálfu VR
að birta frétt þessa í fjölmiðlum án
samráðs við VH og er ótrúlegt að fé-
laginu skuli ekki sýnd sjálfsögð til-
litssemi.
Viðræður um sameiningu stéttar-
félaga hefjast einfaldlega ekki á síð-
um dagblaðanna.
Einnig eru vinnubrögð Morgun-
blaðsins átalin og eðlilegra hefði ver-
ið að leita umsagnar VH á málinu.
Athugasemd ritstj.:
Morgunblaðið vísar því á bug að
vinnubrögð varðandi frétt um
ákvörðun um viðræður um samein-
ingu Verslunarmannafélags Reykja-
víkm1 og Verslunarmannafélags
Hafnarfjai-ðar séu óeðlileg og ekki sé
hægt að segja slíka frétt öðru vísi en
leita umsagnar VH. Athugasemd
Verslunamannafélags Hafnarfjarð-
ar staðfestir að frétt Morgunblaðsins
er rétt. Bæði félögin hafa ákveðið að
ganga til viðræðna um grundvöll fyr-
ir sameiningu. Eðli málsins sam-
kvæmt geta viðræðumar bæði leitt
til þess að félögin sameinist og að
þau geri það ekki. Samskiptamál fé-
laganna og hvernig þeim er hagað
eru Morgunblaðinu og fréttaflutn-
ingi þess óviðkomandi.
Heimsferðir
27% fjölgun farþega
til London í haust
VERULEG fjölgun farþega hefur
orðið á milli ára með beinu flugi
Heimsferða til London, en ferða-
skrifstofan hefur flogið til Gatwick-
flugvallar tvisvar í riku frá 1. októ-
ber og mun fljúgan þangað áfram til
7. desember. Aukningin nemur 27%
milli ára.
Frá þessu er skýrt í fréttatilkynn-
ingu frá Heimsferðum og þar segir
jafnframt að þetta sé fjórða árið í
röð, sem ferðaskrifstofan býður upp
á reglulegar ferðm með leiguflugi til
London. Þar segir: „Með tilkomu
þessarar samkeppni hafa fargjöld
stórlækkað, en London er í dag ein
eftirsóttasta borg Evrópu og hefur
aldrei áður verið jafn mikil eftir-
spurn eftir gisth-ými í London eins
og í dag.“
Heimsferðir bjóða þjónustu ís-
lenskra fararstjóra í London og ferð-
ir til og frá Gatwick-flugvelli inn í
borgina.
HÖFUM OPNAÐ
ÚTSÖLUMARKAÐ
í KRINGLUNNI
Fatnaður
og skór frá
eftirtöldum
verslunum:
Sautján,
Smash,
Deres,
4-you o.fl.
FATAMARKAÐURINN
Kringlunni,
2. hæð, suðurhúsi,
(Borgarkringlunni,)
sími 581 1308.
%
%
70
80
%
%
afsláttur