Morgunblaðið - 06.11.1998, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 06.11.1998, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Uti er alltaf að snjóa! ÓVENJUMIKIL úrkoma hefur verið í Eyjafirði, en frá því kl. 18 á miðvikudagskvöld og þar tii kl. 9 á fimmtudagmorgun mældist úrkoman 11,8 millimetrar. Um 25 sentimetra jafnfaliinn snjór var yfir þegar Akureyringar fóru á fætur í gærmorgun og þurftu menn að mæta deginum með því að göslast í snjó upp á kálfa, flestir á leið að lítilli snjó- hrúgu á hlaðinu hvar undir mátti finna bifreið. Þæfingsfærð var um bæinn, en umferð gekk nánast óhappa- laust fyrir sig og þykir það að sögn lögreglu vel sioppið miðað við aðstæður. Veðurspá gerir ráð fyrir kulda og éljagangi í dag en um helgi er búist við að hlýni eitthvað með suðlægari áttum. Þykir mörgum vetur setjast helst til snemma að og lítið ann- að eftir en að halda í vonina um að vorið verði að sama skapi snemma á ferðinni. Líklega kæt- ast þeir sem standa fyrir því að færa bæinn í jólabúninginn snemma, því varla verður um- hverfið jólalegra en nú er. Svan- hildur Þórisdóttir velti því sjálf- sagt lítið fyrir sér hvort um- hverfið væri jólalegt eður ei, heldur tók til óspilltra málanna og mokaði stéttina heima hjá sér Morgunblaðið/Kristján í Hrafnagilsstrætinu, en félag- arnir Kristján og Jóhann sem voru að bera út í Seljahlíð virtu snjóbarin trén dálítið fyrir sér á leiðinni. Engu er hins vegar lík- ara en menn sé bókstaflega að snjóa í kaf nyrðra þegar litið er á Vilhjálm Stefánsson, starfsmann Akureyrarbæjar, standa með höfuðið upp úr skafli. Sem betur fer er ástandið ekki enn orðið svona slæmt, Vilhjálmur er að gægjast upp úr brunni sem hann var að vinna í! Umfangsmikil starfsemi Gilfélagsins sem nú stendur á krossgötum Bærinn leggi fram 23 millj. og lokið verði við Ketilhús A skíðum í sólarhring FJÓRTÁN unglingar í skíða- deild Leifturs standa fyrir áheitaskíðun í Ólafsfirði í dag, föstudaginn 6. nóvember. Unglingarnir ætla að fara á skíði eftir hádegi og vera samfleytt að í einn sólar- hring. Skipst verður á að vera á göngu- og svigskíðum. Ung- lingarnir eru að safna áheit- um meðal bæjarbúa vegna æfíngaferðar sem fyrirhugað er að fara í til Noregs í janú- armánuði næstkomandi. Vitni óskast RANNSÓKNARDEILD lög- reglunnar á Akureyri leitar vitna að árekstri sem varð fimmtudaginn 29. október síð- astliðinn á Borgarbraut rétt neðan við Bugðusíðu um kl. 7.50. Þar lenti rauður fólksbíll aftan á grænum Fiat Uno. Ökumaður rauða fólksbílsins, eða aðrir sem kunna að hafa orðið vitni að árekstrinum eru beðnir að gefa sig fram við lögreglu. Basar BASAR verður haldinn í Kaþ- ólsku kirkjunni við Eyrar- landsveg 26 á sunnudag, 8. nóvember. Þar er að finna margt fallegt, m.a. til jóla- gjafa. TAKIST ekki að sannfæra bæjaryf- irvöld um gildi þess að fjárfesta í menningarmiðstöðinni í Grófargili og gera Gilfélaginu kleift að reka þar öfluga starfsemi hlýtur félagið að skoða í alvöru að segja upp samningum við Akureyrarbæ og skila af sér þeim húseignum bæjar- ins sem það nú hefur til umráða. Félagið yrði þá annaðhvort lagt nið- ur, eða þá það hirti eigur sínar og starfaði áfram að áhugamálum fé- lagsmanna án skuldbindinga við Akureyrarbæ. Þetta kemur fram í greinargerð stjómar Gilfélagsins um framtíðar- starfsemi félagsins, en á laugardag, 7. nóvember, verður haldinn borg- arafundur sem ber yfirskriftina: Á að negla fyrir gluggana? Fundurinn AUÐUR Ólafsdóttir er myndlistar- maður nóvembermánaðar í Listflétt- unni í Hafnarstræti á Akureyri. Hún sýnir akrýl- og vatnslitamyndir. Auður stundaði nám við Mynd- lista- og handíðaskóla íslands 1981- 1986 og hefur auk þess tekið fjöl- mörg námskeið í Myndlistaskóla Reykjavíkur. Hún hefur unnið að myndlistinni jafnhliða kennslu í myndlist, bæði í eldri bekkjum verður í Deiglunni og hefst kl. 13.30 en tilefni hans er ástand Ketilhúss- ins og þrengingar menningarmið- stöðvarinnar í Grófargili. Fram kemur í greinargerðinni að Gilfélagið er nú á krossgötum, starfsemin hefur þanist út og er nú orðin svo umfangsmikil að útilokað er að halda utan um hana án laun- aðs starfsfólks. Lagt er til að ráðinn verði starfsmaður við hlið fram- kvæmdastjóra. Mikil vinna við Listasumar Meginverkefni félagsins er skipu- lagning og rekstur Listasumars, sem orðið hefur æ umfangsmeiri með árunum og þá sér félagið um gestavinnustofu sem krefst mikillar vinnu. Einnig hefur mikil vinna ver- grunnskóla og á námskejðum í Myndlista-og handíðaskóla íslands. Síðustu þrjú ár hefur Auður ein- beitt sér að myndlistinni og eru verk hennar til sölu í galleríum bæði hér heima og erlendis. Verslunin Listfléttan er opin alla virka daga frá kl. 11 til 18 og á laug- ardögum frá 11 til 14. Fyrsta laug- ardag í hverjum mánuði er opið til kl. 16. ið lögð fram í tengslum við upp- byggingu Ketilhúss. Nauðsynlegt þykir að búa leiklist og tónlist að- stöðu í Gilinu, og Ketilhúsið þykir henta til þess, en m.a. var mikil áhersla lögð á hljómburð við endur- bætur þar. Fjármuni þraut áður en húsið komst í nothæft horf og stendur það nú autt, „óbrotgjarn minnisvarði þess fálætis sem bæjar- yfírvöld hafa árum saman sýnt starfsemi Gilfélagsins og Menning- armiðstöðinni í Listagili,“ eins og komist er að orði í greinargerðinni. Leggur stjóm Gilfélagsins til að Akureyrarbær leggi fram 23 millj- ónir króna á næsta ári til að ljúka endurbótum á Ketilhúsi. Pólarrojhrekkir HARALDUR Ingi Haraldsson opn- ar sýningu í Ljósmyndakompunni á morgun, laugardaginn 7. nóvember kl. 16. Hún ber yfirskriftina „Pólar- rojhrekkir". Þetta er fjórtánda einkasýning Haraldar Inga, sem er forstöðumað- ur Listasafnsins á Akureyi'i, en hann tók síðast þátt í samsýningunni „Hausar" í Deiglunni á Listasumri. Þráður Haraldar spinnur sig frá Rauða húsinu á Akureyri til framtíð- ar. Róttækni myndlistarinnar er við- fangsefni hans og þaðan er engrar undankomu auðið. Tæknin er sí- breytileg.. Auður listamaður mánaðarins Sýningu feðga lýkur SÝNINGU feðganna Gunnars og Kristins G. Jóhannssonar í List- húsinu Þingi á Akureyri lýkur um helgina. A sýningunni eru ljósmyndaverk eftir Gunnar sem fjalla um drauma og veruleika, en Kristinn sýnir ol- íumálverk um litbrigði jarðarinnar. Mikil aðsókn hefur verið að sýning- unni sem lýkur á sunnudag, 8. nóv- ember, kl. 19. Spilað á Melum KVENFÉLAG Hörgdæla efnir til spilakvölda á Melum í Hörgárdal á laugardagskvöld, 7. nóvember, og verður spilamennskunni fram hald- ið tvö næstu laugardagskvöld þar á eftir, 14. og 21. nóvember. Spila- mennskan hefst öll kvöld kl. 21. Veitt verða verðlaun f'yrir hvert kvöld auk þess sem heildarverð- laun fyrir öll kvöldin þrjú verða veitt. Kaffiveitingar eru í boði. All- ir eru velkomnir að taka þátt í spilakvöldunum á Melum. -------------- Kristniboðs- samkomur KRISTNIBOÐSSAMKOMUR á vegum KFUM og K verða haldnar dagana 6., 7. og 8. nóvember næst- komandi í félagsheimilinu í Sunnu- hlíð. Ræðumaður á samkomunum verður sr. Kjartan Jónsson, fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra kristniboðsfélaga og kynnir hann íslenska kristniboðið í Kenýa og Eþíópíu í máli og myndum. Allir eru velkomnir á samkomurnar sem hefjast kl. 20.30 öll kvöldin. Kristniboðsdagurinn er 8. nóv- ember og verður kaffísala í Sunnu- hlíð til styrktar kristniboðinu frá kl. 15 til 17. -----♦-♦-♦-- Spunadans ANNA Richards spunadansari flytur svonefndan Hreingjörning í göngugötunni Hafnarstræti í dag, föstudaginn 6. nóvember, kl. 16.30. Hreingjörninginn ætlar hún að flytja á sama stað og tíma í heilt ár, en hún byrjaði fyrr í haust. -----♦-♦-♦-- Messur LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkju- skóli á morgun, laugardag kl. 11 í Svalbarðskirkju. Guðsþjónusta í Laufáskirkju sunnudaginn 8. nóv- ember kl. 14. Ræðuefni: Er trúai'- blómið okkar að skrælna? Ferm- ingarfræðsla á prestssetrinu á sunnudag kl. 11. Kirkjuskóli í Grenivíkurkirkju á laugardag, 7. nóvember kl. 13.30. Kyrrðar- og bænastund á sunnudagskvöld kl. 21. Messað í Grenilundi á sunnu- dag kl. 16. MÖÐRUVALLAPRSTAKALL: Sunnudagaskóli í Möðruvallakirkju kl. 11 sunnudaginn 8. nóvember í umsjá Söru Helgadóttur og Hann- esar Blandon. Aksjón 6. nóvember, föstudngur 12.00^-Skjáfréttir 18.15^-Kortér Fréttaþáttur í samvinnu við Dag. Endursýndur kl. 18.45, 19.15, 19.45, 20.15 og 20.45. 21.00^-Harmónikkuball í íþróttahöllinni með sænska tríóinu „Nya bröderna Farm“. Seinni hluti (e).
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.