Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 16

Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Anna Ingólfs KENNARAR í Egilsstaðaskóla stóðu með allar blöðrurnar uppi á kletti.... ... og nemendurnir biðu spenntir fyrir neðan. GÖMUL endurgerð kennslustofa. í henni eru gamlir munir frá Hvols- skóla og takið eftir nemendunum sem eru úr pappa. Þeir eru klæddir í föt sem voru í „tísku“ á árum áður. Það voru nemendur í 5. bekk sem útbjuggu kennslustofuna. ÞAÐ var hlaupið á eftir nýslepptum blöðrum og sumir voru heppnir og fundu margar blöðrur. Lásu yfir 500 bækur 90 ára af- mæli Hvolsskóla Hvolsvelli - Haldið var upp á 90 ára afmæli Hvolsskóla sl. sunnu- dag. Skólinn var stofnaður í kjölfar fræðslulaganna 1907 og hét þá Barnaskólinn að Stórólfshvoli, en hlaut síðar nafnið Hvolsskóli. Skólinn var fyrst til húsa í fé- lagsheimili Hvolhrepps sem var tjöruklætt hús og var hann þá jafn- an kallaður „Svarti skóli“. 1927 var hafin bygging skólahúss sem notað var til 1981, er skólinn flutti í nú- verandi húsnæði. Skólinn var fá- mennur lengi framan af og jafnan kennt í tveimur bekkjardeildum, yngri og eldri deild. Þegar þéttbýli fór að myndast á Hvolsvelli fór smán saman fjölgandi í skólanum og í dag stunda 180 nemendur nám í skólanum og er Unnar Þór Böðvarsson skólastjóri. Afmælishátíð skólans, sem á fímmta hundrað manns sótti, hófst með skrúðgöngu nemenda frá gamla skólanum að þeim nýja með tilheyrandi lúðrablæstri. Þá var opnuð sýning á gömlum munum úr sögu skólans og frá nemendum fyrri ára og verkum nemenda 1.-7. bekkjar. Mátti þar m.a. sjá líkan af gamla skólanum, gamla kennslu- stofu með tilheyrandi búnaði, veggteppi sem allir nemendur í 1.-4. bekk útbjuggu, sögulega ljós- myndasýningu og margt fleira. Efnt var til samkeppni um afmælis- merki skólans og varð tillaga Kol- beins ísólfssonar í 7. bekk fyrir val- inu. Skreytti merkið afmælistert- una og var einnig í barmmerki sem allir nemendur skólans fengu í til- eftii dagsins. Á afmælishátíðinni sögðu nokkr- ir gamlir nemendur frá veru sinni í skólanum og einnig skemmtu gamlir nemendur með söng og hljóðfæraslætti. Skólahljómsveit skólans lék syrpu úr verkum Jónasar og Jóns Múla sem flutt verður á sérstakri afmælissýningu í vikunni. I minningabrotum gömlu nemanna kom fram að þeim leið einstaklega vel í skólanum og menn hafa verið samhentir um að gera hið besta úr hlutum þrátt fyr- ir að aðbúnaður og húsnæði hafi ekki verið uppá marga fiska til að byrja með. Enda voru menn sam- mála um að „góður skóli" er ekki gott hús heldur byggist fyrst og fremst upp á „góðum“ kennurum. Afmælishald verður með einum eða öðrum hætti í allan vetur og næsti þáttur þess verður afmælis- sýning eldri nemenda á miðviku- daginn í Sunnuhúsinu. Þar verða flutt brot úr verkum bræðranna Jónasar og Jóns Múla og einnig at- riði úr Saumastoftinni eftir Kjart- an Ragnarsson. EgOsstaðir - Nemendur 1. til 3. bekkja Egilsstaðaskóla tóku þátt í lestrarátaki sem gert var í skól- anum og tók 8 daga. Markmiðið var að Iesa mikið og fá foreldra til að lesa eða hlusta heima. í skólanum var þeim skipt í 3 hópa og fóru í hlustun, sögustund og lestur. Akveðið var síðan að blása í jafnmargar blöðrur og þær bæk- ur sem lesnar voru og sleppa þeim síðan lausum. Það urðu alls 528 bækur sem nemendur lásu og voru það því yfir 500 blöðrur sem blásið var í og þeim hleypt upp í loft. Átakinu Iauk síðan með skemmtiatriðum og kökuveislu í skólanum. í næsta útivistartíma á svo að skima eftir blöðruleifum sem sjálfsagt hafa lent hér og þar úti í náttúrunni. Þeim leifum verður svo komið fyrir á réttum stað, þ.e. í ruslafötunni. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir NEMENDUR fóru í skrúðgöngu frá gamla skólanum að núverandi skóla. ÞAU Særún Bragadóttir, Árni Þorgilsson og Sigrún Jónsdóttir skoðuðu sýningu nemenda. Morgunblaðið/Sig. Fannar. ÞEIR sem komu að innflutningi og smi'ði á bílnum eru hér saman- komnir ásamt sýslumanni og fulltrúa Rauða krossins. Rauði krossinn færir Arnessýslu sjúkrabfl Selfossi - Rauði kross Islands af- henti Sýslumannsembættinu í Ár- nessýslu fullkominn sjúkrabíl að gjöf á dögunum. Bíllinn var síðan afhentur lögreglunni á Selfossi sem hafur séð um sjúkraflutninga í umdæminu. Sjúkrabíllinn þykir mjög fullkominn og er hann vel tækjum búin. Meðal þess tækja- búnaðar sem er í bílnum er beint talsamband á milli fylgdarmanna sjúklings og bílstjóra sjúkrabíls- ins. Bifreiðin er að öllu leyti unnin Suðurlandi. Það var Innflutnings- miðlun IB á Selfossi sem annaðist innflutning á bílnum, Bílaskjól á Hvolsvelli vann við nýsmíði í bíln- um og Jeppasmiðjan á Ljónsstöð- um sá til þess að aksturseiginleik- ar bifreiðarinnar væru til hæfis fyrir sjúkraflutninga. Radíóþjón- usta Sigga Harðar sá um ljósa-, merkja- og rafbúnað. Bifreiðin var síðan máluð af Bílamálun Sel- foss.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.