Morgunblaðið - 06.11.1998, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 17
Lánasjóður landbúnaðarins
29 sækja um
stöðu fram-
kvæm dastjóra
TUTTUGU og níu sóttu um stöðu
framkvæmdastjóra Lánasjóðs land-
búnaðarins og sá þrítugasti dró um-
sókn sína til baka. Leifur Kr. Jó-
hannesson lætur af starfi 1. mars
næstkomandi að eigin ósk.
Umsækjendurnir eru: Björn
Gunnarsson, fyrrverandi banka-
maður, Björn Jónsson hrl., Dóra
Ingvadóttir útibússtjóri, Erna
Bjarnadóttir deildarstjóri, Gísli
Karlsson framkvæmdastjóri, Guð-
björn Arnason framkvæmdastjóri,
Guðmundur Hermannsson, fyrr-
verandi sveitarstjóri, Guðmundur
Sigþórsson skrifstofustjóri, Guð-
mundur Stefánsson búnaðarhag-
fræðingur, Gunnar Gunnarsson
ráðunautur, Gylfí Björgvinsson
dreifingarstjóri, Gylfi Gíslason
rekstrarhagfræðingur, Hrafnkell
Tryggvason viðskiptafræðingur,
ívar Ragnarsson rekstrarfræðing-
ur, Jón Bjarnason skólastjóri, Júlí-
us Ingvarsson verktaki, Ketill A.
Hannesson búnaðarhagfræðingur,
Magnús B. Jónsson skólastjóri,
Magnús Ki-istjánsson skrifstofu-
stjóri, Ólafur Friðriksson deildar-
stjóri, Pétur J. Jónasson starfs-
mannastjóri, Ragnheiður Péturs-
dóttir lánasérfræðingur, Sigurður
Þór Sigurðsson framkvæmdastjóri,
Sigurjón Björnsson framkvæmda-
stjóri, Stefán Bjarnason skrifstofu-
stjóri, Sveinbjörn Eyjólfsson fram-
kvæmdastjóri, Sveinn Skúlason
hdl., Valur Þorvaldsson héraðs-
ráðunautur og Þorfínnur Bjömsson
deildarstjóri.
Minni hagnaður hjá
Royal Dutch/Shell
London. Reuters.
ROYAL Dutch/Shell-olíufélagið hef-
ur skýrt frá því að hagnaður á þriðja
ársfjórðungi hafi dregizt saman um
56% og þar með vakið óánægju fjár-
festa, sem hafa ekki heldur verið
ánægðir með tilraunir til að endur-
skipuleggja fyrirtækið.
Hagnaðurinn nam 841 milljón
dollara, en sérfræðingar höfðu búizt
við að hann yrði yfir einn milljarður.
Afkoma fyrirtækisins á ársfjórð-
ungnum var mun lakari en keppi-
nautanna British Petroleum Co Plc
og Exxon Corp.
Sérfræðingar í fjárfestingum
sögðu að engin einfóld skýi'ing væri
á hinni slöku afkomu og munu gera
ráð fyrir minni árshagnaði en fram
til þessa. Sagt er að ekki bæti úr
skák að mörgum fjárfestum sé í nöp
við stjóm fyrirtækisins.
Bandarískur sérfræðingur gaf í
skyn að fyrirtækið hefði dregið upp
dekkri mynd af ástandinu en ástæða
væri til, þar eð það gerði ráð fyrir að
ná sér á strik þegar áhrifa aðgerða
til að draga úr kostnaði færi að gæta
og verð á olíu færi að hækka á ný á
næsta ári.
Verð hlutabréfa í Shell Transport,
Bretlandsarmi fyrirtækisins, lækkaði
um 4,6% í 359 pens, en í Amsterdam
lækkaði verð bréfa í Royal Dutch
Petroleum um 3,96% í 89,80 gyllini.
Shell sagði ástæðurnar fyrir minni
hagnaði vera 33% lækkun á hráolíu-
verði á einu ári og áhrif samdráttar-
ins á Asíu-Kyrrahafssvæðinu.
bitnar á afkomu Statoil
Ósló. Reuters.
NORSKA ríkisorkufyrirtækið Sta-
toil í Stafangri kennir lægra olíu-
verði um 46% minni rekstrarhagnað
á fyrstu níu mánuðum þessa árs mið-
að við sama tíma í fyrra.
Statoil kveðst ekki geta treyst því
að nokkur „veruleg hækkun" verði á
hráolíuverði í framtíðinni og býst við
að afkoman á árinu í heild muni
„stórversna."
Rekstrarhagnaður fyrirtækisins
minnkaði í 7,2 milljarða norskra
króna, eða 67 milljarða íslenskra
króna, á níu mánuðum til september-
loka úr 13,2 milljörðum norskra
króna, eða tæplega 123 milljörðum
íslenskra króna, í fyrra.
Statoil (Den norske stats oljesel-
skap AS) sagði að 4,2 milljarðar doll-
arar af hagnaðarrýrnuninni stöfúðu
af lægra olíuverði. Nettóhagnaður
minnkaði í 1,3 milljarða norskra
króna úr 3,1 milljarði.
Minna framleitt
Statoil sagði að einnig hefði haft
áhrif á afkomuna að olíuframleiðsla
hefði minnkað nokkuð, vinnslukostn-
aður væri hár, 300 og 500 milljóna
króna olíulindir, China Lufeng og
Norwegian Varg, hefðu verið afskrif-
aðar og leitarskipið West Navion II
afpantað.
Olíuframleiðsla minnkaði í
429.000 tunnur á dag úr 370.000
tunnum. Viðmiðunarverð lækkaði í
13,30 dollara tunnan úr 19,20 dollur-
um.
DVD er ný tækni í afspilun á hljóði og mynd af geisladiskum
Stafræn afspilun á hljóði og mynd, þ.e. bestu mögulegu gæði.
1 Stutt er á einn hnapp og öll atriði sem ekki eru við hæfi barna
eru klippt út úr myndinni.
Auknir möguleikar, t.d. bæði Wide Screen og venjuieg útgáfa á
sama diski, viðtöl við leikara og fleira.
Flestar myndirnar eru fjöltexta (hægt að skipta á milli
íslensku, ensku, dönsku, sænsku, portúgölsku o.s.'
DVD nýtist vei til tungumálanáms þar sem þú
valið um mismunandi tal, með eða án texta,
t.d. ensku, þýsku og spænsku.
Hvað er DVD?
Ef þú kaupir DVD spilara, stakan eða í tölvu, býðst þér frábært tilboð. Þú greiðir fyrir
einn disk en færð þrjá! Þú getur valið hvaða diska sem er frá Warner Bros og Disney
BXB spilari gvg
Góður DVD spilari.
Doiby Digital (AC-3) Super-VHS og RCA
PAL og NTSC afspilun mynd/hljóðútgangur
Spilar DVD og venjulega Útgangur fyrir Ijósleiðara
geisladiska Frábær hægmynd og kyrrmynd
Tveggja hraða DVD
mynddiskadrif frá
Creative. MPEG-2
afspilunarkort. Tveir
frábærir leikir
fylgja: Claw
og Wing
Commander 4