Morgunblaðið - 06.11.1998, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Níu mánaða uppgjör Loðnuvinnslunnar hf.
Hagnaður 60
milljónir króna
LOÐNUVINNSLAN HF. á Fá-
skrúðsfirði hagnaðist um rúmar
60 milljónir fyrstu níu mánuði árs-
ins. Þetta er 21,4% minni hagnað-
ur en á sama tíma í fyrra en þá
nam hagnaður tímabilsins tæpum
77 milljónum króna. Rekstrartekj-
ur tímabilsins í ár námu tæpum
906 m. kr. en rekstrargjöld 729 m.
kr.
Eigið fé Loðnuvinnslunnar nam
um 675 m. kr. eftir fyrstu níu mán-
uðina en skuldir og eigið fé samtals
1.196 milljónum króna.
Gísli Jónatansson framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins er ánægður
með afkomu fyrstu níu mánaða
ársins. „Verksmiðjan tók á móti
DIT
Ræstingavagnar
DIT-ræstivagnar
í mörgum
stærðum og
gerðum.
Verð frá kr.énvsk.
19.643,-
Einnig
moppur,
rykklútar
álsköft og
önnur áhöld.
Ræstivörurtil hreingerninga
og viðhalds verðmæta!
Ræstivörur
Lynghálsi 3 • Sími 567 4142
65.000 tonnum á tímabilinu. Við
fengum þó minni loðnu í suffiar en í
fyrra og þarafleiðandi fékkst
minna hráefni og tekjur urðu minni
en ella,“ sagði Gísli í samtali við
Morgunblaðið.
Nýtt kolmunnaveiðiskip Loðnu-
vinnslunnar er nú haldið til veiða í
fyrsta skipti og segir Gísli að af-
koma ársins í heild ráðist m.a. af
því hvemig útgerð bátsins gangi,
en þetta er framraun Loðnuvinnsl-
unnar í útgerð. Einnig mun ársaf-
koman ráðast af loðnuveiðinni
framundan, að hans sögn.
Hann sagði að kolmunni hefði
verið að veiðast nú að undanförnu
og vonir væru bundnar við að
nýja skipið kæmi til með að
styrkja hráefnisöflun verksmiðj-
unnar.
LOÐNUVENNSLAN hf. ■J
. 1. jan. - 30. sept. 1998
Rekstrarreikningur | 1998 1997 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 905,9 1.052,3 -13,9%
Rekstrargjöld 728,9 837,9 -13,0%
Hagnaður f. afskriftir og fjárm.liði 177,0 214,4 -17,4%
Afskriftir (79,4) (74,6) +6,4%
Fjármagnsgjöld (16,7) (30,8) -45,8%
Reiknaður tekjuskattur (20,7) (32,4) -36,1%
Hagnaður ársins 60,3 76,7 -21,4%
Efnahagsreikningur 30. sept. 1998 1997 Breyting
I Eignir: | Fastafjármunir Milljónir króna Veltufjármunir 1.021,4 175,0 1.025,5 195,8 -0,4% -10,6%
Eignir samtals 1.196,4 1.221,2 -2,0%
iSkuldir ocj eigið féuá Eigið té 644,7 612,4 +5,3%
Langtímaskuldir 440,5 491,3 -10,3%
Skammtímaskuldir 111,3 117,5 -5,3%
Skuldir og eigið fé samtals 1.196,4 1.221,2 -2,0%
Sjóðstreymi 1998 1997 Breyting
Veltufé frá rekstri 139,3 178,1 -21,8%
VIB annast rekstur Lífeyrissjóðs lækna
Eignir sjóðs-
ins nema 7,6
milljörðum
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ís-
landsbanka, VÍB, hefur tekið við
rekstri Lífeyrissjóðs lækna frá og
með 1. nóvember. Rekstrarsamn-
ingur Lífeyrissjóðs lækna og VÍB
er stærsti ijárvörslu- og rekstrar-
samningur sem hefur verið gerð-
ur hér á landi, að því er fram
kemur í fréttatiikynningu.
Samkvæmt skýrslu Bankaeftir-
lits Seðlabanka Islands var Líf-
eyrissjóður lækna þrettándi
stærsti lífeyrissjóður landsins í
árslok 1997 með eignir upp á 7,6
milljarða króna og tæplega 1.100
virka sjóðsfélaga.
FRÁ undirritun samnings Lífeyrissjóðs lækna og VÍB. Fyrir aftan frá
vinsti: Páll Þórðarson, framkvæmdasipóri LÍ, Grétar Ólafsson, stjórn
Lífeyrissjóðs lækna, Björn Jónsson, VIB og Gunnar Baldvinsson, VÍB.
í fremri röð frá vinstri Þorkell Bjarnason, sijórn LL, Eiríkur Benja-
mínsson, formaður stjórnar LL, Sigurður B. Stefánsson, framkvæmda-
stjóri VÍB og Vilborg Lofts, aðstoðarframkvæmdastjóri VÍB.
AUGLÝSING ÞESSIER EINGÖNGU BIRTIUPPLÝSINGASKYNI
Skráning hlutabréfa
Porbjörns hf.
á Verðbréfaþingi íslands
Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt
að skrá hlutabréf Þorbjörns hf.
á Aðallista þingsins þann 10. nóvember nk.
Heildarnafnverð hlutafjár:
Heildarnafnverð hlutafjár félagsins er kr. 558.901.321. Hlutaféö er allt í
einum flokki jafn rétthárra bréta.
Starfsemi samkvæmt samþykktum:
Tilgangur félagsins samkvæmt 2. grein samþykkta er „að annast útgerð,
fiskverkun, síldarsöltun, fiskkaup, sölu afurða og annan skyldan atvinnurekstur.
Ennfremur rekstur fasteigna og allt annað sem eölilegt er að télagiö hafi með
höndum."
Umsjón með skráningu:
íslandsbanki hf., kt. 421289-5069, Kirkjusandi, 155 Reykjavfk, sfmi 560-
8000 og bréfsími 560-8190 er umsjónaraðili og annast miliigöngu við
skráningu á Verðbréfaþing íslands.
Upplýsingar og gögn:
Skráningarlýsing og önnur gögn um Þorbjörn hf. liggja frammí hjá
viðskiptastofu íslandsbanka hf., Kirkjusandi, 155 Reykjavík og hjá
Þorbirni hf„ Hafnargötu 12, 240 Grindavík.
ÍSLANDSBANKI
í frétt frá VÍB og Lífeyrissjóði
lækna kemur fram að markmiðið
með samningnum er að tryggja
sjóðsfélögum góða ávöxtun og úr-
vals þjónustu og ráðgjöf. „Jafn-
framt er stefnt að verulegri lækk-
un á rekstrarkostnaði Lífeyris-
sjóðs lækna og að rekstur lífeyris-
sjóðsins verði eins hagkvæmur og
kostur er þannig að sem mest af
ávöxtuninni skili sér til sjóðsfé-
laga.“
„Ef þú kaupir
ekki á okkur
einhverja
skemmtilega sokka
þá förum við
allar tíu
í fýlu”
Sock Shop opnar í Kringlunni á morgun kl. io:oo
• • t 1 • ‘ • , , ' 1
SOGK SIIOP
DEFINITIVE BODY WRAPPING
KRINGLUNNI -4-I 2. SlMI 553 7010
Seðlabanki Islands
Gjaldeyris-
forði jókst
um hálfan
milljarð
GJALDEYRISFORÐI Seðlabankans
jókst um rúmlega hálfan miUjarð
króna í október og nam í lok mánaðar-
ins 29,2 milljörðum króna (jafnvirði
424 milljóna bandaríkjadala á gengi í
mánaðarlok). Þetta kemui- fram í
fréttatilkynningu frá Seðlabankanum.
I tilkynningunni segir einnig að
erlendar skammtímaskuldir bankans
lækkuðu í mánuðinum um 0,7 millj-
arða króna og voru 2,6 milljarðar
króna í lok mánaðarins. Á gjaldeyr-
ismarkaði voru bókfærð gjaldeyris-
viðskipti Seðlabankans jákvæð um
1,5 milljarða króna í október, en
bankinn átti viðskipti fyrir 5,2 millj-
arða króna í mánuðinum. Gengi ís-
lensku krónunnar mælt með vísitölu
gengisskráningar lækkaði um 0,9% í
október, segir í tilkynningunni.
Heildareign Seðlabankans í mark-
aðsskráðum verðbréfum minnkaði í
október um 3 milljarða króna miðað
við markaðsverð og nam í mánaðar-
lok 10 milljörðum króna. Ríkissjóður
keypti spariskírteini af Seðlabankan-
um fyrir 2 milljarða króna og í lok
mánaðarins nam eign bankans í
spariskírteinum 3 milljörðum króna.
Ríkisbréfaeign bankans stóð í stað
en ríkisvíxlaeignin minnkaði um 1
milljarð króna.
Kröfur Seðlabankans á innláns-
stofnanir hækkuðu um 0,9 milljarða
króna í október en innstæðui- þeirra
í bankanum lækkuðu um 2,5 millj-
arða ki’óna. Nettóki’öfur bankans á
ríkissjóð og ríkisstofnanfr lækkuðu
um 3,5 milljarða ki-óna og námu um
0,4 milljörðum króna í lok október.
Grunnfé bankans lækkaði um 2,4
milljarða króna í mánuðinum og nam
18,4 milljörðum króna í lok hans,
segir einnig í fréttatilkynningunni
frá Seðlabankanum.
Þrjú tilboð
í rafstöð
á Húsavík
ÞRJÚ tilboð bárust í rafstöð hjá
Orkuveitu Húsavíkur sem boðin var
út í ágúst sl. Bandaríska fyrirtækið
Energy Inc., ítalska fyrirtækið
Turboden og ísraelska fyrirtækið
Ormat buðu í verkið. Sótt hefur ver-
ið um styrk til Evrópusambandsins
vegna verkefnisins og er gert ráð
fyrir að gengið verði frá samningum
um styrkveitingu á næstu vikum.
í frétt frá Húsavíkurkaupstað
kemur fram að tilboðin verði yfírfar-
in og þau borin saman hvað varðar
tæknilegar útfærslur o.fl. og er gert
ráð fyrir að niðurstaða um við hvaða
framleiðanda verður samið liggi fyrir
snemma á næsta ári.
Rafstöðin er hluti af endurnýjun
veitukerfis Orkuveitu Húsavíkur sem
einnig felur í sér endumýjun aðveitu-
æðar. Þegai' hefur verið samið við
framleiðanda pípunnai- í aðveituæðina
og er gert ráð fyrir að útboð á lagn-
ingu hennar geti farið fram í janúar.
Finnair
til Fort
Lauderdale
FINNSKA flugfélagið Finnair hefur
tekið upp beint áætlunarflug milli
Helsinki og Fort Lauderdale í
Flórída. Verður flogið tvisvar í viku
og notaðar Boeing 757 flugvélar
samkvæmt dagblaðinu The Herald,
sem gefið er út í Flórída.
Eins og komið hefur fram hættu
Flugleiðir beinu áætlunarflugi til
Fort Lauderdale fyrr á þessu ári en
fljúga eftir sem áður til Orlando einu
sinni eða tvisvar í viku. í frétt The
Herald segir að Finnair sé nú eina
evrópska flugfélagið, sem fljúgi til
Fort Lauderdale að frátöldu þýska
flugfélaginu Condor en höfuðstöðvar
þess eru í Frankfurt.