Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 23

Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 23 ERLENT Framboð Jeltsíns í þriðja sinn útilokað Bandaríkjamenn lofa Rússum matvælaaðstoð Moskvu. Reuters. RÚSSNESKI stjórnlagadómstóllinn úrskurðaði í gær að Borís Jeltsín Rússlandsforseti gæti ekki boðið sig fram til forseta þriðja sinni. Sagði í úrskurðinum að hætt hefði verið við að kanna málið vegna þess að enginn vafí léki lengiu- á því að forsetinn gegndi nú síðasta kjörtímabili sínu. Hefur forsetinn fallist á þennan úr- skurð dómstólsins, að sögn Dmitri Jakúshkín, talsmanns hans. Kvað Jakúshkín úrskurðinn „sigur laga yf- ir tilfinningum". Úrskurðm- stjórnlagadómstólsins er nú aðeins formsatriði, en á sinum tíma var talin full ástæða til að fá úr því skorið hvort Jeltsín gæti setið þrjú kjörtímabil, þrátt fyrii- að stjóm- arskráin kveði á um að forseti geti að- eins setið í tvö tímabil. Aðstoðarmenn Jeltsíns höfðu bent á að þar sem hann hefði verið kjörinn fyrsta sinni sam- kvæmt annaiTÍ stjómarskrá stæði nú yfír fyrsta kjörtímabilið samkvæmt þeirri sem nú gildir. Samið um matvælaaðstoð Rússnesk og bandarísk stjórnvöld náðu í gær samkomulagi um 600 milljóna dala lán Bandaríkjamanna til Rússa, sem nota á til að kaupa 1,5 milljónir tonna af bandarískum mat- vælum. Þá munu Bandaríkjamenn gefa Rússum annað eins magn af hveiti, að sögn Gennadí Kúlik, að- stoðarforsætisráðherra Rússlands. Lánið er til tuttugu ára, með 2% vöxtum á ári. Þá var í gær tilkynnt sala á 2,5% hlut í Gazprom, stærsta gasfyrirtæki heims, sem er enn að 40% í eigu rík- isins. Er salan til marks um að rúss- neska stjórnin leitar nú allra leiða til að fá fé í ríkissjóð en hún gerir sér vonir um að greiðslurnar verði farn- ar að berast í ríkiskassann fyrii' ára- mót. Verðið á hlutnum er um 651 milljón dala. Álandseyjar áfram hluti Finnlands Helsingfors. Morgunblaðið. MARTTI Ahtisaari Finnlands- forseti segir að Finnar muni seint afsala sér lögsögu yfir Alandseyj- um. Ahtisaari ávarpaði lögþing eyjaskeggja við setningu þess í vikunni. Ragnar Erlandsson, forseti lögþings Alendinga, svaraði ávarpinu með því að lýsa yfir hollustu heimamanna við Finn- land. Að sögn Erlandssons eru engin sjálfstæðisáform af hálfu heimastjórnarinnar. I sumar hófst umræða um hugsanlegt sjálfstæði eyjanna enn á ný að frumkvæði Anders Erikssons efnahagsmálaráð- herra heimastjórnarinnar. Stjórnmálaflokkar á lögþinginu lýstu því síðar yfir að núverandi heimastjórnarlög væru fullnægj- andi. Alitisaari sagði m.a. að sjálfstæði Alandseyja myndi ógna öryggi og jafnvægi á Eystrasaltssvæðinu. Einnig var- aði Ahtisaari við því áð eyja- skeggjar myndu þurfa að semja um öll sín milliríkjamál á ný færi Finnland ekki lengur með stjórn utapríkismála Alandseyja. Álandseyjar eru sjálfstjórnar- svæði sem tilheyrir Finnlandi samkvæmt sáttmála sem gerður var í skjóli Þjóðabandalagsins ár- ið 1921. Finnar sjá um skatta, landvarnh' og utanríkismál en heimastjórnin hefur t.d. lögsögu yfir heilsugæslu og menntamál- um. Þegar Finnar gerðust aðilar að Evrópusambandinu fengu Alend- ingar ýmiskonar undanþágur frá lögum sambandsins. Þannig hef- ur t.d. verið sett upp tollskoðun milli eyjanna og meginlandsins. Tollmörkin valda því m.a. að ekki þarf að leggja niður tollfrjálsa verslun á farþegaskipum milli Finnlands og Svíþjóðar þegar bann ESB við tollfrjálsri verslun innan sambandsins gengur í gildi á miðju ári 1999. Afangasigur Brasilíu- stjórnar Brasilíuborg. Reuters. RÍKISSTJÓRN Brasilíu tókst í gær að vinna áfangasigur í barátt- unni við að bjarga við efnahagi landsins og byggja aftur upp traust kauphallarfjárfesta og alþjóðlegra lánardrottna. Stjórnin bætti stöðu sína á tákn- rænan hátt þegar neðri deild þings- ins samþykkti lagafrumvarp um breytingar á almannatrygginga- kerfinu, sem lengi hafði beðið af- greiðslu en miðar að því að stöðva gríðarlegan halla á rekstri lífeyris- kerfisins. Atkvæðagreiðslan á þinginu var álitin prófsteinn á hæfni ríkisstjórn- ar Fernandos Cardoso forseta til að þrýsta í gegn tilfinnanlegum skatta- hækkunum og niðurskurði ríkisút- gjalda, sem ætlað er að koma í veg fyrir gengislækkun realsins, brasil- íska gjaldmiðilsins, og að búa Bras- ilíu undir að gangast undir þær skuldbindingar sem fylgja stórum efnahagsaðstoðarlánum sem von er á frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og fleiri erlendum aðilum. Lögleiðing reglna ESB um viðskipti með dýr og dýraafurðir Kr. 10.900. Meiriháttar skór frá IGREGORI Mikið úrval Teg. 982612. Svart leður og svart leðurlakk. St. 36-41. P0STSENDUM SAMDÆGURS SKÆEX Kringlunni - I. hæð, s. 568 9345. Lambahryggvöðvi Ef rétta hráefnið er notað getur matarboðið ekki klikkað. Við buðum upp á lambahryggvöðva (,/ilet“) og þrátt fyrir að vera snilldarkokkur lét ég gestina sjálfa sjá um steikinguna. Útkoman var glæsileg „fondú- og rakklettveisla“ á heimsmælikvarða. Aðferá 1. Kjötið er skorið t mátulega bita og marínerað í hvít- lauk og pipar. 2. Hver gestur steikir sína bita eftir eigin höfði t fondúpotti eða á „rakklettpönnunni“. 3. Það er skemmtilegt að bjóða upp á nokkrar tegundir af sósu með kjötinu, s.s. hvítlaukssósu, piparrótarsósu, sinnepssósu o.fl. Hráefni 2 kg lambahryggvöðvi_ salt, pipar og hvítlaukur Meðlæti: Bakaðar kartöflur, sveppir, salat, dvergmaís Vín: Torres Gran Coronas SigurðurSvemssonogSigriður Héðinsdóttirágóðristund Norska stjórnin klofín NORSKA ríkisstjómin samþykkti í gær frumvarp sem miðar að því að reglur Evrópusambandsins (ESB) um vottun og viðskipti með kjötvöru og lifandi dýr verði lögleidd í Nor- egi, þrátt fyrir að núverandi stjórn- arflokkar séu andsnúnir þessari reglubreytingu. Fjórir af sex ráð- herrum Miðflokksins, sem stendur að stjórn Kjell Magne Bondeviks ásamt tveimur öðrum miðju-hægri- flokkum, greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Þegar gengið var frá samningn- um um Evrópskt efnahagssvæði, EES, á sínum tíma (1993) sömdu Norðmenn og íslendingar um und- anþágu frá því regluverki sem gildir á innri markaði Evrópusambands- ins um heilbrigðisvottun og við- skipti með dýr og dýraafurðir, en þessar reglur ná reyndar einnig til sjávarfangs. Ríkisstjórn norska Verkamannaflokksins sem hafði gert aðildarsamninginn við ESB sem Norðmenn felldu í þjóðarat- kvæðagreiðslu í lok árs 1994 samdi síðar við ESB um að láta þessar reglur einnig ná til Noregs, og þótt minnihlutastjórn miðflokkanna, sem tók við völdum eftir kosning- arnar í fyrra, hefði reynt að breyta þessum samningum fékk hún engu breytt og varð því að samþykkja frumvarpið, sem á tryggan meiri- hluta á Stórþinginu þótt sumir Undanþága enn í gildi fyrir ísland stjórnarliðar séu á móti eða sitji hjá. Knut Vollebæk utanríkisráð- herra sagði að stjórnin hefði árang- urslaust reynt að semja upp á nýtt um undanþágu frá gildistöku þess- ara reglna, sem eru hluti af EES- samningnum með sérstökum við- auka. Margir Norðmenn óttast að dýrasjúkdómar á borð við salmon- ellu, sem er sjaldgæf í Noregi, breiðist auðveldar út eftir að inn- flutningur kjötvöru frá öðrum Evr- ópuríkjum til landsins verður auð- veldari. Islendingar sömdu aðeins um fískafurðir Halldór Runólfsson yfirdýra- læknir sagði í samtali við Morgun- blaðið að undanþágurnar sem ís- lendingar og Norðmenn sömdu um hefðu komið til endurskoðunar 1995-1996. Þá hafi Norðmenn sam- þykkt gildistöku allra þessara ESB-gerða fyrir sitt leyti en ís- lendingar sömdu aðeins um að regl- urnar tækju gildi hér á landi um fiskafurðir. Þannig falla uppruna- legu undanþágurnar úr gildi um næstu áramót, í Noregi fyrir allar dýraafurðir en á íslandi fyrir fisk. „Þetta þýðir að Norðmenn verða að leyfa innflutning á lifandi dýrum án þess að geta tekið þau í sóttkví eins og við gerum og þeir verða líka að taka við kjöti með upprunavottorði, þ.e. vottorði frá framleiðsluland- inu,“ sagði Halldór. Með gildistöku þessara reglna fyrir vottun og viðskipti með fiskaf- urðir munu íslendingar geta flutt út fisk hvert sem er á Evrópska efna- hagssvæðið, án þess að hægt sé að hamla þau viðskipti með því að skylda íslenzkan fisk til að gangast undir vottun annars staðai' en hér heima. „Þar með er íslenzkur fiskur meðhöndlaður innan ESB eins og hann væri framleiddur í hverju öðru ESB-ríki,“ sagði Halldór. „En við fengum áframhaldandi undanþágur hvað varðar önnur dýr og dýraaf- urðir.“ Þessi undanþága gildir til 1. janú- ar árið 2000, og því kemur að því á næsta ári að semja um framhald hennar, að sögn yfirdýralæknis. datt á hjalla: Sigríður Héðinsdóttir, Guðvarður Gíslason, Guðrún Helga Arnarsdóttir, Vala Valtýsdóttir, Sigurður Sveinsson, Gísli óskarsson og Guðlaug Halldórsdóttir njóta matarins. ÍSLENSKIR CCC SAUÐFJÁRBÆNDUR Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur Vettvangur fólks f fasteignaleit - w.mbl.is/fasteignir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.