Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍTALÍUHEIMSÓKN FORSETA
Morgunblaðið/Emilía
FORSETI íslands heimsótti Borghese-listasafnið í Róm í gærmorgun.
Hér virða þau Ólafur Ragnar, Guðrún Tinna og Hervör Jónasdóttir,
eiginkona Helga Ágústssonar ráðuneytisstjóra, fyrir sér höggmynd
eftír Bernini af Davíð með slöngvivaðinn.
Barentsráðinu og Norðurheim-
skautsráðinu. Þetta væru nýjar
stofnanir þar sem Norðurlöndin
væru kjarninn, og fælu í sér sam-
vinnu þar sem Rússland, Kanada,
Bandaríkin og Evrópusambandið
koma að ákvarðanatöku og stuðl-
uðu að stöðugleika í Evrópu og að-
lögun Rússlands að lýðræðislegum
samskiptaháttum. Sagðist Olafur
Ragnar hafa lagt áherslu á mikil-
vægi þess að þjóðir í Suður-Evrópu
litu ekki á þessa uppbyggingu
svæðasambanda í norðurhluta álf-
unnar sem eitthvað sem truflaði
þróun í Evrópu heldur tækju henni
með jákvæðum hætti.
Sagði Olafur Ragnar að sér
hefði þótt það merkilegt, að í við-
ræðum sem hann átti við Luciano
Violante, forseta ítalska þingsins, í
gær hefði þingforsetinn tekið þetta
mál upp og sagt að eftir viðræður
sem hann átti við forseta finnska
Opinber heimsókn forseta fslands til Ítalíu hófst formlega í gær
Ný staða N-Evrópu
rædd á fundi forseta
Opinber heimsókn Ólafs Ragnars Gríms-
---------------7---------7----------------
sonar, forseta Islands, til Italíu hófst form-
lega á hádegi í gær þegar Oscar Luigi
Scalfaro, forseti Italíu, tók á móti Olafí
Ragnari í garðinum utan við Quirinale-höll
í Róm. Guðmundur Sv. Hermannsson
fylgdist með athöfninni.
DAGSKRÁ forseta ís-
lands og fylgdarliðs hans
í gær hófst raunar í
Borghesa-listasafninu í
Róm. Þar eru m.a. geymdar 2.000
ára gamlar höggmyndir en einnig
málverk og höggmyndir frá 17. öld,
en þá var safnið stofnað. Meðal
höggmyndanna í safninu er stytta
sem gerð var rúmum 200 árum eft-
ir Krist, en endurbætt af Bertel
Thorvaldsen þegar hann lærði
höggmyndalist í Rómaborg.
Eftir heimsóknina í safnið var
ekið til Quirinale-hallar, sem er
embættisbústaður forseta Italíu.
Móttökuathafnir í hallargarðinum
eru í mjög fosturn skorðum.
Nokkru fyrir hádegi höfðu varðlið-
ar stillt sér upp við rauðan dregil
sem lagður hafði verið eftir endi-
löngum garðinum. Var hluti varð-
anna á hestbaki og hluti þeirra bar
hljóðfæri.
Klukkan 12 ók bifreið Ítalíufor-
seta inn í garðinn. Scalfaro tók sér
stöðu á enda dregilsins og verðirn-
ir heilsuðu að hermannasið. Þrem-
ur mínútum síðar ók bílalest Ólafs
Ragnars í hlað. Þegar Borís Jeltsín
Rússlandsforseti kom í opinbera
heimsókn til Italíu í sumar notaði
hann eigin bfl af rússneskri gerð og
sá var svo stór að hann festist í
hliðinu inn í garðinn. Bfll Ólafs
Ragnars í heimsókninni er ítalskr-
ar gerðar og greinilega nettari, því
hann fór hindrunarlaust gegnum
hliðið.
Forseti íslands tók sér stöðu við
hlið Scalfaros og eftir að varðlið-
arnir höfðu heilsað honum lék
lúðrasveitin þjóðsöngva íslands og
Italíu. Að því loknu gengu forset-
arnir eftir rauða dreglinum inn í
höllina í fylgd varðliða en lúðra-
sveitin lék mars á meðan.
Scalfaro vill koma
aftur til íslands
Ólafur Ragnar og Scalfaro
ræddust við í rúman klukkutíma og
snæddu síðan hádegisverð með
dætrum sínum, Guðrúnu Tinnu
Ólafsdóttur og Mariönnu Scalfaro.
Ólafur Ragnar sagði við Morgun-
blaðið að viðræður þeirra Scalfaros
hefðu verið mjög ánægjulegar og
innihaldsríkar og gaman væri hve
heimsókn hans til íslands fyrir
tveimur áium hefði haft djúpstæð
áhrif á hann.
„Hann sagði mér að heimsóknin
hefði opnað augu hans fyrir því
hvað fámennar þjóðir geta haft
ríkuleg áhrif á gang mála í Evrópu
og víðar ef þær hafa pólitískan
þroska, traust lýðræði og ríkan
vilja til að láta að sér kveða. Hann
lýsti vilja sínum til að koma aftur
til Islands, eftir að hann yrði hætt-
ur sem forseti, til að kynnast þess-
ari þjóð betur,“ sagði Ólafur Ragn-
ar og bætti við að hann mæti hug
Scalfaros í garð Islendinga mikils,
því Italíuforseti væri einn virtasti
stjómmálamaður Evrópu á síðustu
fjörutíu árum og hefði til að bera
mildð víðsýni og ríka dómgreind.
Ólafur Ragnar sagði að það hefði
komið mjög skýrt fram hjá
Scalfaro, að samvinnuferlið í Evr-
ópu snerist ekki eingöngu um efna-
hagsmál, myntbandalag og nýja
gjaldmiðla, heldur ætti samvinna
Evrópu fyrst og fremst að vera um
samvinnu fólks, menningu og lýð-
ræðislega umræðu. Ef samvinnan
væri eingöngu embættismanna-
samstarf og aðgerðir á sviði efna-
hags- og peningamála myndi aldrei
takast að festa frið og farsæld í álf-
unni í sessi.
Ný staða
Norður-Evrópu
Forsetarnir ræddu einnig um
Rússland og vandamál sem Rúss;
land skapaði fyrir Evrópu alla. I
framhaldi af því ræddu þeir um
hina nýju stöðu í Norður-Evrópu.
Lýsti Ölafur Ragnar íyrir Scalfaro
svæðasamböndunum þremur, sem
þar hafa verið mynduð á þessum
áratug: Eystrasaltsráðinu,
AukabúnaðunÁlfelgurá Lanœrkr. 51000
Lancer 75 nestofi •oryggispuðar fvrlr okumann og farpega •Fjarstyrdar
samlæslngar »ABS hemlakerfl •Rafdrifnar rúðuvindur með slysavörn
•Rafhltun í framsætum •Rafstýrðir upphitaðlr útispeglar •Vindskeið o.m.fl.
MfTSUBISHI LANCER kostarfrákr.
1.350.000