Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 27
ÍTALÍUHEIMSÓKN FORSETA
OSCAR Luigi Scalfaro, forseti Ítalíu, bauð í gærkvöldi til kvöldverðar í Quirinale-höll í Róm til heiðurs for-
seta Islands. I ávarpi sem Olafur Ragnar Grímsson flutti þar sagði hann að Scalfaro og fjölskylda hans hefðu
eins og þúsundir Itala verið um langa hríð aðdáendur íslenskra sjávarafurða. Sagði Olafur Ragnar að
Scalfaro yrði færður úrvals íslenskur saltfiskur að gjöf í dag þegar hann opnar málverkasýningu með verk-
um Ijögurra íslenskra myndlistarmanna í Róm. Á myndinni þakkar Scalfaro Ólafi Ragnari fyrir saltfiskinn.
Marianna Scalfaro, dóttir forseta Ítalíu, og Guðrún Tinna Ólafsdóttir standa við hlið þeirra.
ÓLAFUR Ragnar Grímsson og Oscar Luigi Scalfaro ræddust við í á
aðra klukkustund í gær.
þingsins og forsætisráðherra
Finnlands hefði hann komist að
þeirri niðurstöðu að finna ætti leið-
ir til að koma á samstarfi þjóð-
þinga í Norður- og Suður-Evrópu
svo þingmenn frá suðurhlutanum
ættu þess kost að kynnast því af
eigin raun hvernig þingmenn frá
Norðurlöndunum og Eystrasalts-
löndunum hugsuðu sér þróun
Norður-Evrópu.
Olafur Ragnar fjallaði einnig um
svæðasamböndin þrjú og þýðingu
þeirra í ræðu sem hann hélt í
kvöldverðarboði Scalfaros í gær-
kvöldi og í samtali við blaðamenn
sagðist hann hafa ákveðið að leggja
áherslu á þessi mál í Italíuheim-
sókninni til að undirstrika að um
væri að ræða nýjan veruleika í
heimsmálunum í kjölfar loka kalda
stríðsins. „I viðræðunum við
Scalfaro forseta kom fram að ríkis-
stjórn Italíu hefur ákveðið að
kynna sér þessi þrjú ráð sérstak-
lega, myndun þeirra og þróun og
viðfangsefni og fylgjast rækilega
með þeim. Og ég er sannfærður
um það, að myndun þessara
þriggja ráða er mjög veigamikill
þáttur í utanríkisstefnu íslands og
stöðu Islands í Evrópu á nýrri öld,
og skapar okkur einnig tækifæri til
að koma því áleiðis hvað okkar
staða er mikilvæg. Það hefur
stundum verið sagt að þegar kalda
stríðinu lauk hafi hlutabréfin í ís-
landi fallið mikið. En ég held
einmitt að með því að draga fram
staðreyndir um myndun þessara
nýju bandalaga sé mönnum bent á
að staða Norðurlandanna er ef til
vill enn mikilvægari nú en á dögum
kalda stríðsins," sagði Ólafur
Ragnar.
Sýning á íslenskri list að
frumkvæði Italíuforseta
Scalfaro hélt í gærkvöldi veislu
til heiðurs Ólafi Ragnari. I ávarpi
sínu við það tækifæn þakkaði for-
seti Islands forseta Ítalíu fyrir hlý
orð og fógur ummæh í samúðar-
kveðju sem hann sendi við andlát
Guðrúnar Katrínar Þorbergsdótt-
ur. Sagðist Ólafur Ragnar vita að
Scalfaro þekkti af eigin raun þá
lífsreynslu að þurfa við fráfall eig-
inkonu að fóta sig á ný í verkum og
takti daglegs lífs.
Ólafur Ragnar færði Scalfaro
einnig þakkir fyrir það frumkvæði
að færa til Rómar sýningu á ís-
lenskri 20. aldar myndlist í tengsl-
um við opinberu heimsóknina. Sú
sýning er haldin í svonefndum
Englakastala, Castel Sant’Angelo,
og mun Scalfaro opna hana form-
lega í dag. Þar eru sýnd verk eftir
Jóhannes Sveinsson Kjarval,
Gunnlaug Scheving, Kristján Da-
víðsson og Helga Þorgils Friðjóns-
son, en þeir Kristján og Helgi
verða viðstaddir opnunina. Ólafur
Ragnar hittir einnig í dag að máli
nýjan forsætisráðherra ítala,
Massimo D’Alema, og ræðir við
Francesco Rutelli, borgarstjóra
Rómaborgar, og Nicolu Mancino,
forseta ítölsku öldungadeildarinn-
ar.
Samstarf
við Vatíkan-
ið vegna
ársins 2000
KARL Sigurbjörnsson biskup ís-
lands hitti í gær að máli Etcher-
garay kardínála í Vatikaninu í
Róm en hann sér um undirbúning
Vatíkansins fyrir árið 2000, sem er
heilagt ár hjá kaþólsku kirkjunni.
Lýsti Karl vilja íslensku þjóðkirkj-
unnar til að eiga samstarf við kaþ-
ólsku kirkjuna um það hvernig
þessara tímamóta verður minnst,
og kynnti fyrir kardínálanum al-
þjóðlega ráðstefnu sem áformað er
að halda árið 2000 á Islandi um trú
og vísindi.
Karl er í Róm í tengslum við op-
inbera heimsókn Ólafs Ragnars
Grímsonar forseta Islands á Italíu
og verður í fylgdarliði forsetans
þegar hann heimsækir Jóhannes
Pál páfa á mánudag.
Trú á framtíðina
Aformað er að halda alþjóðlega
ráðstefnu á Islandi árið 2000 á veg-
um kirkjunnar og Framtíðarstofn-
unar undir yfirskriftinni „Faith in
the future", sem hægt er að út-
leggja bæði sem „trú á framtíðina"
og „trú í framtíðinni“. Sagðist Karl
hafa kynnt þessa ráðstefnu fyrir
kardínálanum en þar á að fjalla
sérstaklega um trú og vísindi og
það hvernig þessir þættir geta
tengst og unnið saman tii að hlúa
að lífinu í framtíðinni. Akveðið hef-
ur verið að kalla til samstarfs Al-
kirkjuráðið og önnur alþjóðleg
samtök sem þjóðkirkjan á aðild að,
skóla, vísindastofnanir og fulltrúa
annarra trúarbragða.
„Við teljum að við Islendingar
getum á þessu merkilega ári safn-
að saman fólki sem hefur til að
bera þekkingu og innsæi til að
fjalla um þetta mál. Það eru að vísu
ýmsir að hugsa á svipuðum línum
en við höfum þá sérstöðu að vera
friðsamt lítið land sem á ekki í
stríði við neinn,“ sagði Karl.
Carisma 1.6 lítra, 100 hestöfl og 1.8 lítra CDI, 125 hestöfl
•örygglspúðar fyrir ökumann og farpega »ABS hemlakerfi
•Fjarstýrðar samlæsingar •Rafdrifnar rúðuvindur með slysavörn
•Rafstýrðlr upphitaðir útispeglar *Rafhltun í framsætum o.m.fl.
MÍTSUEUSHl CARISMA kosfcrfrakr.
Calant 2.0 lltra, 136 hestöfl og 2.5 lítra, 163 hestöfl •öryggispúðar
fyrirökumann og farþega »ABS hemlakerfi •Fjarstýrðar samlæsingæ
•Rafdrifnar rúðuvindur með slysavörn •Rafstýrðlr upphitaðlr
útlspeglar •Rafhltuð sætl •15" álfelgur •Skrlðstllli o.m.fl.
MÍTSUBISHIGALANT kostarfra kr.
1.565.000 ■ 2.055.000
Aukabúnaðun Alfelgurá Carisma kr. 62000