Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 33

Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 33 Mike Mower heldur fyrirlestur og tónleika ÞVERFLAUTULEIKARINN Mike Mower og píanóleikarinn Tim Carey halda fyrirlestur og tónleika á morgun, laugardag, kl. 14, í Tónastöðinni Skipholti 50d. Á fyrirlestrinum verður fjallað um nótnaútgáfu Mikes, Itchy Fingers Publication, en útgáfan gefur eingöngu út tónlist Mikes fyrir þverflautu, saxófón og klar- inett. Með þessari útgáfu reynir hann að brúa bilið milli ólíkra stíltegunda í tónlist, segir í fréttatilkynningu. Djassklúbburinn Múlinn Sunnudagskvöld, kl. 22, leikur Mike Mower djass í Múlanum, ásamt Óskari Guðjónssyni saxa- fónleikara, Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara, Matthíasi M.D. Hemstock trommuleikara og Jóni Rafnssyni kontrabassaleikara. Tónleikar í Norræna húsinu Tónleikar verða í Norræna hús- inu mánudagskvöldið 9. nóvember kl. 20.30. Þar leikur Mike Mower, ásamt píanóleikaranum Tim Car- ey, tónlist eftir sjálfan sig, Gers- hwin, Poulanc ofl. Aðgangur er ókeypis. Ennfremur segir í kynningu, að Mike Mower sé vel þekktur flautuleikari og leiki auk þess á saxófón og klarinett. Hann er for- sprakki djass-saxófónkvartettsins Itchy Fingers. Kvartettinn komið fram á stærri djasshátíðum og tónlistarhúsum í meira en 40 lönd- um og unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna og gefíð út fjórar geislaplötur. Mike Mower hefur komið fram og leikið inn á plötur með mörgum þekktum djass- og rokkhljómlist- armönnum. Má þar nefna Gil Evans, Tinu Turner, Floru Purim & Airto Moreira, Paul Weller, Ryuchi Sakamoto og Björk Guð- mundsdóttur. 25 ár síðan Söngskólinn í Reykjavík hóf starfsemi sína ÞESSIR söngvarar munu syngja við messur borgarbúa á sunnudag. Morgunblaðið/Kristinn Asdís Kalm- an sýnir í Frakklandi NU stendur yfir sýning á olíumál- verkum eftir Ásdísi Kalman í húsa- kynnum Gelmer-Iceland Seafood, Boulogne sur Mer í Frakklandi. Þetta er fyrsta málverkasýningin sem fyrirtækið heldur, en fyrirhug- aðar eru fleiri sýningar, þar sem fyrirtækið hyggst kynna íslenska / franska listamenn fyrir breiðum hópi viðskiptavina og starfsfólki fyrirtækisins, segir í fréttatilkynn- ingu. Ásdís Kalman stundaði listnám við Myndlistaskólann í Reykjavík 1984-86 og Myndlista- og handíða- skóla íslands 1984-88 og hefur sótt námskeið í Vence í Suður-Frakk- landi. Hún hefur haldið einkasýningu í Ásmundarsal, Bókakaffí og tekið þátt í samsýningum í Frakklandi og á Islandi. Verkin eru flest unnin á síðast- liðnu ári en nokkur verk eru eldri. ---------------- Minningar- fyrirlestur Jdns Sig- urðssonar DR. Wendy Childs mun halda Minningarfyi-irlestur Jóns Sigurðs- sonar á vegum Sagnfræðistofnunar Háskóla íslands í Hátíðarsal í Aðal- byggingu laugardaginn 7. nóvember kl. 14. Fyiárlestur sinn nefnir hún: „Unto the costes colde“: English relations with Iceland in the fifteenth century." Dr. Childs er helsti sérfræðingur Breta um ensk-íslensk samskipti á 15. öld, á „ensku öldinni“ sem pró- fessor Björn Þorsteinsson nefndi svo. Hún er doktor frá Cambridge og „reader" í miðaldafræði við há- skólann í Leeds. Meðal rita Wendy Childs eru „Anglo-Castilian Trade in Later Middle Ages, (Manchester UP, 1978) og „Commerce and Tra- de“ í New Cambridge Medieval Hi- story, VII, c. 1415 - c. 1500 (1998). Hún hefur birt fjölda greina í tíma- ritum og bókum. ------♦-♦-♦----- ■ SAFN gyðinga í New York sýn ir nú verk eftir listamanninn Ben Shahn, í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðinguhans. Verkin eru fengin úr einkasöfnum víða uin heim, m.a. frá Japan og úr Páfagarði, en 22 ár eru liðin frá því að verk Shahns voru síð- ast sýnd. Verkin á sýningunni eru frá 1936-1965 og er aðalá- herslan lögð á verk frá eftir stríðsárunum þar sem hann sæk- ir yrkisefnið í biblíuna og goð- og helgisagnir. I TILEFNI af því að 25 ár eru liðin siðan Söngskólinn í Reykja- vík hóf starfsemi sína, munu nemendur skólans syngja ein- söng og dúetta á sunnudaginn, við guðsþjónustur í öllum kirkj- um Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og vestra í Reykjavík, auk Fríkirkjunnar. Sigurlaug Knudsen, sópran, syngur einsöng við guðsþjónustu í Arbæjarkirkju. Guðbjörg R. Tryggvadóttir og Lovísa Sigfús- dóttir, sópran, syngja einsöng í Fella- og Hólakirkju. í Grafar- vogskirkju syngur Margrét Árnadóttir, sópran, og í Selja- kirkju Soffía Stefánsdóttir, mezzósópran. Hjálmar P. Péturs- Kirkju- söngur á afmælis- ári son, bassi, syngur við guðsþjón- ustu sem útvarpað verður frá Breiðholtskirkju og Sigrún Pálmadóttir, sópran, syngur ein- söng í Hallgrímskirkju. I Lang- holtskirkju syngja þær Guðríður Þ. Gísladóttir, sópran, og María Mjöll Jónsdóttir, mezzósópran, dúetta. Þóra Gylfadóttir, sópran, syngur í Áskirkju og Jónas Guð- mundsson, tenór, í Dómkirkj- unni. Helga Kolbeinsdóttir, sópr- an, verður einsöngvari í Bústaða- kirkju og Þóra Björnsdóttir, sópran, í Neskirkju. Guðbjörg R. Þórisdóttir, sópran, og Sigurlaug Jóna Hannesdóttir, mezzósópran, leiða safnaðarsöng í Laugarnes- kirkju og syngja jafnframt dúett. í Háteigskirkju syngur Hrólfur Sæmundsson, baríton, Elísa Sig- ríður Vilbergsdóttir, sópran, í Grensáskirkju og Brynhildur Björnsdóttir, sópran, í Fríkirkj- unni. Námskeið um trúarlíf í sögu og samtíð ENDURMENNTUNARSTOFNU N Háskóla Islands gengst fyrir nám- skeiðinu „Leit og svör: Um trúarlíf í sögu og samtíð“ og hefst það mið- vikudagskvöldið 11. nóvember og verður fjögur skipti. Leiðbeinandi verður dr. theol. Sigurbjörn Einai-s- son, fyrrverandi biskup Islands. I fréttatilkynningu segir: „Trú er gildur og áberandi þáttur í mannlegu lífi fyrr og síðar. Hvers hafa menn leitað í bæn sinni og trúarathöfnum og hvaða svör hafa menn fundið við þeim spurningum, sem lágu þeim á hjarta? Hvað má læra nú á tímum af því, sem menn hafa talið sig reyna á þessu sviði?“ Um þetta verður fjallað í þessum fjórum erindum út frá kristnum heimildum og viðhorfum. Sköllótta söngkonan í uppfærslu Verzlinga LISTAFÉLAG Verzlunarskóla ís- lands frumsýnh' leikritið Sköllótta söngkonan, (La Cantatrice Chauve), eftir Eugene Ionesco, í hátíðarsal skólans, í kvöld kl. 20. Leikritið er i þýðingu Bjarna Benediktssonar. Leikstjóri er Guðmundur Ingi Þoi'valdsson, en hann er nýútskrifað- ur úr leiklistarskóla Islands, og er þetta fyrsta verkið sem hann leik- stýrir. Að öðru leyti sjá nemendur skólans um uppsetningu verksins, Leikarar eru úr röðum Verzlinga. Leikritið er skrifað árið 1950, á hápunkti „absurdismans". Um er að ræða kómíska ádeilu á leiðinlegt, til- breytingalaust heimilislíf þar sem fólk þekkist varla innan sömu fjöl- skyldu. Önnur sýning verður laugardag- inn 7. nóvember. Sýnt verður fímmtudaginn 12., fóstudaginn 13. og laugardaginn 14. nóvember. -------♦-♦-♦------ Nýjar bækur • MEÐ framtíðina að vopni - Saga Iðnn emahreyfingarinnar í 100 ár er eftir Helga Guðmundsson trésmið og rithöf- und, en hann var sjálfur á vett- vangi um tíma, varaformaður og formaður Iðn- nemasambands- ins, í Iðnfræðslu- ráði, síðar í for- ystusveit bygg- ingarmanna, blaðamaður og ritstjóri. Þjóðvilj- ans. Bókin fjallar um samtök iðn- nema, verkmenntun og skoðana- skipti. Þetta er m.a. saga margra kynslóða iðnaðarmanna, sem á námsárunum hafa reynt að hafa áhrif á þá sem með völdin fóru á hverjum tíma, ekki síst á Alþingi, einnig saga af lífskjörum og fjöl- þættu félagslegu bardúsi iðnnema, hvað þeir sögðu, um hvað þeir skrifuðu og fluttu einlægt sömu rökin: ef menntun okkar er van- rækt, mun þjóðinni illa farnast, seg- ir í fréttatilkynningu. Sumarliði Isleifsson, járniðnaðar- maður og sagnfræðingur, er myndaritstjóri verksins. Útgefandi er Mál og mynd. Bók- in er 316 bls. í stóru broti með um 250 ljósmyndum. Prentun: Prent- smiðjan Viðey. Bókband: Flatey. Verð: 6.00 kr -------♦-♦-♦------ Nýjar bækur • GESTABOÐ Babettu er eftir Karen Blixen í þýðingu Ulfs Hjörv- ar sem einnig ritar eftirmála. Prófastsdætur tvær í litlu þorpi í Noregi ákveða að halda minningar- hátíð um föður sinn. Til veislunn- ar koma dyggir fylgismenn pró- fastsins, þjakaðir af trúarsetningum Og lífsleiða. Ba- Karen bette, frönsk elda- Biixen buska þeirra systra, annast veisluna og tekst með töfrum matseldar sinn- ar að kalla fram mildi og gleði í þrúguðum sálum veislugesta. í kynningu segir: „Gestaboð Ba- bette er eitthvert mesta meistara- verk Karenar Blixen. Hún lætur sér ekki eingöngu nægja að segja góða sögu; hún teflir saman á listi- legan hátt andstæðum öflum tilver- unnar, en fellir auk þess inn í frá- sögnina þungar örlagaspurningar, sem menn leita sífellt svara við.“ Útgefandi er Bjartur. Bókin er 180 bls., prentuð íprentsmiðjunni Gutenberg. Kápugerð annaðist Snæ- bjöm Arngrímsson. Verð 2.980 kr. Ráðabrugg tvíburanna KVIKMYMHR Bfóhöllin, Kringlnbíó FORELDRAGILDRAN „THE PARENT TRAP“ ++ Leikstjóri: Nancy Meyer. Aðalhlut- verk: Dennis Quaid, Natasha Ric- hardson, Lindsay Lohan. Wait Disn- ey. 1998. SVOKALLAÐAR strákamynd- ir voru mjög í tísku fyrir nokkrum árum, komu líklega í kjölfar „St- and By Me“. Þær sögðu frá uppá- tækjum drengja og fengu stúlkur litlu ráðið í þeim. Síðan hafa nokkrar stelpumyndir litið dags- ins ljós og notið vinsælda eins og „My Girl“ þar sem hlutverkunum er snúið við og strákar fá ekki að koma nærri nema í aukahlutverk- um. Rómantíska gamanmyndin For- eldragildran eða „The Pai'ent Trap“ er af þeim meiði. Hún er endurgerð myndai' frá árinu 1961 og segir frá tvíburasystrum sem skildar voru að í æsku þegar for- eldi'ar þehra hættu saman en kynnast aftur fyrir tilviljun þegar þær eru tólf ára og einsetja sér að koma foreldrum sínum saman svo úr verði ein fjölskylda á ný. Hér er á ferðihni mynd sem ætl- uð er fyrir alla fjölskylduna og blandar saman gamni og alvöru í hæfílegum hlutfóllum. Dennis Qu- aid og Natasha Richardson em í hlutverkum foreldranna og Lindsay Lohan fer með hlutverk beggja tví- buranna. Myndin er reyndar full- löng, tveir tímar, sem gerir að verk- um að teygist óþarflega mikið á fi’á- sögninni og hún er of létt gaman til þess að skýra þessa furðulegu ráða- gerð skynsamra foreldra að taka einfaldlega til sín hvort sinn tvíbur- ann eftir eitthvert minniháttar rifr- ildi. Þá er ákveðin væmni fyrir hendi en á móti kemur ansi skemmtileg verðandi sljúpmóðh', sem er skass mikið. Helsti kosturinn við myndina er unga leikkonan Lohan sem er hnellin í tvíburahlutverkunum, annars vegar sem amerísk sveita- stúlka og hins vegar sérlega fáguð Lundúnamær. Hún fer vel með hvoru tveggja og tæknilega er ekki hægt að sjá að um sömu ungu leikkonuna er að ræða. Arnaldur Indriðason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.