Morgunblaðið - 06.11.1998, Síða 34

Morgunblaðið - 06.11.1998, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Fræðibækur, orðsnilld og gamansögur frá Hólum PAÐ kennir ýmissa grasa í bókaút- gáfu Hóla nú fyrir jólin. Gísli Jónsson íslenskufræðingur sendii- frá sér bók- ina Kappar og kvenskörungar - Ævi- „I stuttum, kjarn- miklum og afar hnitmiðuðum texta dregur Gísli upp ógleyman- lega mynd af 49 fommönnum, konum og körl- um,“ segir í kynningu. I eftir- mála eru tekin saman víðfræg vísdómsorð fom- manna. Fjöldi teikninga Krist- ins G. Jóhanns- sonar prýðir bók- ina. Einnig verð- ur sagan um Tit- anic-slysið, Sú nótt gleymist aldrei, eftir Walt- er Lord, endurút- gefin í þýðingu Gísla. Bók um boxið eftir Bubba Morthens og Sveiri Agn- arsson er ein af bókunum sem Hólar gefa út. I bókinni verður fjallað um Muhammad Ali, Prinsinn, Mike Ty- son, Holyfield og Oscar de la Hoya. Sögð er saga boxins frá upphafi, regl- ur íþróttarinnai- útskýrðar, fjallað um fordóma í boxinu og spillingu. Gunnar Dal hefur valið 200 fleygar hugsanir og vísdóm Einars Bene- diktssonar í bókinni Orðsnilld. Fleyg orð úr ljóðum Einars Benediktsson- ar. Bjami Stefán Konráðsson hefur safnað öðm sinni saman skagfirskum kveðskap í Skagfirsk skemmtiljóð II. Bestu barnabrandaramir - brjálað fjör er þriðja bindi bókaraðar er börnin taka saman. Hér er raðað saman gamansögum eins og bömin vilja hafa þær, segir í kynningu frá útgefanda. Hæstvirtur forseti. Gamansögur af íslenskum alþingismönnum em eftir Guðjón Inga Eiríksson og Jón Hjaltason. Hér segir frá ótal alþing- ismönnum, lífs og liðnum, stráka- pörum þeirra, mistökum og glæsi- stundum. þættir fommanna. Einar Benediktsson Frá Guðspeki- félaginu l/igólfsstræti 22 Askriftarsími Ganglera er 896-2070 Kynning á stefnu og starfi Guðspekifélagsins laugardaginn 7. nóvember kl. 15.00 í húsi félagsins í Ingólfsstræti 22. Guðspekifélagið er 122 ára félagsskapur, sem helgar sig andlegri iðkun og fræðslu. Félgið byggir á skoðana og trúfrelsi ásamt hugsjóninni um bræðralag alls mannkyns. Starfsemi félagsins fer fram yfir vetrartimann og felst m.a. í opinberum erindum, opnu húsi, námskeiðahaldi, námi og iðkun. Einnig býður bókaþjónusta þess mikið úrval sölubóka og bókasafnið bækur til útláns fyrir félaga. (slandsdeild félagsins býður áhugafólki um andleg mál að kynnast starfi félagsins, sem er öllum opið án endurgjalds. Einkunarorð félagsins eru: „Engin trúarbrögð eru sannleikanum æðri“. Tvær sýn- ingar í Galleríi Listakoti CHARLOTTA R. Magnúsdóttir leirlistarkona opnaði sína fyrstu einkasýningu í Galleríi Listakoti í gær og nefnir hana „Lítið ævintýri". Um er að ræða kertastjaka og frjáls form. Charlotta útski-ifaðist úr leirlista- deild MHÍ vorið 1991 og fór sem gestanemi til Danmerkur í Skolen For Bmgskunst 1990. Hún hefur starfað með Galleríi Listakoti frá stofnun þess 1993 og tekið þátt í öll- um samsýningum þar. I fréttatilkynningu segir að verk- in á sýningunni minni á íbúa kon- ungshallar í öllum sínum fjölbreyti- legu hlutverkum. Á efri hæð gallerísins opnar Hrönn Vilhelmsdóttir textflsýningu laugardaginn 7. nóvember kl. 16, sem hún nefnir Líttu upp vinur! Þar verða til sýnis textflverk, bæði úti og inni, þrykkt undir áhrifum frá Hall- grímskirkju, sem er rétt við vinnu- stofu Hrannar, í Textflkjallaranum, segir í fréttatilkynningu. Ennfrem- ur segir: „Nábýlið við kirkjuna hef- ur haft þýðingu fýrir listakonuna í leik og stai-fi. Kirkjan hefur útgeisl- un. Hvort það er arkitektúrinn, stofnunin sem slík eða andi Guðs sem hjálpar Hallgrímskirkju að senda út áhrifamátt sinn til ná- grannanna þarf hver og einn að svara fyrir sig. Mikið atriði er að ná athyglinni. Þess vegna er hún reist hátt. Til að fólk líti upp úr sínum daglegu störfum." Sýningunum lýkur laugardaginn 28. nóvember og er opin alla daga frá kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-16. BRÚÐUR Brúðubflsins og fólkið sem ljær þeim líf, Sigrún Erla Sigurðardóttir, Hörður Svansson, Helga Steffensen og leikstjórinn Sigrún Edda Björnsdóttir. Samantekt úr leikþáttum Brúðubílsins í TILEFNI þess að Leikbrúðuland á 30 ára af- mæli um þessar mundir, mun Brúðubfllinn sýna samantekt úr ýmsum leikþáttum sunnudaginn 8. nóvember kl. 15. Sýnt verður á Fríkirkjuvegi 11 A fjölunum verða margar brúður af ýmsum stærðum og gerðum. M.a. Lilli, Dúskur, Blúnda, Kolkrabbinn, Rostungurinn o.fl. Það verður leik- ið, sungið og sagðar sögur og sýnt hvernig ein- faldar brúður eru búnar til. Miðaverð er 600 kr. Af snyrtingu heilans TOM.IST Tjarnarbíó ERKITÍÐ ‘98 Þorkell Sigurbjörnsson: Fípur og Leikar; Finnbogi Pétursson: Óður; Atli Heimir Sveinsson: The Cage; Kjartan Ólafsson: Samantekt: Þrír heimar í einum; Lárus Grímsson: Vetrarrómantík 2; Magnús Blöndal Jóhannsson: Samstirni. Flutt af tón- bandi og myndbandi. Tjamarbíói, sunnudaginn 1. nóvember kl. 20.30. ÞRIÐJU og síðustu tónleikar ErkiTíðar ‘98 fóru fram undir fyrir- sögninni Multimedia / Tvílist við öllu dræmari aðsókn en á undan- gengnum tónleikum tölvu- og raf- tónlistarhátíðarinnar. Að klappa fyrir hátölurum höfðar sem von er alltaf minna til tónleikagesta en fyrir lifandi flytjendum. Hvort glansinn af „margmiðluninni", sem var hálfgert lausnarorð í framsæk- inni flutningslist fyrir einum til tveim áratugum, sé þar á ofan tek- inn að dofna í augum almennings hér á kröfumeiri „öld augans“, er ekki gott að segja, en miðað við hvað á oss stendur mikil orrahríð ginnandi afþreyingatilboða í dag, þá er ekki nema von að margir haldi sér í hæfilegri fjarlægð frá hlutfallslega meinlátum heimi tví- listarinnar, sem - miðað við verkin þrjú á þessum tónleikum - hefur brugðizt við samkeppni skemmti- iðnaðar með enn harðari asketisma. Nema þá ef vera kynni, að fagur- f Á BIODROGA jurtasnyrtivörur fræðin að baki sé 40 árum á eftir nútímanum og því í raun gamal- dags. Alltjent sló það mann hvað annað verkið á dagskrá, hið 12 mín. langa Oður Finnboga Péturssonar fyrir myndband og tónband (frumfl. í Sjónvarpinu 1/1992), virt- ist tilheyra heimi sem maður hélt að væri löngu liðinn, eða frá kring- um 1960-65. Þar skiptust á í sífellu allt upp í 6 mismunandi örstutt myndskeið af skýjum, hraunglóð, brimi, etc., hvert þeirra með til- heyrandi ágengum rafskruðning- um, út frá form-formúlunni 1-2-3-4- 5-6-5-4-3-2-1. Kvað verkið að sögn tónleikaskrár vera „óður til íslands og íslenzkrar náttúru.“ Þetta var að framsetningarmáta ekta „próvó- list“; að mínu viti eðlisskyldari áð- urnefndri ögurstund ögrana í lista- sögu Vesturlanda en nokkru öðru, nema ef vera skyldi eftirminnilegu heilaþvottaatriði Harrys Palmer spæjara í njósnamyndinni The Ipcress File (1965). Undirritað fórnardýr umrædds áreitis var ekki lengi að komast á þá einlægu skoð- un, að boðskapnum hefði vel mátt tvímiðla á tveim mínútum í stað tólf, og þakkaði sínum sæla fyrir að vera ekki staddur á barmi geðklofa. En - óhófleg lengdin virkaði, sem var eflaust tilgangurinn. Verkið sat eftir í manni, líkt og sársaukafull líkamshirting úr bemsku. í samanburði voru hin tvflistar- verkin tvö mun þægilegri íyrir sjón, heyrn og geðheilsu. Myndhliðin í Samantekt Kjartans Ólafssonar var m.a.s. víða falleg, með mismikið sól- aríseruðum skotum úr heimilíslífi höfundar (dagstofumyndir, KÓ við hljómborðið, tvær smáhnætlur við ballettæfingar o.fl.), og tónhliðin, sem skv. tónleikaskrá var að grunnefniviði unnin úr tónsmíðum höfundar 1986-94, reyndist hvergi yfirgengilega skeinuhætt hlust- himnum. Hafi verkinu, eins og greint var frá í tónleikaskrá, verið hafnað af Ríkissjónvarpinu 1997 „sökum framúrstefnu“, mætti vissu- lega spyrja á hvaða forsendum Óð- ur Finnboga hafi fengið inni á sama vettvangi fimm árum fyrr. Um seinna tvflistaverkið, Samstirni eftir Magnús Blöndal Jóhannesson, eitt fyrsta og kunnasta „hreina“ raftón- verk landsins, fannst ekki aukatekið orð í tónleikaskrá, en það mun samið 1961 eða 1962 og víða þekkt sunnar í álfu undir nafninu Con- stellation. Myndbandshliðina gerðu Gunnar Þór Víglundsson, Þórdís Guðmundsdóttir og Kristján Björn Þórðarson ekki fyrr en aldarfjórð- ungi síðar eða 1996, en þrátt fyrir tímafjarlægðina féll hún ótrúlega vel að tónefninu; hófst og endaði eins og lítill ljósdepill á myrku tjaldi sem iðaði í rið við hin ýmsu sínus- öldumynztur Magnúsar og tók þar á milli myndbreytingum er leiddu hugann að innri geim smásjárver- aldar, enda þótt titill verksins lyti að þeim ytri. Þótt tvflistargerðin sé ekki nema tveggja ára, er hún þeg- ar orðin sígild, enda að virðist fast- ur liður á hverri ErkiTíð. Gegnir furðu hvað verkið heldur enn vel at- hygli á þessum ofmettuðu afþrey- ingartímum miðað við knappan, nærfellt naktan, hljóðheim, sem of- ursparneytin öldusjáarleg myndút- færslan fellur að sem flís við rass. Myndlausu rafverk tónleikanna voru Fípur (1971) og Leikar (1959) eftir Þorkel Sigurbjörnsson, The Cage (1969) eftir Atla Heimi Sveinsson og nýjasta verkið, Vetr- arrómantík 2 eftir Lárus Halldór Grímsson. Gömlu verkin virtust mjög böm síns tíma og tækni, þar sem steinaldaramboð á við skæri voru enn ómissandi við úrvinnslu, og rifjuðust hér upp ýmis effekta- hljóð, sem nógu gamlir hlustendur hefðu auðveldlega getað tengt við ýmsa fantasíueffekta frá gullaldar- árum útvarpsleikrita um t.a.m. fljúgandi furðuhluti. Hljóðumhverf- ið í verki Atla var hvassara en í stuttu verkum Þorkels, og fann þar margur áheyrandi í fyrsta en því miður ekki síðasta sldpti til í eyrum, enda magnaraverðir býsna ósparir á desíbelin. Eftir á að hyggja virtust fyrst- nefndu þrjú verkin fremur hugsuð til að ögra en heilla, ekki sízt „Búr- ið“ hans Atla Heimis sem að hluta vísar til framúrstefnutónspekings- ins John Cage, og að viti undirritaðs órjúfanlega njörvað við tilurðartím- ann. Hin dreymandi Vetrarróman- tík 2 Lárusar bar sem von var minna svipmót af liðinni tízku. Höf- undur virtist þar hafa lagt meira af sjálfum sér í verkið, enda stóð það í samanburði upp úr sem hlutfalls- lega sjálfstæðari og ótímabundnari tónsmíð. Það samsvaraði titli sínum vel og var ófeimið við að bæta ver- aldlegum hljóðfærahljóðum, og jafnvel púlshrynjandi, við hrein- ræktuðu rafhljóðin. Burtséð frá styrkleikastillingu á rafverkatón- leikunum síðustu, sem oft var óþarf- lega nærri kvalaþröskuldi og bar vott um sérkennilega þungarokk- mengað hugarfar, má í heild segja að þessi ErkiTíð hafi heppnazt vel. Verkavalið spannaði allmikla breidd miðað við tiltölulega þröngan ramma, þó að eiginleg margmiðlun- arverk væru að vísu furðu fá og bentu ekki til mikils hérlends áhuga á greininni nú um stundir. Spurning er hvort stefna beri að því að taka með fáein erlend verk, þó ekki væri nema til viðmiðunar, og ef marka má algera fjarveru kvenhöfunda, virðist sízt vanþörf á að hvetja tón- skáldkonur landsins til dáða í þess- um sérhæfðu rafgreinum lista- drottningar. Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.