Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 44

Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 44
44 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Hulda Dóra Jakobsdóttir var fædd í Reykjavík 21. október 1911. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 31. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Sesselja Armanns- dóttir, húsmóðir í Reykjavík, og Jakob Guðjón Bjarnason, vélstjóri. Þau eign- uðust fimm börn; Huldu, Gunnar, f. 15. janúar 1913, d. 9. aprfl 1928, Ármann, f. 2. ágúst 1914, lögfræðing, Halldór Bjarna, f. 1. janúar 1917, fram- kvæmdastjóra. Hulda gekk í Miðbæjarskólann í Reykjavík. Hún lauk gagn- fræðaprófi 1928 og stúdentsprófi 1931 frá Menntaskólanum í Reykjavik og cand. phil.-prófi frá Háskóla íslands 1932. Hún starf- aði sem gjaldkeri og erlendur bréfritari hjá Efnagerð Reykja- víkur frá 1932 til 1940. Hulda giftist 16. aprfl 1938, Finnboga Rúti Valdemarssyni, f. 24. september 1906 að Fremri- Fyrir tveimur dögum báru bama- börn Huldu Jakobsdóttur kistu hennar út úr borðstofunni á Mar- bakka eftir húskveðju, sem þar fór fram. Það var við hæfi, að kveðju- stund hennar og nánustu fjölskyldu hennar færi fram þar sem hún ung að árum hóf búskap ásamt eigin- manni sínum og ól upp börn þeirra. Eftir því, sem börnunum fjölgaði var bætt við húsakynnin. Um alda- mótin verða liðin sextíu ár frá því að Hulda og Finnbogi Rútur Valde- marsson fluttust búferlum að Mar- bakka, sem stendur á sjávarkambi við Fossvog. Upp frá því var Marbakki mið- punkturinn í lífi þeirra. En ekki ein- ungis í lífi þeirra Rúts heldur líka barna þeirra, sem festu þar rætur, og síðar barnabarna og tengda- barna. Og ég fæ ekki betur séð en það sé einnig að gerast með barna- barnaböm þeirra. Þegar Hulda Jakobsdóttir yfirgaf Marbakka í síðasta sinn skildi hún eftir sig mikla sögu - og stormasama í margvíslegum skilningi. Hlutur þein-a Marbakkahjóna i uppbyggingu Kópavogs er mikill en verður ekki rakinn hér. Það er nán- ast ómögulegt að segja til um hver hlutur þeirra hvors um sig var. Mörgum árum seinna, þegar Hulda fór í framboð til bæjarstjórnar Kópavogs, þar sem hún sat, eitt kjörtímabil, reyndi ég að komast að því í samtölum við þau hvernig verkaskiptingin hefði verið og væri þeirra í milli. Mér þótti það forvitni- legt. Handbragðið var einstakt. En um það sögðu þau ekki orð. Þegar Hulda Jakobsdóttir var kjörin bæjarstjóri í Kópavogi 1957 og tók við því starfi af eiginmanni sínum varð hún fyrst íslenzkra kvenna til þess að gegna slíku emb- ætti. Hún var einn af brautryðjend- unum í baráttu kvenna fyrir aukn- um áhrifum í stjórnmálum. Og hélt fram hlut kvenna. Sem formaður byggingarnefndar Kópavogskirkju fékk hún Gerði Helgadóttur til þess að gera steinda glugga í kirkjuna. Sem bæjarstjóri fékk hún Högnu Sigurðardóttur, arkitekt, til þess að teikna sundlaugina í Kópavogi, sem stendur á Rútstúni og vekur athygli fyrir glæsilegan arkitektúr. I stai-fi bæjarstjóra var hún dug- mikil framkvæmdakona, sem gust- aði af en aldrei var orð á því haft hve mikið hún lagði á sig til þess að gera þeim, sem minna máttu sín líf- ið bærilegra. Sjálfur fylgdist ég með umhyggju hennar alla tíð fyrir afskiptum einsetumanni í vesturbæ Kópavogs. Fyrir nokkrum mánuð- um heyrði ein dætra hennar í fyrsta sinn frásögn æskuvinkonu sinnar af Arnardal við Skutuls- Qörð, d. 19. mars 1989, alþingismanni og bankastjóra. Foreldr- ar hans voru Valde- mar Jónsson og Elín Hannibalsdóttir. Hulda og Finnbogi Rútur eignuðust fimm börn. Þau eru: Elín, f. 12. janúar 1937, gift Sveini Hauk Valdi- marssyni, Gunnar, f. 15. júní 1938, d. 22. febrúar 1993, Guðrún, f. 21. september 1940, Sigrún, f. 22. apríl 1943, gift Styrmi Gunnarssyni, Hulda, f. 13. mars 1948, gift Smára Sigurðssyni. Finnbogi Rútur átti eina dóttur fyrir hjónaband, Auði, f. 12. mars 1928. Hulda og Finnbogi Rútur hófu búskap í Reykjavík en fluttu að Marbakka í Kópavogi 10. maí 1940. Hulda var einn af stofnendum Framfarafélagsins Kópavogs árið 1945 og var upp frá því tengd sögu og uppbyggingu Kópavogs. Hún tók við starfi bæjarstjóra 1957. Hún var fyrsta konan á Islandi sem kjörinn var í stöðu bæjarstjóra. Hún gegndi því starfi til ársins því hvernig móðir hennar hafði haft úrslitaáhrif á velferð og farsæld fjölskyldu hennar. Hlýhugur gam- alla Kópavogsbúa í hennar garð fór ekki fram hjá mér, eftir að leiðir mínar lágu í það bæjarfélag. Þetta var sú Hulda Jakobsdóttir, sem annað fólk sá. Mestu afrekin í lífi hennar voru hins vegar unnin annars staðar. Líf hennar var ekki dans á rós- um. Hún var ung, glæsileg, vel gefin og falleg, þegar hún lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík vorið 1931. Hún var framsækin og sjálfstæð kona, og hugði á há- skólanám, sem ekki var algengt hjá konum á þeim tíma. Eftir árs nám í Háskóla Islands varð hún að hætta og fara að vinna. Vorið 1933 fórst togarinn Skúli fógeti skammt fyrir utan Grindavík. Meðal þeirra, sem fórust voru Jakob faðir hennar og Gunnar bróðir hennar. Hulda hlaut að taka þátt í að vinna fyrir fjöl- skyldunni. Finnbogi Rútur er sagður hafa verið með glæsilegri ungum mönn- um í Reykjavík á sinni tíð, fluggáf- aður, hafði sótt háskóla í nokkrum helztu borgum Evrópu, og átti skemmtilega vini í hópi stjórnmála- manna, skálda og listamanna. En breyzkleiki hans fór ekki fram hjá neinum. Ég held, að ást Huldu á Finnboga Rút hafi verið jafn sterk, þegar hann dó og hún var þegar þau felldu hugi saman. Hún var kjölfestan í lífi hans. Það var hennar verk ekki sízt, að hæfileikar hans fengu notið sín. Hún var sá bak- hjarl, sem aldrei brást og tók því, sem að höndum bar með aðdáunar- verðri þrautseigju. Án hennar hefði saga ritstjórans, bæjarstjórans, bankastjórans og alþingismannsins orðið önnur. Lífið á Marbakka var fjölskrúð- ugt á þessum árum. Börn þeirra voru orðin fimm, fjórar dætur og einn sonur. Búskaparannir voru töluverðar, opinber umsvif þeirra hjóna mikil og þangað lögðu leið sína ýmsir mestu andans menn samtímans. En þeir fóru ekki alltaf með friði. Sum stórmenni íslenzkra bókmennta skipuðu ekki endilega sama sess í huga barnanna á Mar- bakka og hjá almenningi, sem hreifst af verkum þeirra. Þetta voru ekki áfallalaus ár, en Hulda stóð þau áföll af sér, enda einhver mesti klettur, sem ég hef kynnzt um dagana. Þegar mestu átökin voru að baki, bæði á vett- vangi stjórnmálanna og í einkalífi og börnin að komast á legg varð Hulda og fjölskylda hennar fyrir al- varlegu áfalli, þegar einkasonur þeirra Rúts varð sjúkur á geði. 1962. Hún var kjörinn bæjarfull- trúi Samtaka frjálslyndra og vinstri manna 1970 og sat í bæj- arstjórn sem kjörinn fulltrúi í eitt kjörtímabil. Hún var formaður skólanefndar Kópavogshrepps frá 1945-1956 og Fræðsluráðs Kópavogskaupstaðar frá 1956- 1962. Hún var stofnandi og for- maður Kvenfélags Kópavogs frá 1952-1954. Hún var fyrsti for- maður sóknarnefndar Kópa- vogsprestakalls og átti sæti í byggingarnefnd Kópavogskirkju. Hún fékk Gerði Helgadóttur til að teikna steinda glugga í Kópa- vogskirkju og stóð fyrir söfnun meðal Kópavogsbúa til að fjár- magna gerð þeirra. Hún stóð fyr- ir byggingu sundlaugar á Rúts- túni, sem teiknuð var af Högnu Sigurðardóttur. Þau hjónin Hulda og Finnbogi Rútur höfðu áður gefið Kópavogskaupstað túnið til að þar yrði skemmti- garður. Huldu var sýndur margs konar heiður fyrir störf að fé- lags- og framfaramálum í Kópa- vogi. Þau hjónin voru kjörnir fyrstu heiðursborgarar Kópa- vogs 8. október 1976. Hún var heiðursfélagi í Kvenfélagi Kópa- vogs. Hún var sæmd riddara- krossi Hinnar íslensku fálkaorðu 1994. Hulda bjó að Marbakka til dauðadags. Utför Huldu Jakobsdóttur fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Hann var gáfaður ungur maður, ljúfur í skapi og ótrúlega fróður um flesta hluti, enda vel lesinn og dó langt fyrir aldur fram. Ég held, að enginn nema sá, sem reynt hefur, geti sett sig í spor for- eldra, sem standa andspænis alvar- lega sjúku barni sinu og skiptir þá ekki máli hver sjúkdómurinn er. A þessum áram voru ekki til þau lyf, sem nú halda geðsjúkdómum í skefjum. Þau reyndu allt, sem hægt var til að hjálpa syni sínum, bæði hér heima og erlendis en fengu ekk- ert við ráðið. Aratug síðar var engu líkara en örlögin hyggju í knérann. A þeim árum kynntist ég því hver Hulda Jakobsdóttir var. Hún stóð allt af sér, hversu hart sem að henni og hennar börnum var vegið. Hún var óhagganleg í hverju sem á gekk. Hún var dul og sagði fátt. En hún var sterkur bakhjarl. Á efri árum mátti betur finna viðkvæmni henn- ar og ljúfmennsku. Hulda lifði það að sjá stóran hóp barnabarna vaxa úr grasi, leita sér menntunar víða um heim og byrja að láta til sín taka á fjölbreytilegu sviði viðskipta- og menningarlífs. Hún studdi þau með ráðum og dáð og sýndi þeim örlæti með margvís- legum hætti. Verka hennar í Kópavogi mun lengi sjá stað en arfleifð hennar mun skila sér bezt í lífi og starfi af- komenda hennar. Styrmir Gunnarsson. I dag verður borin til grafar Hulda Jakobsdóttir heiðursborgari Kópavogsbæjar og íyrrverandi bæj- arstjóri. Hulda var kjörin bæjarstjóri Kópavogs 4. júlí 1957, fyrst ís- lenskra kvenna í slíkt embætti og gegndi hún því til 29. júní 1962. Hulda tók við starfi bæjarstjóra af eiginmanni sínum, Finnboga Rúti Valdimarssyni, en hann tók árið 1957 við bankastjórastöðu í Utvegs- bankanum og síðar sama ár varð hann landskjörinn þingmaður og síðan alþingismaður Reykjanes- kjördæmis árin 1958-63. Hulda var rúmlega hálffimmtug þegar hún tók við bæjarstjórastarf- inu, en hún var fædd og uppalin í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1931 og var síðan eitt ár við nám í Háskóla íslands. 10. maí 1940 flutt- ist hún ásamt eiginmanni sínum, Finnboga R. Valdimarssyni, til Kópavogs. Hún tók virkan þátt í fé- lagslífi og sveitarstjórnarmálum á hreppsárum Kópavogs og fyrstu kaupstaðarárunum, var m.a. for- maður skólanefndar Seltjarnar- hrepps hins forna 1946-55 og hún var formaður fræðsluráðs Kópa- vogskaupstaðar frá 1955 og síðan áfram eftir að hún varð bæjarstjóri til 1962. Hulda var einnig formaður Kvenfélags Kópavogs árin 1952-54. Hún var því gjörkunnug málefnum bæjarins, enda hafði hún unnið mjög mikið að þeim málum með eig- inmanni sínum. Á bæjarstjórnarárum sínum beitti Hulda sér mjög fyrir skóla- og félagsmálum, enda þörfin mjög biýn í þessum efnum, þar sem nem- endafjöldi fór vaxandi og félagslíf og félagsþjónusta var á frumstigi. Hún beitti sér einnig fyrir byggingu félagsheimilis og kirkju, heilsu- verndarstöðvar og sundlaugar, svo eitthvað sé nefnt. Nokkru eftir að Hulda lét af starfi bæjarstjóra var hún bæjar- fulltrúi í Kópavogi kjörtímaþilið 1970-74, kjörin af lista Frjálslyndra og vinstri manna. Hjónin Hulda og Finnbogi voru kjörin fyrstu heiðursborgarar Kópavogskaupstaðar 8. október 1976. Ég sendi fjölskyldu Huldu inni- legar samúðarkveðjur fyrir hönd bæjarstjórnar Kópavogs og bæjar- búa. Með Huldu er genginn einn öflugasti og ástsælasti forystumað- ur Kópavogs fyrr og síðar. F.h. bæjarstjórnar Kópavogsbæj- ar, Sigurður Geirdal bæjarsljdri. Hún var merkasti Kópavogsbú- inn. Mikil heiðurskona. Heiðurs- borgari í Kópavogi frá árinu 1976. Hún lést síðastliðinn laugardag, 87 ára að aldri, og ég kveð hana með mikilli virðingu. Hulda Jakobsdóttir var frum- byggi í Kópavogi og saga hennar er samofin sögu Kópavogs. Hulda átti þátt í að byggja nýjan bæ og hún lifði að sjá litla samfélagið frá frum- byggjaárunum vaxa í 20 þúsund manna nútíma bæjarfélag. Hún hafði sterk áhrif á mótun Kópavogs um langt árabil og Kópavogskii-kj- an, djásn bæjarins og merki, er jafnframt minnisvarði um kraft og baráttuhug þessarar einstöku konu. Ég kynntist henni seint en hafði horft til hennar á þeim árum sem hún gat sér orðstír langt út fyrir Kópavog og vakti aðdáun 17 ára stelpu vestur á fjörðum. Hún varð þá bæjarstjóri í Kópavogi, fyrst kvenna til að gegna slíkri pólitískri áhrifa- og virðingarstöðu. Hulda segir sjálf um þann tíma: „Þetta var skemmtilegt tímabil í lífi mínu. Ég var á besta aldri, 46 ára gömul. Börnin voru farin að stálpast, hið yngsta var níu ára en það elsta hafði lokið stúdentsprófi, svo það var auð- veldara fyrir mig að vinna utan heimilisins en áður.“ Það má lesa mikið út úr þessum orðum. Hulda hafði frá öndverðu tekið fullan þátt í pólitísku starfi í Kópavogi. Sam- hliða því að reka heimili, sem auk þess að vera athvarf fimm barna hennar var jafnframt hreppsskrif- stofan og fundarstaðurinn, var hún stoð og stytta eiginmanns síns, Finnboga Rúts Valdimarssonar. Hún tók þátt í stofnun Framfarafé- lagsins Kópavogur 1945, var um árabil í skólanefnd og vann að upp- byggingu skólamála í ört vaxandi sveitarfélagi. Hún sagði síðar um þau ár að bygging Kópavogsskóla hefði verið merkasti viðburðurinn sem gerðist í skólamálum. Hulda var menntuð kona. Hún lauk stúdentsprófi 1931 og hóf há- skólanám sem lauk við fráfall föður hennar sem fórst með Skúla fógeta. Hún var mikill jafnréttissinni og ákefð hennar að ganga menntaveg- inn hefur eflaust mótast af því. I endurminningum sínum birtir hún grein sem mig langar að grípa niður í: „Það er að vísu rétt að konur taka ekki mikinn þátt í opinberum mál- um og veldur þar auðvitað mestu, að mikill hluti kvenþjóðarinnar er bókstaflega bundinn í báða skó við heimilisannir og barnauppeldi. Á hinn bóginn er ég alveg viss um, að konur fylgjast ekki síður með því sem gerist á opinberum vettvangi heldur en karlmenn, þótt þær geri lítið af því að taka til máls á fund- um, séu kannski ekki mikið fyrir að HULDA DÓRA JAKOBSDÓTTIR láta draga sig í pólitíska dilka. Og það er þó áreiðanlega víst, að í bæj- ar- og sveitarstjórnarmálum fylgj- ast konur vel með og alveg sérstak- lega hér í Kópavogshreppi. Það er áreiðanlega víst, að þær konur sem hafa búið hér svo lengi, að þær muna eftir því, þegar hér var sama sem veglaust, ekkert rafmagn, ekk- ert vatn, ekkert frárennsli, enginn skóli og yfirleitt ekkert það, sem talið er nokkurn veginn mannsæm- andi skilyrði í nútímaþjóðfélagi, þær konur hafa sannarlega fylgst með því sem hér hefur gerst í hags- munamálum íbúanna." I þessum orðum skynjum við lífsviðhorf, um- hverfi og verkefni stjórnmálakon- unnar Huldu Jakobsdóttur. Það var dóttir Huldu, vinkona mín Hulda Finnbogadóttir, sem leiddi okkur saman eftir að pólitískt samstarf okkar Huldu yngri hófst í Kópavogi. Ég dáðist að þessari konu, reisn hennar, visku og styrk. Mér fannst hún bæði sterk og mild, hún hafði gáfuleg augu og alveg sérstakan þokka. Einu sinni fyrir jól þegar við vor- um að koma saman jólablaði AI- þýðublaðs Kópavogs, bað ég Gylfa Gröndal að taka viðtal við Huldu í blaðið. Hann varð ljúflega við þeirri bón og Hulda lét tilleiðast þó hún væri treg í fyrstu. Viðtalið varð auð- vitað mjög gott. Það skemmtilega var þó að Gylfi hélt áfram að ræða við Huldu og jólabókin í Kópavogi næsta ár var viðtalsbókin „Við byggðum nýjan bæ“. Mér þykir vænt um þessa bók og hef leitað á vit minningarbrota úr henni við að setja þessi fátæklegu kveðjuorð á blað. Hulda Jakobsdóttir bjó síðustu misseri á Marbakka hjá dóttur sinni og fjölskyldu hennar. Það var kært með þeim mæðgum og ég veit hve Huldu yngi’i var það mikilvægt að gera móður sinni kleift að vera heima á Marbakka þó veik væri. Hulda mín, ég samhryggist þér og fjölskyldu þinni á þessari kveðju- stund. Þessi október var undarlegur mánuður. Mánuðurinn þegar sterk- ar forystukonur á ólíkum aldri eru kallaðar yfir móðuna miklu. Mér þótti vænt um að kynnast móður þinni og kveð hana í aðdáun og þökk. Rannveig Guðmundsdóttir. Það er margt hægt að skrifa í minningargrein um hana ömmu Huldu. Það væri hægt að fjalla um ættir hennar, æsku og uppvöxt í Reykjavík, um menntun hennar og óvenjulegt lífshlaup. En það munu aðrir gera, svo ég læt það ógert. Ég ætla heldur að rifja upp minningar um hana og hvers virði hún var mér. Ég var svo lánsöm, ásamt Gunn- ari bróður mínum og reyndar fleir- um okkar frændsystkinanna, að fá að alast upp fyrstu árin á Marbakka í litla húsinu við hliðina á afa og ömmu. Það var ekki bara gott vegna þess hve umhverfið þar var skemmtilegt og fræðandi áður en hverfið í kring byggðist upp. Það var ekki síður, og kannski enn frek- ar, gott vegna nálægðar ömmu og afa. Alltaf var amma tilbúin að passa okkur systkinin, hvort sem hún kom yfir til okkar eða við feng- um að gista hjá þeim afa. Alltaf var hún boðin og búin ef einhver varð veikur. Þá kom amma Hulda með malt og banana, söng og kenndi okkur að „skanderast". Og svo var líka auðvelt að sannfæra hana um nauðsyn sjoppuferða, ef hún átti þá ekki til nammi einhvers staðar í fel- um. Þegar við eltumst og þurftum að komast lengri vegalengdir á milli staða var amma fús að keyra okkur, nánast hvenær sem var, og hjálpa okkur á alla lund. Hún amma var falleg og glæsileg kona og góð fyrir- mynd. Það var mikil hvatning fyrir unga stúlku að eiga ömmu, sem hafði tekið stúdentspróf og stefndi á langskólanám, þó hún hafi orðið frá að hverfa vegna erfiðra aðstæðna þegar hún missti föður sinn ung. Það varð til þess, að það hvarflaði aldrei annað að okkur systkinunum en að afla okkur menntunar. Ekki að það væri lagt að okkur, heldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.