Morgunblaðið - 06.11.1998, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 06.11.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 45 £ hitt, að menntun þótti sjálfsagt og eðlilegt mál. Það hvetur líka ungar stúlkur og eflir sjálfsmynd þeirra að eiga ömmu sem finnst ekki ástæða til að taka þátt í vangaveltum um stöðu kvenna og karla eða um hvort kynið sé sterkara, heldur segir: ,A-uðvitað eru konur sterkara kyn- ið. Þær ganga með börnin." Sem finnst heldur ekkert tiltökumál að verða bæjarstjóri fyrst kvenna á ís- landi, og stýra ört vaxandi bæjarfé- lagi, ásamt því að vera með stórt heimili. Sem segir heldur hissa, að- spurð: „Ég hef aldrei haft minni- máttarkennd gagnvart karlmönn- um.“ Slík fyrii-mynd er ómetanleg og oft hefur mér orðið hugsað til þeirra aðstæðna sem amma Hulda bjó við en lét ekki aftra sér frá því að taka að sér vandasöm verkefni og leysa þau vel og samviskusam- lega. Fyrir vikið ávann hún sér djúpa virðingu samferðamanna sinna. • Elsku amma Hulda. Það var gott að eiga þig að, vegna hjálpsemi þinnar, ástúðar og góðlyndis. Það voru forréttindi að fá að kynnast og eiga svo náin samskipti við þig, sem varst um margt svo langt á undan þinni samtíð. Það held ég að hafi gert öllum gott sem reyndu. Astar- þakkir fyrir allt, amma mín. Hvíldu í friði. Elín Smáradóttir. „Fallegasta stúlkan í bænum“. Þannig lýsti föðuramma mín, sem flutti til Reykjavíkur 13 ára að aldri, móðurömmu minni, Huldu Dóru Jakobsdóttur. Hún fæddist 21. október 1911, elsta barn Jakobs Bjarnasonar, vél- stjóra, og Guðrúnar Sesselju Ar- mannsdóttur. Fyrstu bernskuminn- ingar ömmu eru frá 1918, árinu sem hófst með slíkum brunagaddi að síð- an er talað um frostaveturinn mikla; ytri höfnina lagði, spanska veikin herjaði á landsmenn, Island endur- heimti sjálfstæði sitt og Katla gaus. Amma gat dregið upp ótalmyndir af Reykjavík og eru margar þeirra skráðar í ævisögu hennar, Við byggðum nýjan bæ (Gylfi Gröndal, Alm. bókafélagið 1988). Þar minnist hún sunnudaganna í Reykjavík þeg- ar hornaflokkur lék á Austurvelli, fólk spásseraði uppábúið um götuna hennar, Skólavörðustíginn, og hún varð forug upp á kálfa af að hlaupa niður á Hverfisgötu sem í þá daga var tómur aur og leðja. Hún mundi eftir ljósamanninum sem gekk um götur bæjarins og kveikti og slökkti götuljósin, síðasta landpóstinum, einu járnbrautarlestinni sem gengið hefur á Islandi, Skólavörðunni og Steinkudys. Guðrún kenndi börnum sínum að skanderast en þau höfðu mikið gaman af því. Ékki dugði þó að reyna að kveða langömmu í kútinn, því hún var skáldmælt og gat mælt vísur af munni fram þegar svo bar undir. Seinna fékk ég að reyna að ömmu var ekki ólíkt farið. Hún kunni þvílíkt ógrynni af vísum að hún hélt áfram að kveðast á við sjálfa sig þegar aðrir voru löngu hættir. Það er varla nema ár liðið síðan amma, mamma og ég sátum saman og kváðumst á. Amma var þá orðin gleymin en vísunum sínum gleymdi hún ekki og hélt áfram að kveða löngu eftir að ég og jafnvel mamma vorum þagnaðar. Guðrún orti margt til barna sinna en ekki þekki ég ömmu mína í þessari vísu: En hvað Hulda er orðin löt, ótal hefur á sokkum göt, langhelst vill hún liggja flöt og leika eftir eigin hvöt. Amma erfði fleira frá móður sinni, t.d. mikinn áhuga á ættfræði og ósvalandi forvitni. Hún játar það sjálf í ævisögu sinni, þar sem hún segir: „Ég hef sankað að mér tals- vert mörgum ættfræðiritum um dagana, og satt að segja veit ég ekki hvernig ég færi að, ef ég gæti ekki flett upp í þeim til að svala forvitni minni.“ Víst er að allir afkomendur ömmu hafa einhvern tíma heyrt setninguna „og hverra manna er hann?“. Fimmtán ára upplifði hún mesta ævintýi'i æsku sinnar. Hún fékk að fara með föður sínum og bróður í fisksöluferð til Englands á Kveldúlfstogaranum Volpole. Þau hrepptu aftakaveður en Hulda var hvorki sjóhrædd né sjóveik, ólíkt undirritaðri á sömu leið fyrir ekki alls löngu, á miklu stærra skipi. Sama haust settist amma í 3. bekk Menntaskólans í Reykjavík. Henni sóttist námið vel og lauk gagn- fræðaprófi um vorið. Um svipað leyti heyrði hún föður sinn segja að það væri fráleitt að stelpur stund- uðu langskólanám. Hún hætti í skól- anum. En móðir hennar, sem hafði langað til að læra í æsku, hvatti hana eindregið til að halda áfram námi. Hún lauk því stúdentsprófi vorið 1931, ein af sex stelpum og 35 strákum. Að því loknu hóf hún nám í Háskóla íslands, fyrst í frönsku en hugsaði sér að lesa lögfræði seinna. Það átti þó ekki að verða. í apríl 1933 fórust faðir hennar og Gunnar, bróðir hennar, í strandi Skúla fógeta skammt úti fyrir Grindavík. Eftir það fór amma Guð- rún að taka kostgangara til að sjá fjölskyldu sinni farborða og elsta dóttir hennar hóf störf hjá Efna- gerð Reykjavíkur henni til aðstoðar. Haustið 1933 fór að draga til tíðinda í lífi ömmu. Nýi' leigjandi kom í for- stofuherbergið, ungur maður, ný- kominn frá námi í Evrópu og orðinn ritstjóri Alþýðublaðsins. Það var Finnbogi Rútur Valdemarsson. Hann hafði ekki verið þar lengi þeg- ar Einar Magnússon Menntaskóla- kennari og sameiginlegur kunningi Huldu og Rúts, hvíslaði að henni: „Hulda, þú mátt alls ekki verða skotin í honum Finnboga Rúti!“ Hulda virti varnaðarorð Einars að vettugi. Þau hófu búskap og fengu úthlutað landi við Fossvog, þangað sem þau létu flytja kofaskrifli og gerðu úr sumarbústað, með einum dívan og prímus. Þau gáfu honum nafnið Marbakki. Fjórum árum síð- ar, 10. maí 1940, settust þau þar að og bjuggu alla tíð síðan. Éyrstu árin á Marbakka voru ekki auðveld. Þar var hvorki vatn né rafmagn. Þegar þau fluttu voni börnin tvö, Elín og Gunnar. Á Marbakka fæddust svo Guðrún, Sigrún og Hulda. Smám saman bættist við húsakostinn þó efni væru lítil. Amma var samt al- sæl á skikanum sínum. Þar hafði hún nægt land til að sinna áhuga- máli sínu, grænmetisræktun, og ekki leið á löngu þar til við bættust kýr, hænsn og svín. Byggð var ekki mikil í Kópavogi á þessum árum. Fáeinir sumarbústaðir á stangli og nokkur sveitabýli. Vegir voru engir né verslanir og samgöngur með þeim hætti að fara þurfti fótgang- andi upp á Hafnarfjarðarveg og taka vagninn þaðan til Reykjavíkur. Það hafði ekki orðið mannfjölgun á svæðinu í 230 ár. Með_ hernáminu varð breyting þar á. Árið 1945 voru íbúar í Urðar- hreppi, sem þá hét, orðnir 521. Frumbyggjar Kópavogs rákust í sínum málum af miklum dugnaði og einurð. Þeir vildu skóla, vatn og vegi og stofnuðu Framfarafélagið Kópavog í því skyni. Þarmeð hófst þróun sem ekki sér fvrir endann á enn. Hulda lét til sín taka í félags- málum og beitti sér sérstaklega í skólamálum hins nýja hrepps, þá fjögurra barna móðir. Kópavogur varð kaupstaður árið 1955 og Finn- bogi Rútur, sem verið hafði oddviti óslitið frá 1948, var kosinn bæjar- stjóri. Nú var líka stofnað fræðslu- ráð og Hulda kosin formaður þess. Sumarið 1957 lét Rútur svo af starfi sínu og Hulda varð bæjarstjóri - fyrst íslenskra kvenna. Rúmum ára- tug síðar kynntist ég ömmu Huldu. Ég var mikið á Marbakka og hafði þar ómælt frelsi. Ég lék mér í háa grasinu og í fjörunni og bjó til dnillukökur handa ömmu sem hún bragðaði á, mér til mikillar furðu, gleði og skammar. Ég vissi ekki hvað ég átti að halda - hélt hún virkilega að þetta væni kökur eða var hún bara að gera mér til geðs? Okkur samdi oftast ágætlega. Þó vorum við alls ekki sammála um eitt og það var mataræði mitt og vaxtar- lag. Henni fannst ég ósköp ræfilsleg og borða mikið rusl. Til að bæta úr því vildi hún að ég tæki vítamín. Til að komast hjá því þóttist ég ekki geta tekið pillur. Þá lét amma útbúa handa mér sérstaka mixtúru í Kópavogsapóteki og elti mig svo um öll tún þartil ég þorði ekki annað en að hlýða. Amma var sérstök kona og hafði sérstakar skoðanir og svo ákveðnar, að mér datt sjaldan í hug annað en að hún hefði rétt fyrir sér. Henni fannst t.d. mesta óhæfa að bömin í hverfinu væru að leika sér á túni sem var í einkaeign en ekki girt - og rak þau þaðan þegar hún sá til þeirra. Ég snerist stundum íyrir hana, hljóp upp á veg og kallaði til barnanna, jafnaldra minna, að hypja sig burt því þau ættu ekkert í þessu túni. Ég var ekki í miklu upp- áhaldi hjá þessum börnum en það sem skipti meira máli, var að ég var í náðinni hjá ömmu. I huga mínum var amma gríðarlega stór - og er það enn. Hún var með fallegri kon- um sem ég hef kynnst, ótrúlega ákveðin og lét vel að stjórna öðrum, undurblíð og full manngæsku. Hún auglýsti það ekki en í gegnum árin kom hún mörgum til hjálpar sem áttu um sárt að binda eða áttu ekki í önnur hús að venda. Hún flíkaði ekki tilfinningum sínum en af kynn- um okkar veit ég, að hún var ástríðufull í hverju því sem hún tók sér fyrir hendur. Hún tók lífinu af alvöruþunga - það var henni ekki auðvelt en ég held að það hafi ekki verið leiðinlegt. Það voru ekki margar stundir sem Hulda Jakobs- dóttir sat auðum höndum um ævina. Ég skil núna hversu mikils virði það var að alast upp í faðmi slíki'ar konu. Hún var mér og frændsystk- inum mínum ómetanleg fyrirmynd; barðist til mennta, tók mikinn og virkan þátt í stjórnmálum, gegndi fyrst íslenskra kvenna embætti bæjarstjóra, lét sig allt varða, stórt og smátt, bað ekki afsökunar á neinu og síst sjálfri sér og fannst fá- ránlegt að deila um jafnsjálfsagðan hlut og jafnrétti karla og kvenna. Kannski er það þessu óvenjulega andrúmslofti, sem ég ólst upp í, að þakka eða kenna, að ég var orðin 25 ára þegar ég uppgötvaði að kynja- munur er til í íslensku þjóðfélagi. Síðustu árin voru ömmu erfið. Þau voru krefjandi á annan hátt en hún hafði kynnst áður. Ég dáist að þol- inmæðinni, biðlundinni og hugrekk- inu sem hún sýndi á hverjum degi í þau þrjú ár sem hún var meira og minna rúmföst. Auðvitað varð hún stundum pirruð - en hver láir henni það? Ég held ekki að ég gæti gert betur. Fyrir einum og hálfum mánuði vorum við Ómar frændi minn að skoða mynd af ömmu sem hann ætl- aði að hafa með sér til Frakklands. Hún er tekin um það leyti sem hún og afi fluttu á Marbakka. Þetta er andlitsmynd en við vitum að hún gengur með þriðja barn sitt, Guð- rúnu. Hún er falleg og föst fyrir. Allt í einu sá ég að andlit hennar býr í andlitum allra afkomenda hennar. Ég ætla ekki að kveðja ömmu. Hún er kona sem fylgir þeim sem þekktu hana alla tíð. Hanna Styrmisdóttir. Ég er yfirmáta stolt af ömmu. Hulda Dóra Jakobsdóttir, amma mín, var kraftmikil kona sem barð- ist af elju fyrir því sem hún trúði á. Viljastyrkur hennar var mikill, enda fékk hún vilja sínum yfirleitt fram- gengt ef hún ætlaði sér það. Amma vílaði ekki fyrir sér að ryðja braut- ina og hún hefur skilið eftir sig mörg dæmi þess. Hún var líka fal- leg kona og fínleg, bar af hvar sem hún kom. Amma var dökk á brún og brá, sem vakti athygli í Reykjavík á hennar uppvaxtarárum, og ég minn- ist þess að hún talaði stundum um að sér hafi verið strítt á útlitinu þegar hún var ung. Hún lét þó slíkt ekki á sig fá og ég sé hana fyrir mér bera höfuðið hátt er hún gekk um götur bæjarins með sitt franska yf- irbragð. Þegar litið er yfir farinn veg virðist sem hún hafi verið frum- kvöðull í flestu sem hún tók sér fyr- ir hendur. Hún stundaði nám við Menntaskólann, eins og hún kallaði Menntaskólann í Reykjavík, og var ein fárra kvenna þess tíma til að ljúka stúdentsprófi. Námslöngun ömmu var svo mikil að hún vílaði ekki fyrir sér að lesa tvo bekld sam- an utanskóla til að geta útskrifast með jafnöldrum sínum. Hún hafði dregist aftur úr af þeirri einföldu ástæðu að ekki þótti við hæfi að stúlkur stunduðu langskólanám og var hún því tilneydd að hætta. Amma lét þó að lokum allt letjandi tal sem vind um eyru þjóta og kláraði sitt nám með glæsibrag. Hún var mjög stolt af þessu afreki sínu og stefndi alltaf á háskólann í frönskunám eftir stúdentspróf, en örlögin höguðu því þannig að hún varð ástfangin af afa. Eins og oft vill verða komu böm- in eitt af öðru og þá var ekki mikill tími aflögu fyinr nám. Áhugi ömmu á námi slokknaði samt aldrei og hvatti hún okkur barnabörnin óspart til náms. Sjálf hóf hún nám í frönsku við Háskóla Islands eftir að hún hætti að gegna stöðu bæjar- stjóra í Kópavogi árið 1962, rétt eins og hún ætlaði sér alltaf. Amma og afi hófu búskap að Marbakka á sjálfan hernámsdaginn 10. maí árið 1940. Þá fékk amma tækifæri til að sinna einu af áhugamálum sínum, grænmetisrækt. Hún hafði hrifist af heilsu og náttúrulækningum en svo- leiðis grúsk þótti þá meira en lítið undarlegt. Þetta uppátæki hennar ömmu hefur þó líklega hjálpað til við að halda lífinu í fjölskyldu henn- ar á þessum erfiðu tímum enda Kópavogur enn sveit og ekki um auðugan garð að gresja í matarmál- um. Amma var ein af stofnendum Kvenfélags Kópavogs, en tilgangur- inn með því félagi í hennar augum var sá að hvetja konur til samstöðu í baráttunni íyrir jafnrétti kynjanna. Hún lét ekki minnimáttarkennd gagnvart karlaveldinu plaga sig, sem sýnir sig best í því að hún varð fyrst kvenna á íslandi til að gegna embætti bæjarstjóra. í hennar tíð sem bæjarstjóri var grunnurinn lagður að byggingu Kópavogskirkju og það er líklega henni að þakka að í dag er Kópavogskirkja ein falleg- asta kirkja landsins. Amma hafði nefnilega verið á ferðalagi í Frakk- landi og skoðað miðaldadómkirkju í Chartres sem heillaði hana. Steindu gluggar kirkjunnar hrifu hana þó sérstaklega, enda hafði amma mik- inn áhuga á listum. I framhaldinu fékk amma þá hugdettu að svona gluggar gætu notið sín í kirkjunni í Kópavoginum. Hún hét sér því meira að segja að svo skyldi verða. Þeirri ákvörðun varð því ekki hagg- að og hún beitti sér með oddi og egg fyrir þessum steindu gluggum. Hún fékk Gerði Helgadóttur listakonu til liðs við sig, og í dag prýða gluggam- ir hennar Gerðar Kópavogskh'kju. Svona kona var amma og þannig vil ég minnast hennar. Sem dugmik- illar hugsjónakonu sem þó gaf sér alltaf tíma til að hlusta, syngja og kveðast á. Amma er því sú fyrir- mynd sem ég kýs mér í lífinu. Fyr- irmynd um konu sem getur allt sem + Guðrún Ásdfs Hafliðadóttir fæddist í Reykjavík 21. sept- ember 1936. Hún lést 17. október sfðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni 23. októ- ber. Enn fækkar á „bekknum" í Sund- laugunum í Laugardal. Síðust til að kveðja hópinn var frú Ásdís Haf- liðadóttir. Þegar fólk hittist um langt skeið á stað eins og í laugunum, myndast óhjákvæmilega kunningja- og vina- samband manna í milli. Þegar sú ógnarfrétt barst okkur í hópnum, að hún Ásdís okkar hefði greinst með hinn miskunnarlausa meinvætt krabbamein, varð það okkur vinum hennar í laugunum geysilegt áfall. Okkur grunaði ekki að slappleiki hennar síðla sumars væri svo alvar- legs eðlis. Þrátt fyrir nokkuð tíðar fjaiTÍstir á sólríkum dögum, álykt- uðum við, að víruspest væri ástæð- hún ætlar sér. Minninguna um ömmu mun ég varðveita sem mitt leiðarljós í lífinu. Hrafnhildur Huld. Þegar ég sat í stofunni á Mar- bakka á sunnudaginn var eins og ég hyrfi 20 ár aftur í tímann. Ég sá ekki nýju gulu veggina og ljósa sófasettið hennar Huldu frænku heldur gömlu dökkrauðu stólana og brúna borðið sem voru hjá ömmu og afa og fann lyktina af ofninum sem var á bak við grindina. Ég veit ekki hversu marga klukkutíma ég sat í þessari litlu stofu þegar ég var lítil, og las Öldina okkar og þjóðsögur Jóns Árnasonar spjaldanna á milli. Ég sé ömmu við endann á borð- T stofuborðinu í fjölskylduboðum og finn í munninum bragðið af eftir- réttinum hennar: niðursoðnum jarð- arberjum, appelsínum og banönum. Ég sé hana sitja í græna stólnum við gamla útvarpið þar sem hún las alltaf blöðin, heyri hana syngja vögguvísuna sem ég syng núna fyrir drengina mína og finn hitann af höndunum hennar þegar hún nudd- aði mínar þegar mér var kalt. Allt þetta eru myndir af ömmu. En hún er líka konan sem hvatti mig alltaf til að læra, sem verðlaun- aði mig þegar ég var dugleg í skól- anum, sem kenndi mér hversu furðuleg stjórnmálin geta verið þeg- ar ég komst að því bara fimm ára að f. pabbi hafði ekki kosið ömmu sem var í framboði í bæjarstjómarkosn- ingum fyrir frjálslynda og vinstri menn (hvílíkur svikari sem mér fannst pabbi vera), sem leyfði okkur Haraldi að búa ókeypis í litla húsinu á Marbakka þegar við vorum að byrja búskap og vorum að safna okkur fyrir framhaldsnámi og sem gerði mig svo stolta þegar hún gaf mér sálmabókina, sem hún fékk í fermingargjöf frá foreldrum sínum, til að bera á fermingardaginn minn. Við vorum nöfnur. ^ Amrna var mér fyrirmynd. Ég gerði mér ekki grein fyrir hversu sterk fyrirmynd hún var fyrr en fyrir nokkrum árum þegar ég fékk það verkefni í skóla að teikna ættar- tré og skrifa nokkur orð um það fólk sem mest áhrif hefði haft á mig af þeim sem þar voru. Þá sá ég, að allt frá því ég var smástelpa, hafði ég horft á konu sem með krafti, dugnaði og gáfum hafði stjórnað stóru heimili, haldið saman fjöl- skyldu, stjómað bæjarfélagi, sinnt félagsmálum, fylgst með því sem var að gerast í þjóðmálum og heimsmálum - og unnið fullt starf utan heimilis. Og alltaf einhvern- veginn svo róleg og fumlaus. Það reyndist mér erfitt að horfa á þessa sterku konu hverfa smám saman. En ég trúi því að núna sé hún amma mín, sem ég virti og dáð- ist að, sterk og frísk á ný með afa, manninum sem hún elskaði. Hulda Dóra Styrmisdóttir. an, en annað kom í ljós. Það verður tómlegt á bekknum, þegar Ásdís verður ekki til staðar. Áldrei framar mun hún sjást kemba sitt gullna og fagra hár í skini sólar. Ásdís hafði eins og svo margur þurft að bergja á hinum beiska bik- ar sorgarinnar. Ótímabær missir margi'a úr fjölskyldu hennar varð hennar hlutskipti. Ekki var það merkjanlegt, að þessi gi-immu örlög hefðu beygt hina sterku konu. í það minnsta bar hún harm sinn í hljóði, eða hver gat greint hinn minnsta vott um sjálfsmeðaumkun? Ásdís var bæði gáfuð og hjartahlý kona. Tigin og kurteis framkoma prýddi mjög persónu hennar. Við söknum þín öll. Þökk fyrir samveruna. Megi Guð geyma þig og fjölskyldu þína. Við sendum fjölskyldu þinni hlýj- ar samúðarkveðjur. Vinir þínir í laugunum. F.h. hópsins, Oddur H. Þorleifsson. GUÐRÚN ÁSDÍS HAFLIÐADÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.