Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 46

Morgunblaðið - 06.11.1998, Page 46
5» 46 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Skúli Tryggva- son fæddist í Reykjavík 25. mars 1958. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 30. október síðastliðinn. For- eldrar hans eru Tryggvi Sveinsson, stýrimaður, f. 1934, og Þóra Eiríksdótt- ir, hjúkrunarfræð- ingur, f. 1933. -- Systkini Skúla eru Sólrún, kennari, f. 1959, Eiríkur Sveinn, rekstrar- fræðingur, f. 1963, Tryggvi Þór, verkamaður, f. 1965, og Gísli, vélaverkfræðingur, f. 1967. Árið 1979 giftist Skúli Jónínu Magnúsdóttur, Ninný, myndlist- armanni, f. 1955. Þau eignuðust tvo syni, Magnús Ágúst, f. 1981, og Árna Þór, f. 1987. Foreldrar Jónínu eru Magnús K. Jónsson byggingarmeistari, f. 1910, og Unnur H. Lárusdóttir, húsmóð- ir, f. 1916. Systkini Jónínu eru Erla Dórothea, heildsali, f. 1936, d. 1988, Jón Magnús, byggingarmeistari, f. 1942, Ást- þór, ljósmyndari, f. 1953, og Elsa, hárgreiðslumeistari, f. 1957. Skúli lauk námi í vélaverk- fræði frá Háskóla íslands árið Ástkær bróðir okkar er látinn, aðeins fertugur að aldri. Ekki gran- aði okkur fyrir rúmu ári að þessi stóri og sterkbyggði maður yi'ði veginn þetta fijótt. En svona er lífið, ^ enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Skúli var elstur okkar systkina. Við hin litum alla tíð upp til hans. Hann var fljótt mjög ábyrgðarfullur og traustur. Hann hafði ávallt báða fætur ájörðinni. Ekki var hann gamall þegar hann fór í sína fyrstu innkaupaferð fyrir móður okkar og átti þá aðeins að kaupa einn hlut. En hann var með buddu meðferðis sem geymdi gaml- an innkaupamiða. Kom hann því til baka með fullan poka af ýmsum varningi sem hann réð ekki við að bera einn heim. Móðir okkar spurði hann hvernig hann hefði farið að þvi að bera allt þetta heim. Þá svaraði hann mjög kotroskinn að Jón á loft- inu hefði boðið sér far. Hann var sem sagt svo heppinn að hitta ná- granna sinn sem bauð honum bílfar heim. Þessi saga af Skúla hefur oft verið sögð í góðu tómi þegar fjöl- skyldan hefur verið saman. Þessi saga lýsir Skúla vel, þó svo að hann hafi verið ungur að árum var alltaf hægt að treysta honum og hann brást aldrei trausti manna. Við systkinin vorum ekki mjög gömul þegar við fóram að vinna okkur inn vasapening með skóla og sumarvinnu. Skúli, sem var einu ári eldri en systir hans, fékk yfirleitt betur launaða vinnu yfir sumartím- ann, eins og gefur að skilja, af því að hann var jú karlmaður. Þótti ; systur hans þetta óréttlátt og impraði á því við Skúla. Það vora engar vöflur á honum og rétti hann að henni 5.000 kr. sem voru miklir peningar í þá daga í augum ung- linga. Þannig gætum við lengi hald- ið áfram þegar við minnumst Skúla. Skúli var ungur þegar hann kynntist konu sinni henni Ninný eins og hún er ávallt kölluð. Hún var fljótt ein af fjölskyldunni og í miklu uppáhaldi hjá foreldrum okk- ar sem fannst þau hafa eignast aðra dóttur. Ninný og Skúli voru mjög sam- hent hjón og báru mikla virðingu hvort fyrir öðra. Þau eignuðust tvo yndislega drengi, Magnús Ágúst og Áma Þór sem nú syrgja föður sinn sárt. Ninný hefur staðið sem klettur við hlið Skúla í erfiðum veikindum hans og hafa allir dáðst að sem til þekkja. ■ Skúli bar tilfinningar sínar aldrei á torg og ef hann var spurður 1982. Hann fór í framhaldsnám til Danmerkur og lauk rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Hojskole 1984. Þegar námi lauk hóf Skúli störf hjá dönsku fyrir- tæki Haldor Topsoe í Lyngby og starf- aði þar í eitt ár. Næstu tvö ár starf- aði hann hjá danska stórfyrirtækinu Brúel og Kjær í Nærum. Samhliða þessari vinnu 1984-1987 stund- aði Skúli nám við Handels- hojskolen í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan sem hag- fræðingur. Árið 1987 komu Skúli, Jónína og drengirnir heim og settust að í Kópavogi, þar sem þau bjuggu til ársins 1994, síðan hafa þau búið í Garðabæ. Skúli starfaði í rúmt ár hjá Ráðgarði í Reykjavík eftir heimkomuna. Árið 1989 hóf Skúli störf hjá Plastprenti, fyrst sem forstöðumaður fjármála- sviðs og síðan sem framleiðslu- stjóri. Útför Skúla fer fram frá Bú- staðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. hvernig hann hefði það kvartaði hann aldrei og gerði lítið úr erfið- leikum sínum. Með þessum orðum langar okkur að þakka Skúla samfylgdina í gegn- um árin, við hefðum viljað njóta hans miklu lengur. Elsku mamma og pabbi, Ninný, Magnús Ágúst og Árni Þór, við minnumst góðs drengs. Lífið heldur áfram en við eigum alltaf minning- una um Skúla okkar. Að lokum viljum við þakka starfs- fólki á deild A7 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fyrir góða umönnun og hlýju í gegnum erfið veikindi hans sem og Eiríki Jónssyni lækni, æskuvini Skúla. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Sólrún, Eiríkur Sveinn, Tryggvi Þór, Gísli og fjölskyldur þeirra. Jesús segir; „Ég er Alfa og Omega, segir Drottinn Guð, Hann sem er og var og kemur, Hinn al- valdi.“ (Opb. Jóh. 1:8.) Þetta er þau fyrstu orð sem komu upp í huga okkar við fráfall Skúla. Eftir rúmlega eins árs hetjulega baráttu við þennan skæða sjúkdóm, krabbamein, hefur Skúli loks þurft að láta undan. Skúli var ákaflega duglegur og metnaðarfullur maður. Er kannski nærtækasta dæmið það að þegar hann lauk mastersprófi í rekstrarverkfræði í Danmörku þá stóð hann sig með miklum sóma. Skúli var lika alltaf fús til að hjálpa okkur með lærdóm. Ég man sér- staklega eftir einu dæmi í eðlisfræði sem ég vildi sjá lausn á, en kennar- inn hafði ekki getað leyst það, það gerði hins vegar Skúli. Einnig þeg- ar ég var tólf ára þá fékk ég í fyrsta sinn að keyra bíl, bjölluna hans Skúla, sem var hans fyrsti bíll. Við þökkum þér líka fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Eftir að ég bað fyrir þér síðasta kvöldið sem þú lifðir, kvaddir þú mig með þessum orðum: „Við sjá- umst.“ Ég veit að það er á Himnum þar sem við sjáumst aftur. Elsku Ninný, Magnús Ágúst, Árni Þór, mamma og pabbi, þið haf- ið verið mjög dugleg í þessari bar- áttu. En við munum halda áfram að biðja fyrir ykkur. Við biðjum að al- góður Guð varðveiti ykkur og veri með ykkur þessa erfiðu tíma. Við viljum líka reyna að gefa ykkur all- an þann kærleika sem Guð hefur gefið okkur. Það er svo mikilvægt að við stöndum saman. Eða eins og stendur í sálminum: „Við verðum að játa okkar veikleika, láta verndast af hvers annars kærleika." „Óttast þú eigi, því að ég er með þér. Lát eigj hugfallast, því að ég er þinn Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég styð þig með hægri hendi réttlætis míns.“ (Jes. 41:10) Eiríkur Sveinn, Steinunn, Davíð Örn og Guðfinna. Elsku Skúli minn. Mig langar að kveðja þig með nokkram orðum, þótt aldrei hefði mig grunað að það yrði á þennan hátt. Það er svo margt sem ég hef að þakka þér. Þú varst fyrsta barnabarn foreldra minna og mikið var gaman að fá frænda í fjölskyld- una. Þá bjuggum við í Vestmanna- eyjum, en nú eru liðin rúm fjörutíu ár frá fæðingu þinni. Við fylgdumst spennt með þroska þínum, myndir og bréf gengu á milli, einnig fengum við þig stundum í heimsókn. Sumarið 1972 komst þú til Eyja að vinna í fiski og varst þá hjá ömmu þinni og mér. I janúar 1973 fór að gjósa í Vestmannaeyjum, þá fluttumst við til Reykjavíkur. Ég og amma þín bjuggum í eitt ár hjá for- eldrum þínum, sem eru bróðir minn og mágkona, þá varst þú í gagn- fræðaskóla. Allt gekk svo vel hjá þér og þegar þú varst í Háskólanum stofnaðir þú heimili og giftist yndis- legri konu^ sem mér þykir mjög vænt um. Árið 1981 eignuðust þið son, sem fæddist á afmælisdaginn minn. Þá eignaðist ég nafna, Magn- ús Ágúst, og þótti mér mjög vænt um það. Ég hef haft mjög gaman af drengnum og nú er hann orðinn sautján ára. Þegar háskólanáminu lauk var haldið til Danmerkur í framhalds- nám. Nafni minn var þá á öðra ári og dvöldust þið úti í fimm ár. Þú bættir við þig í náminu og vannst fulla vinnu með því. Fjórum sinnum heimsótti ég ykkur í sumarfríinu mínu, og þá var nú aldeilis gaman, alltaf blessað sólskin. Þegar þið komuð heim til íslands aftur hafði annar frændi bæst við, Árni Þór, þá sex mánaða. Gaman var að kynnast honum og urðum við strax góðir vinir. Síðan þið komuð frá Danmörku hef ég verið fasta- gestur á heimili ykkar og á aðfanga- dagskvöld hefur ekkert verið sjálf- sagðara frá ykkar hendi en að ég væri með. Ó, Skúli minn, þið áttuð svo ynd- islegt heimili, allt gekk svo vel og má segja að blómstrað hafi bæði úti sem inni í þessu góða húsi, Hæðar- byggð 24. Húsið er svo skemmti- legt, Ninný með góða vinnustofu og kennsluaðstöðu, allt lék í lyndi. En svo dundu þessi ósköp yfir, þú veiktist og ert búinn að berjast við þessi veikindi á annað ár. Mikið hef- ur þú verið duglegur, gerðir allt til að styrkja þig, en ekkert dugði. Að lokum þakka ég þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Elsku Ninný, Magnús Ágúst, Árni Þór, foreldrar, tengdaforeldrar, systkini og aðrir ættingjar, ég bið góðan Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Hafðu þökk fyrir allt. Þín frænka Ágústa. I dag kveðjum við hinstu kveðju tengdason okkar Skúla Tryggvason. Eftir langa og hetjulega baráttu varð hann að lúta valdi örlaga sinna og hverfa af okkar sjónarsviði, frá þeim, sem hann elskaði og vildi fórna kröftum sínum fyrir, frá hug- sjónum sínum og framtíðardraum- um. En við stöndum eftir á strönd- inni með spurningar, sem enginn svarar. Við skynjum við dánarbeð- inn að bak við helgrímuna er djúp þögn, hyldýpi þagnarinnar. En er það ekki einmitt hér, sem við þurf- um að grípa til trúarinnar? Við dán- arbeð hugsum við fast til þess, sem nú er horfinn sjónum okkar og spyrjum: Hvar er hann nú? Er það ekki einmitt á þessari stundu, sem við trúum að hann sé borinn inn í nýjan heim? Þar bíður ný framtíð, ný störf, ný lífsbraut. En minningu hans geymum við í hjörtum okkar, við öll sem áttum samleið með hon- um og áttum hann að vini. Við minnumst handtaksins þétta og hlýja og öryggiskenndar, sem fylgdi návist hans. Við biðjum Guðs bless- unar foreldram hans og systkinum og öðra venslafólki. En þau þrjú sem mest hafa misst biðjum við almáttugan Guð að vernda og styrkja á þeirri lífsgöngu, sem þau verða nú að ganga ein sam- an, án hans styrka arms. Blessuð sé minning Skúla Tiyggvasonar. Unnur H. Lárusdóttir, Magnús K. Jónsson. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur hið sama, en orðstír deyr aldrei hveim er sér góðan getur. Elsku Skúli svili okkar og mágur er fallinn í valinn fyrir ofureflinu krabbameini. Þessi stóri, myndar- legi og hófsami maður sem við héld- um að ekkert gæti bugað. Við stöndum uppi og skiljum ekki til- ganginn en oft er sagt að þeir deyi ungir sem guðirnii' elska, og við verðum að trúa því. Skúli kom inn í fjölskylduna fyrir tuttugu árum, ungur og feiminn en staðfastur og ákveðinn í sínu námi, hæglátur og prúður. Skúli þráði úti- veru og jeppaferðir, sem áttu hug hans allan. Ófáar ferðirnar fór hann upp í Baldurshaga, sem er uppgræðslu- svæði við Kjalveg, með áburð og fræ til að undirbúa áriega land- græðsluferð Lionsklúbbsins Bald- urs, sem hann var félagi í. Fannst honum gaman að sjá landið gróa á svo ótrúlegan hátt og hvað það gæfi mikið að skila landinu í betra ástandi til komandi kynslóðar, því Skúli unni landi sínu. Þetta ár varð hann að horfa á sumarið hverfa án þess að geta notið útiveru og há- lendisferða. Elsku Ninný, systir okkar og mágkona, hefur staðið við hlið Skúla eins og klettur og við hin stöndum agndofa yfir þeim mikla krafti sem hún býr yfir. Skúli kvartaði aldrei í veikindum sínum og reyndi eftir fremsta magni að láta lífið ganga sinn vana- gang. Skúli var vélaverkfræðingur að mennt og vann hjá Plastprenti við stjórnunarstörf og sótti vinnu eins lengi og hann gat, því samviskusam- ari og duglegri mann er ekki hægt að hugsa sér. Að kvöldi dags er kveikt á öllum stjörnum, og kyrrðin er þeim mild, sem vin sinn tregar, og stundum skýla jöklar jarðarbömum, og jafnvel nóttin lýsir þeim til vegar. I klakabrynju getur moidin munað, að minnstu fræin urðu vaxinn gróður, og sálir dreymt um nýjan ástarunað, um ungan fugl og laufgað skógarrjóður. (Davíð Stef.) Elsku Ninný, Magnús og Árni Þór, hugur okkar er hjá ykkur. Góður Guð styi'ki ykkur og varð- veiti í þessari miklu sorg. Foreldrum Skúla og systkinum vottum við okkar dýpstu samúð. Jón og Ellabogga, Ástþór og Harpa, Einar, Elsa og Pjetur. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Heiðursmaður er genginn. Á tímamótum sem þessum leitar margt á hugann. Minningarnar koma til manns og líða hjá. Guðmundi var gefið glað- vært sinni og jákvæðni sem hafði góð áhrif á alla í kringum hann. Hann hafði áhuga á mönnum og málefnum. Fylgdist vel með. Þjóð- málin voru oft ofarlega í huga hans m.a. íslenskur landbúnaður, ekki síst á umbrotatímum eins og á und- anförnum misserum. SKÚLI TRYGGVASON Hann hafði ákveðnar skoðanir á öllum hlutum og lét þær í ljós, en virti jafnframt skoðanir annan'a. Hann bar ætíð hag afkomenda sinna mjög fyrir brjósti og fylgdist alltaf vel með því hvað þeii' voru að gera og hvað þeir ætluðust fyrir. Virðing hans fyrir mönnum og málleysingum er mér ofarlega í huga. Hann var næmur á það hvemig öðram leið. Hann hafði sterka réttlætis- kennd, var jafnréttissinni. Það er því vel við hæfí að bæði karlar og konur bera hann síðasta spölinn í dag. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ágústa Guðjónsdóttir. Mikið lifandis skelfing getur lífið stundum verið óréttlátt. Að ungur maður í blóma lífsins skuli vera hrif- inn brott frá sínum nánustu aðeins rétt rúmlega fertugur að aldri. Um mitt síðasta ár fór Skúli að kenna sér meins af þeim sjúkdómi er síðan dró hann til dauða, sjúkdómi sem allt of margir íslendingar falla fyrir og er þá ekki spurt um aldur eða á hvern hátt menn hafa lifað lífinu. Skúli var reglumaður og lifði heil- brigðu lífi, þess vegna er fráfall hans manni enn óskiljanlegra, vegir guðs eru órannsakanlegir. Við Skúli vorum systrasynir. Ég er fjórum árum eldri en Skúli, og á milli okkar er bróðir minn, tveimur áram yngri en ég. Þriðja systir mæðra okkar hefur mesta sína ævi búið í Englandi. Samgangur mæðra okkar hefur alla tíð verið mikill. Við Skúli vorum elstu börn þeh'ra og því má segja að við höfum nánast alist upp saman. Mínar fyrstu minn- ingar um Skúla voru þegar mamma var að passa hann, og ég var látinn fylgjast með því þegar hann var sof- andi í vagni sínum, og láta vita þeg- ar hann vaknaði. Mér var því oft á okkar yngri árum falin umsjón með okkur þremur, þar sem ég var elst- ur. Minningarnar eru því margar er hugurinn leitar til baka, hvort sem um var að ræða á heimili foreldra Skúla, fyrst við Hofteig, síðan við Tunguveg í Reykjavík, uns þau fluttust að Hrauntungu í Kópavogi. Eða á heimili foreldra minna á Kársnesbraut í Kópavogi og síðan í Álfheimum í Reykjavík. Það var mikið gæfuspor í lífi Skúla er hann kynntist skólasystur minni úr Langholtsskóla, Jónínu Magnúsdóttur. Þau hófu sambúð, fyrst í Reykjavík, en fóra síðan til náms í Danmörku, og nú síðustu ár- in höfðu þau komið sér fyrir á glæsilegu heimili í Garðabænum. Eftir að ég fluttist norður í land fyr- ir 15 áram var samgangur milli okk- ai' minni. Þó hittumst við alltaf hjá fjölskyldum okkar fyrir sunnan, og Ninný og Skúli komu ævinlega við hjá okkur er þau voru á ferð um Norðurland. Elsku Ninný, Magnús Ágúst og Árni Þór, missir ykkar er mikill. Hugur minn og barna minna er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Guð blessi minninguna um góðan dreng, frænda minn Skúla Tryggva- son. Lúðvík Haraldsson. Elskulegur frændi og vinur er látinn. Eftir stendur hnípin fjöl- skylda og tómarúmið er mikið. Þeg- ar góður drengur er skyndilega hrifinn burt hrannast upp ljúfar minningar, minningar um góðan dreng. Maður missir kjarkinn, veit ekki hvað á að segja, á engin orð. Af hverju ungur maður í blóma lífsins er tekinn burt frá fjölskyldu, nei, enginn fær skilið af hverju. Við minnumst margra góðra stunda, bæði hér heima og eins í Danmörku. Alltaf var gaman að koma og heimsækja ykkur, okkur tekið opnum örmum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.