Morgunblaðið - 06.11.1998, Qupperneq 54
*54 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR
90 ár liðin frá
stofnun Hvolsskóla
Að virkja
mannauð
UM ÞESSAR
niundir er þess minnst
að 90 ár eru liðin frá
stofnun Hvolsskóla á
Hvolsvelli. Sunnudag-
inn 1. nóvember var
haldin hátíð í tilefni
þessara tímamóta þar
sem saga skólans var
rakin í máli, tónum og
myndum. Núverandi
skólastjóri, Unnar Þór
Böðvarsson, rakti upp-
haf skólastarfs en
fyrrverandi nemendur
röktu veru sína og
minningar úr skólan-
um.
Skóli er hornsteinn
hvers héraðs og sú uppeldisstofn-
un, að heimilinu undanskildu, sem
leggur grunninn að velferð og
framtíðaráformum ungs fólks. Þess
vegna ber að hlúa vel að skólastarfi
og er óhætt að segja að það hafí
verið gert í Hvolsskóla í gegnum
árin.
En skóli er meira en hinir dauðu
^.'.lutir sem felast í byggingum, hús-
gögnum og hinum efnislega aðbún-
aði, sem auðvitað skiptir máli, en
það er skólamenningin og skóla-
andinn og árangur námsins sem
eru grundvallaratriði. Þetta kom
mjög vel fram í upprifjun gamalla
nemenda á veru sinni í Hvolsskóla.
Sá sem þessar línur skrifar var svo
lánsamur að vera nemandi skólans
á árunum 1961-1971. Þá stjórnuðu
Birna Frímannsdóttir og Trúmann
Kristiansen skólanum. I þá tíð var
■**aðstaðan í skólanum ekki viðlíka og
nú er en allur skólaandi, skólahagir
og fjölbreytni í námi með ólíkindum
mikil miðað við að hér var um lítinn
landsbyggðarskóla að
ræða. Eg veit að ég
tala fyrir munn margra
þegar minnst er starfa
og hins merka uppeld-
ishlutverks þessara
merku sæmdarhjóna. I
þeirra tíð var Hvols-
skóli gerður að mið- og
gagnfræðaskóla, eins
og slíkar skólastofnanir
voru nefndar á sjöunda
áratugnum. Þetta
leiddi tU samstarfs
sveitarfélaga í Hvol-
hreppi, Fljótshlíðar-
hreppi og Vestur- og
Austur-Landeyja-
hreppi. Þessi samvinna
hefur eflst mjög í gegnum tíðina.
Þessar breytingar á Hvolsskóla
Skóli er hornsteinn
hvers héraðs, segir
ísólfur Gylfí Pálmason,
og sú uppeldisstofnun,
að heimilinu
undanskildu, sem
leggur grunninn að
_______velferð og
framtíðaráformum
ungs fólks.
leiddu til þess að ungt fólk gat
stundað nám eftir fermingu í
heimahögum án þess að þurfa að
fara í heimavistarskóla. Þetta var
auðvitað mikU breyting á sínum
Isólfur
Gylfi Pálmason
Brúðhjón
Allur borðbiinaður Glæsileg gjafavara - Brúðhjdnalistar
VERSLUNIN
Latignvegi 52, s. 562 4244.
Nám fyrir slátrara,
matartækna, matsveina og
í löggiltum iðngreinum:
Bakaraiðn, framreiðslu,
matreiðslu og kjötiðn.
Kennsla hefst í janúar.
Innritun fer fram í skólanum
til 15. nóvember.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá
kl. 8.00 til 12.00 og 13.00 til 15.00
Umsóknum fylgi einkunnir, mynd og afrit af
námssamningi fyrir löggiltu greinarnar.
HÓTEL- OG MATVÆLASKÓHNN
.111, MENNTASKOLINN I KOPAVOGI
v/Digranesveg - 200 Kópavogur,
sími 544 5530, fax 554 3961. Netfang mk@ismennt.is
tíma.
Skólastarf í Hvolsskóla hefur
verið farsælt í gegnum tíðina og
enn búum við vel og margir hafa
þar lagt hönd á plóginn. Nú starfar
eingöngu fagfólk við skólann því
fagkennarar eru í hvei'ri stöðu sem,
því miður, er of fátítt í landsbyggð-
arskólum á Islandi.
Það gladdi okkur sem eigum
böm í Hvolsskóla að sjá útkomu í
samræmdum prófum í fjórða og
sjöunda bekk, sem nú era breytt,
sbr. ný grunnskólalög. Þar kom
fram að útkoman í fjórða bekk var
hin þriðja besta á landsvísu. Ut-
koman í sjöunda bekk var langt yfír
landsmeðaltali. Þetta eru góðar
fréttir þar sem útkoman á sam-
ræmdu prófunum í tíunda bekk á
síðasta ári var óviðunandi. Auðvitað
er oft erfítt að átta sig á meðaltöl-
um og margt sem skekkt getur þá
mynd. Þessar nýju niðurstöður í
fjórða og sjöunda bekk eru vís-
bendingar um að sóknarandi sé í
þessari gömlu menntastofnun sem
okkur gömlum nemendum er svo
kær.
Enn ríkir framsækinn menning-
arandi í Hvolsskóla. I gegnum tíð-
ina hefur verið gott samstarf Tón-
listarskóla Rangæinga og Hvols-
skóla. Um nokkurra ára skeið hefur
verið rekin forskóladeild Tónlistar-
skóla í Hvolsskóla. Þetta er merki-
legt brautryðjandastarf, því auðvit-
að eiga nemendur að njóta góðs
tónlistaruppeldis strax í upphafi
náms í grunnskólanum. A þessum
tímamótum er vert að þakka öllum
þeim er hafa starfað við og stjórnað
starfsemi Hvolsskóla í 90 ára sögu
hans.
Núverandi skólastjóra, kennur-
um, nemendum og starfsfólki er
óskað velfarnaðar og velgengni í
mikilvægu skóla- og uppeldisstarfí
sem hefur mikil áhrif á framtíð og
möguleika unga fólksins og um leið
framtíð byggðar á svæðinu.
Höfundur er alþingismaður.
LIMMIÐAPRENT
Þegarþig vantar límmiða
Skemmuvegi 14,200 Kópavogi. S. 587 0980. Fax 557 4243
IADRIR BETUR!
Tilboð baðherbergissett!
Kr. 25.000,- stgr.
Handlaug á vegg.
Stærð 55 x 43 cm
Ath. öll hreinlætis-
tæki hjá okkur eru
framleidd hjá
sama aðila sem
tryggir sama
litatón á salerni,
salernissetu,
handlaug og
_ . ~ , baðkari.
Salerm með stut i vegg
eða gólf. Hörð seta og
festingar fylgja.
VERSLUN FYRIR AUA I
Fellsmúla
Sími 588 7332
EITT mikilvægasta
úrlausnarefni okkar
Islendinga á komandi
árum er að finna skyn-
samlegar leiðir í nýt-
ingu þeirra miklu auð-
linda sem við eigum og
búum yfir. Hér skiptir
ekki aðeins máli að
fínna jafnvægi milli
stóriðju, virkjana og
náttúrunnar, og
tryggja hagkvæma
nýtingu sjávar, heldur
ekki síður hvaða leiðir
verða farnar í nýtingu
á okkar dýrmætustu
auðlind - mannauðn-
um.
Islendingar og íslensk stjórnvöld
hafa verið upptekin af draumum
um öfluga uppbyggingu stóriðju og
virkjun fallvatnanna. Með stóriðju
*
A sama tíma og
stjórnvöld hafa beint
kröftum sínum að
stóriðju, segir
Þorgerður K.
Gunnarsdóttir, hafa
einstaklingar lyft
Grettistaki við virkjun
mannauðsins.
hefur ætlunin verið að auka fjöl-
breytni atvinnulífsins og skjóta
þannig styrkari stoðum undir efna-
haginn. Ljóst er að þessi stefna
hefur skilað okkur ágætum ár-
angri, þótt vonbrigði hafí fylgt
vegna óraunhæfra væntinga.
Virkjun mannauðsins
En á sama tíma og stjórnvöld
hafa beint kröftum sínum að stór-
iðju hafa einstaklingar lyft
Grettistaki við virkjun mannauðs-
ins. Með framsýni og dugnaði hef-
ur eigendum og stjómendum tek-
Mikið úrval af
fallepm
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Dupló
Tölvutengdir
fjölritarar
fyrir skóla og fyrirtæki.
Pappírsröðunarvélar
Einfalt og hraðvirkt.
Otto B. Arnar ehf.
Ármúla 29, Reykjavxk,
sími 588 4699, fax 588 4696
ist að byggja upp
glæsileg fyrirtæki á
sviði hátækni og hug-
búnaðar. Og með svip-
uðum hætti hefur veg-
ur og mikilvægi ferða-
þjónustunnar aukist
ár frá ári. Þar hafa
stjómvöld ekki komið
beint við sögu, nema
með því að tryggja hér
eðlilegt umhverfi stöð-
ugleikans, enda er það
eitt af hlutverkum
stjómvalda. Með upp-
gangi þessara fyrir-
tækja hafa augu
stjórnmálamanna opn-
ast fyrir því að lífið og
framtíðin snýst ekki aðeins um
fisk, álver og aðra stóriðju heldur
einnig um hugvit, fmmkvæði og
áræði.
I skýrslu sem Samtök iðnaðarins
létu vinna fyrir sig vegna Iðnþings
sem haldið var í febrúar sl. kemur
fram að útflutningur á öðra en
sjávarafurðum verður að aukast
um 78% á næstu 10 ámm til að
fjármagna aukinn innflutning og
hagvöxt. Skýrsluhöfundar benda á
að eftir hálfrar aldar vöxt hafi út-
flutningur íslenskra sjávarafurða
að líkindum náð jafnvægi. Auðvitað
er hægt að deila um hvort og þá
hversu mikið útflutningur sjávaraf-
urða muni aukast á komandi áram.
Rekstur sjávarútvegsfyrirtækja
hefur tekið stórstígum framfórum
og mun sjávarútvegur áfram vera
homsteinn atvinnulífs á Islandi.
En við megum ekki láta þar við
sitja. Markviss stefna í uppbygg-
ingu iðnaðar og þá ekki síst á sviði
hátækni og hugvits er nauðsynleg.
Og sóknarfærin í þjónustu, einkum
ferðaþjónustu, eru til eins og dæm-
in sanna.
Auðug þjóð
Við íslendingar eram auðug þjóð
með landið og auðlindir þess og
hafsins. Skynsamleg nýting þess-
ara auðlinda skiptir mestu um
hvernig tekst til að tryggja góð
lífskjör hér á landi. Fyrir þá sem
era að stíga sín fyrstu skref á að
vera eftirsóknarvert að eiga hér
heima. Sóknarfærin eru alls stað-
ar; í virkjun fallvatna í sátt við um-
hverfi og náttúru, í ferðaþjónustu
sem byggist á fegurð landsins og
hreinleika, í menningu og arfleifð
okkar Islendinga en síðast en ekki
síst í hugviti, frumkvæði og áræði
einstaklinga og samtaka þeirra.
Takist okkur að nýta þessi sóknar-
færi þurfum við ekki að örvænta
um framtíðina.
Höfundur er lögfræðingur og tekur
þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
á Reykjanesi.
Barnaskór
í mörgum gerðum
St. 20-33 j
V. 2.990
SMÁSKÓR
sérverslun með barnaskó,
í bláu húsi v/Fákafen, s. 568 3919
HEFUR ÞÚ KYNNT ÞÉR...
ARBONNE
INTERNATIONAL
Jurtasnyrtivörur
án ilmefna
fyrir húð og hár.
Útsölustaðir um land allt
Þorgerður K.
Gunnarsdóttir