Morgunblaðið - 06.11.1998, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 61
World Press
Photo
að ljúka
LJÓSMYNDASÝNINGUNNI
World Press Photo ‘98 lýkur í
Kringlunni laugardaginn 7. nóvem-
ber en hún er þekktasta samkeppni
í heiminum á sviði fréttaljósmynd-
unar. Sýningin er opin frá kl. 9-20 á
fóstudag og frá kl. 9-18 á laugar-
daginn í báðum álmum en suð-
urálma Kringlunnar er opin öll
kvöld til kl. 23.30.
World Press Photo samkeppnin
hefur verið haldin árlega síðan
1955. Að samkeppninni og sýning-
unni stendur sjóður sem hefur að-
setur í Hollandi. Pessi samkeppni
er langstærsta og þekktasta frétta-
ljósmyndakeppnin sem haldin er.
Að þessu sinni barst í keppnina
36.041 mynd 3.627 ljósmyndara frá
115 löndum.
Verðlaunamyndirnar í World
Press Photo hafa verið sýndar hér á
landi árlega síðan 1984, fyrst í
Listasafni ASÍ en hin síðari ár hef-
ur sýningin verið í Ki-inglunni.
Helstu alþjóðlegu styrktaraðilar
sýningarinnar eru fyi'irtækin
Canon, KLM og Kodak. Að sýning-
unni hér á landi standa Kringlan,
Hans Petersen og Morgunblaðið í
samstarfi við Jóna hf., flutninga-
miðlun.
Ráðstefna um
málefni físk-
vinnslunnar
STARFSFÓLK í fískvinnslu innan
Verkamannasambands Islands efn-
ir til ráðstefnu um málefni físk-
vinnslunnar og fískvinnslufólks í
Kiwanishúsinu Engjateigi 11, 6. og
7. nóvember.
Ráðstefnan hefst í dag, föstudag,
klukkan 15 með setningarávarpi
Bjöms Grétars Sveinssonar, for-
manns VMSÍ. Að því búnu verða
flutt fímm erindi. Pau flytja Arnar
Sigurmundsson, Jón Kjartansson,
Elínbjörg Magnúsdóttir, Kristján
Bragason og Ingólfur Arnason.
Ráðstefnustjóri er Aðalsteinn Bald-
ursson.
Ráðstefnunni verður framhaldið
á laugardag klukkan 10 f.h.
Vetrarstarf
GR hafið
VETRARSTARF Golfklúbbs
Reykjavíkur er að komast í gang.
Púttmót kvenna verða á þriðju-
dagskvöldum að Korpúlfsstöðum í
vetur og karlarnir verða á fímmtu-
dagskvöldum.
I vetur verður hægt að sjá í sjón-
varpi beinar útsendingar frá hinum
ýmsu golfmótum erlendis. Utsend-
ingar þessar munu verða auglýstar
sérstaklega í fréttabréfi. Haldin
verða skemmtikvöld í vetur og verð-
ur eitt í hverjum mánuði.
Gönguhópur verður starfandi í
vetur og mun fyrsta gönguferðin
verða farin laugardaginn 7. nóvem-
ber nk. Gengið verður frá Korpúlfs-
stöðum og verður lagt af stað kl. 11.
Flóamarkaður
í Lionshúsinu
LIONSKLÚBBURINN Engey
heldur árlegan flóamarkað um helg-
ina í Lionsheimilinu við Sóltún 20 í
Reykjavík. Flóamarkaðurinn verð-
ur opinn bæði laugardaginn 7. og
sunnudaginn 8. nóvember frá kl. 14
báða dagana.
A boðstólum verður aðallega
fatnaður, bæði notaður og nýr. All-
ur ágóði af flóamarkaðnum rennur
til líknarmála og má nefna að ágóði
undanfarinna ára hefur m.a. verið
varið til styrktar Rauða kross hús-
inu í Tjarnargötu, Gigtarfélaginu,
Krísuvíkursamtökunum, Blindra-
bókasafninu, heimili fyrir fatlaða.
Skólakeppni
Tónabæjar lýkur
SKÓLAKEPPNI Tónabæjar lýkur
í dag, föstudaginn 6. nóvember, með
körfuboltakeppni og fótboltakeppni.
Um kvöldið verður síðan slegið
upp Skólaballi í Tónabæ þar sem
verðlaunaafhending fer fram og
skólameistarar Tónabæjar 1998
verða krýndir. Hljómsveitimar
Real Flavaz og Oblivion leika fyrir
dansi en breikdansarinn Natasja
frá New York sýnir listir sínar.
Ball fyrir fatlaða
BALL fyrir fatlaða verður haldið í
Árseli laugardagskvöldið 7. nóvem-
ber frá kl. 12-23. Miðaverð er 400
kr.
Gestaplötusnúður og karaóke.
Yfírlýsing
Að gefnu tilefni vill undirritaður
taka fram að frá því að störfum á
fréttastofu Matthildar FM lauk um
mánaðamótin júní/júlí hef ég hvergi
komið nálægt fréttaflutningi
stöðvarinnar.
Ingvi Hrafn Jónsson.
Stykkishólmur
Fundur og sýn-
ing um hitakerfi
HITAVEITA tekur til starfa í
Stykkishólmi á næsta ári. Aður en
íbúar bæjarins geta tengst hitaveit-
unni þurfa þeir að gera mismiklar
ráðstafanir heima fyrir. Mestar
brejúingar og kostnaður er hjá þeim
húseigendum sem eru nú með raf-
magnshitun og er það stór hluti bæj-
arbúa. Pví hefur Stykkishólmsbær í
samvinnu við Lagnafélag íslands
boðað til kynningarfundar um hita-
kerfi í húsum á morgun, laugardag á
Hótelinu í Stykkishólmi.
15 fyrirtæki og stofnanir í
Reykjavík munu kynna vörur sínar
og þjónustu frá kl 10 til 19. í tengsl-
um við sýninguna verður haldinn
fræðslufundur um hitakei-fi í húsum
sem hefst kl 13 á sama stað.
Á fundinum ræðir Kjartan Kjart-
ansson tæknifræðingur um stjórn-
búnað (ofnloka) íyrir hitakerfi í hús-
um. Þórir Guðmundsson verk-
fræðingur fer yfír stjórnbúnað (raf-
stýringar) fyrir hitakerfi í húsum.
Grétar Leifsson verkfræðingur fjall-
ar um lagnaefni fyrir neysluvatn,
ofnhitakerfi og gólfliitakerfí. Sveinn
Áki Sverrisson talar um efnisval
(efni í pípur) og lagnaleiðir (fyrir-
komulag lagna). Gunnar Jóhannes-
son kynnir bæklinginn: Hitamenn-
ing, bætt húshitun, lækkun húshit-
unarkostnaðar. Fundarstjóri verður
Kristján Ottósson, framkvæmda-
stjóri Lagnafélags Islands.
LEIÐRÉTT
12 leikhús
í FRÉTT og umfjöllun í blaðinu á
miðvikudag um mikla aðsókn í leik-
hús voru atvinnuleikhús í Reykjavík
og á Akureyri vantalin um eitt.
Voru þau sögð 11 en eru 12. Er
beðist velvirðingar á þessu.
Requiem ekki í fyrsta sinn
PÁLL Gunnlaugsson formaður
Selkórsins vill koma eftirfarandi
leiðréttingu á framfæri:
í litlu viðtali við mig í Morgun-
blaðinu laugardaginn 31. okt. lét ég
þess getið að sennilega væri Selkór-
inn að flytja Requiem eftir Gabríel
Fauré í fyrsta sinn með stórri
hljómsveit á íslandi. Ég hafði þess-
ar upplýsingar eftir mér merkari
mönnum, en að sjálfsögðu hefur
komið fram síðar að ég hafði ekki
rétt fyrir mér. Söngsveitin Fílharm-
onía söng þetta verk með Sinfóníu-
hljómsveit íslands 14. apríl 1983 í
Háskólabíói. Pá voru einsöngvarar
Elísabet F. Eiríksdóttir og Robert
Becker. Nú kann ýmsum að þykja
þetta ómerkilegt, en hafa skal það
sem sannara reynist. Ég biðst for-
láts á þessari ónákvæmni!
39-53%
lækkun til
31
em
, V
í€Tí.X
Nft
<V%5
7 Landa
Vegna hagstæðra samninga lækkar mínútuverð á símtölum
til nokkurra landa um 1-2 verðflokka.
Þar með verður mun ódýrara að vera í símsambandi við vini
og kunningja í viðkomandi löndum, auk þess sem lækkunin
hefur umtalsverðan sparnað í för með sér fyrir þá sem eru í
viðskiptum við sömu lönd.
Dagtaxti
Krónurámínútu
Gildir frá 08:00 til 19:00
til Evrópulanda
Gildir frá 08.00 til 23:00
til annarra landa
Kvöld- og
NÆTURTAXTI
Krónur á mínútu
Gildir frá 19:00 til 08:00
tilEvrópulanda
Gildir frá 23:00 til 08:00
til annarra landa
73.00
63.OO
Brasilía
Filippseyjar
12©Æ0„
IbSrGG
TS5ÆCL
Singapúr
ÍÖ5ÆO
Suður-Afríka
Suður-Kórea
I2u.úú-
120.00
TC5ÆCL
105.00
Taíland
120.00
103.00,
Taívan
120.00
105.00,
• Gjald fyiir handvirka þjónustu í U5 er kr. 30,00 á mínútu aukalega
í öllum gjaldflokkum, nema í 8. flokki kr. 60,00 á mínútu.
• Viðbótargjald fyrir farsíma er kr. 14,94 á mínútu eða brot úr minútu.
• Svarskref kr. 3,32 er tekið í upphafi hvers simtals.
.'fsúörf. r.yriiöe