Morgunblaðið - 06.11.1998, Síða 63

Morgunblaðið - 06.11.1998, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 63 BREF TIL BLAÐSINS Frá Guðmimdi Rafni Geirdal: NYVERIÐ kynnti nefnd forsætis- ráðhen-a um breytingar á kjör- dæmaskipan og tilhögun kosninga til Alþingis tillögur sínar. Einn möguleikinn sem nefndur var er að gera landið að einu kjördæmi. Sá kostur er hins vegar ekki gerður að megintillögu heldur að skipta Reykjavík upp í tvennt og afgangi landsins í þrennt. Það sem er lofsvert við tillögur þessar er að með þessu er mesta at- kvæðamisvægi sem nú er ríkjandi, einn á móti 3,55, minnkað niður í einn á móti 1,8. Viðurkenna verður að þetta er stórt skref til batnaðar. Þetta er hins vegar ekki nóg. Það er algjörlega óviðunandi að ekki sitji allir við sama borð. A sama máta og allir eru jafnir fyrir lögum, svo skulu allir vera jafnir fyrir kosn- ingalögum. Ef ekki er ti*yggt að algjört jafn- rétti ríki í þessum efnum við næstu kosningar til Alþingis þá er verið að mismuna þegnum þjóðfélagsins eft- ir því hvar þeir búa. Þá er verið að segja að Jón og Jóna á götunni búi á höfuðborgarsvæðinu en séra Jón og frú Jóna búi víða á landsbyggðinni. Allir skulu jafnir fyrir lögum - einnig kosningalögum Ein af helstu réttindum þjóðfé- lagsþegna í lýðræðisríkjum jarðar hefur verið rétturinn til að kjósa yf- ir sig stjórnarherrana. Það hljómar mjög öfugt að þeir sem næst búa Alþingi og þeim þingmönnum sem þar sitja skuli bera skarðan hlut frá borði. Þetta verður að leiðrétta nú þegar. 65. grein Stjórnarskrárinnar seg- ir: „Allir skulu vera jafnir fyrir lög- um og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, tníarbragða, skoðana, þjóðemisuppruna, kynþáttar, litar- háttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðra leyti. Karlar og konur skulu njóta jafns réttar í hvívetna." Svo mikil áhersla hefur verið lögð á ýmis þessara atriða, eins og til að mynda jafnrétti kynja, að stofnað hefur ver- ið sérstakt jafnréttisráð, til er sér- stakur kvennalisti á þingi og fyrir nokkrum árum endurómaði slagorð- ið „sömu laun fýrir sömu vinnu“ af vörum margra kvenna. Það sama á að gilda um búsetu manna. Sömu kosningaréttindi skulu vera fyrir sams konar atkvæði. Það gengur ekki upp að ef kjósandi í Reykjavík krossar við reit, eigi sá kross að gilda meira en þrisvar sinnum minna en ef „afdalabóndi“ á fólks- flóttastöðum eins og Vestfjörðum setur kross við einhvern reit. Það gengur heldur ekki upp að munur- inn sé nærfellt tvöfaldur. Það eiga að vera sjálfsögð mannréttindi þjóð- félagsþegna að allir hafi nákvæm- lega sama vald til að ákveða yfir sig komandi valdaaðila. Eg legg því til að landið sé gert að einu kjördæmi eins og gert er í forsetakosningum. Þau rök hafa komið frá núverandi forsætisráð- heraa að slík tillaga hentaði ekki okkur Islendingum og að hún væri hvergi notuð. Þetta er hvort tveggja rangt segir Vilhjálmur Þorsteinsson hugbúnaðarhönnuður sem nýlega ritaði grein um þetta í Morgunblað- ið. Hann segir m.a.: „Það fyrir- komulag getur hentað fámennri þjóð eins og okkar afar vel eins og áður var rakið.“ Þar er hann að vísa í fyrri orð sín þar sem segir: „Þjóðin á að kjósa þingmenn sína sameigin- lega, til að gæta hagsmuna heildar- innar, en ekki sérhagsmuna á grundvelli búsetu.“ En seinni rök hans eru eftirfarandi: „Þá er það svo að kosið er til þings í Hollandi og ísrael í einu kjördæmi,“. Sé þetta rétt bendir það til að forsætis- ráðheraa okkar hafí farið með rangt mál. Eg hef þá skoðun að þingmenn eigi ekki að ákveða um eigin hags- munamál. Jafnt og dómari er talinn vanhæfur ef hann á sérhagsmuna að gæta og aðrir taka við þá þyrftu aðrir að skera úr um þetta mál. Til- laga mín er að þetta sé lagt undir dóm þjóðarinnar í formi atkvæða- greiðslu. GUÐMUNDUR RAFN GEIRDAL, skólastjóri og félagsfræðingur. Hús Hæstaréttar á haugana? Frá Valdimar Kiistinssyni: FRÁ því hefur verið skýrt I fréttum að til standi að rífa gamla Hæsta- réttarhúsið við Lindargötu vegna fyrirhugaðrar stækkunar Amar- hvols til austurs. Ekki hefur heyrst opinberlega að neinn hafi neitt við þetta að athuga. Þó er húsið hannað af Guðjóni Samúelssyni, sem ásamt Rögnvaldi Olafssyni, var frumkvöð- ull í íslenskri byggingarlist og hafa varla aðrir gert betur á þeim vett- vangi síðan, þótt smekkur hafi eitt- hvað breyst. Nú er haldið í mörg óásjáleg hús í miðborg Reykjavíkur þótt sum þeirra væra betur komin upp í Ár- bæ. Stundum eru rökin þau að ein- hver þekkt persóna hafi litið inn í húsin eða dvalið í þeim um hríð. Hvorki virðist nær hálfrar aldar starfsemi Hæstaréttar né heldur hugverk arkitektsins vega eins þungt. Efalaust er umrætt hús óhentugt til venjulegs skrifstofuhalds, en vilji menn byggja fyrir austan það er hægur vandi að hafa gönguleið á jarðhæð í gegnum gamla dómhúsið yfir í Araarhvol. Húsið sjálft gæti að öðru leyti nýst til fundahalda Gamlar myndir úr mannlífinu fyrir vestan Frá Vestfírska forlaginu: VESTFIRSKA forlagið á Hrafnseyri var stofnað í því markmiði að koma á framfæri hvers konar efni sem snert- ir Vestfirðinginn Jón Sigurðsson. En forlagið gefur einnig út efni um líf og sögu kynslóðanna á Vestfjörðum al- mennt, en þar hefur mannlíf alla tíð verið mjög sérstakt og kannski öðru- vísi en víða annars staðar á landinu. Á þessu sviði er enn verk að vinna, þó margt hafi verið mjög vel gert af ýmsum aðiium sem flokkast undir þjóðlegan fróðleik hér vestra. Sú kynslóð, sem nú hefur dregið bát sinn í naust, hefur til dæmis frá mörgu að segja sem þarf að varð- veita frá glötun iyrir komandi kyn- slóðir, sem munu spyrja spuminga um forfeðuma á sínum tíma. Gamlar ljósmyndir eru oft ómet- anlegar heimildir og segja stundum meira en mörg orð. Við viljum því biðja Morgunblaðið að koma því á framfæri við Vestfirðinga og aðra lesendur, að forlaginu væri mikill akkur í þvi að þeir sem hafa undir höndum gamlar myndir að vestan, vildu koma þeim á framfæri við okkur. I þessum efnum kemur eig- inlega allt til greina. Oft er það svo, að gamlar, jafnvel fágætar ljós- myndir, fara forgörðum við skipti á dánarbúum eða þegar verið er að taka tíl eða breyta í heimahúsum, svo dæmi séu nefnd. Sendið okkur myndirnar frekar en að fleygja þeim! VESTFIRSKA FORLAGIÐ, Hrafnseyiá, Þingeyri. með einn stóran fundarsal og nokkra minni. Um leið mundi draga úr þeirri furðulegu lágkúru stjórnvalda að bjóða til funda uppi á háalofti í gam- alli rúgbrauðsgerð. Vissulega er ís- land kotríki í samfélagi þjóðanna en svona aumt þarf það ekki að vera á 21. öld. Stjórnaraáð íslands hlýtur að hafa nokkrum skyldum að gegna gagnvart höfuðborginni. Næsta verkefni á byggingarsviðinu ætti því að vera framlenging Arnarhvols niður að Sölvhólsgötu. Stjórnar- ráðsskrifstofurnar tækju sig þá mun betur út frá miðbænum, draga mundi úr núverandi bakhússímynd og tveir gaflar hyrfu um leið. Gluggalausu gaflarnir eru reyndar eitt helsta einkenni miðbæjarins. Um miðja öldina kom hingað Breti sem tók strax eftir þessu einkenni og spurði: „Fóruð þið svona illa út úr stríðinu?" Síðan hefur furðulítið breyst, en stríðshrjáðar borgir Evr- ópu hafa flestar risið að fullu úr rústum. VALDIMAR KRISTINSSON, Reynimel 65, Reykjavík. Frábært tilboð á kremum og glæsilegir kaupaukar. Dæmi: Taska og 6 hlutir fylgja þegar keypt er fyrir 4.000 kr. eða meira* (sjá mynd) KYNNING í DAG, föstudag og laugardag. Ráðgjafi frá LANCOME aðstoðar við val á snyrtivörum og gefur góð ráð. SnyrtivöRuveRslunin GLESt&t Álfheimar 74, sími 568 5170 * Gildir ekki með öðrum tilboðum. \)ajolet ítak/qirfyrstaffoífásfatnaður Frábært kynningartilboð Kynning í dag kl. 14-18 I W 13 t.í . 1 j |L Æm Hafahlotiðalþjóðlega r W I V y hágæða viðurkenningu % Grenningarbuxur RIMA APOTCK Langarima 21, sími 577 5300 Qíœsikg utfarvara Dreifingaraðili: JLíÚV tteiídversCun Sími 5B8 611' TILKYNNING UM VIÐAUKA VIÐ UTBOÐ OG SKRANINGARLYSINGU ÍSLENSKAR SJÁVARAFURÐIR HF. Athygli er vakin á viöauka viö útboös- og skráningar- lýsingu vegna hlutafjárútboös íslenskra sjávarafuröa hf. Viöaukinn var sendur meö útboös- og skráningarlýsingu til forkaupsréttarhafa. Líta ber á viðauka þennan sem órjúfanlegan hluta útboðs- og skráningarlýsingarinnar og eru viðtakendur hvattir til aö kynna sér efni hans meö sama hætti og efni útboös- og skráningarlýsingarinnar. Útboðs- og skráningarlýsingin ásamt viðauka má nálgast hjá Vlðskiptastofu Landsbanka fslands hf., Laugavegi 77, 155 Reykjavík og á skrifstofu ísienskra sjávarafurða hf., Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Landsbanki Islands Landsbanki íslands hf.,Viöskiptastofa Laugavegi 77, 155 Reykjavík, síml 560 3100, bréfsími 560 3199, www.landsbanki.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.