Morgunblaðið - 17.11.1998, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 17.11.1998, Qupperneq 3
MORGUNB LAÐIÐ BÆKUR ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 B 3 Sannleikurinn verður að ráða í blekkingunni í NÝJUSTU skáldsögu Fríðu Á. Sigurðardóttur, Maríugluggan- um tekst höfundur m.a. á hendur að lýsa þeim veruleika, sem blas- ir við augum þegar gróin hug- myndakerfi, sem veitt hafa manninum öryggi og aðhald eru hrunin. Fríða segir að ekki sé einu sinni víst að tala megi um veruleika í þessu samhengi því skáldsagnagerð sé þversagnar- kennd í eðli sínu og því sé „veru- leikinn" í skáldsögunni í raun blekking. „Það er ákveðin þver- sögn fólgin í því að skrifa, vegna þess að þú veist að þú ert að skapa blekkingu og lifir og hrær- ist í henni meðan þú ert að búa hana til. Hins vegar verður sann- leikurinn að ráða í blekkingunni og þar kemur til hluttekning les- enda á aðstæðum persóna og þeirra raunum og gleði. Þótt les- endahópurinn knýi mig ekki til skrifta heldur eigin tjáningar- þörf er samt gleðilegt ef bækurn- ar ná til lesenda og viðbrögð þeirra hverju sinni hafa viss áhrif á vinnu mína þegar ég tekst á við nýja bók, þannig að þversögnin í sköpunarferlinu endurspeglast líka þar. -Ein aðalsögupersónan, Hildur er í ákafri leit að hinni sönnu fyr- irmynd Maríu með soninn fyrir kirkjuglugga, sem hún ætlar að vinna og fer ekki auðveldustu leiðina þar sem hún telur sig geta fundið hana í svip gamallar kærustu unnusta síns. Hví leggur hún þessa áþján á sig? „Vegna þess að í allri sköpun felst ákveðin sannleiksleit. Vitan- lega náum við aldrei nema brot- um, en öll sköpun er leit að þeim. Ég held að það sé okkur öllum eðlislægt að leita að einhveiju til að styðjast við í lífinu og skáld- skapurinn er ein leiðin, eða þannig horfir það við mér, bæði sem lesanda og söguhöfundi. -Inn í leit Hildar fléttast svo til- finningaheitt samband Páls, unnusta hennar, við foreldra sína frá æsku til fullorðinsára. „Páll segir frá uppreisn sinni gegn foreldrum sínum þótt þau séu hippar og afar fijálslynd og ég held að það skipti litlu máli hvernig foreldrar ala börn sín upp því það er börnum eðlilegt að taka hugmyndir foreldra sinna til gagnrýnnar athugunar. Það hefur tiðkast í gegnum ald- irnar og þótt ósköp eðlilegt, þótt því fylgi vissulega oft mikill há- vaði og særindi.“ S minningunm finnst mér ég hafa verið umkringdur æstu og hálfóðu fólki alla mína æsku, stanslaus orðaflaumurinn við það að drekkja mér, alls staðar dimmt, og ég fastur í æðandi mannmergð, og einhvers staðar yfir fljúgandi ráð- leysislegar englamyndirnar hennar ömmu. Þessir krakkar eins og strák- bjálfmn með skáldsöguna sína sjá þetta í fjólubláum hillingum, tíma- bilið svo gaasalega athyglisvert, segja þau, svo margt að gerast mað- ur, svoo spennandi! Þau hefðu átt að prófa hvernig það var að hanga hríðskjálfandi af kulda og skelfingu 1 síðpilsum móður sinnar meðan hún stimpaðist argandi við lögregluna. Furðufuglarnir foreldrar mínir, einu skiptin sem mér fannst þau nálgast það að vera normal var þeg- ar þau fóru í skíðaferðir. En jafnvel þær tókst þeim að sveipa blekking- arljóma, gera að einhvers konar himnaríki á jörð, og tókst að hand- leggsbrjóta mig strax í fyrstu ferð- inni. Og eyðileggja að auki um alla framtíð fyrir mér englamyndir. Þau skildu sem sagt þegar ég var ellefu ára. tír Maríuglugganum Nýjar bækur Fríða Á Sigurðar- dóttir. Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson Fólk mikilla örlaga • BROTASAGAer eftir Björn Th. Björnsson. „Anna Sveinsdóttir fæddist árið 1867 og var óskilgetin, hór- bam, eins og slík börn voru nefnd í þá tíð. Hún ólst upp hjá vandalausum en varð seinna saumakona í Reykjavík og í ensku hafnarborginni Hull uns hún fluttist til Vestmannaeyja þar sem hún varð seinna kunn sem Anna í Björgvin. Hún þótti ekki mjög kvenleg, reytandi lundann milli þess sem hún rúllaði sér sígarettur og púaði, og hún varð minnisstæð öllum þeim Eyjapeyjum sem horfðu stóreygir á þessa miklu og úfnu konu.“ Einn þeirra var Björn Th. Björnsson, sem hér hefur ski'áð stormasama og viðburðaríka ævi Önnu. Þar styðst hann bæði við rit- aðar og munnlegar heimildir, en eins og í mörgum fyi-ri sögum sín- um leyfir hann sér að skálda í skörðin þar sem þær þrýtur. „Úr dauðum bókstaf kirkjubókanna jafnt sem lifandi frá- sögn afkomenda Önnu fléttar Björn raunsanna mynd af svipsterku fólki og miklum örlög- um“,segir í kynningu. „Hann tengir brot við brot svo úr verður trú- verðug lýsing á mannsævi sem spannar tvær aldir, mestu um- brotatíma íslandssög- unnar.“ Björn Th. Björnsson nam listasögu í Edin- borg. Eftir hann liggur fjöldi bóka um listasögu og aðra sagnfræði en einnig hefur hann unnið fjölmarga þætti um sama efni fyrir útvarp og sjón- vai'p. Hann hefur hlotið marg- víslegar viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. fyrstu verðlaun skáldsagnasamkeppni Mennta- málaráðs 1959, Menningarverð- laun DV og verið tilnefndur til íslensku bókmenntaverðlaun- anna fyrir 1993. Útgefandi er Mál og menn- ing. Brotasaga er 202 bls., unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Kápuna gerði Guðjón Ketilsson. Verð: 3.680 kr. Björn Th. Björnsson BÆKUR Ljóð 7 ÆVIDAGAR eftir Kjartan Árnason. Örlagið. 1998 - 55 bls. HRINGRÁS tilverunnar er mörgum skáldum hugleikið við- fangsefni. í henni er fólgið hald- reipi, regla í heimi sundrungar og áttleysis. Vikan er slík hringi;ás því að ný hefst þá er einni lýkur. í þetta samhengi ber að setja bók Kjartans Árnasonar 7 ævidagar. Hún hverf- ist meira og minna um þessa hring- hugsun. í kvæðinu Nafn mitt dreg- ur skáldið fram ýmsar andstæður tilverunnar, fæðingu og upprisu, bæn og byssu, Krist og Hitler, og samsamar þær sjálfi sínu því að til- veran er hringur og við erum hlekk- ir í henni. Ljóðsjálfið er hringur í hring í hring sporbraut um allt sem er nafn mitt er núll En núll er auðvitað hringur hringa, í senn allt og ekkert. Nafn mitt er núll Fæðing og dauði eru áleitin yrkisefni, ekki síst nálægð dauða. Þrátt fyrir það er ástin á lífinu og jörðinni meginstefið líkt og lesa má út úr kvæðinu Urð- arbrot: „ég elska þig jörð þessvegna / er ég ..." Kjartan hefur gott vald á sterkum miðlum í list sinni,_ ekki síst myndmáli. í kvæðinu Skifting er t. a. m. áhrifasterk mynd af sólarsýn að morgni. Undir liggur einhvers konar heimsendasýn. Skáldið er nývaknað og sól fellur of- an: hinsti geislinn krækir blikandi kló efst í augað og rífur sig niður hornhimnuna skilur eftir sig rispu í miðju auga sem skiftir heiminum í tvennt. Skáldinu er tíðrætt um þann tækni- og neysluheim sem við búum við. Hann er gagnrýninn á tengslin við vélarnar og tilbún- ar þarfirnar. í einu kvæði segir einungis: „Þig vantar eitthvað - / ERUM VIÐ SÍMANN NÚNA! / Tökum kreditkort“. Hvað speglar betur sölu- mennsku tímanna sem við lifum á en slík upplifun í ljóði? Kvæðaheimur Kjartans einkenn- ist af léttleika þrátt fyrir að mörgu leyti alvarleg yrkisefni. Hann hefur auga fyrir hinu kímilega í tilverunni Kjartan Árnason og oft snýr hann kímninni að sjálf- um sér. Kvæðið Haustar að finnst mér ákaflega vel heppnuð athuga- semd um yrkisefni margra skálda og kannski ofnotað ljóðmálið líka: Nú smýgur skáldið í anorakkinn sinn hnébuxumar og þykka sport sokkana, gönguskó setur harðfisklufsu í bakpokann smjörklípu og kakóflösku í ullarsokk minnisblokk og blýant Heldur til skógar að lesa fólnuð blöð af greinum trjánna yrkja litskrúð hrungjamra laufa inní angurblíð ljóð um fegurð og dauða ó þú einsemd - þú hverfula líf! Hikarviðjaðarinn Skógurinn fúllur af skáldum 7 ævidagar er vel heppnuð bók. Byggingin er mai'kviss og mörg ljóðin góð. Það er létt yfir þessari bók þótt tekist sé á við ýmis erfið og knýjandi viðfangsefni. Skafti Þ. Halldórsson Nýjar bækur • BLIKKTROMMAN er eftir Gtinter Grass, í þýðingu Bjarna Jónssonar, leikhúsfræðings. Þetta fyrsta bindi af þremur. Blikktromm- an er saga Óskars sem rifj- ar upp sérkenni- lega og við- burðaríka ævi sína en aðeins þriggja ára ákveður hann að hætta að vaxa. Hann verður vitni að upp- gangi nasismans í Þýskalandi, upp- lifir þýska efnahagsundrið og lend- ir í hringiðu síðari heimsstyrjaldar. í kynningu segir: „Lífssýn Óskars er einstæð, hann stendur utan og ofan við umhverfi sitt og berst við örvæntingu sína og ótta með því að slá blikktrommu ákaft og af mikilli ástríðu í tíma og ótíma. Þessi snjalli og meinfysni dvergur segir sögu sem býr yfir furðulegu seiðmagni og lýsir mannlífi og atburðum frá sjónar- horni sem er engu líkt.“ Gunter Grass er einn af þekkt- ustu núlifandi rithöfundur Þjóð- verja og hafa bækur hans verið þýddar á fjölmörg tungumál. Blikktromman var fyrsta skáld- saga Grass og varð metsölubók í mörgum löndum. Hún er talin eitt af höfuðverkum heimsbókmennt- anna á 20. öld en hefur ekki áður komið út á íslensku. Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bókin 286 bls., prentuð í Odda hf. Wilfried Bullerjahn hannaði kápu en Ragnar Helgi Olafsson útlit. Verð: 4.280 kr. Giinter Grass • ÉG er skínandi sól er eftir Eh'- as Hauk Snorrason. í kynningu segir að hann skrifí og miðli leið- beinanda sínum Dívu. Bókin er um líf hans og leiðir til að lifa kærleiksríkara lífí, í trú á sjálf- an sig, í traustrí gleði og kær- leika. Einnig er kennt að hug- leiða með innra ljósi. „Díva hefur opnað augu mín fyr- ir kærleika og leiðbeinir mér inn á kærleiksríkari vegí lífínu, hún hef- ur fengið mig til að skilja að ég er yndislegur eins og ég er núna.“ Útgefandi er „Elias och inre kállorna“. Bókin er 169 bls., prent- uð í Svíþjóð. Verð: 2.750 kr. Elías Haukur Snorrason • VERTU er ljóðabók eftir Kópa- vogsskáldið Eyvind P. Eiríksson. I bókinni er að finna 36 ljóð í fjórum aðalþátt- um, s.s. rúna- kviðu í þrisvar sinnum átta er- indum, eða þrem ættum hins uppruna- lega rúnastaf- rófs norrænna þjóða, ný Völu- stef. Þá eru þýð- ingar á ljóðum fjögurra af helstu skáldum Filistea og Drúsa. Eyvindur hefur sent frá sér þrjár skáldsögur, nokkrar smásög- ur, Ijóðakver, barna- og unglinga- sögur, þýðingar og leikþætti. í fyrra hlaut hann Bókmenntaverð- laun Halldórs Laxness fyrir skáld- söguna Landið handan fjarskans. Útgefandi er Andblær. I bókinni eru myndskissur eftir Eyjólf Berg og Erp Þórólf. Bókin er prentuð á vistvænan pappír í Isprenti, Isa- fírði og bundin í Flatey, Reykjavík. Hún fæst í helstu bókabúðum og hjá höfundi. Eyvindur P. Éiríksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.